Morgunblaðið - 01.12.1959, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.12.1959, Blaðsíða 20
20 MOnCtlSBLAÐlÐ Þriðjudagur 1. desember 1959 OfiPEM Tveir úlanar (léttvopnaðir ridd arar) að öllum líkindum blind- íuiiir, höfðu lent í áflogum og endalyktin hafði orðið sú, að ann ar þeirra barði hinn í hausinn með riffilskeptinu. Og nú lá þrjót urinn meðvitundarlaus í blóði sínu, með galopinn munninn. — Ekki var vitað, hvort höfuðkúp- an á honum var brotin eða ekki. Herdeildariæknirinn var búinn að fá leyfi og farinn til Wien. Ofurstinn var hvergi finnanleg- ur og aumingja gamli Stein- húbel hafði í örvæntingu sinni sent hraðboða til min, til þess að biðja mig að aðstoða sig við rann sókn á meiðslum mannsins. Ég varð því að bóka framburð sjón- arvotta og senda hraðboða um borgina þvera og endilanga til þess að finna einhvern borgara- legan lækni, í kaffihúsinu eða annars staðar. Nú átti klukkan eftir fimmtán mínútur í átta og ég gekk þess ekki dulinn, að þetta óhapp myndi óhjákvæmi- lega tefja mig í aðrar fimmtán mínútur eða jafnvel hálfa klukku stund. Þurfti nú þessi skratti endilega að koma fyrir í dag, ein mitt þennan dag, þegar ég var boðinn út til miðdegisverðar? Ég leit með sívaxandi áhyggjum á Rambler er merkið, sem hér og þér hentar bezt. Gólf, sem eru áberandi hrein, eru nú gljáfægð með: ílbl K —V 1 glishJ SELF POLISHING ■2-0* Mjög auðvelt í notkun! Ekki nudd, — ekki bog- rast, — endist lengi, — þolir allt! Jafn bjartari gljáa er varla hægt að ímynda sér! Reynið í dag sjálf-bónandi Dri-Brite fljótandi Bón. Fœst allsstaðar úrið mitt. Vonlaust að ég gæti komið í tæka tíð, ef ég þyrfti að hanga hér fimm mínútum leng- ur. En skylduræknin er okkur í blóð borin og verður að sitja í fyrirrúmi fyrir öllum einkamál- um. Ég gat einfaldlega ekki far- ið. Þess vegna gerði ég það eina, sem mér var mögulegt, í þessum bölvuðu kringumstæðum, þ. e. ég sendi þjóninn minn í vagni (sem kostaði mig fjórar krónur) heim til von Kekesfalva, til þess að biðjast afsökunar fyrir mína hönd, ef ég kæmi ekki á tilsett- um tíma, þar sem ég hefði alveg óvænt verið kvaddur til skyldu starfa o. s. frv. Til allrar ham- ingju varð töf mín styttri en ég 'hafði þorað að vona. Ofurstinn birtist nefnilega í eigin mynd ásamt lækni, sem tekizt hafði að grafa einhvers staðar upp og mér tókst að laumast í burtu. En sjaldan er ein báran stök: í dag stóð enginn vagn á Ráðhúss torginu og ég varð að bíða, þar til búið var að síma eftir öku- tæki. Og svo, þegar ég að lokum stóð í stóra anddyrinu heima hjá von Kekesfalva, hékk stóri vísir- inn á veggklukkunni beint nið- ur. Klukkan var nákvæmlega 'hálf niu, í staðinn fyrir átta og ég sá að fatageymslan var þegar orðin yfirfull af frökkum og káp- um. Ég gat líka séð það á hin- um illa dulda undrunarsvip þjónsins að ég hafði komið helzt til seint — óþægilegt, mjög óþægi legt, þegar slíkt kemur fyrir við fyrstu heimsókn manns. Þjónninn, sem nú var með hvíta hanzka, í kjólfötum, með hart skyrtubrjóst og harðan svip, hughreysti mig engu að síð ur með því að segja, að afsök- unarbeiðni mín hefði verið af- hent fyrir hálíri klukkustund og fylgdi mér til veizlusalarins — sem var með fjórum gluggum, rauðum silki-veggtjöldum, log- andi kertum í stórum kristals- stjökum og meira furðuverk skrauts og viðhafnar, en ég hafði áður augum iitið. En, vei mér aumum. Salurinn reyndist ger- samlega mannlaus og innan úr næsta herbergi heyrði ég glað- legt mannamál og glamur í disk- um. Þetta var nú verri sagan, hugsaði ég með mér. — Borð- haldið er þegar byrjað. Jæja, ég herti upp hugann og þegar þjónninn opnaði vængja- hurðina, steig ég inn á þröskuld borðstofunnar, sló saman hælum og hneigði mig virðulega. Allir viðstaddir litu upp. Tíu, tuttugu pör af augum, allt saman undar- leg augu, beindust að hinum síð- búna gesti, sem stóð í dyrunum, hikandi á svipinn og vandræða- legur. Aldraður maður, eflaust húsbóndinn sjálfur, reis óðar úr sæti, flýtti sér að leggja þurrk- una á borðið, kom á móti mér og rétti mér höndina til kveðju. Hann var hreint ekki sá, sem ég hafði ímyndað mér, þessi hr. von Kekesfalva. Minnti að engu leyti á þá mynd, sem ég hafði gert mér af honum, sem sveita- legum óðalsbónda með snúið Magyara-efrivararskegg, kringlu leitum, holdugum og hörunds- rjóðum af hóglífi. Bak við gull- spangargleraugun greindi ég tvö þreytuleg augu. Herðarnar virt- ust örlítið bognar, röddin bar vott um mæði, eins og hann væri þreyttur eftir ákafar. hósta. — Maður hefði einna helzt getað tekið hann fyrir menntamann, ef dærna mátti eftir fíngerða, veiklu lega svipnum og gisna, hvíta hökuskegginu. Hin óvenjulega alúð gamla mannsins var sérlega sannfærandi. „Nei, nei“, flýtti hann sér að segja, þegar ég ætl- aði að fara að afsaka óstundvísi mína. Það var hans að biðjast af- sökunar. Honum var það fullkom lega Ijóst, hversu mörgu var að sinna í hernum og hvað margt gat tafið mann þar og það hafði verið mjög fallegt og hugulsamt af mér, að senda honum sérstök skilaboð. Þau höfðu nú sezt að snæðingi vegna þess eins, að þau vissu ek-ki alveg nákvæmlega hvenær mátti búast við mér. En nú yrði ég tafarlaust að taka mér sæti við borðið. Hann ætlaði svo að kynna mig fyrir hverjum ein- stökum gesti á eftir. En fyrst yrði ég, sagði hann um leið og hann leiddi mig að borðinu, að heilsa upp á dóttur sína. Ung stúlka á tvítugs aldri, fíngerð, föl yfirlitum og veikluleg eins og hann sjálfur, þagnaði í samræð- unum við borðnaut sinn og tvö, a r L ú á “* LADIES AND GENTLEMEN, í|||p HERE IN THE RAINBOW ROOM A RECEPTION IS BEING GIVEN IN HONOR V OF A PISTINGUISHED GROUP OF OUT- 1 , DOOR WRITERS AND PHOTOGRAPHER5 HOW DO VOU DO. A IT’S GREAT TO SEE VOU AGAIN, SUE...THIS IS CHERRy . . PAVIS/ ^ ^ . CHERRY, THIS IS ~ MR. ANP MRS SIPNEY LOCKETT, WHO ARE GOING ON THE TRIP WITH US/, MARK /. I’M GLAP TO MEET VOU, , CHERRV... VOU TWO KNOW BARRV WALL OF COURSE/ Herrar mínir og frúr. Við höldum hér í Regnbogasalnum eamkomu til heiðurs írægum dýralís-rithöfundum og Ijósmynd I me ðokkur í ferðalagið. Gleður urum. Sirrí, þetta eru herra og mig að kynnast ykkur — Mark- frú Sidney Lockett, sem ætla | ús! Það er gaman að sjá þig aft- ur, Súsanna. Þetta er Sirrí Dav- i3. Sæö, Súsanna. Það gleður mig að kynnast þér, Sirrí. Þið þekkið auðvitað Baldur. grá augu litu feimnislega til min. Ég hneigði mig fyrst fyrir henni og svo til hægri og vinstri fyrir hinum gestunum, sem bersýni- lega voru því alls hugar fegnir, að þurfa ekki að leggja frá sér hnifa og gaffla, til að fram- kvæma hin leiðinlegu kurteisis- atriði formlegrar kynningar. Fyrstu tvær eða þrjár mínút- urnar leið mér ekki sem bezt. Þarna var enginn úr hernum, ekki einn einasti liðsforingi, ekki einn einasti kunningi, jafn- ......$pajið yður hlaup fi milli maj-gra verzlana- DÓHlAWL I) ÓIIUM tfWM! - Austurstrseti gUÍItvarpiö I*riðjudagur 1. desember (Fullveldisdagur íslands) 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. —» 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón- leikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 11.00 Guðsþjónusta í kapellu Háskól- - ans (Þórir Kr. Þórðarson prófess or prédikar; Björn Magnússon, prófessor þjónar fyrir altari. Org anleikari: Jón Isleifsson). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 FréttiT og veðurfregnir). 13.30 Ræða (Jónas Haralz) ráðuneytis stjóri). 14.15 Miðdegistónleikar: Islenzk kór- og einsöngslög. 16.00 Veðurfregnir. — Hátíð háskóla- stúdenta (útvarpað úr hátíðasal háskólans. a) Avarp (Arni Grétar Finnsson form. stúdentaráðs). b Tvær stuttar ræður (Sverrir Bergmann, stud. med. og Bjarni Beinteinsson stud. jur). c) Einleikur á píanó (Gísli Magn ússon). d) Ræða (Dr. Broddi Jóhannes- son). e) Svipmyndir úr ævi Jóns Ei- ríkssonar (Kristinn Krist- mundsson stud. mag. tók sam an; Leikfélag stúdenta flytur) f) Karlakór stúdenta syngur, Höskuldur Olafsson stj. 18.00 Islenzk þjóðlög. — 1825 Veður- fregnir. 18.30 Amma segir börnunum sögu. 19.00 Stúdentalög. — 19.30 Tilkynn- ingar. — 20.00 Fréttir. 20.30 Dagskrá Stúdentafélags Reykja- víkur: a) Avarp (Pétur Benediktsson, bankastjóri, form. fél.) b) Ræður (Gísli Halldórsson, verkfræðingur og Jón Pálma- son bóndi á Akri.) c) Skemmtiþáttur (Kristinn Hallsson, Bessi Bjarnason, dr. Páll Isólfsson o. fl..) 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Utvarpssagan: „Sólarhringur" eft ir Stefán Júlíusson; V. lestur (Höfundur les). 22.35 Lög unga fólksins (Kristrún Ey mundsson og Guðrún Svafars- dóttir). 23.30 Isl. danshljómsveitir: Tríó Krist jáns Magnússonar. 24.00 Dagskrárlok. Miðvikudagur 2. desember 8.—10.10 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfeimi. — 8.15 Tónleik- ar. — 8,30 Fréttir. — 8.40 Tón- leikar. — 9.10 veðurfr. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 12.50—14.00 „Við vinnuna": Tónleikar af plötum. 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir og veðurfr.). Í8.25 Veðurfregnir. 18.30 Utvarpssaga barnanna: „Siskó á flækingi" eftir Estrid Ott; X. lest ur (Pétur Sumarliðason kenn- ari). 18.55 Framburðarkennsla í ensku. 19.00 Þingfréttir Tónleikar. 19.30 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Daglegt mál (Arni Böðvarsson cand mag). 20.35 Með ungu fólki (Vilhjálmur Ein arsson). 21.00 Tvísöngur: Rosanna Carteri og Giuseppe di Stefano syngja tvo ástardúetta úr óperunum „Perlu veiðararnir'* eftir Bizet og Faust eftir Gounod. 21.29 Framhaldsleikritið: „Umhverfis jörðina á 80 dögum", gert eftir samnefndri sögu Jules Verne; V. kafli. — Leikstjóri: Flosi Olafs- son. Þýðandi: Þórður Harðarson. Leikendur: Róbert Arnfinnsson* Erlingur Gíslason, Brynja Bene- diktsdóttir, Arni Tryggvason, Baldvin Halldórsson og Eyjólfur Eyvindsson. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 2% 10 Leikhúspistill (Sveinn Einars- son). 22.30 Djassþáttur á vegum Jazzklúbbs Reykjavíkur. 23.10 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.