Morgunblaðið - 01.12.1959, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.12.1959, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 1. desember 1959 MORCVNTtLAÐIÐ 13 Vilhjálmur Ogmundsson bóndi og stærðfræðingur Skilur eina franska bók 1 ISLENZKA stærðfræðifélag- inu er einn ólærður félagi. Óefað eini félaginn á Islandi og kannske þó víðar væri leitað í stærðfræðafélögum sem ekki hefir langskólagöngu að baki. Þessi maður er Vilhjálmur Ög- mundsson bóndi og oddviti að Narfeyri á Skógarströnd. Og þó er það svo að félagar hans viður- kenna og dást að starðfræði- hæfileikum hans. Það hlýtur að vekja undrun manna að bóndi í fámennri og afskekktri sveit skuli vera meðal mestu stærð- fræðinga landsins og leysa þær þrautir sem vekja athygli langt út fyrir landsteina og athuganir þessa manns birtast í víðkunnum tímaritum. En þetta er stað- reynd. Fyrir nokkru er komin út í tímaritinu Nordisk Matematisk Tidskrift ritgerð eftir Vilhjálm sem þegar hefir vakið mikla at- hygli. Stærðfræðiiðkun er Vil- hjálmi ef til vill meira en það sem laxveiðar eru laxveiði- manninum og skákin skák- snillingnum. — Hinar ótrú- legustu gátur glímir þessi hæg- láti bóndi við, hvort sem hann vinnur hin algengu störf síns bú- skapar, liggur á grenjum kaldar nætur uppi á háheiðum jafnvel svo sólarhringum skiptir eða ek- ur jeppnum sínum í þarfir síns heimilis. Stærðfræðin á hug hans. Ég sá í einu dagblaðanna nú á dögunum litla fréttagrein um fyrnefnt afrek Vilhjálms á sviði stærðfræðinnar og mun þessi grein hafa vakið forvitni margra. Ég hitti Vilhjálm vin minn oft. Hann er einn mesti aufúsugestur á mínu heimili, alltaf gaman að ræða við hann. Hann er athug- ull maður og fróður. Mér datt því í hug einn daginn að skreppa upp að Narfeyri, taka þar nokkr- ar myndir og spjalla við Vil- hjálm stundarkorn. Vonaðist til að geta látið Morgunblaðinu í té góða grein um þennan ágæta mann, en þegar Vilhjálmur vissi erindi mitt uxu erfiðleikarnir fyrir mig að ná því fram sem ég vildi. Honum fannst þetta allt svo smávægilegt og varla til frá- sagnar hvað þá meira og varð því að ganga hart eftir. Ég vil nú reyna í stuttu máli að setja niður á blað þetta viðtal okk- ai. Við gengum til stofu eftir að ég hafði með lægni fengið að taka nokkrar myndir og er við vorum setztir hófust viðræðurn- ar: „Það er ekki mikið sem ég get sagt þér“, byrjaði Vilhjálmur og vafasamt að þessi ferð svari kostnaði fyrir þig. „Þú getur þó alltaf sagt mér drög æfi þinnar", byrjar ég, „svo kemur hitt af sjálfu sér.“ „Ég er fæddur í Vifilsdal í Hörðudalshreppi 4. jan. 1897 og voru foreldrar mínir Ögmundur Hjartarson og Málfríður Hans- dóttir og er hún enn á lífi rúm- lega 95 ára. í Verzlunarskólan- um var ég 2 ár þ. e. 1912 til 1914. Og þar með er skólagöngunni lokið.“ „Þú hefur náttúrlega verið mikill stærðfræðingur þegar í skólanum". „Nei, ekki get ég sagt það. Mér gekk ekkert sérstaklega vel þar, í það minnsta tók ég ekki hæsta prófið þar.“ „Hvenær fór svo hugur þinn að beinast að stærðfræðinni sér- staklega?" „Það var eftir 1916, en þó er eitt atvik sem ég man sér- staklega eftir úr bernsku. Far- kennarinn 1 sveitinni fór einu sinni að spyrja mig um hvað mikið væri til samans 1 og 2 og ég man eftir því að mér fannst mér misboðið með slíkri spurningu. Ég fór víst að hug- leiða meira ýmsar stærðir og spyrja út úr reikningi þegar ég gat því við komið o'g hafði strax áhuga fyrir að skilja tölur, en eins og ég sagði áðan mun áhugi minn verulega hafa vaknað um 19 ára aldur. Sótti þetta mjög á Vilhjálmur Ögmundsson víðu rúmi, án þess ao ég hefði þá hugmynd um það að ég var þá þar að fjalla um hina svo- kölluðu kvarterniona Hamiltons. Þetta vissi ég ekki fyrr en 1945. Ég las öllum stundum sem ég komst yfir ýms stærðfræðirit og var oft erfitt að afla þeirra. Ég pantaði bækur eftir því sem ég hafði þekkingu á og nú á ég talsvert safn stærðfræðirita, þó það sé lítið í samanburði við ýmsa aðra. En úr því að ég minn- tapað, því þarna eignaðist ég marga góða vini og svo það sem sterkast var að ég gat skipzt á skoðunum við þá.“ „Þetta get ég vel skilið“, gríp ég inn í. „Þeir hafa tekið betur eftir heldur en ég þegar þú ert að þylja þetta yfir mér, því það fer allt fyrir ofan og neðan garð hjá mér sem von er, enda ekki á sömu bylgjulengd hvað þetta áhrærir". „Ég hefi verið félagi þarna síðan og notið þess vel. Það er bara verst að maður gerist nú of gamall og svo seint sem mað- ur kemst í svona góðan félags- skap. Það væri gaman að vera yngri og geta prjónað upp að nýju, en svo ég haldi áfram. Ég fór að festa á blað þessar for- múlur. Nokkru síðar kynntist ég Bjarna Jónssyni frá Geitabergi, nú prófessor í Ameríku, en hann var þá kennari hér við háskól- ann í fjarveru Leifs Ásgeirsson- ar, prófessors, sem dvaldi þá er- lendis. Þá hafði ég að mestu lokið ritgerðinni og tók Bjarni hana með sér þegar hann fór af landi burt, skrifaði hana fyrir mig á ensku og vakti athygli mína á því, sem áfátt var við hana svo ég gat bætt hana mjög og fyrir tilstuðlan Bjarna og áhuga er nú þessi ritgerð komin út í Nerdisk Matematisk Tid- skrift“. „Hvað viltu að öðru leyti segja um ritgerðina. Er hún ekki mikið afrek á sínu sviði?“ „Ég skal ekkert um það segja, tel það varla. En um það verður neilann. Man ég að ég hafði þá alltaf blað og blýant í vasanum þegar ég þurfti að fara í smala- ferðir og annað og oft var staldr- að við og punktað niður þegar eitthvað kom upp í hugann.“ „Skrifaðirðu þá nokkrar niður- stöður?“ „Ég veit ekki hvað segja skal. Ýmislegt var skrifað upp, en fyrsta verulega ritgerðin mín var um logaritma. Það mun hafa verið um 1919. Þessa smíð sýndi ég Ólafi Dan. en ekki man ég hvað hann sagði um hana, en ritgerð þessa á ég enn í fórum mínum.“ „Kom hún ekki fyrir almenn- ingssjónir?" „Nei, en viðtökur Ólafs hafa þó örfað mig, því ég hélt áfram að brjóta heilann um stærð- fræðilega hluti og er þessi rit- gerð sem þú minntist á í upp- nafi m. a. árangur af heilabrot- unum.1' „Um hvað fjallar hún?“ „Hún er um margföldun stærða í n víðu rúmi.“ Þetta er nú eins og latína fyrir mér, segi ég, þó hún sé góð fyrir þig. En viltu segja mér nánar frá tildrögum þessarar smíðar og hvernig stærðfræðiiðkunin hefir þróazt hjá þér.“ „Þegar ég fór að hugleiða þessa hluti að verulegu leyti um 1920 þekkti ég að sjálfsögðu venjulegar komplexstærðir, en mér fór þá að koma til hugar hvort ekki væru svipaðar reglur um stærðir í fleiri dimissjónum. Ég komst þá að þeirri niðurstöðu að hægt var að mynda marg- földunarreglur um stærðir í fjór- Séð heim að Narfeyri ist á stærðfræðirit hef ég gaman^ að geta þess að sú bók sem ég las einna fyrst í stærðfræði og efldi áhuga minn var frönsk og hana á eg enn. Hér er hún, sjáðu til, hún heitir Traite de Trigono- métré. Ég náði henni á fornsölu og er hún útgefin í París 1857“. „Gaztu þá lesið þér hana að gagni?" „Einhvern veginn staulaðist ég fram úr henni. Ég lærði örlítið í frönsku hjá Þóru Friðriksson, minnir um 20 tíma, það var allt um sumt, það hjálpaði og for- múlurnar gat ég lesið. Þetta er raunverulega eina bókin sem ég skil í frönsku." „Hvenær samdir þú þessa rit- gerð, sem kom út í tímaritinu á þessu ári?“ „Ég byrja fyrstu drög hennar veturinn 1952—1953. En að hún er nú komin út og að ég hefi unnið hana, þakka ég félögum mínum í íslenzka stærðfræðafél. Örvanir þeirra lyftu undir mig“. „íslenzka stærðfræðafélaginu?" „Já, ég er félagi í því. Mér var boðin þátttaka 1952. Ég fékk bréf sem ég geymi og geymi vel, und- irritað af tveim Guðmundum, þeim Guðm. Arnlaugssyni og K. Guðm. Guðmundssyni. Stærð- fræðafélagið var stofnað 1947, en til drög þess að mér var boðin þátttaka var sú að á einum fundi í félaginu flutti Brynjólfur Stefánsson útdrátt úr stærðfræði- ritgerð er ég hafði samið og sýnt honum og hafði þessi upplestur Brynjólfs þau áhrif að ég var boðinn í félagið og tók ég því með þökkum. Það kom líka fljótt á daginn að á því hafði ég ekki auðvitað dæmt af öðrum en mér. En það skal tekið fram að í þess- ari ritgerð er ekki um neina nýja uppgötvun að ræða, heldur er hér aðeins ein ný sönnun á áður þekktum staðreyndum“. „Ertu með nokkuð nýtt i smíðum?" „Ekkert sérstakt og þó. Verk- efnin eru næg og gaman að glíma við þau, en hvað kemui út úr þeim athugunum sem hug minn grípa nú verður framtíðar- innar. Á þtessu stigi málsins gei ég ekkert um þetta sagt.“ „Þér þykir gaman að fást við þessar þrautir, er ekki svo?“ „Hvort það er. Annars væri maður ekki að þessu. Það el alltaf gaman að glíma við það torráðna og maður talar nú ekkl um ef árangurinn verður manni til ánægju". „Já, ég vona að þú eigir eftii að leysa margar þrautir enn til gagns fyrir framtíðina. En hef- irðu nckkuð upp úr þessu?“ „Ánægjuna auðvitað og svo hefi ég fengið nokkra viðurkenn- ingu hjá íslenzka ríkinu, sem ég er þakklátur fyrir.“ „Þú hefir fengizt við margt annað um dagana?" „Ég veit ekki hvort nokkurl vit er að ræða um það. Það ei svo fátæklegt." „Hvað hefirðu búið lengi?“ „Ég hefi átt heima á Narfeyrl síðan 1930. Það er ágæt jörð.“ „Áður en ég hverf frá að ræða um stærðfræðina vil ég minnast á eitt. Ég hefi heyrt að stærð- fræðin hafi stundum tekið svo upp hug þinn að þú hafir kannska í miðjum ágætis þurrki farið inn í bæ til að festa niður á blað það sem þér þá kom í hug.“ „Nei, þetta er ábyggilega orð- um aukið, ekki man ég til þess. En hitt er rétt að hugurinn er oft bundinn við þetta efni, og þá verða önnur störf stundum vélræn og því hefi ég orðið fyrir." „En áður en við skiljum og fyrst þú ert farinn að hripa þetta upp, langar mig til að taka fram að ég hefi mörgum að þakka og get ekki nógsamlega þakkað öllum þeim mönnum, sem hafa stutt mig til þessara iðkana, alla þeirra vinsemd og velvild í einu og öðru.“ Þar með var þessu samtali lokið. Svo er hitt annar þáttur, hvað Vilhjálmur hefir verið sveit sinni og væri gaman að rifja upp örlítið brot af því við tækifærL Árni Helgason. Jardboranir í Krísu- vík og á Reykjanesi Þingsálykfunartillaga jbess efnis komin fram TVEIH Þingmenn Sjálfstæð- isflokksins, þeir Matthías Á. Mathiesen, 3. þm. Reykjaness og Alfreð Gíslason, bæjar- fógeti, 8. landskjörinn þing- maður, hafa lagt fram í Sam- einuðu þingi tillögu til þings- ályktunar um jarðboranir í Krýsuvík og á Reykjanesi. Er tillagan á þessa leið: Alþingi áiyktar að fela ríkis- stjórninni að láta fram fara, svo fljótt sem auðið er, ýtaríegar rannsóknir á jarðhitasvæðunum á Reykjanesi með það fyrir aug- um m. a., að þær orkulindir verði hagnýttar til hitavcitu fyrir ná- lægar byggðir. Jafnframt ályktar Alþingi að skora á ríkisstjórnina að lilutast tii um, að Hafnarfjarðarkaupstað verði hið bráðasta veitt afnot af jarðbor ríkisins og Reykjavíkur- bæjar til framhaldsrannsókna í Krýsuvík. I greinargerð segir svo: Sú reynsla, sem þegar hefur fengizt af hinum stórvirka jarð- bor ríkisins og Reykjavíkurbæj- ar, hefur mjög glætt vonir þess fólks, sem býr í næsta nágrenni við jarðhitasvæðin í Krýsuvík og á Reykjanesi, um virkjun jarð- hitans til upphitunar híbýla. í álitsgerðum þeim, sem verk- fræðingar jarðborunardeildar ríkisins hafa látið frá sé fara um nýtingu varmans úr iðrum jarðar, hafa hitaveitur v'erið taldar mjög vel fjárhagslega tryggt fyrir- tæki. Frá þjóðhagslegu sjónarmiði þarf ekki að fjölyrða um gildi hitaveitna, en eins og nú er kom- ið, munu hitaveitur þær, sem stofnað hefur verið til, spara þjóðinni árlega um 28 milljónir króna í erlendum gjaldejrri, en innflutt eldsneyti til upphitunar híbýla mun vera um 85 milljónir króna. Af þessu má sjá, að gjaldeyris- Framh. á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.