Morgunblaðið - 01.12.1959, Page 22
22
MORCUNTtLAÐlÐ
■Þrifiinrtap'iir 1 'iosember 1959
Landsleikir við Þjóð-
verja og íra ákveðnir
Árið 7961 kemur hingað landslið tíollands
Á LAUGARDAG og sunnudag
var haldið ársþing Knattspyrnu-
sambands íslands. Fyrir þinginu
lá ýtarleg skýrsla um störf stjórn
arinnar og umfangsmiklir og vel
unnir reikningar sambandsins.
Fékk skýrslan góðar móttökur
hjá þingheimi og luku margir
fulltrúar upp lofsorði um störf
stjórnarinnar á liðnu ári.
Skýrslan lá fjölrituð frammi og
er um 60 síður að stærð. Verður
ýmissa liða hennar getið síðar,
en einn liðurinn fjallaði um sam-
skipti við útlönd sem fyrir dyr-
um standa.
Er þar svo frá skýrt að á
næsta sumri muni fram fara
landsleikur í Reykjavík milli
áhugamannalandsliðs Þýzka-
lands (Vestur) og landsliðs ís-
lendinga.
Á erlendri grund fer svo
fram annar landsleikur. Verð-
ur hann háður í Dublin á ír-
landi gegn landsliði íra, en þar
er um gagnboð að ræða fyrir
KR vunn ÍR 20:10
í GÆRKVÖLDI fór fram að Há-
logalandi 11 leikkvöld Hand-
knattleiksmótsins. Aðalleikurinn
var milli ÍR og KR. KR-ingar
unnu auðveldan sigur 20 mörk
gegn 10 og standa nú næstir sigri
í keppni meistaraflokks karla.
Eftir er aðeins eitt leikkvöld. Þá
leika KR og Fram. Nægir KR
jafntefli í þeim leik til sigurs í
mótinu — en sigri Fram vinna
þeir mótið.
Úrslit annara leikja í gærkvöldi
urðu í m.fl. karla Fram vann
Ármann 17:6 og Valur vann Þrótt
24:13. í 2. fl. kvenna vann Ár-
mann Víking með 8:5. f 3. fl.
karla fóru leikar svo Valur vann
Fram 10:1 og Ármann KR 8:7.
heimsókn fra hingað haustið
1957.
Einnig hefur komið til mála
að landslið Noregs komi hing-
að í júnibyrjun næsta ár, en
ekkert er um það fastákveðið.
Árið 1961 hefur verið gerð á-
ætlun um landsleik ytra við Vest
ur-Þjóðverja og það sama ár
munu Hollendingar koma og
leika hér á landi.
Um styrkleika þessara landa er
það að segja, að áhugamannalið
Vestur-Þjóðverja, sigraði A-
Þýzkaland í kappleik um það
hvort liðanna skyldi vera „full-
trúi“ Þýzkalands á Olympíuleik-
unum 1960. Fór sá leikur fram
vegna þess að Olympíunefndin
viðurkennir ekki Austur- og
Vestur-Þýzkaland sem tvö lönd
og verða þau í hverju tilfelli að
koma sér saman um hverjir verji
heiður Þýzkalands. Lið Þjóðverja
hefur í undankeppni knattspyrnu
keppninnar unnið Finna tvívegis
en tapað fyrir Pólverjum og er
líklegast talið að Pólverjar vinni
riðilinn og fari í úrslitakeppnina.
Þykir það tíðindum sæta að Þjóð-
verjar tapi þeim riðli. Gefur það
hugmynd um hvert álit þeir hafa
sem áhugaknattspyrnuþjóð í Evr-
ópu.
Lið Hollendinga hefur átt mis-
jafna leiki. En síðasti leikur
þeirra bendir þó ótvírætt til að
þeir verði íslendingum erfiðir.
Þeir unnu Norðmenn nú nýlega
með 7 mörkum gegn einu.
Við ræðum ekki meira um
skýrsluna að sinni. En þing KSÍ
sátu fulltrúar víðast af landinu
og fóru samtals með 63 atkvæði.
Urðu miklar umræður um ein-
stök mál á þinginu t.d. skiptingu
tekna af landsleikjum, tvöfalda
umferð íslandsmótsins og fleira.
í upphafi þings ávarpaði Ben.
G. Waage forseti ÍSÍ þingið, þakk
aði KSÍ vel unnið og öflugt starf
og árnaði þinginu heilla i störf-
um.
Þá kvaddi Atli Steinarsson,
blaðamaður sér hljóðs og afhenti
KSÍ að gjöf innrammaðar frum-
myndir fyrstu símsendu mynd-
anna er til íslands bárust. Sá
sögulegi atburður gerðist í sum-
ar og voru tvær myndir frá lands
leik Dana og íslendinga símsend-
ar til íslands strax að leik lokn-
um og birtust í Morgunblaðinu
um 4 klst eftir að þær voru
teknar.
Björgvin Schram þakkaði gjöf-
ina og kvað KSÍ vel mundu
geyma.
Markvörður Leyton Orient hefur hér nóg að gera. Það vilja
þó ýmsir aðrir komast að og næstir standa fjórir liðsmenn
Charlton. „Fjórir gegn einum“ má segja, en ekkert dugði. —
Myndin er tekin í keppni 2. deildar sl. laugardag. Leyton
sigraði með 2 mörkum gegn engu.
Kvermalandslið íslands í hand
knattleik til Norðurlandamóts
Árið 1964 verður mótið haldið
hér á landi
ÁKVEÐIÐ hefur nú verið að
næsta Norðurlandamót í hand-
knattleik kvenria fari fram í
Vesterás í júnímánuði n. k. Hef-
ur • Handknattleikssamband fs-
lands boðizt að senda lið til móts-
ins og hefur það ákveðið að taka
boðinu, svo fremi að stúlkurnar
sem koma til með að fara, taki
einhvern þátt í fjárhagslegum
undirbúningi fararinnar.
íslenzka kvennalandsliðið í
handknattleik hefur á síðustu ár-
um vakið á sér mikla athygli
fyrir getu sína í leikjum við
önnur Norðurlandalið. Hafa ísl.
stúlkurnar tekið þátt í tveim
Norðurlandamótum. Hið fyrra
var 1955 í Finnlandi, en þá höfn-
uðu íslenzku stúlkurnar í 4. sæti.
— Danir sigruðu, Svíar urðu í
öðru sæti, Norðmenn í þriðja
sæti og Finnland í 5. sæti. Aftur
var haldið Norðurlandamót á sl.
sumri og tóku nú Finnar ekki
þátt í mótinu. Keppnin var afar
hörð. Danir og Svíar voru með
jafnmörg stig í mótslok, en hag-
stæðara markahlutfall færði
Dönum sigurinn. Lið Noregs og
íslands voru og jöfn að stigum
og hafði þó ísland farið með
sigur yfir Noregi. En markahlut-
fall Norðmanna var aðeins hag-
stæðara eftir að norsku stúlkurn-
ar unnu mjög óvænt Svía. Þetta
sýnir hve jöfn Norðurlandaliðin
eru og er ánægjulegt að íslenzka
kvenþjóðin skuli hafa skipað sér
þar í fremstu röð.
HSÍ hefur lagt mikla áherzlu
á að geta tekið þátt í mótinu
m * ' "SPB* * * M
7. Árnabókin
Áður hafa
komið út
þessar
Árna-bækur
í>> Falinn fjársjóður
■ Týnda flugvélin
Flugferðin til Englands
Undraflugvélin
■ip Leitarflugið
Frækilegt sjúkraflug
Hver bók er sjálfstæð
tfl saga, en persónurnar og
að nokkru leyti atburða-
mm. rásin tengja þær þó sam-
an.
• • • ••
Flogið yfir
flœðarmáli
Eftir Ármann Kr.Einarsson
Ármann er tvímælalaust vinsælasti
unglingabókahöfundur hérlendis, og eru
bækur hans jafnframt að ná mikilli út-
breiðslu erlendis. Þessi nýja Árna-bók
skiptist í eftirfarandi kafla:
Ormurinn ógurlegi — Spor í sandinum
Skrítinn bátur — Súkkulaðikarlinn
Týndi pilturinn — I fylgd með Nero og ■■■■■
Hunda-Kobba — Flogið yfir flæðarmáli
» • •'•'• •’•
Eltingaleikur við smyglarana —
Sólin ljómar á ný.
' * •, *.• • •
Halldór Pétursson teiknaði margar •*••••
skemmtilegar myndir í bókina.
Bókin er 192 bls. — Verð kr. 58.00.
Bókaforlag Odds Björnssonar
BÓKAFORLAG
ODDS BJÖRNSSONAR
iisBiiaiiiamiffiBiPiiiiiiiiaiWiiii
næsta sumar, vegna þess að HSÍ
hefur boðizt til að halda mótið
hér á landi 1964.
Búizt er við því að öll Norð-
urlöndm fimm verði með á mót-
inu í Vesterás.
Úrslit körfu-
knuttleiks-
mótsins
Á SUNNUDAGINN lauk Meist-
aramóti Reykjavíkur í körfuknatt
leik. Voru þá síðustu leikirnir
leiknir og verðlaun afhent.
í meistaraflokki karla sigraði
lið Körfuknattleiksfélags Reykja
víkur og hlaut bikar er um var
keppt og titilinn „bezta körfu-
knattleiksfélag Reykjavíkur ’59“.
í meistaraflokki kvenna sigr-
aði lið Ármanns. í 2. flokki karla
sigraði lið ÍR og í 4. flokki karla
sigraði einnig lið ÍR. Eftir er að
útkljá keppnina í 3. flokki. Nú í
mótslok eru þrjú félög jöfn að
stigum, ÍR, Ármann og KR og
verða þau að keppa til úrslita.
Nánar um mótið á morgun.
Piltur kærður
fyrir líkanisárás
á j»ötu
NOKKRU fyrir miðnætti á laug-
ardagskvöldið var maður nokk-
ur á kvöldgöngu niður í miðbæ.
Er hann kom að Reykjavíkur-
apóteki, kom á móti honum hóp-
ur ungra pilta, sem mikil fyrir-
ferð var á. Veit maðurinn þá
ekki fyrr til en að úr þessum
hópi snarast að honum 16—17
ára piltur, sem fyrirvaralaust
slær til hans af miklu afli. Snerti
hendi piltsins andlit mannsins,
sem skrámaðist þó nokkuð.
Lögreglan var kvödd til og tók
hún ungmenmð, sem var undir
áhrifum áfengis. Maðurinn, sem
fyrir árásinni varð, taldi sig ekki
að svo stöddu mundu gera kröf-
ur um bætur. En pilturinn á nú
yfir höfði sér málshöfðun fyrir
líkamsárás. — Hefir maðurinn,
sem fyrir árás piltsins varð, sagt,
að hann óskaði eftir því að pilt-
urinn kæmi til sín og bæði sig
afsökunar á hinni fruntalegu
framkomu sinni.