Morgunblaðið - 12.12.1959, Page 3

Morgunblaðið - 12.12.1959, Page 3
Laugardaeur 12 des. 1959 IfflPfnvDi inif) 3 „Guö, mér brá svo!“ Þegar brunabjöllurnar hljómuSu um skólann, þustu börnin út með miklu írafári — og húsið tæmd ist á tæpum þrem mínútum. — Guð, mér bró svo! sögðu þrjár litlar telpur í kór í Mið- bæjarskóla-portinu í gær. Og vafalaust hefir mörgum skóla- systkinum þeirra orðið hverft við af sömu sökum. En hvað var þá þarna á seyði ★ Klukkan fimmtán mínútur gengin í þrjú ók einn af bíl- um slökkviliðsins inn í skóla- portið, og slökkviliðsmenn tóku þegar að reisa brunastiga sögðu telpurnar að glugga á suðurálmu húss- ins. í sama mund heyrðust hringingar innan úr skólanum — og allur barnaskarinn þusti út með miklu írafári. — Hóp- urinn safnaðist kringum slökkviliðsbílinn — frökkustu strákarnir ruddust fram fyrir og skáblíndu ýmist upp í glugg ann, sem brunastiginn reis við, eða á slökkviliðsmennina með spurn í augum. En þegar strákar sáu ekki, að neitt væri þarna um að vera, spurðu þeir dálítið hissa: „Hvað er þetta — er þetta bara æfing?“ — Og slökkviliðsmennirnir svöruðu játandi — það var bara æfing. Glaðnaði þá yfir andlitum barnanna — en þó var ekki örgrannt um, að ofurlítilla von brigða gætti í svip sumra strákanna, sem áhugasamast- ir höfðu verið. Þeim hefði sennilega þótt meira „spenn- andi“, að þarna hefði verið a. m. k. pínulítill „alvöru-eldur“ — þótt þeir hafi auðvitað ekki viljað láta skólann sinn brenna. — Er upplýst var, að \ engin hætta væri á ferðum, þótti krökkunum þetta sýni- lega góð tilbreyting — en brátt kallaði skólabjallann þau í tíma á ný. ★ Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins og skólastjóra Miðbæjarskólans, var ætlun- in með æfingu þessari fyrst og fremst að reyna, hve fljótt væri unnt að tæma skólann, en kennt var í öllum stofum á umræddum tíma. Skólahúsið var að þessu sinni tæmt á tæpum þrem mínútum, en lít- ils háttar töf varð af því, að brunabjöllukerfið reyndist ekki í fullkomu lagi í tveim tæma skólann á tveim mínút- um. Ætlunin er að hafa slíkar brunaæfingar í fleiri skólum áður en langt líður, en áður en það geti orðið, þarf víða að gera endurþætur og lag- eða þrem stofum. Þegar það hefir verið lagað mun mega færingar á brunaboðakerfinu innanhúss. — Til að byrja með verður farið „hægt“ í slíkar æfingar — til þess að venja börnin við brunakallið, svo að þau verði síður gripin hræðslu, ef raunverulegan eldsvoða bæri að höndum. — Síðar verða æfingarnar svo væntan- lega gerðar „alvarlegri“ — börnum ,,bjargað“ út um glugga o. s. frv. Stefnt oð þjdðnýtingu sem fyrr — segir Gaitskell, foringi Verkamanna- — er „kviknaði" í Miðbæjarskólanum Kona Quasimodo sækir um skilnað Hún grét og sagðist ekki hafa verið boðin til Stokkhólms MILANO, 11. des.: — Frú Maria Quasimodo, eiginkona ítalska rit- höfundarins Salvatore Quasi- modo, sem hlaut bókmennta- verðlaun Nobels í ár, ætlar að reyna að fá skilnað frá manni sínum. Quasimodo tók við bók- menntaverðlaununum í Stokk- hólmi í gær við mikinn hátíðleik. Maria kona hans skýrði frétta- mönnum svo frá í dag, að hún hefði nú fengið sér lögfræðing til aðstoðar. Fyrst sagðist hún ætla að komast að samkomulagi við mann sinn, en ef ekki tækist, ætlaði hún að reyna að fá skiln- að. Sagði Maria, að ágreihingur þeirra hjóna væri einkum út af fjárhagsmálum. k En Maria fór að gráta, þegar hún sagði frá því, að henni hefði ekki borizt boð um að fylgja manni sínum til Stpkkhólms þar sem hann tók á móti verðlaun- unum úr hendi Svíakonungs. En í fylgd með skáldinu voru tveir einkaritarar. 'k ' ’ • Maria sagði jafnframt, að hún hefði gert tilraunir til þess að ræða fjárhagsmálin við Quasi- modo, en hann hefði látið allt sem vind um eyru þjóta, hann væri yfirleitt þögull sem gröfin og létist vera heyrnarlaus, þegar hún yrti á hann. k Litlu munaði að upp úr slitn- aði fyrir tveimur árum, hélt frú- in áfram. Það var er Quasimodo fór í heimsókn til Rússlands. Hún sagðist þó hafa horfið frá að reyna að fá skilnað þá fyrir for- tölur vina sinna, en skilnaður er ólöglegur í Ítalíu. ■— En ég ætlaði að halda þessu leyndu. Við vorum ekki skilin. Ég hélt að enginn vissi hvernig allt var þá í pottinn búið. — Ég hélt að ég fengi síðasta tækifærið til að varðveita tign mína frammi fyrir heiminum, þegar Stokk- hólmsferðin var fyrir höndum. En nú er öllu lokið, sagði Maria Quasimodo. Henni var ekki boðið til Stokkhólms. k Maria stendur á fimmtugu. Áð- ur en hún giftist Quasimodo var hún balletdansari og rekur nú balletskóla, en segist ætla að leggja skólann niður. bví hann sé rekinn með tapi. flokksins brezka BLACKPOOL, 28. nóv. Reuter. Hugh Gaitskell, foringi Verka- mannaflokksins brezka, sagði í ræðu, sem hann hélt í dag á þingi flokksins í Blackpool, að ósigur flokksins í nýafstöðnum kosning. um væri „alvarlegur atburður" — þetta væri þriðji ósigurinn í röð og fjórðu kosningarnar sem flokkurinn tapaði þingsætum. — ★ — Gaitshell sagði að flokkurinn yrði að gera það lýðum ljóst, að hann væri ekki horfinn frá þjóð- nýtingarstefnunni þó að það væri ekki takmark hans, að ríkið ætti öll atvinnu- og framleiðslufyrir- tæki. Við munum vissulega vinna að því að koma á þjóðnýtingu á fleiri sviðum en nú er, eftir því sem aðstæður leyfa. — Takmark vort er þjóðfélag, þar sem sósíal- ískar hugsjónir verða að veru- leika, sagði Gaitshell. — ★ — Hann tók það fram, að hann teldi að kosningastefnuskrá Inn um gluggann LONDON, 11. des.: — Belgískur verkfræðingur hefir verið dæmd ur í 18 mánaða fangelsi fyrir að setja rafmagn í skráargat að herbergi sínu, en það gerði hann til þess að kona hans kæmist ekki inn í herbergið. Frúin sá þó við þessu, því að húnn stakk sér inn um gluggann og inn í herbergið. Kom fram í réttarhöldunum, að ef konan hefði reynt að opna hurðina mtð lykli, þá hefði það jafnvel orðið hennar bani. flokksins hefði verið ágæt — og hann væri á móti því að breyta henni. Hins vegar þyrfti að skýra stefnu flokksins á einfaldari hátt en gert hefði verið og á breiðari grundvelli til þess að ná til sem flestra. — Gaitshell tók þvert fyr- ir það, að Verkamannaflokkurinn mundi ganga í bandalag við Frjálslynda flokkinn, eins og raddir hafa heyrzt um. Þingið, sem er hið fyrsta, er flokurinn heldur eftir kosning- ar, heldur áfram um helgina. í 27 þús. feta liæðj árefnis an sui SYDNEY, 11. des. s SIR Edmund Hillary, sá sem • fyrstur kleif Mount Everest, s sagði hér í dag, að hann von | aðist til að fara í vísindaleið ( angur til Himalajafjalla i seint á næsta ári, en að sjálf \ sögðu færi það nokkuð eftir s því hvernig ástandið á ind- ^ versku landamærunum yrði \ þá. — \ Hillary skýrði frá því, að s hann ráðgerði 10 daga heim | sókn til Nepal til viðræðna i, við stjórnarvöld þar varð- j andi leiðangur þennan. — J Mun leiðangurinn gera ýms- S ar vísindarannsóknir, til ■ dæmis rannsaka hvaða S áhrif það hefur að vera í 27 j feta hæð án súrefnis. ■ j STAKSTtlWAR Andúð á b'ökku- mönnum?! Margt ber á góma á þessum síðustu og erfiðustu tímum. Nú eru orðræður um það í amerísk- um blöðum, að andúð ríki á blökkumönnium á Islandi og hafi íslenzk yfirvöld óskað þess, að þeldökkir séu ekki í varnarliðinu hér á landi. Hefur frétt þessi nú verið borin til baka af talsmanni íslenzka sendiráðsins í Washing- ton. Alþýðublaðið ræðir þessar fréttir að vestan í fyrstugrein sinni í gær undir fyrirsögninni, „fslenzkt kynþáttahatur“. Kemst blaðið þar m.a. að orði á þessa leið: „Það voru óvænt og óvelkom- in tíðindi að heyra þá frétt, að op- inber talsmaður varnarmálaráðu- neytis Bandaríkjanna í Washing- ton hafi lýst yfir, að blökkumenn séu ekki í varnarliðinu á íslandi vegna óska íslenzkra stjórnvalda. Sem beiur fer hefur fulltrúi í ís- Ienzka sendiráðinu í Washington lýst yfir, að honum sé ekki kunn- ugt um neitt íslenzkt bann við dvöl blökkumanna hér á landi. Hér hlýtur að vera um mis- skilning að ræða, enda hefur ekk- ert verið birt íslenzkum almenn- ingi, er gefur ástæðu til að ætla, að nokkur íslenzk yfirvöld hafi tekið svo furðulega ákvörðun“. Róðrar hefjast um áramótin f umræðum, sem urðu um rekstrargrundvöll útvegsins á komandi ári á aðalfundi Lands- sambands íslenzkra útvegsmanna, Iagði afurðasölunefnd fundarins fram bréf frá sjávarútvegsmála- ráðherra. Var þar m.a. komizt að orði á þessa leið: „Með skírskotun til viðræðna við fiulltrúa L.f.Ú. vildi ríkis- stjórnin taka fram, að uppbætur á útflutningsvörur sjávarútvegs- ins og aðrar fyrirgreiðslur útflutn ingssjóðs, munu þar til hinar nýju efnahagsráðstafanir taka gildi, verða hinar sömu og með sama hætti og verið hefur á þessu árt, enda gengið út frá því, að verð á beitusíld verði ekki hærra en á þessu ári og þá er gert ráð fyrir, að útvegsmenn hefji roðra með eðlilegum hætti n. k. áramót“. Aðalfundur Landssambandsins samþykkti að mæla með því við útvegsmenn, að þeir hæfu róðra eftir n.k. áramót á þeim for- sendum, sem fram koma í bréfi sjávarútvegsmálaráðherra. Má því gera ráð fyrir, að róðrar á vetrarvertíð hefjist almennt upp úr áramótum, eins og tíðkazt hef- ur undanfarin ár. Fráleitur málflutningur Framsóknarmenn og kommún- istar reyna nú að koma því inn hjá almenningi, að allir þeir erf- iðleikar, sem steðja að íslenzku efnahagslifi nú, hafi skapazt á því eina ári, sem liðið er, síðan vinstri stjórnin hrökklaðist frá völdum. Þetta er vitanlega hin mesta fjarstæða. Vinstri stjórn- in gafst upp einmitt vegna þess, út í hvílíka ófæru hún hafði stýrt atvinnu- og efnahagsmálum lands manna. Síðan hefur ekkert gerzt annað en það, að með bráðabirgða ráðstöfunum heflur verið komið í veg fyrir það hrun, sem við blasti, þegar vinstri stjórnin hrökklaðist frá völdum. Nú er hins vegar að því komið, að ekki er lengur hægt að afstýra voðanum með bráðabirgðaaðgerðum einum sam an. Gera verður víðtækar ráð- stafanir til þess að koma atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar á heilbrigðan grundvöll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.