Morgunblaðið - 12.12.1959, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 12. des. 1959
Baðmull
Dömubindi
Heildsölubi r gðir:
Kemikalia hf.
Dyngjuvogi 21 — Sími 36230.
Göð bújörð
Jörðin Otradalut v/ Bíldudal til sölu og laus til
ábúðar í næstu fardögum, góðar byggingar, rafmagn,
súgþurrkun, mjólkursala. Uppl. gefa Gísli Jónsson
alþingismaður, Ægisgötu 10, Rvk, sími 24040 og
11740 og Pétur Þorsteinsson, kaupfélagsstjóri,
Bíldudal.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 65., 67., og 71. tbl. Lögbirtingablaðsins
1959 á húseigninni nr. 6 við Básenda hér í bænum,
þingl. eign Guðmundar Kristjánssonar, fer fram eftir
kröfu Guðmundar Ásmundssonar hrl., á eigninni sjálfri
mánudaginn 14. desember 1959, kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetinn í Keykjavík.
Iltgerðarmenn
Skipstjörar
höfum fyrirliggjandi flugelda fyrir skip og báta sam-
þykkta af skipaskoðun ríkisins.
Gerið pantanir sem fyrst.
Takmarkaðar birgðir
Sendum í póstkröfu.
Hamarsbúð hf.
Hamarshúsi — Sími 22130.
„Heimshöfin sjöy/
Peter Freuchen: HEIMS-
HÖFIN SJÖ. — Hersteinn
Pálsson sneri á íslenzku. —
Ísafoldarprentsmiðja gaf út.
ÞETTA er mikil bók, 520 bls. í
áttablaðabroti með hvorki meira
né minna en 120 myndum. Hún
er í senn fræðibók og skemmti-
bók, læsileg jafnt ungum sem
gömlum, landkröbbum sem sæ-
farendum, í stuttu máli góð
bók.
Bók þessi er síðasta ritverk
Peters Freuchens, formálinn
dags. 30. ág. 1957. Efninu hafði
hann safnað í mörg ár, og í
niðurlagi formálans kemst hann
svo að orði:
„Sögurnar, sem sæfarendur
segja, eru í ætt við drauma ann-
arra manna.-------— Við erum
allir miklar hetjur í draumum
okkar. Okkur rekur í óratíma í
svækju og logni, og allir á skips-
fjöl eru viti sinu fjær af kvíða
— nema við. Við sigrumst á ofsa-
legustu stormum, leggjum hraust-
ustu bardagamenn að velli, ger-
um fyrirætlanir blóðþyrstra sjó-
ræningja að engu, færum heim
dýrindis varning úr furðulegum
ferðum,, glímum við skrímsli,
köfum eftir sokknu gulli, sjáum
undursamlega hluti. En svo taka
vísindin við af hugarfluginu, —
og sjá: Til eru enn meiri undur
en þaú, sem okkur dreymdi um.
Þessi bók er ávöxturinn af
hugmyndaflugi mínu og forvitni.
eftir
Peter Freuchen
I henni hef ég leitazt við að festa
á pappírinn dálitið af vísindun-
um og draumuríum — staðreynd-
irnar og hugarburðinn, sem gera
Framkvæmdastjöri
Staða framkvæmdastjóra umferðarnefndar Reykja-
víkur er laus til umsóknar.
Launakjör samkv. VI. flokki launasamþykktar
Reyk j avíkurbæjar.
Umsóknarfrestur er til 30. des. 1959.
Umferðanefnd Reykjavíkur
5 herb. íbúð
helzt í nágrenni við Laufásborg óskast til leigu nú
þegar. Uppl. í síma 12897.
HETJUR
HAFRÓTI
EFTIR JAN de HARTOG
er bókin sem góðar sjómannakonur velja handa
eiginmönnum sínum. Það verður enginn fyrir
vonbrigðum sem fær þessa sjóferðasögu í jóla-
gjöf. Þessi bók segir á hispurlausan og oft bráð-
fyndinn hátt frá lífi sjómannsins á höfum úti
í blíðu og stríðu. Hún segir frá æðrulausum
mönnum sem gegna skyldustörfum sínum hvað
sem á gengur, sigrum þeirra og ósigrum við
óblíð náttúruöfl úthafanna.
Það verður rætt um þessa bók til sjós og
lands á ókomnum dögum.
HETJUR í HAFRÓTI hefur komið út í fjölda
útgáfum á flestum tungumálum.
HETJUR í HAFRÓTI er bók, sem allir sjó-
menn og aðrir þeir, sem sjóferðasögum unna,
mundu kjósa sér.
HETJUR í HAFRÓTI er 328 blaðsíður í stóru
broti í góðu bandi og prencuð á úrvals pappír.
öll heimsins nöf svo dæmalaust
hrífandi."
Peter Freuchen var ævintýra-
maður og skáíd. Hann hvarf frá
námi í læknisfræði rúmlega tví-
tugur að aldri til þess að leita
ævintýra á íshafinu og Græn-
landi. Þar ól hann síðan aldur
sinn fram á elliár, en nam þá
staðar í Bandaríkjunum og bar
þar beinin.
Hann elskaði svaðilfarir,
frelsi og olnbogarými hinna fá-
byggðu norðurslóða. Á honum
sannaðist staðhæfing H. Haf-
steins:
Ef kaldur stormur um karlmann
fer
svo kinnar bítur og reynir fót,
þá finnur hann hitann í sjálfum
sér
og sjálfs síns afl til að standa I
mót.
Peter ferðaðist löngum og
starfaði með vísindamönnum af
ýmsum þjóðum og aflaði sér víð-
tækrar þekkingar og fjölþættrar
lífsreynslu. Skörp eftirtekt, gáf-
ur og skáldleg innsýn gerði hann
smám saman að óvenjulega
sterkri og einstæðri persónu,
skáldi og fræðimanni í senn.
Hann sagði vitanlega ferðasög-
ur sínar á annan hátt en félagar
hans, sem söfnuðu grjóti og skoð-
uðu smæstu sjávardýr í smásjá.
Sögur hans voru fullar af ævin-
týrum, sem frómri alþýðu manna
þótti lygileg og fræðimönnum
óvísindaleg. Heima fyrir lagðist
því það orð á, að hann væri
ferðaslarkari og skrattanum
skrökvísari. Þar við bættist, að
hann sagði löndum sínum stund-
um óvægilega til syndanna. Sak-
aði þá um smásálarskap og sér-
gæðislegan þursahátt. — Á efri
árum naut hann þó vaxandi vin-
sælda, ekki sízt utan heimalands-
ins, fyrir frásagnargáfu sína og
frásagnargleði. Bækur, hans hafa
nú verið þýddar á margar tung-
ur. Hér á landi virðist hann eiga
stóran hóp lesenda og jafnvel að-
dáenda. Þessi síðasta bók mun
varla valda þeim vonbrigðum.
Þótt Peter Freuchen léti oft
vaða á súðum, eins og bækur
hans bera með sér, er rétt að
minnast þess, að hann var hinn
prúðasti maður í framgöngu,
mikill á velli og höfðinglegur í
sjón og raun. —
Frágangur bókarinnar er út-
gefanda til sóma, einkum er
bandið smekklegt. Þó ber að
finna að því að setja skýringar-
mynd með litt læsilegum enskum
texta á bls. 103. Það hefði kogtað
sáralítið að láta gera þessa mynd
upp með íslenzkum texta, og
heyrir þetta undir vandvirkni og
virðingu útgefanda fyrir verki
sínu.
Mér er mikil ánægja að geta
lokið fullu lofsorði á þessa þýð-
ingu Hersteins Pálssonar. Hann
er mikill afkastamaður um þýð-
ingar, og ber því að gera til
hans strangar kröfur. Fæ ég ekki
betur séð en hann standist þær
með sóma. En fáir munu þýða 30
arka bók án þess að gera ein-
hver pennaglöp. Ég hef rekizt
á tvær blaðamanna- og útvarps-
ambögur í þessu verki hans: „að
gefa lýsingu" á atburði í stað
þess að lýsa honum blátt áfram
(t. d. bls. 498 og 503); og „reglur
varðandi björgunarlaun“ (bls.
483) hefði ég kosið einfaldlega
„reglur um björgunarlaun“.
J. Eyþórsson.
Fiskurinn íluttur
til sölu á bílum
í GÆRDAG bárust fréttir um að
Stapafell frá Ólafsvík, sem hélt
sjó dögum saman út af Aberdeen
vegna óveðursins, hefði selt í
smáhafnarbæ, Blacie, rétt hjá
Aberdeen í gær og fengið 3122
sterlingspund fyrir aflann, 50
tonn. Er þetta ágætlega hagstætt
verð. Upphaflega hafði verið gert
ráð fyrir að Stapafell myndi selja
á mánudaginn var, en þá var
óveðrið skollið á. Fiskurinn af
Stapafelli hafði verið fluttur með
bílum frá Blacie til Aberdeen,
þar sem salan fór fram.