Morgunblaðið - 12.12.1959, Síða 20

Morgunblaðið - 12.12.1959, Síða 20
20 MORCVTSBLAÐ1Ð Laugardagur 12. des. 1959 aði ég með mér. — „Nú ætti Wavruschka bara að vera kom- inn og sjá mig og þessi lúsugi sjálfboðaliði, sem er alltaf að gorta af því við okkur, hvað hann og félagar hans hafi borðað fínan mat hjá Sacher í Wien. — Þeir ættu bara einu sinni jð koma inn í svona hús, og þá myndu þeir standa orðlausir og gapandi af undrun. Já, þessir öf- undarseggir í liðsforingjaklúbbn um ættu bara að sjá mig sitja hér og skála við ofursta í her- málaráðuneytinu. Sjá mig í djúp um og innilegum samræðum við forstjóra sykurverksmiðjunnar og heyra hann endurtaka hvað eftir annað: „Ég dáist að hinni alhliða menntun yðar“. Svart kaffi var drukkið í litla viðhafnarherberginu. Koníak var veitt í stórum, bumbu-miklum iskældum glösum, ásamt ótal líkörum og svo” auðvitað þess- um frábæru vindlum iaeð skraut legu magabeltunum. í miðjum samræðunum hallaði hr. Kekes- falva sér að mér, til þess að spyrja mig, hvort ég kysi heldur, að spila við karlmennina, eða verða kyrr og rabba við kven- fólkið. Auðvitað valdi ég síðari kostinn alls hugar feginn, vegna þess, að ég þorði varla að hætta mér í slag við ofursta í hermála ráðuneytinu. Ef ég ynni, myndi það kannske gera honum gramt í geði. Ef ég tapaði, þá væru mánaðarpeningarnir mínir farn- ir veg allrar veraldar. Og loks minntist ég þess, að ég var að- eins með tuttugu krónur í vesk- inu. Meðan spilaborðið var dregið fram á gólfið í næsta herbergi, sat ég því hjá báðum stúlkun- um og svo undarlega brá við — hvort sem það var vínið eða mitt góða skap, sem sveipaði allt ein- hverjum töfraljóma — að mér virtust þser báðar alveg óvenju- lega fallegar. Edith var ekki jafn föl, ekki jafn veikluleg og í fyrri skiptin. Hafði hún litað kinnar sínar til heiðurs gestun- um, eða var það hið almenna fjör, sem hleypti roðanum fram í vanga hennar. Hinir titrandi þjáningadrættir umhverfis munn inn sáust a. m. k. ekki lengur, eða hinir gremjulegu kippir augnabrúnanna. Hún sat þarna í síðum, Ijósrauðum kjól. Ekkert teppi, engin ábreiða huldi líkams mein hennar og samt voru allir, bæði ég og aðrir, í of góðu skapi til að hugsa um „það“. Hvað Ilonu snerti, þá grunaði mig að hún væri ekki með öllu ósnortin af áhrifum hinna góðu vínfanga, svo björt og glampandi voru aug un í henni. Og þegar hún hallaði sér nær mér og hló skærum, kitl andi hlátri, gat ég með naumind um staðizt þá freistingu, að snerta yndislegu, nöktu, ávölu axlirnar, eins og af hreinustu tilviljun. Eftir svo ágætan málsverð, ásamt víninu sem hleypti nota- legri hlýju um allan líkamann, með gildan, ilmandi vindil milli varanna og tvær ungar, falleg- ar, fjörmiklar stúlkur við hlið sér, hefði jafnvel hinum mesta einfeldning veitzt auðvelt að rabba létt og fjörlega við þær. Eg veit, að eg er skrafhreyfinn og gæddur góðum frásagnahæfi- leikum að eðlisfari, þegar bölv- uð feimnin hindrar mig ekki. En í þetta skipti var ég alveg óvenjulega vel fyrirkallaður og ég talaði og sagði frá, án þess að taka mér nokkra minnstu málhvíld. Auðvitað voru það einungis ómerkilegar smásögur, sem ég sagði þeim: Um nýjustu viðburði í hermannaskálunum, eins og t. d. þegar ofurstinn þurfti að koma hraðbréfi í póst- húsið fyrir lokun svo að það kæmist með hraðlestinni til Wien. Hann hafði því gert boð eftir einum ulana, þrautæfðum hlaupagarpi, og sagði honum að bréfið yrði að komast tafarlaust af sfað til Wien. Og hermanns- bjálfinn hafði þotið eins og byssubrenndur út í hesthúsið, lagt hnakk á hestinn og þeyst af stað eftir þjóðveginum áleiðis til Wien. Ef við hefðum ekki hringt til næstu setuliðsdeildar og gert henni aðvart, þá hefði blessaður einfeldningurinn þeyst þessa átján klukkustunda leið til Wien. Það var sannarlega engin djúphugsuð speki, sem ég þreytti sjálfan mig og þær með. Aðal- lega voru það ómerkilegar skrítl ur, hermannafyndni og gamlar og nýjar grínsögur. En mér til óblandinnar undrunar, virtist ég skemmta stúlkunum hið bezta og þær veltust um af hlátri allan tímann. Hlátur Ediths var eink- um gáskafullur, hár og skær sem breyttist öðru hverju í hvella hárödd. En kátína hennar hlýt- ur raunverulega að hafa verið sönn og komið innan frá, því að hörundið á þunnum vöngum hennar, fíngert og gegnsætt eins og postulín, fékk á sig hlýlegri litblæ. Roði heilbrigðis og feg- urðar lýsti andlit hennar. — Og gráu augun, sem venjulega voru hvöss og kuldaleg, Ijómuðu af barnslegu fjöri. Það var gaman að horfa á hana, þegar hún gleymdi hinum fjötraða likama sínum, því að á þeim augnablik um, urðu hreyfingar hennar mýkri, látbragðið eðlilegra. Hún hallaði sér makindalega aftur á bak, hló, drakk, dró Ilonu niður að sér og vafði handleggjunum um hálsinn á henni. Það leyndi sér ekki, að þær höfðu verulega gaman að þvaðrinu í mér. Það er alltaf mikil örvun fyrir hvern sögumann, að finna að honum hefur tekizt vel upp. Og fjöldinn allur af sögum, sem ég hafði ver- ið búinn að gleyma fyrir löngu, kom nú fram í huga minn aftur. Ég, sem venjulega var feiminn og vandræðalegur, uppgötvaði nú hjá sjálfum mér dirfsku, sem var mér ný og óþekkt. Ég kom þeim til að hlæja og hló sjálfur með þeim. Og við skríktum þarna og flissuðum í herbergishorninu, eins og skólakrakkar. Og samt, meðan ég hló og gerði að gamni mínu, varð ég hálf-óaf- vitandi og hálf-vitandi, var við augu sem horfðu á mig, athugul og rannsakandi. — Augu sem horfðu á mig í gegnum gleraugu, frá spilaborðinu. Og úr þessum augum skein hlýja og gleði, sem jók mína eigin hamingju. Var- færnislega og í laumi renndi gamli maðurinn öðru hverju aug unum yfir spilin til okkar og einu sinni þegar augu okkar mættust, kinkaði hann vingjarn- lega kolli til mín. Og þannig leið tíminn allt til miðnættis, án þess að nokkurn tíma yrði hlé á samræðum okk- ar. Þá voru okkur aftur bornar veitingar, portvín og samlokur. Og þótt undarlegt kunni að virð- ast, þá var ég ekki sá eini, sem tók hraustlega til matar síns. — Báðar stúlkurnar borðuðu af beztu lyst og gerðu hinu góða, sterka, dökka, enska portvíni góð skil. En að lokum var samt kom- inn tími til að kveðja og halda heimleiðis. Þær Edith og Ilona þrýstu hönd mína, eins og ég væri gamall vinur, kær og ein- lægur félagi. Að sjálfsögðu varð ég að lofa því, að koma fljót- lega aftur, á morgun eða þar næsta dag, og svo gekk ég með hinum mönnunum þremur út í anddyrið, því að húsráðandinn ætlaði að láta aka okkur öllum heim. Ég sótti frakkann minn sjálf- ur, meðan þjónninn var að að- Það er barnaleikur að strauja þvott- inn með „Baby“ borðstrauvélinni. Baby er einasta borðstrau- vélin, sem stjórnað er með fseti og því hægt að nota báðar hendur við að hagræða þvottinum. Takmarkaðar birgðir Pantanir óskast strax. Jfekla Austurstræti 14 Símar 11687. Aigreiðslustúlka óskast nú þegar. íiui*mdi Laugavegi 82. a r L ú ó MARK, HAVE VOU ANY IDEA HOW THAT CANOE ____ GOT LOOSE? jma OUIT GROUSING. BARRY -IT WILL GIVE YOU something unusual r' TO WRITE ABOUT/ SUE, VOU ^ WERE RIGHT ABOUT TRAIL ...HE'S MAKING THIS TRIP INTERESTING, ALL RIGHT/i I CAN'T UNDERSTAND IT, CHERRY... l’M SURE l PULLED IT UP ON THE SHORE/ Súsanna, þú hafðir á réttu að standa. Markús mun sjá um að íerðin verði eftirminnileg. Hættu að kvarta Baldur. Þetta gefur þér tækifæri til að skrifa um eitthvað nýstárlegt. Markús, hefir þú nokkra hug- mynd um hvernig báturinn losn- aði? Ég skil það ekki Sirrí . . . Ég er viss um að ég dró hann upp á bakkann. stoða ofurstann. Allt í einu varð ég þess var, að einhver var að reyna að hjálpa mér í yfirhöfn- ina. Það var hr. von Kekesfalva og í vandræðum mínum reyndi ég að ‘aftra því, vegna þess að hvernig gat ég, græninginn, látið þennan gamla mann ganga mér í þjóns stað? En hann lét sem hann yrði þess ekki var. „Hr. liðsforingi", hvíslaði gamli maðurinn feimnislega. „Oh, hr. liðsforingi. Þér vitið ekki, þér getið ekki gert yður í hugarlund, hvað það hefur glatt mig og gert mig hamingjusaman að heyra barnið mitt hlæja svona hjartanlega aftur. Hún hefur annars svo litla gleði af lífinu og í kvöld var hún næstum eins og áður fyrr, þegar....“ Rétt í þessu kom ofurstinn til okkar. — „Jæja, erum við þá að fara?“ sagði hann og brosti vin- gjarnlega til mín. Að sjálfsögðu lét Kekesfalva talið falla niður í viðurvist hans, en ég fann allt í einu að gamli maðurinn strauk frakkaermina mína með hendinni, strauk hana mjög, mjög létt og ástúðlega, eins og þegar maður gælir við barn eða sýnir konu ástarhót. —• Það var óendanlega mikil við- kvæmni, óendanlega mikið þakk- læti í þessarri léttu, hikandi snertingu. Svo mikla hamingju og svo djúpa örvæntingu skynj- aði ég í henni, að ég yfirbugaðist gersamlega. Og þegar ég gekk við hlið von F., ofursta, niður þrepin og út að bifreiðinni, varð ég að beita sjálfan mig hörðu, til þess að leyna geðshræringu minni. Þetta kvöld gat ég ekki strax farið að sofa. Til þess var ég í of æstu skapi, enda þótt ástæðan gæti naumast talizt mikilvæg. — Raunverulega hafði ekkert skeð, nema það eitt, að gamall mað- ur hafði klappað mér vingjarn- lega á handlegginn og, að þessi óframfærni vottur um innilegt þakklæti hafði nægt til þess, að vekja einhverja uppsprettu við- kvæmra tilfinninga í hugskoti mínu, svo að hún ólgaði fram og brauzt upp á yfirborðið. — í þessari hikandi snertángu hafði ég skynjað ástúð, saklausari en þó ástríðufyllri, en ég hafði reynt nokkru sinni fyrr, jafnvel hjá konum. í fyrsta skipti á ævinni hafði ég fengið vissu fyrir því, að ég hefði orðið öðrum að ein- hverju liði og undrun mín yfir ......gparið yðui hiaup & miUi œargra vcrzjajia'- fl ÖHUM «fWM' - Ausfcurstraeth SHtltvarpiö Laugardagur 12. desember 8.10—10.00 Morgunútvarp. (Bæn. 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8,30 Fréttir. — 8,40 Tón- leikar. —■ 9.10 Veðurfregnir. — 9,20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 13.00 Oskalög sjúklinga (Bryndís Sig- urjónsdóttir). 14.00 Raddir frá Norðurlöndum: Nor- rænir háskólastúdentar segja frá dvöl sinni hérlendis. 14.20 Laugardagslögin. — (16.00 Fréttir og veðurfregnir). 17.00 Bridgeþáttur (Eirfkur Baldvins- son). 17.20 Skákþáttur (Guðmundur Arn- laugsson). 18.00 Tómstundaþáttur barna og ung- linga (Jón Pálsson). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Utvarpssaga barnanna: „Siskó á flækingi“ eftir Estrid Ott; XIII. lestur (Pétur sumarliðason kenn- ari). 18.55 Frægir söngvarar: Kristen Flag- stad syngur lagaflokkinn „Haug- tussa“ eftir Grieg við kvæði Arne Garborgs. Kvæðin verða lesin í íslenzkri þýðingu Bjarna frá Vogi. 19.35 Tilkynningax. 20.00 Fréttir. 20.30 Leikrit: „Loginn helgi“ eftir W. Somerset Maugham, í þýðingu Karls Guðmundssonar leikara. Leikstjóri: Indriði Waage. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Danslög. 24.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.