Morgunblaðið - 23.12.1959, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 23.12.1959, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐ1Ð Miðvik'udagur 23. des. 1959 * JÓLAMESSUR * MESSUR í kirkjum og öðr- um guðsþjónustuhúsum í Reykjavík og nágrenni verða sem hér segir um jólin: Dómkirkjan: Aðfangadagskvöld, aftansöng- ur kl. 6, séra Jón Auðuns. Jóladagur. Messa kl. 11 f.h. Sr. Óskar J. Þorláksson. Messa kl. 2 sr. Bjarni Jónsson (dönsk messa) Messa kl. 5 e.h. sr. Jón Auðuns. Annar jóladagur. Messa kl. 11 f.h. sr. Jón Auðuns. Messa kl. 5 e. h. sr. Óskar J. Þorláksson. Sunnudagur 27. des. Messa kl. 11. f.h. sr. Óskar J. Þorláksson. Hallgrímskirkja: Aðfangadagskvöld, aftansöng- ur kl. 6 síðdegis, séra Bjami Jónsson, vígslubiskup. Jóladagur: Messa kl. 11 f.h., séra Lárus Halldórsson. — Messa kl. 2 e.h., séra Magnús Runólfss. Annar jóladagur: Messa kl. 11 f. h., séra Sigurjón Þ. Arnason. Sunnudagur 27. des.: Messa kl. 11 f.h., séra Lárus Halldórsson. Bústaðaprestakall: Aðfangadagskvöld, aftansöng- ur í Kópavogsskóla kl. 6. Jóladag, messa í Háagerðis- skóla kl. 5. 2. jóladag, messa í Kópavogs- skóla kl. 2, í Nýja hælinu kl. 3,30. Séra Gunnar Árnason. Laugarneskirkja: Aðfangadagskvöld, aftansöng- ur kl. 6 e.h. Jóladag, messa kl. 11 f.h. (At- hugið breyttan messutíma). 2. jóladagur, messa kl. 2 e.h. 3. jóladagur, (27. des), barna- guðsþjónusta kl. 10,15 f.h. Séra Garðar Svavarsson. Langholtsprestakall: Aðfangadagskvöld, aftansöngur 1 Safnaðarheimilinu við Sól- heima kl. 6. Jóladagur, messa í Laugarnes- kirkju kl. 5. 2. jóladagur, messa í Safnaðar heimilinu við Sólheima kl. 11 f.h. 3. jóladagur, barnasamkoma í Safnaðarheimilinu við Sólheima kl. 10,30 f.h. Séra Árelíus Níelss. Neskirkja: Á aðfangadagskvöld jóla, aft- ansöngur kl. 6. Á jóladag, messað kl. 2. Á 2. jóladag, messað kl. 2. Á 3. jóladag, messað kl. 2. Háteigsprestakall: Jólamessur í hátíðasal Sjó- mannaskólans: Aðfangadagskvöld, aftansöng- ur kl. 6. Jóladagur, hátíðamessa kl. 2. 2. jóladagur, barnaguðsþjón- usta kl. 11 f.h. Séra Jón Þirvarðs son. — Elliheimilið: Aðfangadagskvöld kl. 6,30 síðd. Séra Sigurbjörn Á. Gíslason. Jóladag kl. 10 árdegis, séra Jós ep Jónsson frá Setbergi. 2. jóladagur kl. 10 árdegis, Ól- ur Ólafsson, kristniboði. Sunnud. 27. des., kl. 10 árdegis, Séra Bragi Friðriksson. Fríkirkjan: Aðfangadagskvöld, aftansöng- ur kl. 6. 1. jóladagur, messa kl. 2. 2. jóladagur, barnaguðsþjón- Usta kl. 2. Séra Þorsteinn Björns- son. — Óháði söfnuðurinn: Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 6 síðd. Jóladagur: Hátíðamessa kl. 3,30 síðd. — Séra Emil Björnsson. Kaþólska kirkjan: Aðfangadagur: Biskupsmessa kl. 12 á miðnætti. Jóladagur: Lágmessa kl. 8,30 árdegis. Hámessa og prédikun kl. 10 árdegis. Bænahald í Kapell- unni kl. 6,30 síðd. 2. jóladagur: Lágmessa kl. 8,30 árd. Hámessa kl. 10 árd. Sunnud. 27. des.: Lágmessa kl. 8,30 árd. Hámessa og prédikun kl. 10 árd. Aðventkirkjan: Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 6 síðd. Jóladagiur: Samkoma kl. 5 síðd. 2. jóladagur: Samkoma kl. 11 fyrir hádegi. Fíladelfía: Aðfangadagskvöld: Guðsþjón- usta kl. 6. Jóladagur: Guðsþjónusta kl. 8,30. 2. jóladagur: Guðsþjónusta kl. 8,30. Sunnud.: Guðsþjónusta kl. 8,30 — Ásmundur Eiríksson. Fíladelfía, Keflavík: Guðsþjón usta jóladag kl. 4 e.h. á annan í jólum kl. 4 e.h. — Haraldur Guð- jónsson. Hafnarfjarðarkirkja: Aðfangadagskvöld, aftansöng- ur kl. 6. Jóladagur, messa kl. 2. 3. jóladagur, sunnudagur 27. des. kl. 5 síðdegis, HELGIXÓN- LEIKAR: Kór Hallgrímskirkju flytur tvær jólakantötur með að stoð einsöngvara og hljóðfæra- leikara. Dr. Hallgrímur Helga- son leikur einnig á fiðlu. Páll Kr. Pálsson flytur orgeltónverk. (Að- gangur ókeypis). Séra Garðar Þorsteinsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði: Aðfangadagskvöld: Aftansöng- ur kl. 6. Jpladagur: Messa kl. 2. 2. jóladagur: Barnaguðsþjón- usta kl. 2. Stefánsson. Séra Kristinn Mosfellsprestakall: Jóladagur, messa að Lágafelli kl. 2, í Arbæjarskóla kl. 4,30. 2. jóladagur, Brautarholtssókn, messa kl. 2. Séra Bjarni Sigurðs- son Reynivallaprestakall: Jóladagur: Messa á Reynivöll- um kl. 2. 2. jóladagur: Messa að Saurbæ kl. 2. — Séra Kristján Bjarnason. Útskálaprestakall: Aðfangadagur: Messa að Út- skálum kl. 6 og að Hvalsnesi kl. 8 Jóladagur: Messa að Hvalsnesi kl. 2 og að Útskálum kl. 5. 2. jóladagur: Barnaguðsþjón- usta í Sandgerði kl. 11 og að Út- skálum kl. 2. — Sóknarprestur. ★ (Ath.: Messurnar verða ekki auglýstar í jólablaðinu. Væntan- legum kirkjugestum er því ráð- lagt að geyma þetta blað). Hér sitja börnin stilit með kverin sin í kennslustofu og hlýða á jólahugvekju. (Ljósm. vig). Liflu-jólin á Akureyri ÞAÐ HEFIR jafnan verið siður í barnaskólum Akureyrarbæjar að haldið hefir verið uppá svo- nefnd litlu-jól nokkrum dögum fyrir jól. Er það mikil hátíð fyrir börnin. Þau skreyta kennslustof- urnar sínar, koma fyrir kertum og borðskrauti á göngum og senda hvort öðru jólakort. Að baki þessarar hátíðar liggur ekki minni vinna hlutfallslega heldur en hjá mæðrum þeirra á heimil- skrifar ur# daglega iifinu * Mesti annadagurinn í dag er Þorláksmessa, ein- hver mesti annadagurinn á ár- inu hjá húsmæðrunum, og síð- asti vinnudagurinn hjá mörg- um karlmönnunum fyrir há- tíðina. Víða er siður á vinnu- stað að kveðjast ekki alveg þurrbrjósta á degi heilags Þorláks. í ár hafa konurnar sennilega ennþa meira að gera en venjulega á Þorláksmessu og karlmönnunum finnst þeir þurfa að kveðjast ennþá betur, því nú standa xyrir dyrum fjór heilög jól, stóru brandajól. Heimilin þurfa að vera undir búin með mat til ennþá fleiti hátíðisdaga en venjulega og karlmönnunum finnst þeir sjálfsagt þurfa að kveðjast ennþá betur en þeirra er vandi fyrir þennan óvenju langa að- skilnað. Og á morgun byrjar hátíðin, sem miðast við börnin. Karl- mennirnir fara í jólaleiki og drekka appelsín, og konurn- ar taka fram allar kræsing- arnar, sem þær hafa haft svo mikið fyrir. * Jólamatur andanna í sveitinni hefur það verið siður að láta ekki sképnurnar verða útundan á jólunum, gefa þeim heldur betri tuggu en venjulega. í Reykjavík eig- um við engin húsdýr önnur en endurnar á Tjörninni okk- ar. Heyrt hefi ég getum að því leitt, að þær kynnu stund- um að vera svangar á veturna. Það mun úr lausu lofti gripið. Þeim er gefið rétt í birtingu á morgnana og fyrir ljósaskipt in. Þær sem eru svangar, flykkjast þá á Litlu tjörnina, til að fá í svanginn. Þar er á boðstólum dýrindis anda- matur, eins og fiskur, krækl- ingur og korn, eingöngu hveiti korn, sem öndum hentar bezt. og dálítið af heilhveitibrauði eða normalbrauði, því hvíta brauðið fer illa 1 andamaga, bólgnar þar út. Ekki er því ástæða til að halda að end- urnar verði svangar á jólun- um, en krakkarnir, sem njóta þess að koma til þeirrra á sumrin, mættu samt hugsa til þessara vina um jólin, ef veðrið er gott, og gefa þeim þá eitthvert góðgæti. • Ónógar ferðir í kirkjugarðinn ekki hlaupið að því að kom- ast til og frá kirkjugarðinum í Fossvogi, nema fyrir þá sem annað hvort eiga bíl eða eru fráir á fæti. Fossvogsvagnarn- ir ganga á klukkutíma fresti og Hafnarfjarðar- og Kópa- vogsvagnarnir mega ekki taka þarna farþega eða flytja þá á þennan stáð.I fyrrasá ég þarna gamla konu, sem í rauninni var varla rólfær, standa og reyna að halda á sér hita með an hún beið eftir vagninum í liðlega hálftíma. í ár veit ég um aðra konu, sem tók sér leigubíl til að huga að leiðinu sínu fyrir jólin, og varð að láta hann bíða eftir sér, þó hún hefði engin efni á því, af því hún treysti sér ekki í langa bið eftir næsta vagni í kuldanum. Það getur varla skipt mjög miklu mál fyrir þá sem vagn- ana reka, þó Hafnarfjarðar- og Kópavogsbílamir fengju að stanza við kirkjugarðinn. Ef það er til of mikils mælzt að það verði gert alltaf, þá a. m. k. nokkra daga fyrir jól og yfir jólin. Ódýr bók Á jólunum minnist fólk gjarnan liðinna jólahátíða og þeirra sem þá deildu með því gleðinni. Látinna ástvina er minnzt, hvílustaður þeirra prýddur ljósum og sýndur er vottur þess að þeir séu ekki gleymdir, með því að staldrað er við leiði þeirra áður en hátíðin hefst og yfir hátíðis- dagana. Hér í Reykjavík er það að verða æ algengara að fólk komi upp fallegum rafljósum á leiðum ástvina sinna og kirkjugarðurinn er eitt ljós- haf yfir hátíðina. En það er í sumar urðu heilmikil skrif um Fornritaútgáfuna hér í dálkunum, og var þá rætt um að hinar vönduðu bækur hennar vildu drukkna í bóka- flóðinu fyrir jólin. Þannig virðist mér enn hafa farið. Út er komin Kjalnesingasaga, eins vönduð í alla staði og frekast er unnt, og í fallegu skinnbandi fyrir aðeins 150 krónur, en henni er ekki hald- ið á lofti, og þá er eins og fólk átti sig ekki á því að þarna er líka bók sem vert er að taka til athugunar, þegar valdar eru jólabækurnar. unum. Síðan rennur dagur litlu- jólanna upp og þau klæðast sínu „fínasta pússi“ og halda í skól- ann með kortin til bekkjarsyst- kinanna, en oft og einatt er eldri skólafélagi fenginn til þess að vera bréfberi í gerfi jólasveins. Að þessu sinni voru litlu-jólin haldin hátíðleg s.l. föstudag. Tíðindamaður blaðsins brá sér upp í gamla barnaskólann á brekkunni og fylgdist með því stutta stund, sem fram fór. Börn- in hópuðust saman á skólalóðinni kringum fagurlega lýst jólatré, er vinaskip skólans „Hvassafell- ið“ hafði fært þeim að gjöf, en fyrir tæpum áratug hófst þeila vmáttusamband milli skipsins og skólans, og hafa jólagjafir og jóla kveðjur jafnan farið á milli síð- an. Á skólatröppunum ávarpaði skólastjóri börnin, er síðan gengu prúð og stillt hvert til sinnar kennslustofu. Síðan var haldið upp á samkomusal skólans, sem tæpast rúmaði allan þann fjölda, þótt ekki væri þar saman kominn nema helmingur nemendanna. þar lék svo lúðrasveit ungra drengja úr skólanum undir stjórn Jakobs Tryggvasonar, skólastjóra Tónlistarskólans. Var það fögur og áhrifarík athöfn, er drengirn- ir litlu léku jólasálminn „Heims um ból“. Að lokinni þeirri athöfn héldu börnin til kennslustofa sinna á ný. Þar var þeim lesin jólahugvekja og sagðar sögur, en síðan sameinuðust bekkjadeildirn ar á göngum skólans og gengu kringum prýdd borð og sungu jólasálma og jólasöngva. Fullir jólagleði héldu litlu hnokkarnir svo heim á leið. Hér á Akureyri hefir nú verið sett upp alls konar jólaskraut við verzlanir á götum og við heima- hús. Snjómugga hefir verið lítils- háttar undanfarna daga og frost nokkurt. Allt er eins jólalegt um að litast sem frekast getur orðið, enda skreytingar allar vandaðar og smekklegar. Kirkjan er að vanda fagurlega lýst, svo og tröppurnar upp að henni. Einnig hefir verið reist stórt og myndar- legt jólatré skammt frá kirkju- dyrum. Það verður þvi ekki annað sagt, en að hér í bæ sé á öllu hinn viðkunnanlegasti jólasvipur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.