Morgunblaðið - 23.12.1959, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.12.1959, Qupperneq 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 23. des. 1959 Söngvar sakleysisins og Ljóð lífsreynslunnar eftir William Blake í íslenzkri þýSingu í GÆR komu út tveir heims- frægir ljóðaflokkar eftir skáldið og listamanninn William Blake, „Söngur sakleysisins“ og „Ljóð lífsreynslunnar“. Þóroddur Guð- mundsson þýddi ljóðin og ann- aðist útgáfuna, en ísafold er út- , gefandi. I Bókin er prýdd mörgum snjöll- um og skemmtilegum myndum eftir Blake, en hann var jafngóð- ur málari og eirstungumaður sem skáld. Sjálfur „prentaði“ hann bækur sínar með því að rita spegilskrift á eirplötur og j skreytti þær teikningum. Þannig j sameinaði hann myndlist og ljóð. i í bókinni er einnig æviágrip; höfundar og skýringar á verkum hans. Kápumyndin er eitt af frægustu listaverkum Blakes — Víti. Blake „fékk í vöggugjöf ein- hverjar þær fjölbreyttustu af-, burðagáfur, sem um getur, segir í æviágripinu um hann, „náði frábærum árangri í hverri list- grein, sem hann lagði stund á, var dýrlegt skáld, meistari ó- . bundins máls, álíka snjall list- málari, teiknari sem eirstungu- maður, gerði fagrar tréskurðar- j myndir, hafði góða söngrödd og | samdi lög við ljóð sín, ef honum i bauð svo við að horfa". | Wiiliam Blake var fæddur 1757, • en dó 1827 lítt þekktur og mis- skilinn af samtíð sinni eins og orðið hefur hluskipti margra and ans stórmenna. Jólaleikrit i Kaupmannahöfn Á ANNAN jóladag verður frumsýning í Kaupmannahafn arleikhúsinu „Falkoner Cen- tret“ á söngleiknum „My Fair Lady“. Sala aðgöngumiða er hafin, og er þegar uppselt á allar sýningar til 17. janúar. Hafa frumsýningarmiðar, sem kosta D. kr. 15, verið seldir á ,,svörtum markaði" fyrir gíf- urlegt verð, allt d. kr. 300,— 250 manns vinna að sýning- unni, þar af 12 leikarar, 20 dansarar, 10 söngvarar, 34 hljóðfæraleikar og 30 leik- svismenn. Aðalhlutverk eru, Eliza: Ingaborg Brams, Higgins pró- fessor: Mogens Wieth, Doo- litlle: Osvald Helmuth. My Fair Lady var fyrst sýnt í New York fyrir nokkrum ár- um og gengur þar enn. Síðan hefur það verið sett upp í Lan don, þar sem það gengur fyrir fullu húsi mánuð eftir mánuð. í Stokkhólmi hefur það verið sýnt í tæpt ár og enn er upp- selt þar mánuð fram í tímann. Einnig hefur söngleikurinn veri sýndur við frábærar undirtektir í Finnlandi og víða í Suður Ameríku. Þá eru sýn- inðar á My Fair Lady víða í undirbúningi. HAVANA. — Hubert Matos herforingi, byltingarhetja og fyrrverandi samstarfsmaður Castros og fylkisstjóri í Cama guey-héraði á Kúbu, hefur verið dæmdur í 20 ára fang- elsi fyrir gagnbyltingarstarf- semi gegn stjórn Castros. Saksóknari ríkisins hafði kraf- izt þess að Matos væri dæmdur til dauða og að 34 liðsforingjar aðrir yrðu dæmdir í þyngstu fangelsisrefsingar. Fundu 20 kindur í eftirleit HORNAFIRÐI, 21. des. — Ný- lega eru tveir menn komnir úr eftirleit úr Kollumúla. Voru þeir 12 daga í ferðinni, lentu í mikl- um rigningum og vatnavöxtum og dagsbirtan stutt um þetta leyti. Komu þeir með 20 kindur, sem voru víðsvegar að, allt frá Borgarfirði eystra til Hornafjarð 1 ar. — Gunnar. Jólalegt á Akranesi AKRANESI, 21. des. — Jólalegt er hér í bænum orðið. — Stórt jólatré frá vinabæ Akraness, Tönder í Danmörku stendur Ijós- um baðað á Iðnskólablettinutn, annað stendur framan við sjúkra- húsið, og í tveim görðum við hús þarna standa skrautlýst tré. Þá er búið að setja upp á byggingu Sementsverksmiðjunnar Jóla- stjörnu sem samanstendur af 100 ljósaperum. Víða í bænum eru ljósaskreytingar og eru jól að færast yfir bæinn. — Oddur. Af öðrum jólaleikritum í Kaupmannahöfn má nefna: „Hver er Sylvia?" eftir Ter- ence Rattigan, sem sett verð- ur upp á „Allé Scenen“ með Birgitte Reimer, Hans Kurt, og Ebbe Rode og „Trold kan Tæmmes (Taming of the Shrew) eftir Shakespeare í „Det Ny Teater" með Bodil Kjer og Henrik Bentzon. Herforingjar þessir voru hand- teknir 22. október s.l. samkvæmt sérstökum fyrirmælum Castros forsætisráðherra. Tilefni hand- tökunnar var það, að Matso hafði óskað eftir lausn frá störfum, vegna þess að hann kvaðst ekki Hubert Matos sætta sig við aukin áhrif komm- únista í hernum. Meðal vitna í réttarhöldunum var sjálfur Castro forsætisráð- herra. Hann flutti 7 klst. ræðu í réttinum og það með óvenjuleg- um hætti. Vitnaleiðslan fór fram í stóru kvikmyndahúsi, sem var þéttskipað áheyrendum. Hljóð- nemi var hengdur á háls Castros og síðan byrjaði hann ræðu sína. Hann sneri baki að dómendum en fram til áheyrenda. Castro sakaði Matso um það að hafa ætlað að skapa vandræða- ástand á Kúbu með lausnar- beiðni sinni. Hún hefði verið til þess ætluð að steypa byltingar- stjórninni. Vilhelm Moberg: Vesturfararnir Þessi skáldsaga Mobergs hefur selst í 450 þús. eintökum í Svíþjóð einni og verið metsölubók í Bandaríkjunum. Þetta er talin ein skemmtilegasta bók höfundar og hefur fengið frábæra dóma. 496 bls. kr. 220,00 ib. Félagi Castros dœmdur í 20 ára fangelsi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.