Morgunblaðið - 23.12.1959, Síða 17
Miðvik'udagur 23. des. 1959
MORCVWRLAÐIÐ
17
0i0 * 0 0\0 0 * * x* 0-rr-,rw r rr r rrrrrrr rf rrrf *■*
\Lriji
ar um:
<r JÓLAMYNDIRNAR -.-
+ +*.** + ^,**.*-** *-***** 0- * » * *-**J0‘ -+ *>
Rock Hudson og Cyd Charissc.
sýn og við sjáum hversu ást
þeirra þróast og öðlast hann styrk
leika er býður öllum erfiðleikum
sem verða á vegi þeirra, byrgin.
Efni myndarinnar verður ekki
rakið hér, en það skal endurtekið,
sem sagt er hér að framan, að
myndin er ákaflega heillandi og
prýðilega leikin. Deborah Kerr er
mikil leikkona, sönn í túlkun
sinni á þeim hlUtverkum, sem
hún fer með og svo er einnig
hér. Gary Grant er henni verð-
ugur mótleikari og Cathleen Nes-
bitt, sem leikur ömmu Nickie’s
er frábær.
Gamla bíó:
Gigi.
Þetta er amerísk söngvamynd
í litum og er hún gerð eftir hinm
frægu sögu skáldkonunnar Col-
ette. Hefur mynd þessi hvarvetna
hlotið frábærar viðtökur, enda er
myndin í alla staði hin skemmti-
legasta, ágætlega gerð og vel
leikin. Um tónlistina hafa þeir
séð Alan Jay Lerner og Frede-
rich Loewe, þeir sömu, sem
sömdu tónlistina í óperettunni
„My fair Lady“, sem farið hefur
sigurför um heiminn. Hefur
myndin „Gigi“ hlotið fjölda verð
launa, meðal annars sem bezta
mynd ársins, þegar hún kom
fram, fyrir tónlistina, leikstjórn-
ina o. fl. o. fl. Aðalleikendurnir
eru ekki heldur af lakara tag-
inu, en þeir eru Leslie Caron,
sem leikur „Gigi“, Maurice Che-
valier og Luis Jourdan.
Hafnarbíó:
Ragnarök.
Mynd þessi er frá Unversal-
Xnternational-félaginu og er tekin
í litum. Er hún gerð eftir sam-
nefndri skáldsögu Ernest K.
Gaun. Leikstjóri er Joseph Pev-
ney, en aðalleikendur Rock
Hudson og Cyd Charisse. Segir
myndin frá ævintýralegri férð
skútunnar „Cannibal“ yfir Kyrra
haf á leið til Mexíkó. Eigandi
og skipstjóri skútunnar (Cyd
Charisse), ung bandarísk kona,
Louis Arnstrong og Danny Kaye.
en aðalleikendur þau Deborah
Kerr og Gary Grant. Er mynd
þessi áhrifarík og heillandi ást-
arsaga, þar sem skiptast á Ijós
og skuggar í lífi elskendanna,
hinnar yndislegu Torry Mc Kay
(Deborah Kerr) og Nickie Ferr-
ante (Gary Grant). Hefst sagan
er þau hittast fyrst um borð í
glæsilegu skemmtiskipi, bæði
harðtrúlofuð, hann einni ríkusti
stúlku Bandaríkjanna, en hún
auðkýfingnum Ken Bradley
(Richard Denning). Þau verða
ástfangin hvort af Öðru við fyrstu
Stjörnubíó:
Zarak.
Úr mynd Stjörnubíós: Zarak.
Mynd þessi er létt og aðlaðandi
og tekin í fögru umhverfi.
☆
Hafnarfjarðar Bió:
Karlsen stýrimaður
Þetta er dönsk mynd, tekin f
litum, — fyrsta danska litmynd-
in, sem er nægilega löng til sýn-
ingar heilt kvöld. Mun þetta vera
dýrasta kvikmyndin, sem Danir
hafa gert. Er myndin gerð eftir
gamanleiknum „Styrmand Karl-
son’s flammar“, sem notið hefur
geysimikilla vinsælda í Dan-
mörku. í myndinni leika margir
af þekktustu og vinsælustu leik-
urum Dana, svo sem Johannes
Meyer, Fritz Helmuth, Ove Sprog
öe og síðast en ekki sízt, hinn
bráðsnjalli gamanleikari Dirch
Passer, svo að einhverjir séu
nefndir. Myndin gerist allvíða, í
Kaupmannahöfn, á heimshöfun-
um um borð í dönsku vöruflutn-
ingaskipi og á Perlueyjunni við
strönd Afriku, og eru þau atriðj,
sem þar gerast tekin þar á staðn-
um. — Fjallar myndin um við-
burðaríka ferð danska vöruflutn-
ingaskipsins til Perlueyjar til að
sækja þangað grjót, sem talið er
að hafi að geyma dýrmæt efni.
Jóhannes Meyer er skipstjói:,
Helmuth stýrimaður Karlsen og
Dirch Passer elda ofan í mann-
skapinn. Þegar til eyjarinnar
kemur er skipshöfninni tekið aí
mikilli gestrisni, enda er drottn-
ingin á eyjunni dönsk og maður
hennar líka og er hann gamall
kunningi skipstjórans frá Kaup-
mannahöfn.
Mynd þessi er efnismikil og
bráðskemmtileg, tvímælalaust i
fremstu röð kvikmynda.
☆
Kópavogsbió:
Nótt í Vín
Þetta er austurrísk gamanmynd
með mikilli og léttri tónlist og
söng. Er myndin gerð eftir óper-
ettu Richards Henberger „Opera-
ball“. Hún gerist í hinni fögru og
glaðværu Vínarborg um síðustu
aldamót. Segir þar frá tveimur
eiginmönnum nokkuð breyzlc-
um, sem laumast á óperudansleik
ársins án þess að hafa konur sín-
ar með. En konurnar eru slungn-
ari en þeir hafa gert ráð fyrir og
þær fara líka á dansleikinn, auð-
vitað dulbúnar. Er nú ekki að
sökum að spyrja. Hér gerast þeir
atburðir, sem mundu nægja lil
hjónaskilnaðar hvar sem væri og
vel það, en Vínarborg var í þá
daga fjörug borg, sem ekki tók
hlutina alltof hátíðlega og því
rætist hér furðuvel úr öllum
vanda að lokum.
Þetta er mynd full af gáska og
gleði og kemur áhorfandanum í
gott skap.
Austurbæ jarbíó:
Rauði riddarinn.
Þetta er ítölsk mynd, tekin i
litum og Cinemascope. Leikstjóri
er G. M. Scotese, og í aðalhlut-
verkunum eru Fausto Tozzi og
Patricia Medina. — Myndin gerist
í Písa á Ítalíu á öndverðri sext-
ándu öld. Ævintýramaðurinn
Raniero d’Anversa hefur hrifs-
að til sín völdin í borginni og
þrautpínir borgarbúa með háum
sköttum í nafni stórhertogans. —
Auk þessa vinnur- hann ýmis
hryðjuverk, rænir banka og læt-
ur myrða bankastjórann En þá
kemur til sögunnar listmálarinn
Luca. Hann er sonur bankastjór-
ans og sver þess dýran eið að
hefna föður síns. Hefjast nú
mikil átök milli Luca og fylgj-
enda hans annarsvegar og Flam-
ingo, en svo er harðstjórinn nefnd
ur, og manna hans hins vegar.
Gerast nú margir spennandi at-
burðir, sem ekki verða raktir
hér, og jafnframt er sagt frá ást-
um Luca og ungrar stúlku, Lauru
að nafni, sem er dóttir lands-
stjórans, sem Flamingo hefur
kúgað til undirgefni.
☆
sem átt hefur í útistöðum við
bandarísku lögregluna, Harry
Hulton, uppgjafa leikhúsmaður o.
fl. — Skútan er gömul og farin
að láta á sjá, enda kemur alvar-
legur leki að henni mjöð bráð-
lega. Stýrimaðurinn krefst þess
að komið verði við í Honolulu
til þess að gera við lekann. Davíð
skipstjóri aftekur það með öllu,
enda heldur hann að óhætt muni
vera að halda áfram ferðinni. Þó
fer svo að hann neyðist til að leita
.hafnar í Honolulu. Og þar bíða
örlögin Carlottu — en Davíð
kveðst munu bíða hennar líka og
sækja hana, þegur hún hafi gold -
ið skuld sína við réttvísina, að
tveimur árum liðnum, enda höfðu
þau játað hvort öðru ást- sína.
☆
Nýja bíó:
Þaff gleymist aldrel.
Þetta er amerísk mynd frá 20th
Century-Fox, tekin í litum og
Cinemascope og byggð á sam-
nefndri skáldsögu eftir Ow:a
Aheme, en hún birtist á sínum
tíma sem framhaldssaga í Tím-
anum. Leikstjóri er Leo McCarey
Þessi enska mynd er tekin í
litum og CinemaScope. Leik-
stjóri er Terence Young, en aðal-
leikarar Victor Mature, Ánita
Ekberg og Michael Wilding. Ger-
ist myndin í Indlandi í ríki höfð-
ingjans Haji Khan. Hann á þrjá
syni, Zarak (Victor Mature), Biri
og Kasim. En hann á líka kvenna
búr, og þar er Salma (Anita Ek-
Tight“ svo eitthvað sé nefnt.
Danny Kay leikur Red Nichols
og er bráðskemmtilegur að
vanda. Þá spillir það ekki að
Louis Armstrong og hljómsveit
hans leikur í myndinni.
Mynd þessi hefur allsstaðar
hlotið mikla aðsókn, enda er hún
mjög skemmtileg.
☆
berg), sem ber af öllum konum.
Vandamálið er það, að hún elskar
Zarak og eitt sinn kemur Haji
Khan að þeim í faðmlögum. Þetta
er dauðasök, en þó fer svo að
Khan lætur sér nægja að reka
Zarak í útlegð og Salma selur
hann kaupmanni einum. Zarak
gerist nú foringi annarra útlaga,
sem lifa á ránum, en þó snýst
barátta þeirra mest gegn yfirráð-
um Breta á þessum slóðum. Er
heitið fé til höfuðs Zaraks. Gerast
nú mörg spennandi atvik því að
Ingram (Michael Wilding),
brezki herforinginn lætur einskis
ófreistað til að klófesta Zarak,
Verður sú saga ekki sögð hér.
Mynd þessi er viðburðarík og
spenna hennar mikil.
Þá sýnir Stjörnubíó um jólin
barnamyndina, „Heiffa og Pétur“
sem hvarvetna nýtur geysimikilla
vinsælda.
☆
Tjarnarbió: .
Danny Kay og hljómsvelt
Þetta er alveg ný amerísk
mynd, aðeins fárra mánaða göm-
ul, og er tekin í litum. Er myndin
byggð á ævisögu hins fræga am-
erríska hljómsveitarstjóra Red
Nichols og hljómsveitarinnar
„The five Pennies". Er fjöldinn
allur af lögum leikinn og sunginn
á myndinni þeirra á meðal „The
five Pennies", „Lullaby úr Rag-
time“ og „Goodnight — Sleep
Tripolibíó:
Frídagar í París
Þetta er ný amerisk gaman-
mynd, tekin í litum og Cinema-
scope, gerð eftir sögu Roberts
Hope. Hefur Gerd Oswald sett
myndina á svið, en aðalleikendur
eru þeir snillingarnir Bob Hope
og Fernandel hinn franski, sem
allir hér kannast við frá kvik-
myndinni „Don Camillo“, þar
sem hann lék prestinn af óviðjafn
anlegri snilld. Aðrir leikendur í
myndinni eru Anita Ekberg og
Martha Hyer. — Myndin hefst um
borð í lystiskipinu „Ile de
France“ á leið frá New York tii
Frakklands. Meðal farþega er
hinn frægi ameríski skopleikari,
Bob Hunter (Bob Hope) og
franski gamanleikarinn Fernydíl
(Fernandel), ung og falleg stúlka
Ann McCall að nafni og Sara,
ljóshærð ung stúlka. Bob er í
þeim erindum að kaupa handrit
að nýju leikriti eftir rithöfundinn
Serge Vitry. Þegar til Parísar
kemur reynist ekki eins auðveltog
búast hefði mátt við, að nálgast
handritin hjá rithöfundinum.
Gerast þarna margir voveiflegir
atburðir, sem leiða í ljós að Bob
er í bráðri hættu. En hann á hauk
í horni þar er vinur hans, leik-
arinn Fernydel, sem kemur hon-
um til liðs, þegar mest ríður á. Ég
hef ekki séð þessa mynd, en það
er trú mín að hún sé skemmtileg
með slíkum öndvegisleikurum
sem Bob Hope og Femandel í
aðalhlutverkunum.
☆
Bæjarbíó:
Undir suffrænum pálmum
Þetta er músik-mynd í litum,
tekin á Ítalíu. Leikstjóri er Hans
Deppe. Er meginefni myndar-
innar tónlist og ástir. Koma þarna
fram ýmsir þekktir tónlistar-
menn, svo sem Helmut Zachanae,
einn frægasti jazz-fiðluleikari
Evrópu, sem hefur ferðast land
úr landi með fiðluhljómsveit sína
og haldið hljómleika við mikla
hrifningu áheyrenda, Teddi Reno,
sem er vinsælasti dægurlaga-
söngvari Ítalíu og hin unga
sænska söngkona Bibi Johns, sem
nýtur sívaxandi vinsælda á megin
landi Evrópu. Syngur hún i mynd
inni mörg lög, m. a. sænska
„Vögguvísu", „Undir suðrænum
»pálmum“ og „Serenata d’ amorc".