Morgunblaðið - 23.12.1959, Side 24
1
dagur
til jola
lltoginiMaMfc
287. tbl. — Miðvikudagur 23. desember 1959
dagur
til jóla
Bíl
hvolfir
3 í sjukrahúsi
SELFOSSI, 22. des.
ÞAÐ slys vildi til í dag um há-
degisbilið, að bíll með sjö manns
hvolfdi. Allir nema bílstjórinn
meiddust og í kvöld eru hér í
sjúkrahúsinu einn fullorðinn
maður, kona og drengur. Eru
þau öll.frá Votumýri á Skeiðum.
Fólkið var á leið hingað til
Selfoss til þess að kaupa til jól-
anna. Var ekið í rússneskum
jeppa sem var með tjaldi yfir. Á
veginum rétt ofan við Kílhraun
varð slysið. Ökumanni jeppans
sýndist framundan vera vatn á
veginum, en er bíllinn rann yfir
það, kom í Ijós að flughált svell.
Skipti engum togum að bíllinn
snarsnerist á veginum, fór útaf
honum og kastaðist út í grjóturð
og þar hvolfdi honum. Allir far-
þegarnir í bílnum, 'sex að tölu,
meiddust, en bílstjórinn ekki.
Fólkið var frá Votumýri,
nema bílstjórinn og var það flutt
bingað í sjúkrahús. >rír fengu
að fara heim aftur að lokinni
læknisaðgerð, en í gærkvöldi eru
úr hópnum í sjúkrahúsinu Guðni
bóndi á Votumýri, tengdadóttir
hans Elín og drengurinn Tryggvi
Eiríksson, en hann er bróðir El-
ínar. Að sögn Bjarna Guðmunds
sonar læknis eru þau öll nokkuð
mikið slösuð, en mest og alvar-
legust eru meiðsli Tryggva. Líð-
an þeirra var sögð eftir öllum
vonum seint í gærkvöidi.
,Þú gefur skýrslu!4
SEINT í gærkvöldi varð harður
árekstur á flughálku á Miklu-
brautar- og Rauðarárstígshorni.
Slökkviliðsbíll ók inn á Miklu-
brautina, en í því kom þar á
gatnamótin eftir brautinni 4ra
manna Renault-bíll. Slökkviliðs-
bíllinn, sem ók á þann litla, velti
honum og kastaði langa leið. Bíl-
stjórinn, sem var einn í bílnum,
slapp ómeiddur. Slökkviliðsbíll-
inn hafði litla sem enga viðdvöl
á árekstrarstaðnum. Bíls’tjórinn
sagði að þeir í slökkviliðsbílnum
hefðu kallað til sín: — Þú gefur
skýrslu, og síðan ekið á brott.
Litli bíllinn hafði orðið fyrir
miklum skemmdum.
Þessi mynd var tekin á söltunarstöð á Akranesi í gær.
**WS»IS!»r
„Jdlafif í síldinní
AÐEINS mjög fáir bátar hafa
verið á síldveiðum í nótt. —
Stafar þessi almenna landlega
í verstöðvunum af því: „Það
eru komin jól í síldinni“, eins
og einn sjómannanna í Sand-
gerði hafði komizt að orði i
gær, er hann fór í jólafríið.
Ef vel viðrar eftir hátíðar og
aflabrögð verða góð, er búizt
við að framhald verði á síld-
veiðunum.
Dagurinn í gær var sem og
hinir fyrri mikill og almennur
Stórfelld aukning Hitaveitunnar;
•
60 I. á sekúndu af
135 st. heitu vatni
HVER stórviðburðurinn rekur nú
annan á sviði orkuframleiðslu. Á
laugardaginn var, tók Efra-Sogs-
virkjunin til starfa og í fyrradag
stórjókst vatn Hitaveitunnar, er
lokið var við að virkja tvær vatns
miklar borholur, sem stóri jarð-
borinn boraði í fyrrasumar á
gatnamótum Laugarnesvegar og
Hátúns. Hófst þá lokaprófun á
dæluútbúnaði. Standa miklar
vonir til þess, að með þessari við-
bótar virkjun til Hitaveitu Reykja
víkur, muni hitaveitan nýtast
allmiklu betur en áður og liggur
það í því meðal annars, að vatnið
er allt að 135 stiga heitt er það
blandast Reykjavatninu í aðal-
æðinni.
30 sekl. úr holu
Borholur þessar hafa við fyrstu
mælingar eftir að byrjað var að
dæla frá þeim vatni, sýnt að
vatnsmagnið er um 30 sekl. frá
hvorri holu. Á 50 metra dýpi hef-
ur 75 hestafla dælum verið komið
fyrir, en þær dæla vatninu frá
holunum eftir vatnsæð, sem ligg-
ur að aðalæðinni frá Reykjum
að geymunum á Öskjuhlíðinni og
kemur sú æð í æðina frá Reyki-
um nokkuð fyrir norðan gamlr
golfskálann.
Samsvarar 26.000 kw.
Fyrstu mælingar gefa til kynna
hvílík feikna orka það er seiu
þarna hefur verið beizluð. Notan-
legt orkumagn í þessum borho -
um mun samsvara 26.000 kílo-
wöttum, en það er hvorki mei.a
né minna er tvöfalt það orku-
magn sem virkjað var austur við
Efra-Sog á laugardaginn var.
afladagur. Dagaflinn skipti þús-
undum tunna. Vegna sífellt mink
andi síldarsöltunar, vegna jóla-
anna á heimilunum, fór verulegt
magn síldarinnar til bræðslu og
eins var allmikið fryst.
Pottur rændur
ú Luuguvegi
EINN hinna yfirlætislausu ,
potta Hjálpræðishersins hér
í Reykjavík, var rændur um
miðjan dag í gær.
Egill Stene, kapteinn úr
Hjálpræðishernum, skýrði
Mbl. frá þessu í gær. Nú um
þessi jól hafa pottar Hjálp-
ræðishersins staðið á fimm
stöðum hér í bænum, flest-
ir í Miðbænum, en einn á
Laugaveginum, við verzl.
Liverpool. Það var hann,
sem var rændur. Gerðist
þetta milli kl. 12—1,30 í
gærdag. Potturinn var þá
sprengdur upp og tæmdur.
Var þetta einn bezti pottur-
inn okkar, sagði kapteinn
Stene og nokkurt fé hafði
þá safnazt í hann, frá því
hann var settur upp klukk-
an 8,30 í gærmorgun, því
pottarnir eru jafnan tæmd-
ir á kvöldin. Kvað kapteinn
Stene bæjarbúa hafa lagt í
potta Hersins rúmlega 15,-
000 krónur um jólin í fyrra,
og í fyrrakvöld höfðu safn-
azt 8.000 krónur.
Kapteinn Stene sagði, að
tíðindin um rán jólapotts-
ins hefði komið sér mjög á
óvart. Á öðru áttum við
sannarlega von. —
Bað hann Mbl. að færa
bæjarbúum þakkir fyrir
skerf þeirra til þess að gefa
þessum börnum gleðileg jól.
Hinn miki aflabátur Víðir II.
úr Garði er aflahæsti báturinn
í flotanum. Eftir því sem næst
var komist í gærkvöldi mun afl
inn vera orðinn allt að 7500 tunn
ur síldar. Hafði Eggert á Víði
II. komið með rúmlega 800 tunn
ur síldar í gær til Sandgerðis.
Þangað hafði einnig komið með
prýðisafla Rafnkell, er hann með
hringnót eins og Víðir II. Mun
Rafnkell vera meðal hæstu báta,
eða um 600 tunnur.
Keflavík, 22. des.: — 19 bát-
ar komu að í dag með 3170 tunn
ur. Þó var veiði í dag mjög mis-
jöfn. Aflahæstu reknetjabátarn-
Ir voru Reykjaröst 330 tunnur og
Farsæll með 300. Af hringnóta-
bátunum voru hæstir Vonin með
500 og Kópur með 250 tunnur.
Saltað hefur verið fram á nótt
og saltað eins mikið og hægt
hefur verið að koma af, og hitt
fer í frystingu.
Akranesi: — Rokveiði er enn
sem fyrri daginn. Komu nú hing
að í dag 18 bátar með 4700 tunn-
ur síldar alls. Voru fimm þeirra
hringnótabátar. Var Höfrungur
með rúmar 850 tunnur, Keilir
640, Sigurvon 586 og tveir Sand
gerðisbátar, Jón Gunnlaugsson
og Muninn með sínar 500 tunn-
ur hvor. Af reknetjafoátunum
voru með mestan afla Skipa-
skagi með 250 tunnur, Ólafur
Magnússon 200 og Bjarni Jó-
hannesson 190. Saltað var frá
klukkan 10,30 í gærmorgun til
klukkan 4 sl. nótt og því vöku-
nótt hjá mörgum verkamönn-
um.
Hafnarfirði: — Ekki var eins
góð síldveiði í gær og daginn
áður, en þó fiskuðu bátarnir yf-
irleitt ágætlega. Um 1100 tunn-
ur voru lagðar upp hjá Jóni Gísla
syni og var Faxafoorgin með
mestan afla eða rúmar 600 tunn-
ur, Fagriklettur 200, Hafnfirð-
ingur 165, Stefnir 100 og Flóa-
klettur 95. Þá var Haförnin með
um 250, Guðbjörg 150, Hafbjörg
80, Fákur 70, Álftanes og Reykja
nes um 100 tunnur hvor.
Ekki fóru bátarnir út aftur í
gær, því að ekki verður unnið
við söltun síldar eða frystingu í
kvöld eða á aðfangadag.
s ki p - ;ig Id i gegnum
br yí m una á Djúpavík
GJÖGRI, Ströndum, 22. des.
DANSKT skip, Ketty Danielsen,
sem átti að taka saltfisk hjá hf.
Djúpavík, sigldi um kl. 2 í gær
í gegnum bryggjuna á Djúpavík.
Var skipið að leggjast upp að
að, þegar mistök urðu í vélar-
rúmi, og í stað þess að fara fulla
ferð aftur á bak, fór skipið
áfram, með þeim afleiðingum að
það fór í gegnum miðja bryggj-
una og stóð fast upp undir síldar-
planinu. Náðist skipið ekki út
fyrr en á flóðinu eftir miðnætti
í nótt. ■
Bryggjan, sem var stór tré-
bryggja, skemmdist mikið. Er
skarðið, sem'skipið gerði í hana,
13 m breitt. Brotnuðu alveg 20
staurar og aðrir löskuðust. Fram-
endi bryggjunnar hallast mjög og
er viður úr henni fljótandi um
allan Reykjafjörð.
Skipið, sem lestar 1100 tonn,
skemmdist ekkert, og fór það frá
Djúpuvík kl. 1 í dag áleiðis til
Reykjavíkur. — Regína.