Morgunblaðið - 29.12.1959, Side 16
16
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 29. des. 195S
uPj/EiJA
Að lokum leit hann upp og ég
sá að enni hans var blautt af
svita. Því næt tók hann gleraug-
un af sér og þurrkaði af þeim
móðuna. Andlit hans virtist allt
annað, naktara, brjóstíumkennan-
legra, daprara. Og eins og svo oft
er um nærsýnt fólk, virtust aug-
un í honum daufari, þreytulegri
en séð í gegnum hin kúptu gler.
Mér fannst líka bólgnu augna-
hvarmarnir benda ótvírætt til
þess að gamli maðurinn svæfi
lítið og illa. Enn einu sinni fann
ég hinar hlýju tilfinningar
grípa mig sterkum tökium. Ég
vissi að meðaumkunin var að ná
valdi yfir mér. Allt í einu fann
ég, að það var ekki lengur hinn
auðugi hr. von Kekesfalva, sem
sat andspænis mér, heldur gam-
all maður yfirbugaður af harmi..
Hann ræksti sig og röddin var
óskýr og loðin, þegar hann tók
til máls.
„Mig langar að biðja yður mjög
mikillar bónar, hr. liðsforingi. ..
Ég veit auðvitað að ég hef enga
heimild til að gera yður ónæði.
.. bér þekkið okkur raunveru-
lega alls ekki neitt .. auk þess
getið þér neitað .. auðvitað get-
ið þér neitað. .. Það er kannske
óskammfeilið af mér, nærgöng-
ult, en alveg frá því er ég sá
yður í fyrsta skipti, hef ég borið
traust til yðar. Það er strax auð-
fundið, að þér eruð góður mað-
ur, maður sem alltaf er reiðubú-
inn að rétta öðrum hjálparhönd.
Jú, jú, jú‘:. Ég hlýt að hafa gert
einihverja mótmælandi hreyf-
ingu. —• „Þér enuð góður maður.
Það er eitthvað í fari yðar og
framkomu, sem vekur traust. Og
stundum .. finnst mér eins og
þér hafið verið sendur mér af..“
Hann þagnaði skyndilega og ég
var viss um að hann hafði ætl-
að að segja „af guðd“, en ekki
haft kjark til þess. — „Sendur
mér, til þess að ég gæti talað
hreinskilnislega og opinskátt við
yður. Auk þess er það ekki neitt
sérlega mikið, sem ég ætla að
biðja yður um. .. En hér sit ég
og læt dæluna ganga án þess
að spyrja yður fyrst og fremst
hvort þér séuð fús til að hlusta
á mig“.
„Að sjálfsögðu er ég það, hr.
von Kekesfalva".
„Kærar þakkir. Þegar maður
er orðinn gamall, þarf maður
ekki að líta nema einu sinni á
mann, til að geta lesið hann nið
ur í kjölinn. Ég þekki strax góð
an mann, þegar ég sé hann. —
Konan mín kenndi mér það. Guð
blessi sál hennar. .. Það var
fyrsta sorgin, þegar guð tók hana
frá mér .. en samt held ég stund
um, að það hafi kannske verið
betra að hún skyldi ekki þurfa
að sjá þá ógæfu sem henti barn
ið. .. Hún hefði ekki þolað það.
.. Þegar þetta byrjaði svona
langvinnt. .. Hvernig gat nokk
ur sem sá barnið þá leika sér,
rétt eins og önnur börn, hlaupa
um og dansa eins og skoppara-
kringlu, ímyndað sér að allt í
einu yrði þessu lokið, lokið fyr-
ir fullt og allt? .. Og svo, þegar
Jólatrésseríur
— 17 Ijós —
NORMA amerískar
SERÍUPERUR
Verð kr. 3.50 stk.
Jólatrésseríurnar
sem fást hjá okkur eru
með 17 ljósum. Það hef-
ir komið í Ijós að vegna
misjafnrar spennu sem
venjulega er um jólin,
endast 17 ljósa-seríur
margfalt lengur en venju
legar 16 Ijósa.
Jíekla
Austurstræti 14
Sími 11687
við lásum í blöðunum um öll þau
kraftaverk, sem læknarnir væru
farnir að gera, sauma saman
hjörtu og gróðursetja ný augu,
þá var ósköp eðlilegt, að ég teldi
alveg víst, að þeir gætu gert jafn
einfaldan hlut og læknað barn
— barn sem var fætt heilbrigt og
hafði alltaf verið heilbrigt — á
tiltölulega skömmum tíma. Þess
vegna var ég ekki neitt sérlega
áhyggjufullur í fyrstu. Ég gat
aldrei trúað því, ekki eitt augna
blik, að guð gæti gert annað eins
að hann gæti lagt aðrar eins
þjáningar á barn, saklaust barn,
ævarandi og ólseknandi. — Ef
þetta hefði komið fyrir mig —
gott og vel, fætur mínir eru
búnir að bera mig nógu lengi,
hvaða þörf hef ég fyrir þá leng-
ur. Og þar að auki hef ég ekki
verið góður maður að neinu
leyti. Ég hef gert margt ljótt og
óguðlegt. Ég hef jafnvel. .. En
hvað var ég að segja? .. Já, já,
ef þetta hefði komið fyrir sjálf-
an mig, þá hefði ég getað skilið
það. En hvernig gat guð farið
svona langt frá markinu og lost
ið þann, sem sízt átti það skil-
ið, saklaust barnið? Hvernig get
ur nokkurt okkar skilið það, að
fætur á lifandi manni, barni,
skuli skyndilega deyja, án nokk-
urrar ástæðu. Sóttkveikjiur,
sögðu læknarnir og töldu sig
segja eitthvað mjög merkilegt.
,. En sóttkveikjur er aðeins
orð, þegar öllu er á botninn
hvolft. Fyrirsláttur.....En hitt
er veruleiki, sú staðreynd að
þarna liggur barn með fætur,
sem skyndilega misstu allan mátt
og getur ekki gengið eða hreyft
sig framar, og að maður verð-
ur að standa aðgerðalaus og
horfa á þetta, án þess að geta
látið nokkra hjálp í té. .. Það
er óskiljanlegt“.
Hann þurrkaði ennið með
handarbakinu — „Að sjálfsögðu
er ég búinn að leita til ótal lækna.
.. Hvar sem ég heyrði góðs lækn-
is getið, reyndi ég að ná fundi
hans. Ég fékk þá alla til að koma
hingað og þeir héldu fyrirlestra
og töluðu latínu, ræddu saman og
héldu langar ráðstefnur. Einn
reyndi þetta og annar reyndi hitt
og svo sögðust þeir vona þetta og
hitt, hirtu laun sín og fóru, en
veikindi dóttur minnar héldust
óbreytt. Auðvitað er um bata að
ræða og hann hreint ekki svo lít-
inn. í fyrstu varð hún að liggja
flöt á bakinu og allur líkami
hennar var lamaður, en nú hefur
hún a. m. k. fengið mátt í hand-
leggina og efri hluta líkamans, og
getur gengið hjálparlaust með
hækjum . . . bati, já, talsverður
bati. — Ég má ekki vera ósann-
gjarn — það er vissulega tals-
verður bati. .. En enginn þeirra
hefur getað veitt henni fulla
lækningu. .. Þeir hafa allir yppt
öxlum og ráðlagt þolinmæði, þol-
inmæði og aftur þolinmæði. ..
Aðeins einn þeirra hefur ekki
gefizt upp, einn, dr. Condor. ..
Ég veit ekki hvort þér hafið
nokkurn tima heyrt hans getið?“.
Ég varð að viðurkenna, að ég
hefði aldrei heyrt hann nefndan
á nafn.
„Nei, auðvitað, hvernig er hægt
að búast við því að þér þekkið
hann. Þér eruð við fulla heilsu Dg
hann er ekki einn af þeim, sem
láta mikið yfir sér. .. Og ég held
að hann hafi heldur ekki mikið
að gera. Hann er vissulega merki-
legur maður, mjög óvenjulegur.
.. Ég veit ekki fyllilega, hvernig
ég á að útskýra það fyrir yður.
Hann hefur ekki áhuga á venju-
legum tilfellum, þeim sem hver
skottulæknir getur ráðið bót á. ..
Hann hefur einungis áhuga á al-
varlegum tegundum, sem aðrir
læknar gefast upp við með axla-
yptingum. Auðvitað er ég of fá-
fróður til þess að geta fullyrt að
dr. Condor sé betri læknir en aðr-
ir læknar. Eg veit einungis að
hann er betri maður. Eg kynntist
honum fyrst þegar konan mín var
veik og ég sá hvað hann barðist
fyrir lífi hennar. .. Hann var sá
eini, sem neitaði alveg að missa
alla von, alveg til hins síðasta og
þá varð mér ljóst, að þarna var
maður sem lifði og dó með hverj-
um einstökum sjúklingi sínum.
Hann hefur — ég veit ekki hvort
ég get gert mig nægilega skiljan-
legan — hann hefur ástríðufulla
löngun til þess að sigra sjúkdóm-
ana. Hann er ekki knúinn áfram,
eins og aðrir læknar, af metnaðar
girnd og ágirnd. .. Hann hugsar
ekki um sjálfan sig, heldur um
aðra, þá sem þjást. .. Oh, hann
er dásamlegur maður“.
Gamli maðurinn hafði talað sig
æstan og augun, sem að virtust
svo dauf og þreytuleg, glömpuðu.
„Já, hann er dásamlegur mað-
ur, megið þér trúa, sem aldrei
myndi yfirgefa neina sál hjálpar-
lausa. Hann lítur á hvert tilfelli
sem heilaga, hátíðlega skyldu...
Ég veit að ég get ekki komið
nægilega vel orðum að hugsun-
um mínum .... en það er eins
og hann áliti það sína sök í hvert
skipti seih hann getur ekki gert
neitt .... persónulega sök sína
.... og þess vegna — þér munið
ekki trúa því, en samt er það
heilagur sannleikur — þessvegna
var það einu sinni, þegar honum
mistókst að gera það, sem hann
hafði heitið að gera — að gefa
blindri konu sjónina aftur — þá
kvæntist hann henni. Getið þér
gert yður það í hugarlund? Hann,
ungur maðurinn ,gekk að eiga
blinda konu, sjö árum eldri en
.....$parió yfw hlaup
á taílli tnargra vcrzlana!
WPiAMl
Á ÓIIUM
M'
Ausfciu-stræti
SKREYTINGAR
GRÓÐRASXÖÐIN v/Miklatorg — Sími 19775.
CTSALAN Laugavegi.
a
r
t
ú
ó
Þér hefur mistekist aftur Mark
is. Þessar árar eru ónothæfar.
Ég skil ekki hvernig broddgöltur
inn hefir komist í þær. En það
þýðir það að ég verð að búa til
nýjar. Sjáðu Markús, eru þetta
ekki saltkorn á árinni? Jú, það I notað helminginn úr þessum salt
er salt SirrL Það hefur einhver | bauk í gærkvöldL
aitttvarpiö
Þriðjudagur 29. desember
8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. —
8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón-
leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón-
leikar. — 9.10 Ve^urfregnir —
9.20 Tónleikar).
12.15—13.15 Hádegisútvarp — (12.25
Fréttir og tilkynningar).
15.00—16.00 Miðdegisútvarp. — (16.00
Fréttir og veðurfregnir).
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Amma segir börnunum sögu.
18.50 A léttum strengjum: Ugo Calise
syngur og leikur á gítar og Kings
way Fromenade hljómsveitin
leikur lög ftir Jerome Kern.
19.40 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Daglegt mál (Arni Böðvarsson
| kand. mag.).
20.35 Utvarpssagan: „Sólarhringur" eft
ir Stefán Júlíusson; VIII. (Höf-
undur les).
21.00 Jólatónleikar hljómsveitar Ríkis
útvarpsins 1 Dómkirkjunni. —
Hljómsveitarstjóri: Hans Anto-
litsch. Einleikarar: Dr. Páll Is-
ólfsson, Björn Olafsson og Karel
Lang. Einsöngvari: Sigurveig
Hjaltested.
a) Þrjú lög fyrir strengjasveit,
eftir Purcell.
b) Konsert fyrir fiðlu, óbó og
strengjasveit eftir Bach.
c) t>rjú andleg lög eftir Bach,
sungin.
d) Ciaconna fyrir orgel eftir Pac-
helbel.
e) Sinfónía 1 E-dúr op. 18 nr. 5
fyrir tvöfalda hljómsveit eftir
Johann Christoph Bach.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Erindi: Véfréttin 1 Delfi (Jón R.
Hjálmarsson skólastjóri).
22.25 Lög unga fólksins (Guðrún Svaf-
arsdóttir og Kristrún Eymunds-
dóttir).
23.20 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 30. desember
8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. —
8.05 Morgunleikfimi. >— 8.15 Tón-
leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón-
leikar. — 9.10 Veðurfregnir. —
9.20 Tónleikar).
12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir
og tilkynningar).
12.50—14.00 ,,Við vinnuna": Tónleikar
af plötum.
15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16 00
Fréttir og veðurfregnir).
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Utvarpssaga barnanna: ,,Siskó á
flækingi" eftir Estrid Ott; XVI.
lestur (Pétur Sumarliðason kenn-
ari).
19.35 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.20 „Séra Matthfas f Odda“, sam-
felld dagskrá, sem dr. Kristján
Eldjárn býr til flutnings.
21.20 Framhaldsleikritið: „Umhverfis
jörðina á 80 dégum“.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Ur heimi myndlistarinnar (Björn
Th. Björnsson listfræðingur).
22.30 Tónaregn: Svavar Gests kynnir
lög eftir Sigfús Halldórsson.
23.10 Dagskrárlok.