Morgunblaðið - 03.01.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.01.1960, Blaðsíða 2
s MOPr. rtvnt 4 ftlfí Sumtudágur 3. janúar 1960 Áramótarœða forseta íslands Góðir Islendingar! VIÐ HJÓNIN óskum yður öllum góðs og gleðilegs nýjárs. Við þökkum einnig gamla árið þeim, sem við höfum hitt fyrir á ferð- um okkar um landið eða verið hafa gestir okkar á heimilinu. Þeim fjölgar óðum sem leggja leið sína um hér á Bessastöðum til að skoða staðinn og kirkjuna, og það er okkur gleðiefni, þó fá- um sé hægt að sinna sérstaklega. Við hefðum ferðazt víðar í sum- ar, ef einhverntíma hefði stytt upp, seinni hlutann, hér á Suð- vesturlandinu — og raunar líka, ef ekki hefðu verið tvennar kosn- ingar. Hann er bæði stuttur og lágur sólargangurinn um þetta leyti. Héðan frá Bessastöðum sezt sólin nú á bak við Keili, og logagyllir suðurhimininn í ljósaskiptunum og kvöldkyrrðinni. Veturmn á sinn gullna, hvítbláa þokka, þeg- ar svona viðrar. Hringur sólar- innar og þríhyrningur Keilisins fara vel saman sem tákn á himni, nú þegar daginn fer aftur að lengja. Þó margt hafi breytzt, og rafmagnið að nokkru leyti sigr- azt á vetrarmyrkrinu og kuldan- um, þá er hækkandi sól lífsskil- yrði öllum gróðri og oss sjálfum, jarðarbörnum. Eitt af því sem minnst hefir breyzt frá sínu upphafi, er titil- blaðið á Almanaki Þjóðvinafélags ins, sem fyrst kom út á þjóðhá- tíðarárinu 1874, íslenzkað af Jóni Sigurðssyni. Stjörnumerkin og brotið er hið sama, en þá voru talin frá sköpun veraldar tæp sex þúsund ár. Nú er því atriði sleppt, en meir greint frá ártölum úr sögu íslendinga sjálfra. Kem- ur þá í Ijós, að frá stofnun Ai- þingis, til þessa dags, hafa ís- lendingar verið nánast tvöfallt lengur undir erlendri konungs- stjórn en sjálfstætt lýðveldi, og þá talin með sextán ár, á næsta vori, síðan lýðveldi var endur- reist. Má þetta minna okkur á að vel þurfum vér að gæta fjöreggs- ins! Á tímans sjó fæst engin trygg ing fyrir algjöru öryggi. Voldug ríki hafa liðið undir lok á tiltölu- lega stuttri ævi íslenzkrar þjóð- ar, og vel þarf að halda á af stjórnvizku, til að vort fullveldi og unga lýðveldi verði langlíft í landinu. Þá skiptir og mestu ein- hugur á örlagastundum. Frá því á Þorláksmessu hinni næst síðustu hafa tvær ríkisstjórn ir verið myndaðar, og farið fram tvennar kosningar, þó ekki vegna neinnar sérstakrar óaldar sem yfir gangi, heldur vegna stjórn- skipulagsbreytingar um skiptingu landsins í kjördæmi og þing- mannafjölda. Það munu margir mæla, að kjördæmabreyting hafi ekki mátt bíða öllu lengur, þó á- greiningur væri um það, meö hvaða hætti breytingin skyldi gerð. En eftir þeirri skipan, sem á er orðin, verður nú starfað, og tekið til óspiltra mála um þau viðfangsefni í efnahags- og fjár- málum, sem of lengi hafa beðið úrlausnar, þó allir þingflokkar og allar hinar síðari rikisstjórnir hafi reynt sig á þessari þraut. Það verður ekki betur séð en að allur almenningur, einstakir þingmenn og þingflokkar séu sammála um, að það beri brýna nauðsyn til að ná þenn föstu tök- um á efnahagsmálunum, er kom • ið geti í veg fyrir greiðsluhal'.a við önnur lönd og verðbólgu inn- anlands. Heilbrigð fjármálastjórn er einn af höfuðþáttum sjálf- stjórnar og sjálfstæðis Um að- ferðir verður deilt, en þegar markið er eitt, þá ætti að mega gera sér góðar vonir um úrlausn, sem veiti hverri atvinnugrein þau jafnbeztu kjör, sem kostur er á. Þegar lesið er niður í kjölinn, þá eiga allar stéttir sinn hlut í þjóð- arbúskapnum. Lýðveldið verður á þessu ári 16 ára, fullveldið 42 ára og inn- lend fjárstjórn 86 ára. Það virðist því svo, að vér Islendingar höfum fengið alllanga reynziu um sjálf- Ásgeir Ásgeirsson forseti stæða fjárhagsstjóra. En þess ber að gæta að viðfangsefnin hafa sí- fellt verið að breytast og aukast fram á síðustu ár. Sjálfstæðan, íslenzkan gjaldeyri fengum vér ekki fyrr en upp úr hinni fyrri heimsstyrjöld, og héldu þá sumir fyrst, að hér væri um brellur ein- ar að ræða af hendi Dana. En fuli valda þjóð getur ekki heimtað af öðrum en sjálfri sér, sínu eigin þingi, stjórn og seðlabanka að varðveita gildi sínsjeigin gjald- eyris. Síðan þetta gerðist hafa at- vinnuhættir landsmanna ger- breyzt, og þá jafnframt allar að- ferðir og ráðstafanir um hyggi- legri stjórn efnahagsmála. Það má því telja nokkura vokunn, pó fjármálaþekking hafi á stundum drattað fulllangt á eftir nýjum staðreyndum. Þar á ég þó ekki við hin síðari ár. Almenningur skilur aðalatriði þessara viðfangs efna, alþingi hefir þaulrætt þau síðasta áratuginn og meðal starfs- manna þjóðarinnar eru hinir hæf ustu menn, sem fylgjast með kröf um tímans. Þegar vér fslendingar fengum stjórnarskrá og innlenda fjár- stjórn fyrir 86 árum, þá bjuggu flestir landsmenn í sveitum. En störfin voru fjölbreytt fyrir því: heyskapur, skepnuhirðing, heim- ilisiðnaður og farið í verið á ver- tíð. Áhöld voru frumstæð, og af- köst því lítil, en það sem mest kreppti að, var óhagstæð verzlun, sem dró arðinn út úr landinu. Þá var kappkostað að hafa sern minnst viðskipti, og vera sjálfum sér nógur. Fornar dyggðir þrifusv samt furðulega við þessi kjör, og merkileg menning. Gamla bað- stofan, þar sem heimilisfólkið safnaðist saman, er oss tákn þess bezta, sem aðþrengd þjóð ástund aði og varðveitti um aldir. Bað- stofan var lítið þjóðfélag, þar sem glóð aldanna kúlnaði aldrei að fullu. Með skútuöldinni hefst verka- skiptingin í íslenzku þjóðfélagi fyrir alvöru. Með stærri skipum og nýjum vélakosti fara fólks- flutningar ört vaxandi Útgerðin þarf örugga höfn í staðinn fyrir gamla, rudda vör. Sjómennimir flytja „á mölina!" Erlendir togar- ar skafa grunnmiðin, og opnir bátar hverfa úr sögunni Heimilis iðnaði hnignar við fólksekluna, vefstóllinn þagnar, en rokkurinn suðar enn um stund. I staðinn fyrir salúnsofngr ábreiður kemur rósprentaður shirtingur Gilitrutt hirðir ullina, og iðnaðurinn flyzt úr landi. Og enn eykst verkaskiptingin. Nú byrjar nýr iðnaður að vaxa upp í kaupstöðum, fyrst af veik- um mætti, en hefir þróast ótrú- lega á síðustu áratugum. Vér þekkjum öll þessa sögu. Qamla baðstofan er horfin, en þjóðfélag- ið er orðin ein stór baðstofa með öllum þeim gömlu og fjölmörgum nýjum starfsgreinum. Ég er ekki- að áfellast þessi umskipti. Verka- skipting er nauðsynleg í nútíma- þjóðfélagi. Það líður nú öllurn betur en áður. En máske oss tak- ist betur að leysa viðfangsefni vors nútímaþjóðfélags, ef vér minnumst þess, að í baðstofunni þarf að ríkja góður vilji og góður andi. Baðstofan gamla, en ekki Valhöll hin forna, er hið rétta tákn heilbrigðs þjóðfélags. Vér minnumst þess frá hinu fyrra tímabili að möguleikarnir voru ekki miklir og úrræðin fa. Börn voru ekki borin út beinlínis, en sérgáfur og hæfileikar. gerðu menn stundum að útilegumönn- um síns eigins þóðfélags. Þegar Börn Gunnlaugsson siglir til há- 53 skólanáms, segir stiftprófastur- inn sem síðar varð, í Görðurr. „Annar stúdent sigldi — hann heitir Björn og er mesta viðund- ur vor á meðal, og einasta skap- aður til þess að spekúlera, og það í hinu háa. En af því vér Islend- ingar brúkum ekki þess háttar fólk hér, svo var vel hann komst héðan, hvað sem forsjónin getur svo gert úr honum.“ Björn varð síðar einn hinn mesti nytsemdar- maður sinnar ættjarðar. Svona var það, og þeSs megum vér minn ast þegar vér lítum yfir hinn stóra hóp íslenzkra námsmam.a, sem nú eiga kost á að velja sict eigið hugðarefni til náms, innan- lands og utan, og á ég þar ekki við háskólamenn eina, heldur einnig allan þann fjölda, sem legg ur stund á verkleg fræði, iðnir og listir, og nú getur gert sér vonir um að ættjörðin hafi „brúk fyrir þess háttar fólk“ að lokn í námi. Þúsundir sérmenntaðra manna stunda nú þau störf pg listir, sem hvorki voru rækt né nokkurs virt á þeim tíma, þegar Björn Gunn- laugsson slapp utan. Það er fagn aðarefni, að fjölbreytnin bjargar nú gáfum sem áður voru duldar, og gátu jafnvel orðið dragbítur,* og öruggt að íslenzk þjóð fær nu notið gáfna sinna og hæfileika í vaxandi mæli. Það er margt ó- unnið með þessari þjöð, og þó torfbæir séu horfnir úr sögunm, þá er ýmislegt sem þarf að endur- byggja og endurbæta með hverri kynslóð. Það er ýmist, að ný kyn- slóð sættir sig ekki við að taka við óbreyttum arfi án nokkurrar tilbreytingar, og á mörgum verk- efnum hefir vart verið snert af eldri kynslóðum. Þessa hvoru tveggja gætir bæði í verklegum og andlegum efnum. í skáldskap eigum vér mikinn arf, sem ekki má týna, og þó verð ur að ávaxta. í flestum öðrum listgreinum var áður fáskrúðlegt um að litast. Þó að vex’ksviðið sé vítt og viðfangsefnin ótæmandi, þá get ég ekki varist þeirri hugs- un, að ýmsir hinna yngri manna í listum og bókmenntum „dep- enderi“, eins og Sveinn lögmaður Sölvason sagði, um of af þeim útlenzku. Öldur heimsmenningar innar skella að vísu á vorum ströndum, en það er löng leið og djúp yfir íslandsála, og landslag ræður að réttu lagi miklu um veður og sjólag. Auk þess ráða menn nokkru um það, hvert kunr. átta og áhrif eru sótt, og ekki er Svartiskóli hollur, þar sem nemandinn gleymir sínu íslenzka nafni. Ýmsir gamlir brunnar á meginlandinu eru nú auk þess harla gruggugir eftir tvær heims- styrjaldir, og ferskar lindi.r sprottnar fram á nýjum stöðum. Það verður engin list íslenzk, nema hún beri nokkurn keim þess jarðvegs sem hún vex í, að námi loknu, blæ íslenzkrar náttúru, þjóðlegra erfða og lífskjara. íslenzk menningarsaga hefur ekki ætíð verið samhliða eða sam tímis við erlenda menninarsögu. Hér er margt óunnið, í öllum list- greinum sem segja má að eldri meistarar hafi aflokið í öðrum löndum. Eyðurnar eru stórar. Eftirstríðs örvinglan þurfum vát ekki að flytja inn ómelta. Her ætti hú að vera endurreistnar- tímabil í listum og bókmentum, og er það raunar að ýmsu leyti. I þjóðsögum taka erlend minni á sig alíslenzkan búning, og á þann veg vex og þróast þjóðar- arfurinn. Þetta er máske hátí- kveðin vísa, en í ávarpi sem þessu er farið fljótt yfir sögu. Kvik- fjárrækt, fiskveiðar og iðnaður er grundvöllur mannsæmandi lífs, eins og það er orðað, en fá- menn þjóð á vísast meir undir skapandi list og andlegri menn- ingu en stærri og voldugri þjóðir. Og það er ein af nýjársóskunum að framtíðin geti í þessum efnum orðið eins glæsileg og fortíðin gefur fyrirheit um. fslenzk stjórnskipunarsaga hef- ir ekki heldur ætíð verið samtíða við aðarar þjóðir. Eitt sinn var hér þjóðveldi úti á íslandi, þo aðrir hefðu konung á þeirri tíð. Og hvernig sem þau mál skipast í öðrum löndum þá vitum vér ÖU af dýrkeyptri reynslu á Sturlunga ö'ld, að jafnvel tilraun til einræð'.s hlýtur að bera vora fámennu þjóð í erlendar greipar. Þessi öld, sem senn fyllir sjötta tuginn, ber þess og greinilegan vott, að íslenzk þjóð er um margt sjálfstæð hring iða í tímans straumi. Þegar vér hugleiðum þær hörmungar, sem gengið hafa yfir margar þjóðir og berum saman við vor örlög á þess um sömu árum nýrrar tækni, batnandi lífskjara og aukinnar fjölbreytni á öllum sviðum þjóð lífsins, þá verður ekki séð að æsk an eða þj óðin í þurfi „Hta reið um öxl“, heldur ber oss að þakka forsjóninm, að vér er- um komin nokkuð á leið, og biðja þess með bljúgum huga, að hei>' og hamingja megi fylgja þjoð vorri á óförnum leiðum. Nýjársmánuðurinn er kenndur við þann guð, Janus, er hafði tvö andlit, og horfði, annað fram, en hitt aftur. Sama gerum við um hver áramót, lítum fram og aftur á veginn. Að þessu sinni virðist mér vér höfum fuHa ástæðu ti! að þakka fyrir gamla árið, hver öðrum og forsjóninni Ókominn tími er jafnan óráðinn, en sun teikn eru betri en um síðustu áramót. Vér heyrum nú úr ýms- um áttum, að útlit sé betra í al- þjóðamálum en undanfarið. Þjóð- irnar eru að minsta kosti farnar að talast við, og forustumenn að heimsækja hver annan. Vér von- um og biðjum að það beri ár- angur, svo friðsamur almenning- ur meðal allra þjóða geti dregið andann léttar. Og þó smærra sé, þá er það ein af nýjársóskunum, að ágreiningsmál vor við ná- grannaþjóðir um helga dóma handritanna og frumbuiðarrétt á landsgrunninn megi leysast far- sællega. Að svo mæltu árna ég öllum landslýð árs og friðar, og bið Guð vors lands, að gefa oss gott ár. LÆGÐIN sem er á vestan- verðu Grænlandshafi fer minnkandi, en syðst á veður- kortinu sér á nýja lægð, sem hreyfist norðaustur. Var búist við að hún myndi valda aufic* lægri átt og þýðviðri bér á landi í dag. Veðurhorfur: Suð- vestur mið: Vaxandi austan átt, þýðviðri. — Suðvestur- land, Faxaflói og miðin: Vax- 'U austanátt síðdegis. Hiti um að yfir frostmarki. Breiða > fjörður til Norðausturlands og • miðin: Hægviðri léttskýjaðj með köflum. Austfirðir, Suð-) austurland og miðin: Suðaust • an gola þýðviðri, rigning s

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.