Morgunblaðið - 03.01.1960, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.01.1960, Blaðsíða 14
14 MORCU^nr.AfílÐ Sunnudagur 3. Janúar 1960 — Cybingar Framh. af bls. 1. um að hafa sýnt Gyðingum óvirð ingu og fjandskap. En ekki hef- ur enn tekizt að sannprófa hvort liér er um að ræða skipulagða starfsemi, eað einungis skrílslæti einstakra manna. Nokkrir for- ystumenn þýzka ríkisflokksins hafa verið ákærðir, en ekki fundnir sannir að sök. ★ ★ ★ Gyðingur nokkur í Offenbach, skammt frá Frankfurt, hefur fengið nafnlaust hótunarbréf þar sem honum er hótað lífláti á árinu 1960. Bifreið þessa sama manns hafði orðið fyrir barðinu á þessum seggjum á aðfangadags- kvöld. „Gyðingur" var þá krafs- að í lakkhúð bifreiðarinnar. Annar Gyðingur, sem býr ná- ■ lægt Offenbach, hefur fengið sams konar bréf. Sá er 85 ára og er honum hótað krossfestingu. Oamli maðurinn þorir nú ekki út fyrir hússins dyr. ★ ★ ★ < A nýjársnótt og s.l. nótt var , hakakrossinn málaður á kirkjur, húseignir Gyðinga og jafnvel al- menningsvagna í Þýzkalandi. i 1 dag bárust fregnir um að í nótt hefðu Gyðingaofsækjendur látið á sér bæra í Noregi og Aust urríki, og hefði sömu aðferðum yerið beitt. Stulkur 5- Reykjavikurbréf Framhald af bls. 9. afskipti ríkisins og minnkandi frjálsræði þéghanna. Áf því mundi leiða dvínandi frarh- kvæmdahugur, og þar með draga úr eðlilegum vexti framleiðslú, sem enn mundi hafa í för með sér, að við hlytum að dragast aftur úr öðrum, verða annarleg- um öflum mun háðari en ella. Mesta Fyrir þessa helgi voru eftir- taldir markhæstir í deildarkeppn inni: 1. deild: Violett (Manchester U.) .... 25 mörk Greaves (Chelsea) ......... 20 — McAdams (Manchester City) 17 — 2. deild: Clough (Middlesbrough) ..... 22 mork Mc Parland (Aston Villa) .. 20 — Phillips (Ipswich) ......... 18 — '0 0 00 0 0 0 * Keflvíkingar kvöddu gamla árið á virðulegan hátt. Skemt- anir og dansleikir voru í öllum samkomuhúsum, bæði í Njarð- vík og Keflavík en ekki kom til neinna óeirða og engin slys urðu og engar óspektir. Unglingar höfðu víða komið fyrir bálköstum og um áramót in loguðu 13 brennur í út- hverfum bæjarins og á opnum svæðum. Flugeldar þutu um loftið en enginn þeirra náði þó til mánans. Myndina sem hér fylgir tók Heimir Stígsson og sést þar gjörla ljósadýrðin eins og hún var um áramótin í Keflavík. ■0 0 00 0T0 0.0 0 0*0 0 0 0*0- við skiptiborðið á gömlu miðstöðinni. Óvenjumikil Hér er sænski verkfræðinfurinn við uppsetningu stöðvarinnar. Newcostle — Monchester U. 7:3 25. UMFERÐ ensku deildarkeppn innar fór fram í gær og urðu úrslit leikjanna þessi: 1. dcild: Arsenal — Wolverhampton ....... 4:4 Birmingham — Tottenham ........ 0:1 Blackburn — N. Forest ......... 1:2 Blackpool — Fulham ............ 3:1 Chelsea — Leicester............ 2:2 Everton — Bolton .............. 0:1 Leeds — Luton ................. 1:1 Manchester City — Sheffield W.. 4:1 Newcastle — Manchester U....... 7:3 W. B. A. — Burnley ............ 2:5 2. dcild: Brighton — Sunderland ......... 2:1 Bristol Rovers — Lincoln ...... 3:3 Cardiff — Charlton ............ 5:1 Hull — Liverpool .............. 0:1 Ipswich — Leyton Orient ........ 6:3 Middlesbrough — Derby........... 3:0 Rotherham — Bristol City ...... 3:1 Scunthorpe — Huddersfield ...... 0:2 Sheffield U. — Plymouth ........ 4:0 Stoke — Portsmouth ............. 4:0 Swansea — Aston Villa .......... 1:3 3. deild: Reeves (Southampton) ...... 30 mörk Hunt (Grimsby) ............ 22 — Rowley (Shewsbury) ........ 21 — 4. deild: Holton (Watford) .......... 25 mörk Bond (Torquay) ............ 20 — Newsham (Notts County) .... 20 — Að 25 umferðum loknum er staðan þessi 1. deild: Tottenham 25 13 8 4 54:30 34 Burnley 25 14 3 8 60:48 31 Preston 25 12 7 6 49:43 31 Leeds 25 6 7 12 40:57 19 Birmingham 25 6 5 14 32:48 17 Luton 25 5 7 13 28:46 17 2. deild: Aston Villa 26 17 4 5 62:21 40 Cardiff 25 15 6 4 54:33 36 Rotherham 25 14 7 4 46:34 35 Plymouth 25 6 5 14 34:56 17 Bristol City 24 7 2 15 34:55 16 Hull 25 5 5 15 26:55 15 kirkjusókn á Akranesi S ÓKN ARPRE STURINN hér á Akranesi skírði um hátíðirnar 24 börn, níu drengi og fimmtán stúlkur. Tíu þeirra voru skírð við skírnarguðsþjónustu í Akra- neskirkju á nýársdag. Sóknar- presturinn messaði í Akranes- kirkju á aðfangadagskvöld, jóla- dag, gamlárs kvöld og nýársdag. í Innra-Hólmskirkju á annan jóladag og nýársdag. Kirkjusókn var mjög góð, bekkir fullsetnir, og á aðfangadagskvöld var Akra- neskirkja yfirfull. Stór hópur manna varð að hverfa heim frá kirkjudyrum. Ennfremur hafði sóknarpresturinn að venju guðs- þjónustu í sjúkrahúsi Ákraness á aðfangadagskvöld, og á gamal- mennaheimilinu á annan jóladag. Heima í Görðum, þar sem er grafreitur Akranessafnaðar, var óvenju mikil Ijósadýrð hátíðis- dagana. Var nú í fyrsta sinri leitt rafmagn út í grafreitinn og loguðu þar marglit ljós í hundr- aðatali. Onassis fylgdarsveinn LONDON, 2. janúar. — Sir Win- ston Churchill fór í dag flugleið- is til Miðjarðarhafsstrandar | Frakklands sér til hvíldar og hressingar um óákveðinn tíma. Með honum í förinni var Onassis. sjálfstæðismálið Það er þess vegna sízt orðum aukið, þegar sagt hefur verið að það sé mesta sjálfstæðismál ís- lendínga nú, að koma fjármál- um sínum og efnahag á réttan kjöl. Mörgum. finnst það ganga kraftaverki næst, að svo lítil þjóð sem islendingar, í jafn örð- ugu landi og okkar, skuli njóta sjálfstæðis. í allri mannmergð heimsins mundi það ekki vekja ýkja mikla athygli, þótt sjálf- stæði okkar liði undir lok. Svo hefur fyrr og síðar farið fyrir mörgum þjóðum. En fyrir okkur sjálfa skiptir sjálfstæði þjóðarinnar öllu máli. Það er ekki sjálfstæðið eitt, sem gengur kraftaverki næst, heldur einnig það, hvað áunnist hefur um hálfrar aldar bil í skjóli þess. íslendingar eru staðráðnir í að láta ekki sitt eftir liggja til að halda því. Sild á Akranesi AKRANESI, 2. jan. — Hringnóta- báturinn Keilir fékk 313 tunnur síldar, sem hann landaði á gaml- ársdag. Hringnótabátarnir þrír halda áfram á síldveiðum. Sumir reknetabátarnir halda og áfram á síldinni, en aðrir taka upp línu- veiðar. Oddur. AKRANESI, 2. jan. — Reknetja- báturinn Farsæll fór einn út í dag. Spáð er austan stormi með morgninum. Hingað kom Laura Danielsen, danskt skip í morgun með 35 standarda af timbri til Haraldar Böðvarssonar og Co. — Oddur. Helgi Sæmunilsson lætur af ritstjórn Á GAMLÁRSDAG skýrði Al- þýðublaðið frá því, að Helgi Sæ- mundsson láti nú af ritstjóra- störfum. Áður hafði hann verið blaðamaður þess og á hann að baki, er hann nú lætur af störf- um 16 ára blaðamennsku. Helgi tekur við ritstjórn tímaritsins Andvara og verður bókmennta- ráðunautur Menningarsjóðs. NÝJA sjálfvirka símstöðin í Keflavilc var opnuð til afnota í gærkvöldi, að viðstaddri bæjar- stjórn og bæjarstjóra Keflavík- ur, Eggert Jónssyni, Alfreð Gísla syni, alþingismanni, Gunnlaugi Briem, póst- og símamálastjóra og fleiri gestum. Ingólfur Jóns- son, símamálaráðherra, gat ekki verið viðstaddur, enda þótt á- kvörðun um byggingu stöðvar- innar væri eitt af síðustu embættisverkum hans í fyrri stjórnartið hans. En hann ásamt Ölafi Thors, þáverandi forsætis- ráðherra og forystumönnum Keflavíkur, vann vel að því að koma þessu mikla hagsmunamáli Keflavíkur og alls Reykjanes- skagans í framkvæmd. Símstöðin í Keflavík er nú hin fullkomnasta á landinu. Hún-er fyrsta skrefið að samvirkri síma þjónustu, sem gert er ráð fyrir að komi á næstu árum um allt larid, þannig að sérhver geti hringt úr sínum heimasíma til og frá Keflavík, Reykjavík, Akur- eyri og víðar, án þess að þurfa á sérstakri landssímaþjónustu að halda. Aðrar stöðvar þurfa nokkr ar endurbætur, til þess að svo geti orðið, en Keflavíkurstöðin xnun þegar á vori komanda ná xneð sjálfvirkni sína yfir allt næsta nágrenni. En á meðan aðr- ar stöðvar á landinu eru að búa sig undir samvirku símaþjónust- una, verður sami háttur á lands- símatölum og verið hefur. Fyrst í stað verður eingöngu innanbæjarkerfið í Keflavík sjálfvirkt og verða 1400 númer tekin í notkun, en auðveld stækk un í 2000 númer. Ný viðbygging, sem er um 200 fermetrar að gólffleti, hefur ver- ið gerð við gömlu stöðina. Þar eru vélasalir og afgreiðslur sím- ans, en gamla húsið mun að veru legu leiti verða notað til póstaf- greiðslunnar. Uppsetningu tækja símastöðv- arinnar annast verkfræðingar og aðrir starfsmenn Landssímans, auk verkfræðinga frá fyrirtæk- inu L. M. Erickson. Stöðvarhúsið er allt mjög vel vandað og vel útbúið. Aðbúð starfsfólks og starfsskilyrði eru með ágætum, en þrengsli og göm- ul og ósamstæð tæki voru áður til mikils óhagræðis við af- greiðslu. Á gömlu stöðinni voru 30 stúlk ur. Þeim fækkar nú um helming og enn meir, þegar landssíminn verður einnig sjálfvirkur. Síminn kom fyrst til Keflavík- ur árið 1908. Fyrsta símstöðin var við Kirkjuveg 30. Stöðvar- stjóri var þá Axel Möller og gætti hann landssímans og 6 inn- anbæjarnúmera í Keflavík, en Keflavík óx hratt og símum fjölg aði. Sverrir Júlíusson var sendill á fyrstu símastöðinni, en tók við símastjórn í Keflavík 16 ára gam- all og gengdi því starfi til ársins 1940. Þá tók við stjórn stöðvar- innar Jón Tómasson, sem enn er símastjóri og póstmeistari í Kefla vík. Ny sjálfvirk stm- stöð í Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.