Morgunblaðið - 03.01.1960, Qupperneq 16
VEÐRBÐ
Sjá viðurkort á bls. Z.
orfimifjila
1. tbl. — Sunnudagur 3. janúar 1960
Reykjavíkurbréf
Sjá bls. 9.
Skrílmennska
á hástigi
Hafmeyjan í molum í vörzlu lögreglunnai.
'T.jósm, Mbl.: Ól. K. M.)
Auður stöpullinn eftir sprenginguna.
Hætíuleg sprengja
á Flókagötunni
Á NÝJÁRSNÓTT klukkan
eitt var hafmeyjan á Tjörn-
inni sprengd í loft upp og
eyðilögð. Ekki hefur lögregl-
unni enn tekizt að hafa hend-
ur í hári afbrotamannsins.
Hafmeyjan er eins og
Hafmeyjan í Tjörninni
kunnugt er eftir Nínu Sæ-
mundsson myndhöggvara, og
var myndin sett upp í Tjörn-
inni samkvæmt fyrirmælum
listaverkanefndar bæjarins á
síðastliðnu sumri. Ekki er
blaðinu kunnugt um hvað
hafmeyjan kostaði, en að
fróðra manna viti, hefir hún
ekki kostað minna en fjórð-
ung milljónar. Enn er óráðið
hvort ný hafmeyja verður
steypt í kopar og sett upp í
Tjörninni, en einn af fulltrú-
um listaverkanefndar skýrðí
blaðinu frá því í gær, að sér
þætti ólíklegt að svo yrði.
Fáránlegt skemmdarverk
Eins og mönnum er kunnugt,
hafa verið skiptar skoðanir um
þetta verk listakonunnar, en þó
margir væru andvígir, að því yrði
valinn staður í Tjörninni, rétt-
lætir það auðvitað ekki þá skríl-
mennsku, sem hér hefir komið
fram. Flest listaverk fá misjafna
dóma eftir smekk manna og per-
sónulegum viðhorfum án þess
gripið sé til fáránlegra skemmd-
arverka.
Þegar fréttárrraður Morgun-
blaðsins skrapp niður á Tjörn í
gærmorgun að athuga verksum-
merki, sást ekki annað af irsta-
verkinu en stöpullinn og bolt-
arnir, sem hafmeyjan var fest
niður með. Nokkrir menn stóðu
við stöpulinn og ræddu sín á
milli um það, sem gerzt hafði.
Vel þekktur borgari sagði við
fréttamann Morgunblaðsins: —
Þetta er ágætt, við þurftum að
losna við hana, en það hefði mátt
gera það á kristilegri hátt. Ann-
ar, ekki ómerkari borgari, lét sig
hafa það að segja við fréttamann
Mbl.: — Þetta var ágætt, næst
sprengjum við .............. og
svo nefndi hann frægt listaverk
hér í bænum og hafði augsýni-
lega mjög gaman af þessu ára-
mótaævintýri og virtist ánægður
með þann skerf, sem hann hafði
lagt til menningarmála bæjarins!
Aðrir viðstaddir lýstu hneykslun
sinni yfir þessu tiltæki.
Sprengd á nýjársnótt
1 gærkvöldi fékk Morgunblað-
ið eftirfarandi upplýsingar hjá
lögreglunni um mál þetta: Um
klukkan eitt á nýársnótt hringdi
Paul Heide, Tjarnargötu 30 til
lögreglunnar og skýrði henni frá
því, að hann hefði heyrt mikla
sprengingu kl. 0,30. Kvaðzt hann
hafa litið út um gluggann á stofn
sinni, en ekki orðið neins var,
— og ekki hafði hann heldur
tekið eftir því að hafmeyjan var
horfin af stöpli sínum í suðvestur
horni Tjarnarinnar. Nokkru síð-
ar kvaðzt hann hafa farið út að
ganga og þá tekið eftir því að
hafmeyjan vár horfin. Gerði
hann lögreglunni þá þegar að-
vart.
Lögreglumenn fóru á vettvang
og fundu hafmeyjuna í sjö pört-
um á ísnum, og hafði styttan
sýnilega verið sprengd af stall-
inum.
Upplýsinga leitað
Á nýársnótt fóru rannsóknar-
lögreglumenn í öll hús við
Tjarnargötu og spurðust fyrir um
upplýsingar varðandi mál þetta.
Páll Sigfússon, Tjarnargötu 34,
skýrði þeim frá því, að hann
hefði heyrt mikla sprengingu
eftir miðnætti, og var hún svo
öflug að rúður nötruðu í glugg-
um. Þá sagði Páll frá því, að
hann hefði skömmu eftir að
sprengingin mikla varð, séð ur
glugga sínum mann spígspora
fram og aftur við suðvesturhorn
Tjarnarinnar, og var sá með ljós-
myndavél og annan útbúnað til
myndatöku. Kvaðzt Páll hafa
sett það í samband við þennan
ljósmyndara þegar hann sá
í hálfa öld
BISKUP landsins, herra Sigur-
björn Einarsson flutti messu á
nýjársdag í Dómkirkjunni. Þó
nýjársdagsmorgun sé heldur
deyfðarlegur í Reykjavík að jafn-
aði, var Dómkirkjan fullskipuð
kirkjugestum, er komu til að
hlýða á messu biskups.
Dómprófasturinn, séra Jón Auð
uns, þjónaði fyrir altari. Biskup
skrýddist hctnpu og rikkilíni n,eð
stólu. Er það dálítili borði, sem
lagður er yfir herðax biskups og
táknar ok Krists.
í ræðu sinni talaði biskupinn
um mikilvægi tímans og þýðingu
bregða fyrir skærum Ijóslampa
skömmu síðar. Skal þess getið,
að Páll hafði þá ekki hugmynd
um örlög hafmeyjarinnar. Lög-
reglan biður ljósmyndara þennan
að gefa sig fram og hvern þann,
sem getur gefið upplýsingar um
málið.
Þess að að lokum geta, að brot-
in af hafmeyjunni eru í vörzlum
rannsóknarlögreglunnar.
Rólegl n
ganlaórskvöld
ÁRIÐ 1959 kvadi og 60 heilsaði
án þess að til tíðinda drægi í
Reykjavík, utan þess spellvirkis
er framið var á ísilagðri Reykja-
víkurtjörn, og skýrt er frá á öðr-
um stað hér í blaðinu.
Mikið fjölmenni var á ferl
gamlárskvöld, einkum um kluK.
an 11 er aðalbrennurnar hófust.
Var þá dálítil gola og þó nokkuð
frost.
Yfirmenn lögreglunnar segja
að gamlárskvöld hafi verið mesta
friðsældarkvöld og hafi drykkju
skapur á almannafæri oft á tíð-
um verið meiri og verri. Að
vanda . safnaðist saman hópur
unglinga í Miðbænum og lét
nokkuð ófriðlega um stund. Tók
lögreglan nokkra úr hópnum inn
á lögreglustöð, en flutti síðan
heim til sín. Slys eða önnur
óhöpp urðu ekki svo teljandi sé.
líðandi stundar og þá lausn, sem
nafnið Jesús felur í sér til hjáip-
ar manrikyriinu.
Vígslubiskupinn, séra Bjarni
Jónsson, flutti messu í Neskirkju
á nýjársdag klukkan 2 rð við-
stöddu fjölmenni. Talaði hann að-
allega L.m Faðir vor, er skyldi
vera le’ðarstjarna þjóðarinnar eg
einstaklinga á nýbyrjuðu ári.
Þetta var þriðja guðsþjónusta
vígslubiskups utn Iiátíoarrar.
Þetta voru 50. jólin, sem rann
flutti messu á, en á aðfangadags-
kvöld messaði hann við aftan-
söng í Hallgrímskirkju, og danska
messu "lutti hann á jóladag.
Kirkjusókn hafði verið góð hér
í Reykjavík um áramóun, sem
og um jó’in.
RÚÐUR brotnuðu í þrem hús-
um við Flókagötuna ofanverða á
gamlárskvöld, er sprenging varð
í mjög stórri rakettu á miðri
Flókagötunni. Munaði litlu að
stórtjón hlytist af.
Þetta gerðist klukkan um 11,45
um kvöldið. — 19 ára piltur bar
þá út á götuna á móts við húsið
nr. 10, stóran járnhólk. Síðan lét
hann ofan á botninn í hólknum
flöskulagaða rakettu, svonefnda
Caracas-rakettu, leiddi langan
kveikinn frá henni upp úr járn-
hólknum og bar eld að. Raketta
þessi sem kostaði hartnær 200
krónur, átti að vera sérstæð fyr-
ir ljósmagn og annað skraut.
Rétt eftir að pilturinn hafði bor-
ið eldinn að kveiknum, kvað
sprengingin við.
Maður, sem stóð álengdar, hef-
ur skýrt svo frá, að við hinn
mikla þrýsting hafi pilturinn,
sem kveikti í rakettunni, skollið
brotnuðu fjórar rúður, tvær rúð-
í götuna, en mikil brothljóð
kváðu við, því í húsinu nr. 10
ur í húsinu Flókagötu 7, ein rúða
hafði sprungið í húsinu nr. 6 og
önnur í nr. 5.
En það gerðist meira. — Við
hina miklu sprengingu í botni
hólksins, rifnaði botnplatan und-
an og þaut hún í gegnum eld-
húsglugga í húsinu Flókagaia
10, braut þar loftljós og fór út
í vegg. íbúðin var mannlaus er
þetta gerðist.
Rannsóknarlögreglan hafði þá
þegar samband við piltinn, sem
rakettuna átti. Hafði hann keypt
hana í búð og gat lagt fram sönn-
unargögn máli sínu til stuðnings.
Kvaðst hann hafa farið í einu og
öllu eftir leiðbeiningum um
meðferð rakettunnar. 1 stað þess
að springa upp fyrir sig, hefði
hún sprungið niður. Kvaðst rann-
sóknarlögreglan álíta að rakettan
hafi verið skakkt tengd og því
hefði sprengingin orðið.
Hefur predikað á jólum