Morgunblaðið - 05.01.1960, Page 11

Morgunblaðið - 05.01.1960, Page 11
Þriðjudagur 5. jan. 1960 MORGZJWfíLABIÐ 11 saltfisk á jölum - Samtal vid lngvar Emilsson haffræðing sem þar hefur starfað í 6 ár BRAZILlA er stærsta ríki Suður- Ameríku, u. þ. b. áttatíu sinnum víðáttumeira en fsland, og þar búa yfir 60 milljónir manna. í þeirri mannmergð er nú aðeins að finna eina íslenzka fjölskyldu, Ástríði og Ingvar Emilsson haf- fræðing, sem ásamt 3 ungum börnum sínum eru búsett í Sao Paulo. Ingvar var á ferð hér heima ekki alls fyrir löngu og hitti tíð- indamaður Mbl. hann þá að máii stundarkorn, en eins og að líkum lætur hafði hann frá ýmsu að segja af suðurslóðum. Haffræðing vantar — Hvemig stóð á því, að þið fóruð til dvalar í þessu fjarlæga landi? — í stuttu máli er sagan sú, að um það leyti, sem ég var að ljúka haffræðinámi í Bergen, árið 1953, voru Brazilíumenn að svipast um eftir haffræðingi, til þess að blása lífsanda í haffræðfdeild há- skólans í Sao Paulo. Var mér gef- inn kostur á starfinu, tók því og var ráðinn til 2ja ára til að byrja með. — Það hafa líkast til verið nokkur viðbrigði að setjast að þarna suður frá. Daglegt líf hlýt- ur að vera talsvert frábrugðið því, sem við eigum að venjast hér. — Já, þetta voru mikil við- brigði, en nú, þegsir við höfurn verið þarna í full sex ár, erum við búin að venjast lífinu þar. Að jafnaði er allt komið í fullan gang upp úr klukkan 5 að morgni. Þá er fólk í flestum stéttum risið úr rekkju og von bráðar er við- skiptalífið í algleymingi. Er unnið sleitulaust til hádegis, en þá snæða menn. I stað þess að fá sér blund á eftir, eins og Spánverjarn ir í öðrum löndum álfunnar, taka menn síðan til við vinnu sína á ný og halda áfram fram til klukk an 5 síðdegis. Þá lýkur vinnudegi og fólkið gefur sig að margvís- legum áhugamálum. Um 10 leyt- ið að kvöldi er svo allt komið í ró — en ekki drollað fram yfir miðnætti, eins og hér heima. Þess ar lífsvenjur eiga auðvitað að talsverðu leyti rætur að rekja til loftslagsins, sem fólkið verður að laga sig eftir. í Sao Paulo er blómlegt líf — Þið hafið búið í Sao Paulo öll árin? — Við höfum átt heima rétt fyrir utan borgina. Sao Paulo er eitt stærsta fylkið í landinu og það langríkasta. Þaðan koma t. d. um 60% af öllum tekjum sam- bandsstjórnarinnar og háskólinn þar er sá eini í allri Brazilíu, sem ekki er rekinn fyrir fé sambands- um og borgin er ein mesta iðnað- arborg í Suður-Ameríku, enda þótt aðstæður séu að sumu leytr erfiðar til slíks. Þar skortir t. d. olíu tilfinnanlega og kol eru eng- in á staðnum. En ýmsar ráðstai'- anir eru gerðar til að bæta úr þessu. Margir erlendir aðilar og stórfyrirtæki hafa verið mjög bjartsýn á að leggja fé í iðnað í Brazilíu. Þar hefur verið fremur kyrrt ástand í stjórnmálum — og heimilt er að flytja allan hagnað af þessu úr landi. Ástandið í suð- urhluta landsins er yfirleitt mjög blómlegt og gott að búa þar. Þar væri án efa öflugt stórveldi, ef sá landshluti gæti slitið sig úr tengslum við þá hluta þessa víð- áttumikla lands, sem verst ástand ríkir nú í, en til beirra er veitt gífurlegu fé. Margt ógert til uppbygglngar ■— Eru kjör fólks kröpp þar? — Fátæktin er ógurleg í sum- um héruðum landsins, sérstaklega í norðurhluta þess. í innhéruðun- um er náttúran víða óblíð og Braziliskir fiskimenn í flæðarmálinu þekkingu jafnstórs hóps til við- bótar er í mjög mörgu ábótavant. Annars er erfitt að gera sér fulla grein fyrir ástandinu á þessum slóðum, því að opinberar skýrsl- ur eru ekki fyrir hendi og. fáir gera sér ferðirþangað,endahreint enginn leikur. Kunningi minn Sao Paulo er stor borg, fogur og rik. stjórnarinnar. í Sao Paulo borg, sem er einstaklega fögur, er milt- ið um atorkusamt fólk, ekki sízt af japönskum uppruna, sem einn- ig er mjög nægjusamt. Svo til allt kaffi, sem flutt er út, fer þarna reynist því íbúunum þung í skauti. Þar er mikið af fólki, sem ekkert samband hefur við menn- inguna, svo sem m. a. kemur fram í því, að um 40% af íbúum landsins eru ólæsir með öllu og > kaffickrunm. Siglutréð reist. einn, blaðamaður, hefur komið til sumra af héruðum þessum og kynnt sér hagi fólksins. Og það er ófögur mynd, sem hann hefur brugðið upp fyrir mér af ástand- inu. Hann heldur því m. a. fram, að sums staðar sé skorturinn svo gífurlegur, að um 80% barna deyi úr sulti. Þarna er því margt ógert, áður en lífskjörin verða sómasamleg. Veiða færri hvali en fslendingar — Svo að við víkjum að öðru efni, stunda íbúarnir við strönd- ina fiskveiðar að einhverju ráði? — Þeir gera nokkuð að því. Fyrst og fremst eru það rækju- veiðar. Rækjurnar eru stórar jafnvel á stærð við skambyssu Þær líta alveg eins út og rækj- urnar, sem þeir veiða á Bíldudal, nema hvað þær eru bústnari. Talsvert er veitt af sardínum. Og svo eru togveiðarnar. Þeir eiga um 20 minni togara. Nú eru þsir líka farnir að veiða mikið af tún- fiski, hafa lært það af Japönum, og uppsjávarfiskum á línu og færi. Auk þess vinna þeir svo talsvert af skeldýrum, ostrum og slíku. Hvalveiðar eru stundaðar talsvert og veiðast um 20Q hvalir á ári eða nokkru færri en hér á landi. Sjómennirnir nota ýmsar veiði- aðferðir, sem alls ekki hafa sézt hér. Veiðiaðferðir okkar eru reyndar furðu fábrotnar, En þaS er líka merkilegt, hverju menn hafa fundið upp á. Japanir nota t. d. blómavasa til veiða. Veiða í þá kolkrabba. Þeir binda snæri um vasana og sökkva þeim. Þar verða þeir á vegi lítilla kolkrabba á yngsta skeiði, sem eru á reki í sjónum í leit að samastað. Þeir taka feginsamlega húsnæðistilboð inu og búa um sig í vösunum, en til fæðuöflunar seilast þeir upi» úr með fálmurum sínum og fanga allt ætilegt, sem fyrir opið fer og þeir geta torgað. Þegar þeir svo að nokkrum tíma liðnum er« orðnir mátulega stórir, draga fiskimennirnir þá upp. Þannif gengur það fyrir sig. Saltfiskur í jólamatlna — Fiskur er vinsæl fæfla § Brazilíu. — Já, það er óhætt að Mfja. En hann er dýr, í sumum tilfelV- um þrefalt dýrari en miðlunga- kjöt. Saltfisk flytja þeir inn, m. a. héðan frá fslandi, eins og kunn- ugt er, og borða hann einkum mikið á föstunni. Hann er líka vinsæll jólamatur og gefur í þvl efni lítið eftir rjúpum og hangi. kjöti hjá okkur. Er saltfiskurinn matreiddur á ýmsan hátt og mun fjölbreyttari réttir búnir til úr honum þar en hér. fslenzki saltfiskurinn, sem kom ið hefur til Brazilíu upp á síð- kastið, hefur því miður verið mjög slæmur. Þó að sumar send- ingar hafi verið ágætar, hefur mikið af honum verið hreinasti óþverri, gulur og blautur. Þa5 er því af sem áður var, þegar allur fiskur var sólþurrkaður, v«i verkaður og matið strangt. Eklcl sizt samkeppninnar vegna er mjög mikilvægt, að fiskurirm hé5 an sé sem beztur. Helzti keppi- nautur okkar eru Norðmenn, og hafa þeir einnig flutt inn dálPÍS af reylrtri síld. Hún hefur verW ógurlega dýr, en þó að hún hafi þar á ofan venjulega verið giát þrá, selst hún. Brazilíumenn eiga nú óhægar* um vik en áður, að því er inn- flutning snertir, vegna þess, aS þeir hafa eignast ýmsa skæða keppinauta í kaffiverzluninni, t.d. Columbíu og fleiri. Þeim geng- ur af þeirri ástæðu æ erfiðlegar að selja þessa helztu framleiðslu- vöru sina og afla sér gjaldeyris. Hafrannsóknir nýjar af nálinni — Hafa Brazilíumenn stundað hafrannsóknir að ráði? — Sannleikurinn í því efni er sá, að ekkert hefur verið gert fyrr en nú á þessum áratug, eftir að haffræðideildin við Sao Paulo háskóla byrjað að rannsaka og safna upplýsingum um hafið úti fyrir ströndum landsins, sjávar- strauma og dýralíf. Ef t. d. er borið saman við þær þjóðir, seni búa við Norðursjóinn, voru Brazilíubúar því orðnir um 50 ár- um á eftir tímanum. Þennan Framh. bls. 12 I Brazilíu borðar fdlk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.