Morgunblaðið - 05.01.1960, Qupperneq 13
Þriðjudasrur 5. jan. 1960
MOnr.TiNnt 4 tíið
13
Indverjar herða á baráttunni
fyrir takmörkun barneigna
Eftír Peter Jackson,
fréttamann Reuters.
INDVERSKA stjórnin hefur nu
í hyggju að koma á víðtækri
uppfræðslu meðal almennings
um takmörkun barneigna. Fólks-
fjölgímin í landinu er orðið mjög
alvarlegt vandamál. Hún er svo
mikil að segja má, að hún éti
jafnóðum upp þær efnahagslegu
framfarir, sem áttu að fylgja
uppbyggingu atvinnulífsins. Ind-
verjar halda nú uppi meiri fjár-
festingu en flestar aðrar þjóðir.
Þeir eru nú að framkvæma aðra
fimm ára áætlun sína, en þrátt
fyrir feikilegar framkvæmdir
virðist sem þjóðarframleiðslan
aukist vart sem fólksfjölguninni
nemur. Afleiðingin er að lífskjör-
in breytast lítt til batnaðar.
En nú hafa heilbrigðisyfirvöld-
in uppíýst, að ætlunin sé að
verja 200 milljónum rúpía (1,5
milljarð ki-óna) í næstu fimm ára
áætlun til að kynna og kosta að-
ferðir til takmörkunar barneigna.
Er þetta fjórfalt hærri upphæð,
en varið var til hins sama í nú-
verandi áætlun.
★
Athugun hefur leitt það í ljós,
að Indverjar eru yfirleitt ekki
andvígir takmörkun barneigna
og trúarleg mótstaða er ekki eins
mikil og menn ætla. Aðalvanda-
málið er að uppfræða hinar 415
milljónir íbúa, en mestur hluti
þeirra er ólæs og óskrifandi og
mikill hluti býr í þorpum, sem
erfitt er að komast til vegna
vegasambandsleysis. Annað aðal-
vandamálið er hvernig á að fram-
leiða lyf eða tæki til getnaðar-
varna, sem séu ódýr og auðveld
í notkun.
Indverjar þiggja fúslega er-
lenda aðstoð á þessu sviði. Til
dæmis lýsti efnahagsmálaráðu-
náutur indversku stjórnarinnar,
B. K. Nehru, frændi forsætisráð-
herrans, því yfir á alþjóðaráð-
stefnu fyrir nokkru, að Indverj-
ar myndu fagna því, ef þeir
fengju tækifæri til að njóta þekk-
ingar annarra þjóða varðandi tak-
mörkun barneigna. Hann sagði
þetta á fundi sem hin bandarísku
samtök um fjölskylduáætlun
efndu til og hann sagði um leið
að Indverjar æsktu samstarfs við
útlend fyrirtæki um framleiðslu
á getnaðarverj um í Indlandi og
að þeir æsktu aðstoðar við til-
raunir með framleiðslu á óbyiju-
töflum.
★
Sem fyrr segir er fólksfjölgun-
in orðin mjög alvarlegt vanda-
mál. Á hverjum degi fæðast um
28 þúsund nýir Indverjar. Fólks-
fjölgunin nemur nærri 8 milljón-
um á ári og eftir fimm til sex
ár mun íbúátala landsins hafa
náð 450 milljónum. En yfirmað-
ur manntalsstofnunarinnar, dr.
R. A. Gopalaswany, heldur því
fram að það sé hámark þess
íbúafjölda, sem landið getur alið.
Þótt matvælaframleiðslan hafi
aukizt verulega síðustu 10 ár,
hefur hún ekki haldið í við fólks-
fjölgunina. Verða Indverjar nú
árlega að flytja inn 3 milljónir
tonna af korni og eyðir það mjög
fyrir þeim erlendum gjaldeyri.
Það var frá upphafi liður í
fimm ára áætlununum indversku,
sem hófust 1951, að koma á tak-
mörkun barneigna, eða fjöl-
skylduáætlun eins og það er kall-
að. En það tekur langan tíma
að koma á því skipulagi sem
nauðsynlegt er og aðstöðu til að
uppfræða fólkið, standa fyrir
rannsóknum og æfa starfslið.
Komið hefur verið á fót um 1000
upplýsingamiðstöðvum auk þess
sem það er m. a. verkefni 1400
heilsuverndarstöðva mæðra og
barna að veita fólki upplýsingar.
Mikil áherzla er lögð á það að
auka persónulegar ráðleggingar,
en auk þess' eru flutt erindi í út-
varp, sýndar kvikmyndir, efnt til
sýninga og dreift fjölda bækl-
inga með einföldum skýringum
á vandamálinu.
★
Þá er það algengt í nokkrum
héruðum Indlands, þar sem þétt-
býlið er orðið mest, að foreldrar,
sem eiga þrjú börn eða fleiri eru
hvött til að láta vana sig. Til
slíkrar aðgerðar þarf að sjálf-
sögðu samþykki bæði eigin-
manns og konu og gefa verður
út sérstakt opinbert leyfi í
hverju tilfelli. Á síðustu þremur
árum hafa 23 þúsund manns ver-
ið vanaðir þannig samkvæmt
eigin ósk. Það er athyglisvert, að
helmingur þessa fólks er í ríkinu
Kerala, þar sem talið er að lestr-
arkunnátta fólks sé meiri en í
nokkru öðru héraði Indlands.
í þriðju fimm-ára áætluninni
sem hefst 1961 er áætlað að opna
8000 upplýsingamiðstöðvar í
sveitum og 1500 í bæjum og
borgum. I mörgum þessara mið-
stöðva vei-ða aðstæður til fóstur-
eyðinga og vanana,
Hjálp er þegar farin að berast
til þessara aðgerða frá öðrum
löndum. Nýlega veitti Ford-
stofnunin bandaríska indverska
heilbrigðismálaráðuneytinu 330
þúsund dollara til að kosta stofn-
un sérstakrar háskóladeildar sem
á að fjalla um fjölskylduáætlanir
og mennta vísindamenn á þessu
sviði.
★
Nýlega fóru fram ýtarlegar
mannfjöldarannsóknir í ýmsum
héruðum Indlands. Rannsóknir
þessar sýndu það t. d. að í iðnað-
arbænum Kanpur ól hver kona
að meðaltali um 7 börn, en af
þeim dóu að meðaltali um 3 börn.
Flestar konur eru fylgjandi tak-
mörkun barneigna og fæstar vilja
eiga börn nema þriðja hvert ár.
En aðeins ein af hverjum 10 kon-
um veit hvernig hún á að fara
að því að koma í veg fyrir getn-
að. —
1 kenningum Brahmatrúarinn-
ar er ekkert sem bannar beinlínis
takmöi-kun barneigna. En Ma-
hatma Gandhi kenndi það að
eina leyfilega takmörkunin væri
hófsemi og aðhald í kynlífi karls
og konu. Fjármálaráðherra Ind-
lands, Morarji Desai, styður þá
skoðun og Krishna Menon, land-
varnaráðherra, hefur líkt fæð-
\ Fólksfjölgunin étur upp jafnóðum |
| j
| aukningu bjóðarframleiðslunnar
Gamla bíó hafði sem jóla- og nýársftiynd kvikmyndina „Gigi".
Er hún enn sýnd við mikla aðsókn og hrifningu. — Er mynd
þessi fræg dans- og söngvamynd, samin af Lerne’v og Louwe,
höfundum „My Fair Lady“. Myndin hlaut 1959 níu Oscars-
verðlaun og hefur engri mynd hlotnast slík viðurkenning. —
ingatakmörkunum við það að far-
þegar í járnbrautarvagni loki
dyrum hans og banni öðrum að
ferðast með.
Það er talið líklegt að sú regla
Hindúanna, að sonurinn eigi að
kveikja í bálkesti föður síns, eigi
sinn þátt í hinni miklu fólksfjölg-
un. Hver fjölskyldufaðir vill
eignast að minnsta kosti einn son
og jafnvel fleiri syni, ekki sízt
þar sem dánartala barna í Ind-
landi hefur verið mjög há. En
með bættum heilbrigðisháttum
og sigri yfir farsóttadauðanum
má vera, að dragi úr löngun
manna til að eiga mörg börn.
★
Nehru, forsætisráðherra, styð-
ur af áhuga áætlanirnar um tak-
markanir barneigna. En hann
leggur þó áherslu á það, að engin
vandamál verði leyst með þvi
einu.
í ræðu sem hann flutti sl. ár
sagði hann: „Til þess að takmörk-
un barneigna beri nokkUrn árang
ur þurfa að fylgja henni almenn-
ar og stórstígar framfarir á sviði
efnahagsmála og félagsmála. Ef
við einblínum á takmörkxm
barneigna og teljum allan vanda
leystan með því, þá erum við
sannarlega að byggja þjóðfélag
okkar á veikum og óstöðugum
grundvelli“.
En Nehru tók það fram, að
hann teldi að allar þjóðir heims
ættu að takmarka barneignir.
Það væri ekki hægt að ætlast til
þess, að Afríku- og Asíuþjóðir
tækju mark á hvítum þjóðum
sem vildu beita sér fyrir tak-
mörkun barneigna vegna þess að
hætta væri á því að heimurinn
fylltist af fólki af öðrum kyn-
flokkum en þær sjálfar.
Stúlkur
helzt vanar saumaskap óskast strax. Uppl. í verk-
smiðjunni, Skipholti 27 III. hæð og í skrifstofunni
Laugavegi 116.
Verksm. Eygló
halda Slálfstæðisfélógin í Reykjavík miðvikudaginn 6. januar
kl. 8.30 eh. í Sjálfstæðishusinu Hótel Borg og Lídó
Vörður —
Óðinn -
Heimdallur
Hvöt
S jálf stæðishúsið:
1. Félagsvist
2. Ávarp: Bjarni Benediktsson, ráðherra
8. Spilaverðlaun afhent
4. Dregið í happdrættinu
5. Ómar Ragnarsson, skemmtir
6. Einsöngur: Kristinn Hallson, óperusönv.
7. Daiis.
SKEIHIHTIATRIÐI
Hótel Borg:
1. Félagsvist
2. Ávarp: Jóhann Hafstein, alþm.
3. Spilaverðlaun afhent
4. Dregið í happdrættinu
5. Einsöngur: Kristinn Hallsson, óperusöngv.
6. Ömar Ragnarsson, skemmtir
7. Dans.
Lidó:
1. Félagsvist
2. Ávarp: Iíirgir Kjaran, alþm.
3. Spilaverðlaun afhent
4. Dregið í happdrættinu
5. Óinar Ragnarsson, skemmtlr
6. Einsöngur: Kristinn Hallsson, óperusöngv.
7. Dans.
Sætamiðar afhentir í
S jálfstæðishúsinu í dag
Skemmtinefndin