Morgunblaðið - 05.01.1960, Síða 16

Morgunblaðið - 05.01.1960, Síða 16
16 MORCUNBLAÐIÐ Þríðjudagur 5. jan. 1960 OÍWM fcomst í hugarsesing. — „Hvaða nýja aðferð? Þér minntust eitt- hvað á nýja lækningaraðferð. .. Hvaða nýja aðferð hafið þér hugsað yður að reyna?“ (Ég veitti því strax athygli hvernig hann virtist halda sér dauða- haldi í orðið „nýja“, eins og við það væri bundin einhver ný von). „Látið þér mig um það, kæri vinur. Látið mig ákveða hvað sé bezt að reyna og hvenær. En þér mégið ekki með nokkru móti ætl ast til þess af mér, að ég geri eitt ■hvert kraftaverk. Þetta „tilfelli“ okkar, eins og við læknarnir orð um það, mun hér eftir sem hing að til, halda áfram að verða mitt höfuð-viðfangsefni og við mun- um áreiðanlega leiða það farsæi- lega til lykta“. Gamli maðurinn sat hreyfing arlaus sem fyrr og hnugginn á evip. Ég sá hvemig hann barðist við að bæla niður hinar fánýtu, þreytandi spurningar sínar. Con dor hlýtur einnig að hafa fundið til hinnar þungu, þjakandi þagn- »r, þar eð hann reis nú á fætur. „Ég held að við látum þetta tvo nægja í dag“, sagði hann. — „Ég hef sagt yður hvaða áihrif skoðunin í dag hefur haft á mig. Allt annað væri skrum og láta- læti. Þér skuluð ekki hafa nein- ar áhyggjur, jafnvel þótt Edith kunni að verða enn vanstilltari pg viðkvæmari næstu dagana. — Ég skal fljótlega komast að raun um, hvaða skrúfa það er sem hef ur losnað. Það er aðeins eitt sem þér verðið að gera og það er að reyna að vera ekki svona hnugg inn og áhyggjufullur á svipinn í návist sjúklingsins. Og eitt enn: Þér verðið að gæta vel að yðar eigin taugum. Þér eruð mjög þreytulegur í útliti og ég er hræddur um að allar þessar áhyggjur grafi meira undan heilsu yðar og þrótti, en góðu hófi gegnir. Það bezta sem þér getið því gert, er að fara snemma að hátta í kvöld og taka inn nokkra Baldrian-dropa, áður en þér farið að sofa, svo að þér vaknið hress og endurnærður á morgun. Það er allt og sumt. Þá er heimsókn minni lokið í dag. Ég ætla bara að Ijúka við vind- ilinn þann arna og svo fer ég“. „Ætlið þér .. ætlið þér í raun og veru að fara tmdir eins?“ Dr. Condor var óhagganlegur f ásetningi sínum. — „Já, kæri vinur. Þetta verður að nægja í dag. Ég á eftir að heimsækja einn dálítið erfiðan sjúkling í kvöld. Ég fyrirskipaði honum langa göngu. Lítið þér á mig. Ég hef ekki stanzað eitt augnablik síðan klukkan hálf átta í morgun. All- an fyrri hluta dagsins var ég í sjúkrahúsinu. Þar var nefnilega mjög óvenjulegt tilfelli, sem sé.. En tölum ekki um það .. því næst í lestinni, svo hérna í allt kvöld og við læknarnir þurfum öllum öðrum fremur að fá hreint loft í lungun, alltaf öðru hverju, til þess að halda skynjuninni skýrri og vakandi. Þess vegna verðið þér að leyfa mér að fara gangandi í þetta skipti. Veðrið er dásamlegt og fullt tungl í kvöld. Að sjálfsögðu vil ég ekki drífa þennan unga mann með mér. Ef þér ætlið, þrátt fyrir eindregin fyrirmæli læknisins yðar, að vera á fótum langt fram á nótt, þá þykist ég vita, að hann sé fús til að vera yður til afþreyingar eitthvað lengur". Ég mundi samstundis eftir æltunarverki mínu og varð því fljótur til svars. „Nei, ég þarf einmitt að vakna óvanalega snemma á morgun", flýtti ég mér að segja — „og ef satt skal segja, þá hefði ég átt að vera sofnaður fyrir mörgum klukku- stundum". „Jæja, ef yður er það ekki á móti skapi, þá getum við orðið samferða", sagði læknirinn. Og nú var eins og leiftri brygði fyrir í öskugráum augum Kekesfalva. Hann hafði líka munað eftir því. „Og ég held bara að ég fari beint í rúmið“, sagði hann með óvæntri auðsveipni í rómnum og stalst til að gefa mér hornauga, þegar dr. Condor sá ekki. Áminn ingin var í alla staði óþörf. Ég fann hvernig æðarnar þrútnuðu á gagnaugum mínum og hjart- slátturinn örfaðist um allan helm ing. Ég vissi, að nú var komið til minna kasta. Þegar við, dr. Condor og ég, vorum komnir út á efsta þrepið í stiganum, sem lá niður í garð- inn, námum við ósjálfrátt staðar, vegna hinnar undraverðu sjón- ar, sem mætti augum okkar. Meðan við vorum inni höfðum við aldrei gefið okkur tíma til að líta út um gluggann. Nú stóð- um $ið orðlausir af undrun yfir þeirri breytingu, sem orðin var á umhverfinu. Riststórt, fullt tungl hékk hreyfingarlaust, eins og spegilsléttur, glansandi silfur skjöldur, uppi á stjörnubjörtu himinhvolfinu. Og þegar loftið, volgt eftir sólríkan sumardaginn, lék mollulegt um okkur, gerði hin föla tunglsbirta það að verk- um, að líkast var sem einhver töfravetur hefði skyndilega hald- ið innreið sína í mannheim. — Mölin glitraði eins og nýfallinn snjór milli tvöfaldra raða trjánna, sem vörpuðu dökkum skuggum sínum yfir stíginn. — Stofnar þeirra stóðu þarna í ann arlegri kyrrð og glitruðu aðra stundina eins og gler í birtunni, en hina, eins og mahogni í myrkrinu. Aldrei hafði mér fund izt tunglsbirtan jafnægileg og þarna í hinni algerðu kyrrð og óhreyfanleika garðsins, sem sveipaður var í kaldri birtu. Svo villandi var þessi vetrarlega birta, að við stigum ósjálfrátt hægt og varlega á glitrandi þrep in, eins og við værum að ganga á hálu gleri. Þegar við gengum eftir malarstígnum, vorum við skyndilega ekki tveir lengur, heldur fjórir, þar eð skuggarnir okkar gengu á undan okkur, skýrt afmarkaðir í kristalstærri tunglsbirtunni. Ég gat ekki ann- að en starað á þessa tvo, dökku félaga, sem eftirlíktu hverja hreyfingu okkar, eins og lifandi skuggamyndir og það veitti mér einskonar ánægju-tilfinningar manns eru stundum svo furðu barnalegar — að sjá að skugginn minn var lengri, grennri og ég gæti jafnvel sagt „betri“, en hinn kubbslegi, riðvaxni skuggi samferðamanns míns. Ég fann sjálfstraust mitt styrkjast við þetta nýja tákn um yfirburði mína. Ég veit að það krefst tals- verðs hugrekkis að játa slíkan barnaskap á sig, því að tilfinn- ingum manns er alltaf stjórnað af undarlegustu og tilviljunar- kenndustu hlutum og það eru oft ef ekki alltaf, hin yfirborðsleg- ustu atriði, sem styrkja eða veikja kjark okkar. Þannig gengum við alveg út að hliðinu, án þess að mæla orð. Til þess að loka því, urðum við að horfa til baka. Framhlið húss ins glitraði eins og hún hefði ver ið máluð með bláleitum fosfór. Og þessi skæra tungsbirta villti manni svo sýn, að það var ógiern ingur að segja nokkuð ákveðið um það, hvaða gluggar væru lýst ir að innan og hverjir að utan. Það var ekki fyrr en hliðið small aftur, að þögnin var rof- in og líkast var sem þetta jarð- neska hljóð í hinni draugalegu þögn, veitti Condor aukinn kjark því að hann sneri sér nú skyndi- lega að mér, með hispursleysi, sem ég hafði sízt búizt við. „Aumingja Kekesfalva", sagði hann. — „Ég ásaka sjálfan mig fyrir að hafa kannske verið of hranalegur við hann. Auðvitað veit ég það vel, að hann hefði helzt viljað hafa mig mörgum klukkustundum lengur og spyrja mig hundrað spurninga, eða öllu heldur, spyrja mig sömu spurn- ingarinnar hundrað sinnum. En ég þoldi bara ekki meira. Þetta hefur verið hræðilegur dagur — sjúklingur eftir sjúkling frá því í morgun og fram á kvöld og allt tilfelli, þar sem manni verður ekkert ágengt". Nú vorum við komnir út í trjágöngin, þar sem tunglsgeisl- arnir síuðust í gegnum lauf- þykknið, eins og í gegnum þétt- asta net. Hér giitraði snjóhvíta mölin enn bjartar úti á miðjum akveginum og við gengum báðir eftir þessum bjarta, glitrandi ljósfarvegi. Ég fann ekki að neins svars væri krafist af mér, en Condor virtist alveg hafa gleymt návist minni. „Og svo koma stundum þeir dagar, þegar ég get alls ekki þol- að þráann og ákefðina í honum. Það erfiðasta í okkar starfi er ekki sjúklingurinn, megið þér vita. Maður lærir fljótlega að ráða við þá. Það kemur allt upp í vana. Og ef sjúklingarnir nöldra og þreyta okkur með spurningum sínum, þá er það ein faldlega eitt af sjúkdómseinkenn um þeirra. Ekki síður en sótthiti eða höfuðverkur. Við gerum fyr irfram ráð fyrir vanstillingu þeirra. Við skoðum hana sem sjálfsagðan hlut, við erum við henni búnir og við höfum sér- stök hughreystingarorð og sak- laus ósannindi á reiðum höndum, alveg eins og við höfum svefn- lyf og kvalastillandi dropa. En það eru ættingjarnir og vinirnir, sem gera okkur lífið svo óbæri- legt og þreytandi. Það eru þeir sem, ef svo mætti segja, troða sér á milli læknis og sjúklinga og eru alltaf að krefjast þess að fá að heyra „sannleikann". Þeir láta allir eins og skjólstæðingar þeirra séu einu sjúklingarnir í öllum heiminum og krefjast þess að maður helgi þeim einum alla sína krafta og alla sína umhugs- ui-, þeim og engum öðrum. Ég reiðist Kekesfalva síður en svo fyrir spurningar hans, en þegar þær hljóma sýknt og heilagt í eyrum manns, þá þrýtur mann stundum þolinmæði. Tíu sinnum er ég búinn að segja honurn, að ég hafi einmitt núna mjög alvar- legt tilfelli að fást við í borginni, þar sem um lífið sé að tefla. Og þótt hann viti það, þá hringir hann dag eftir dag og ónáðar mig og tefur og reynir að þvinga með valdi einhverja von, einhverja huggun út úr mér, hvað sem það kostar. Og sem læknir hans veit ég vel, hvað slikur hugaræsing- ur er hættulegur fyrir hann. Ég er margfalt áhyggjufyllri en hann grunar, margfalt áhyggju- fyllri. Gott að hann veit ekki hvað útlitið er raunverulega ljótt". Mér brá ónotalega við þessi orð hans. Útlitið var þá ekki gott. Condor hafði nú opinskátt og ótilneyddur gefið mér þær upp- lýsingar, sem ég hafði ætlað að veiða upp úr honum. Ég átti erf- itt með að leyna geðshræringu minni, þegar ég tók til máls. „Afsakið, herra læknir, en þér hljótið að skilja, hversu þetta kemur flatt upp á mig......Ég hafði ekki hugmynd um að Edith væri svona hættulega veik“. „Edith?“ Condor sneri sér að mér með óblandinni undrun í hverjum andlitsdrætti. — Hann virtist nú fyrst gera sér grein fyrir því, að hann hefði verið að tala við annan mann. — „Hvað eigið þér við? Edith? Ég hef ekki minnst einu orði á Edith. .. Þér hafið algerlega misskilið mig. .. Nei, nei, heilsufar Ediths er raunverulega alveg óbreytt — því miður, alveg óbreytt. Það er Kekesfalva sjálfur, sem gerir 1 mig áhyggjufullan. Hafið þér ekki veitt því athygli, hvað hann hefur breytzt mikið á nokkrum síðustu vikum, hvað útlit hans er Ijótt, hvað honum hnignar með hverri vikunni sem líður?“ „Ég get að sjálfsögðu ekki lagt neinn dóm á það. .. Ég hef að- eins haft þann heiður að þekkja hr. von Kekesfalva í nokkrar vikur og .... “ „Já, auðvitað. Þá gegnir allt öðru máli. Fyrirgefið þér. .. En ég, sem hef þekkt hann svo ár- um skipti, varð vissulega hrædd- ur í dag, þegar mér varð litið á hendurnar á honum. Hafið þér ekki tekið eftir því, hvað þær eru gagnsæjar og beinaberar? Þegar maður hefur oft séð hendur á dánu fólki, skiljið þér, þá hryll- ir mann við þvi að sjá sama blá- leita litinn á höndum lifandi manna. Og svo Og svo lízt mér ekki vel á þessi áköfu viðkvæmn isiköst. Hver minnsta geðshrær- ing kemur tárunum út á honum og hann verður náfölur í fram- an. Slík undanlátssemi er ein- mitt varhugaverð hjá mönnum, eins og Kekesfalva, sem áður a r L ú ó Ég hef einmitt verið að velta I Þið sannið ekkert með málæði, því fyrir mér Baldur, hvort það þið vitið það. *é þú, sem erí að reyna að hindra | að ferðin takist. .....Pparið yðdi hlaup & talili margra vrjrzkma! iWfUkWL (ÍOIIUM HÍWM! • Austurstræti ailltvarpiö 8.00 15.00 18.25 18.30 18.50 19.00 19.40 20.00 20.30 20.45 22.25 23.20 Þriðjudagur 5. janúar —10.00 Morgunútvarp (Bæn. 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. 8.30 Fréttir. 8.40 Tónleikar. 9.10 Veðurfregnir. 9.20 Tónleik- ar). —13.15 Hádegisútvarp. — (12,25 Fréttir og tilk.). —16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir og veðurfr.). Veðurfregnir. Amma segir börnunum sögu. Framburðarkennsla í þýzku. Tónleikar: Harmonikulög. Tilkynningar. Fréttir. Utvarpssagan: „Sólarhringur*4 eft ir Stefán Júlíusson; IX. lestur (Höfundur les). Frá bókmenntakynningu á verk- um Jóhannesar úr Kötlum (hljóð ritað í Gamla bíói í fyrra mán- uði). Guðmundur Böðvarsson skáld flytur erindi og Baldvin Halldórsson, Þórarinn Guðnason, Þorsteinn O. Stephensen, Bryndís Pétursdóttir, Lárus Pálsson og Jóhannes skáld úr Kötlum lesa, Kristinn Hallsson syngur lög við ljóð skáldsins. Fréttir og veðurfregnir. Tryggingamál (Guðjón Hansen, tryggingaf ræðingur). Lög unga fólksins (Guðrún Svaf- arsdóttir og Kristrún Eymunds- dóttir). Dagskrárlok. Hvað eigum við að gera, Mark- ús? Við megum ekki við því að tapa fleiru. Ég veit það ekki Sirrí, en ég vildi að ég vissi hver stendur á bak við allt þetta ólán okkar. Miðvikudagur 6. janúar (Þrettándinn) 8.00—ío.OO Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleik- ar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón- leikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. (12.25 Fréttir og tilkynningar). 12.50—14.00 „Við vinnuna": Tónleikar af plötum. 15.00—16.00 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir og veðurfregnir). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Barnatími: a) Utvarpssagan: „Siskó á flæk- ingi“ eftir Estrid Ott; XVIII. kennari). Pétur Sumarliðason, kennari. b) Islenzkar þjóðsögur og ævin- týri. 19.35 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Þrettándavaka: Islenzkar þjóðsögur og þjóðlög. __ Gils Guðmundsson rithöfund- ur tekur saman dagskrána. 21.30 Framhaldsleikritið: „Umhverfis jörðina á 80 dögum". gert eftir samnefndri skáldsögu Jules Verne; IX. kafli. Þýðandi: Þórð- ur Harðarson. — Leikstjóri Flosi Olafsson. Leikendur: Róbert Arn- finnsson, Erlingur Gíslason, Har- aldur Björnsson, Þorsteinn O, Stepensen, Ævar R. Kvaran, Ein- ar Guðmundsson, Brynja Bene- diktsdóttir og Eyvindur Erlends- son. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 „Eg dansa út öll jól“: a) Vinsælir revíusöngvar íra gamalli tíð: Jónas Jónasson kynnir; Nína Sveinsdóttir, Her- mann Guðmundsson og Lárus Ingólfsson syngja; Tage Möller og hljómsveit hans leika. b) Danslög, þ. á. m. leikur hljóm- sveit Svavars Gests.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.