Morgunblaðið - 01.05.1960, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.05.1960, Blaðsíða 5
Sunnudagur 1. maí 1960 MORGVTSLLAÐIÐ 5r ‘•••r 1 • n'. "■»" MOTHER Sandgerði Oss vantar ungling eða fullorðinn mann til að annast afgreiðslu Morgunblaðsins í Sandgerði. Upplýsingar hjá Axel Jónssyni, Sand- gerði eða afgreiðslu blaðsins í Reykjavík. Staða yfirlœknis við rannsóknarstofu Bæjarspítalans í Reykjavík er til umsóknar. Laun skv. IV. flokki launasamþykktar Reykjavíkurbæj- ar. Umsóknir sendist skrifstofu spítalans fyrir 1. ágúst n.k. Stjórn Bæjarspítalans Mynd þessi er tekin á fundi, sem útlagastjórn Alsír stóð fyrir í Xripolis fyrir nokkru. Var kynþáttadeilunum þar mótmælt og krafizt samein- ingar Afríku án yfirstjórnar annarra þjóða. Ljósavélar í skip og báta Guð, minn guð, ég hrópa gegn um myrkrið svarta, — líkt sem út úr ofni æpi stiknað hjarta; — gefðu dag í dauða, drottinn, mínu skari; vonarsnauða vizkan veldur köldu svari. Hann er kominn af góðu, fá- tæku og heiðarlegu fólki. Faðir hans hafði ekki nægilega mennt- un til þess að vera svindlari. ★ Eg varð að reka einkaritarann minn, sagði forstjórinn við vin sinn. — Hún hafði enga reynslu. — Jæja, sagði vinurinn, ég hafði einmitt heyrt að hún væri svo dugleg. — Já, og já, það eina sem hún kunni var vélritun og hraðritun. ★ Þú getur alltaf haldið því fram að þú sért listamaður, því að enginn getur sannað að svo sé ekki. Háskólastúdent var á leið til prófs, er hann mætti prófessorn- um á skólaganginum. Hann spurði prófessorinn, hvort nokkr- ir möguleikar væru á því að hann mætti koma upp fyrstur — því að ég er að fara með fjölskyldu minni út í skóg og vildi síður láta þau bíða of lengi eftir mér, sagði hann. Málaleitun hans var vel tekið Og hann kom upp. En — því mið- ur kunni hann ekki stakt orð í verkefninu. Eftir drykklanga þögn reis prófessorinn á fætur og sagði: — Nei, nú verðið þér að afsaka, en mér finnst ómögu- legt að láta fjölskylduna bíða lengur eftir yðu1- Eimskipafélag íslands h.f.: — Detti- foss fór 29. f.m. frá Halden til Gauta- borgar. — Fjallfoss fór í gær frá Rvík til Akraness, Hafnarfjarðar og Kefla- vikur. — Goðafoss fór frá Keflavík í gær til Rvíkur. — Gullfoss er á leið tll Rvikur. — Lagarfoss er I Rvík. — Reykjafoss er á leið tU Rvíkur. — Sel- foss fór frá Hull í gær til Rotterdam. Tröllafoss er á leið til New York. — Tungufoss fór frá Raufarhöfn í gær til Gautaborgar. Loftleiðir h.f.: — Snorri Sturluson er væntanlegur kl. 6:45 frá New York. Fer tU Glasgow og Amsterdam kl. 8:15. — Edda er væntanleg kl. 9:00 frá New York. Ger tU Gautaborgar, Kaupmh. og Hamborgar kl. 10:30. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: — Katla hefur væntanlega farið frá Gefle áleiðis til Helsingfors. — Askj a er í Reykjavík. Hafskip h.f.: — Laxá fór 29. þ.m. frá Vopnafirði á leið tii Esbjerg, Lysekil, Gautaborgar, Aarhus og Riga. SkipadeUd S.Í.S.: — Hvassafell er á Akureyri. — Arnarfell er i Rvík. — Jökulfell fór 29. þ.m. frá Reyðarfirði tU London. — Dísarfell er í Rotterdam. — Litlafell kemur til Reykjavikur í dag, — Helgafell er væntanlegt til Rvíkur í dag. — Hamrafell er á leið til Rvikur. H.f. Jöklar: — Drangjökuli er á leið til Austur-Þýzkalands. — Langjökull er í Aarhus. — Vatnajökull er i Vent- spUs. Flugfélag Islands h.f.: — Milli- Gefin hafa verið saman í hjóna band ungfrú Margrét Arnórsdótt ir og Gísli Marteinsson. Heimili þeirra er að Garðastræti 11. — Ljósm. ASIS. landaflug: Hrímfaxi er væntanlegur til Reykjavíkur kl. 16:40 í dag frá Ham- borg, Kaupmh. og Osló. — Gullfaxi fer til Glasgow og Kaupmh. kl. 08:00 í fyrramálið. — Innanlandsflug í dag: Til Akureyrar og Vestmannaeyja. — A morgun til Akureyrar (2 ferðir), Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar, Isa- fjarðar, Patreksfjarðar og Vestmanna- eyja. Leiðrétting: — Nafn ræðismanns ís- lands í Bremerhaven, Ludvig Janson, féll niður í frásögninni af nýju togur- unum, sem hleypt var af stokkunum í Bremerhaven á dögunum, en hann var meðal gesta við þá athöfn. BOSCH framleiðir nú 32 Volta spennu- stilltar ljósavélar allt upp í 3 Kw. Alltaf er BOSCH það bezta. Bræðurnir Ormson hf. Vesturgötu 3 — Sími 11467 STAPAFELL Leigu eða kauptilboð óskast í byggingarefni úr Rauðamöl við Stapafell — landi Járngerðarstaða og Hóps. — Tilboðum sé skilað fyrir 10. maí n.k. til einhverra af undirrituðum stjórnarmeðlimum land- eigendafélags Járngerðarstaða og Hóps í Grindavík. Réttur áskilin til þess að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Ingveldur Einarsdóttir, Rauðalæk 65 Rvík. Jón Tómasson, Ásabraut 3, Keflavík Jón Gíslason, Baldurshaga, Grindavík. 1 maí hátíðahöld verkalýðssamtakanna í Reykjavík Safnast verður saman við Iðnó kl. 1,15. — Kl. 1.50 verður lagt af stað í kröfugöngu undir fánum samtak- anna. Gengið verður: Vonarstræti, Suðurgötu, Aðal- stræti, Hafnarstræti, Hverfisgötu upp Frakkastíg niður Skólavörðustíg og Bankastræti á Lækjartorg, þar hefst útifundurinn. Ræður flytja: Eðvarð Sigurðsson, ritari Verkamannafé- lagsins Dagsbrúnar og Hannibal Valdimars- son, forseti Alþýðusambands íslands. Fundinum stjórnar Guðgeir Jónsson bók- bindari. — Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðra- sveitin Svanur leika fyrir göngunni og á úti- fundinum. DANSLEIKIR í KVQLD Gömlu dansarnir í Ingólfscafé. Nýju og gömlu dansarnir í Lídó. — Dansleikirnir hef j- ast kl. 9 e.h. og standa til kl. 2 um nóttina. — Aðgöngumiðar verða seldir i Ingólfscafé frá kl. 4 og í Lídó frá kl. 7 e.h. DM ÞESSAR mundir standa yfir miklar deilur milli manna í Bretlandi vegna myndar sem hinn látni myndhöggvari Jakob Epstein hafði gert af Mar- gréti prinsessu. Finnst mörg um Bretum sem hún líkist einna helzt þvottakonu — og finnst þeim greini- Iega lítið koma til saman- burðarins. Margrét sjálf er sögð ákaflega ánægð með myndina. Þá er unnustinn Arm- strong Jones kominn í ljós við hlið Margrétar í vax- myndasafni Xussauds. Sýn- ir vaxmyndin hann með hendurnar fyrir aftan bak, en vart hefur verið um ann- að meira rætt í Englandi, og reyndar víða annars staðar, en þau undur %ð honum skyldi takast að læra þá stellingu af verðandi svila sinum. Dæmdu mér í dauða, drottinn, meiri þekking — fyrir veika vitund, vélta margri blekking: * glaðaljós að greina gegn um rúm og tíma; víki fyrir vissu villuljóssins skíma. Dæm svo mildan dauða, drottinn, þínu barni, — eins og léttu laufi lyfti blær frá hjarni, — eins og lítill lækur ljúki sínu hjali, þar sem lygn í leyni liggur marinn svalur. Mttahias Jochumsson: Guð, minn guð, ég hrópa. MERKI DAGSINS verða afhent í skrifstofu Fuiltrúaráðsins að Þórsgötu 1 frá kl. 9 f.h. — Merki dagsins kostar kr. 10.00, sölulaun kr. 2.00. Sölubörn komið og seljið merki dagsins. Sérstaklega er skorað á meðlimi verkalýðsfélaganna að taka merki til sölu. , Kaupið merki dagsins — Sækið skemmtan- ir verkalýðssamtakanna í kvöld. Allir í kröfugöngu verkalýðssamtakanna í dag. — 1. maí-nefndin. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.