Morgunblaðið - 13.05.1960, Side 3

Morgunblaðið - 13.05.1960, Side 3
Föstudagur 13. maí 1960 M o P r TJ W rt T Afílt) 3 í heimsókn hjá Edison fyrir 50 árum Eftir Vilhjálm Finsen, fyrrv. sendiherra ÞAB, sem hér fer á eftir, er lauslega þýddur útdráttur úr grein, sem Vilhjálmur Finsen, fyrrverandi sendiherra, skrif- aði fyrir norska stórblaðið „Aftenposten“ á dögunum — í tilefni þess, að um þessar mundir eru 50 ár liðin síðan hljóðriti Edisons kom á mark aðinn í fyrsta sinn. — ★ — Það var af einskærri tilvilj- un, að ég fékk tækifæri til þess að hitta hinn mesta af öll- um hinum stórbrotnu hugvits- mönnum vorra tíma, Thomas Alva Edison, Þá hafði hann þegar gert sína frægu „talandi vél“ (talking machine, eins og hann nefndi hana sjálfur), en síðar kom hún á markaðinn undir nafninu „Edison Phono- graph“ — Edison-hljóritinn. — Er ég hitti hann, vann hann enn að því að endurbæta þetta furðutæki sitt. — ★ — Það var seint um kvöld í nóvember árið 1912, að ég sat í loftskeytaklefa „C. F. Tiet- gen“, skips dönsku Ameríku- „línunnar", og var að sýsla við ýmisar „prívat" tilraunir á sviði radíótækninnar. Þá var skyndilega drepið á dyr, og inn kom bandarískur kaup- sýslumaður, ein þessara Wall Street-manngerða, sem var farþegi á skipinu — á leið til New York. Hann horfði með undrunarsvip á öll tækin og smádótið, sem lá á borðinu fyrir framan mig, og spurði með áhuga, hvað ég hefðist eiginlega að. — Ég trúði hon- um fyrir því, að ég gengi með í kollinum hugmynd að dálít- illi uppfinningu — sem lík- lega reyndist þó lítils virði, þegar til Kæmi. — Þá varð honum að orði: — Þér ættuð að ræða málið við vin minn, Edison! — Fundur okkar var ákveðinn og undirbúinn, og einn góðan veðurdag stóð ég úti fyrir hinum miklu verk- smiðjubyggingum Edisons og beið eftir samtaiinu. Vilhjálmur Finsen. — V'ertu þess fullviss, að þú sért á réttri leið, ungi maður, og haltu svo þitt strik, sagði Edison við hann fyrir 50 árum. * ALLT SNERIST UM RAFMAGN Orange í New Jersey, þar sem Edison bjó og rak verk- smiðjur sínar var þá um 200 þús. íbúa borg — og höfðu flestir íbúanna beint eða ó- beint „lifibrauð" sitt af verk- stæðum og verksmiðjUm hug- vitsmannsins. — Allt í þessari b o r g virtist snúast um raf- magn. Einn af itærstu tækni- náskólum rxkis ins var í Or- ange. Raftækja verzlanir voru á hverju götuhorni. í gluggum bókabúðanna úði og grúði af blöðum og ritum um rafmagns fræði og tæknimál. í veitinga- húsunum var rafmagn notað til eldunar — og hér sá í fyrsta skipti rafknúna „skóburstara" í hverri götu svo að segja. Flest -af þessu var beint frá Edison komið eða í kjölfar starfs hans og uppfinninga. í hinu mikla verksmiðjuhverfi hans voru fjórar fjögurra hæða stórbyggingar og nokkr- ar minni fyrir skrifstofur og tilraunastofur. Allt um kring voru hins vegar snotur timb- urhús með fallegum görðum í kring — og eitt hið fallegasta af þeim átti Edison. Þar dvald ist hann þó aðeins sjaldan — meirihluta sólarhringsins skipti hann milli rannsóknar- stofunnar og bókasafnsins. Og það var á síðastnefnda staðn- um, að ég hitti hann. + „BÓL“ EDISONS Móttökuherbergi hugvits- mannsins var hið sérstæðasta. Það var þriggja hæða hátt — og veggirnir alþaktir bókum. Milli bókahillnanna hengu myndir af ýmsum frægum mönnum. í einu horninu sat einkaritari að starfi sínu, og í öðru var hið sérstæða „ból“ Edisons — trébekkur, þar sem hann lagðist oft út af að álið- inni nóttu og blundaði einn eða tvo tíma til þess að safna kröftum fyrir næsta dagsverk. — Á miðju gólfi stóð táknræn marmarastytta á stalli — ljós gyðja, sem treð ur á gaslukt og brýtur hana, um leið og hún heldur á loft rafmagns- 1 a m p a . Hátt uppi í loftinu hengu stór og smá málverk. Og við risastórt skrifborð til hægri við innganginn sat sjálf ur meistarinn — niðursokkinn í hugsanir sínar, að því er virtist. * OFÞREYTA — OG ORKA Hið fyrsta, sem mér kom í hug, var að Edison væri gam- all og útslitinn maður. Hið snjóhvíta hár hans, skegglaust andlitið, rist djúpum rúnum, og þreytuleg, djúplæg augun virtust bera þess merki, að hinir miklu kraftar hans væru að þrotum komnir. Óhemju- vinna árum saman, ásamt næt urvökum, hafði skilið við vanga hans föla og litlausa. Hendurnar voru grannar, ó- styrkar og á sífelldu iði. Ég hafði það á tilfinningunni, að hai^m þjáðist af ofþreytm — Edison sótti þegar árið 1877 um einkaleyfi á hljóðritunartækinu. — Sama ár sendi franska skaldið og eðlisfræðing- urinn Charles Gros ná- kvæma lýsingu á tæki „til upptöku og endur- flutnings á hljóðbylgj- um“ til vísindaháskólans í París, en hann vissi ekkert um starf Edisons. — Þegar hinir vísu menn háskólans loks tóku sig til og lásu skýrslu Gros, var hljóðriti Edisons þegar kominn á markað- inn. öðru hverju var þó sem hann vaknaði af draumi — og þá virtust djúp, grá augu hans skjóta gneistum. Þá var engu líkara en allur kraftur og orka veraldar byggi í sál þessa eina manns. Hann hreif mann með sér, talaði einstaklega ljóst og eins og af innri hrifn- ingu. — Hann sat í yfirfrakk- anum og hafði brúnan barða- mjóan hatt á höfðinu, sem slúttx fram yfir ennið. Milli þess sem hann talaði, tuggði hann endann á dökkum vindli, sem glóðin var kulnuð í. * „LÆT MARCONI UM ÞAГ Það kom í Ijós, að Edison hafði mjög takmarkaðan á- huga á loftskeytatækninni. „Ég læt herra Marconi um það“, sagði hann — og síðan fór hann út í aðra sálma, tók að ræða um uppgötvanir og einkaleyfi almennt. Hann mælti m. a. eitthvað á þessa leið: Nú er handhafa einkaleyfis gert að sanna, að stæling hafi verið gerð af uppfinningu hans — ef slík mál koma upp, sem algengt er. Þessa kvöð á að leggja á þann, sem stælir, þar með væri mikill vandi leystur. * HAGSYNIR STARFS- MENN Síðan skýrir Finsen frá því, er hann skoðaði verk- smiðjur Edinsons með leið- sögn Mr. Dolbeer, eins af for- stjórunum. Hann leggur á- herzlu á, hve allt hafi verið einfalt og íburðarlaust — en hentugt. — Ástæðunnar er sennilega að leita í þeirri stað- reynd, segir Finsen, — að all- ir forstjórarnir og deildar- stjórarnir voru sömu gerðar og Edison sjálfur — óbreytt- ir, hagsýnir starfsmenn, sem eyddu meiri tíma við renni- bekkinn en skrifborðið. — í einni skrifstofunni var maður að raða litlum, prentuðum kortum. Mr. Dolbeer sýndi mér eitt þeirra. Þetta voru tímakort, sem sýndu hve marg ar klst. hver einstakur starfs- maður hafði unnið yfir vik- una. Kortið, sem ég hélt á, var nr. 1 og bar nafnið Thom- as A. Edinson. Hinn 64 ára gamli meistari hafði verið 95 stundir og 49 mínútur að störf um — og þó hafði hann verið fjarverandi einn dag vikunn- if EKKI TIL EINSKIS Við settumst nú hjá einni af hinum „talandi vélum1 Edisons og hlustuðum á þær beztu hljómplötur, sem þá höfðu verið gerðar. I einu horninu á salnum sat maður og rannsakaði nýjustu plöt- urnar i smásjá. Með hinili ótrúlegustu nákvæmni grann- skoðaðx hann hvern sentí- metra hinnar nær 3 km löngu grópar, sem rist hafði verið í plötuna við hljóðritunina. — Plötum og yölsum hafði verið fleygt í þúsunda t a 1 i, tugþúsundum dala hafði ver- ið eytt — ekki til einskis heldur til þess að fullkomna Framh. á b’s. 8 STAKSIIINAR Orðljótur klerkur í Tímanum í fyrradag birtist grein eftir séra Sveinbjörn Högnason um störf Mjólkurbús Flóamanna. Er greinin skrifuð í tilefni af fyrirspurnum Morgun- blaðsins um rekstur þess fyrir- tækis. Greinin er heldur orðljót og leiðinleg, en verst er þó að hvergi er komið að því málefni, sem Morgunblaðið spurði beint um, þ. e. a. s. hvort hlutur bænda í verði mjólkur hefði læKkað úr rúmum 78% 1956 í tæp 72% 1959. Hins vegar er vikið að 25 ára gömlum átökum um framleiðslu og sölu mjólkur. Vm það mál ségir greinarhöfundur: „Þessum átökum lauk þó með svo glæsilegum sigri málstaðar bænda, að þeir heimtu í sinn hlut allt að 80% af verði afurða sinna, en aðeins um 20% fóru í allan kostnað við meðhöndlun sölu og dreifingu varanna“. Af þessari yfirlýsingu verður varla dregin önnur ályktun en sú, að mjög hafi hrakað hlut bænda í mjólkurverðinu þann aldarfjórðung, sem liðinn er frá þeim átökum sem greinarhöfund- ur getur um. Virðast því baráttu mennirnir fyrir þessum umbót- um á sínum tíma vera komnir í spor þeirra „afturhaldsmanna", sem þá voru mótfallnir öllum umbótum. Hver fær kr. 3,70 fyrir m j ólkurlíter inn ? Á aðalfundi Mjólkurbús Flóa- manna kom fram hörð gagn- rýni á stjórn búsins fyrir það að birta opinberlega alrangar tölur um það verð, sem bændur fengju greitt fyrir mjólk. Þessi gagnrýni virðist ekki hafa borið tilætlaðan árangur, því að Svein- björn Högnason skýrir frá því i grein sinni, að bændur á svæði Mjólkurbús Flóamanna fái í með alverð greitt 369,8 aura eða tæp lega kr. 3,70. Er þarna vísvitandi skýrt al- rangt frá staðreyndum, því að reikningar Mjólkurbús Flóa- manna sýna að bændur fá i sinn vasa ekki nema 3,29 kr. Er vand séð, hvaða tilgangi slík mishermi eiga að þjóna. Ekki geta þau ver- ið bændum hagkvæm, enda hefir margsinnis verið á það bent, að slíkar upplýsingar um mjólkur- verðið væru til þess fallnar að kaupstaðabúar fengju alranga hugmynd um hag bændastéttar- innar. r \ að vinna bændum tjón? Engu er líkara en endurtekn- ingar þessara ósanninda séu mið- aðar við að ýta undir fullyrð- ingar um of góðan hag bænda- stéttarinnar á borð við það sem fram kom hjá einum verkalýðs- leiðtoga hinn 1. maí. Slikar fullyrðingar notar Tím- inn svo til árása á Sjálfstæðis- flokkinn og hefur nú gengið svo langt að fullyrða, að Ingólfur Jónsson ráðherra sé aðalforvígis- maður þess að skerða hag bænda stéttarinnar. Slikur málflutningur er auðvit- að of fáránlegur til að Morgun- blaðið sjái ástæðu til að and- mæla honuin sérstaklega, en rétt er að menn gefi gaum að því hugarfari Framsóknarmanna, er liggur að baki slíkum fullyrð- ingum. Fyrst er landslýð sagt, að bændur fái miklu hærra verð fyrir afurðir sínar en rétt er, en síðan eru viðbrögð þeirra, sem taka trúanlegan þennan málflutn ing Framsóknarmanna notuð til árása á þá, sem bezt og dyggi- legast vinna að málefnum bænria. Málefni þessi verða síðar rædd nái: ar í heild.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.