Morgunblaðið - 13.05.1960, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.05.1960, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 13. maí 196u tTtg.: H.f Arvakur Reykjavfk íramkvæmdastjóri: Sígfús Jónsson. Rxtstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. PARÍSAR- FUNDURINN ¥ NÆSTU viku hefst í París fundur æðstu manna stór- veldanna, Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands og Rússlands. Er fundarins um allan heim beðið með eftir- væntingu, því að þar mun væntanlega skýrast, hvort búast megi við því, að kalda stríðinu linni í náinni fram- tíð, eða hvort þjóðirnar eigi áfram að búa við styrjaldar- óttann. Saman við umræður heims blaðanna um árangur þann, sem vænta megi að fundi rík- isleiðtoganna, blandast nú af- staðan til þess atburðar, sem gerðist 1. maí, er bandarísK flugvél var skotin niður yfir Ráðstjórnarríkjunum. Fyrstu viðbrögð manna við fréttun- um af þeim atburði voru þau, að Bandaríkin mundu mjög hafa spillt aðstöðu sinni og samherja sinna á Parísarf undinum. Það er auðvitað á almanna vitorði, að stórveldin öll stunda njósnir um herbúnað annarra ríkja. í því efni ganga Ráðstjórnarríkin sjálf- sagt hvað lengst, því að æ ofan í æ berast fréttir af víð- tækum njósnum þeirra, nú síðast bæði í Svisslandi og undan ströndum Bandaríkj- anna. Til njósnastarfa nota Rúss- ar bæði sérstaka sendimenn, en auk þess njóta þeir að- stoðar fimmtu herdeildar sinnar í sérhverju Iandi, eins og margsinnis hefur sannazt. Þjónar þeirra eiga líka yfir- leitt nægt um vik, þar sem umferða- og fréttafrelsi ríkir í lýðfrjálsum löndum og því auðvelt að afla upplýsinga. Þegar vitað er, að komm- únistar stunda slíka starf- semi, getur það varla talizt sérlega saknæmt, að and- stæðingar þeirra leitist við að afla sér sem haldbeztra upp- lýsinga um herstyrk Ráð- stjórnarríkjanna, meðan kalda stríðið varir. Eins og kunnugt er, þá er í hegning- arlögum sérhvers ríkis ströng ákæði um refsingar fyrir njósnir í þágu annarra. í sjálfu sér er enginn eðlis- munur á þeim njósnum, sem stundaðar eru innan hvers lands og því atviki, er banda- ríska flugvélin flaug yfir Ráðstjórnarríkin á dögunum. Hvort Iveggja er jafn ólög- mætt að alþjóðalögum. Hitt er svo allt annað mál, hvort talið er skynsamlegt af Bandarikjastjórn að grípa til slíkra aðgerða ,ekki sízt með tilliti tii þess, hve skammt er til iundar æðstu manna. Valdhafar í Ráðstjórnar- ríkjunum hafa notfært sér at- burð þennan mjög klókinda- lega til áróðurs, en þar með er ekki sagt, að hann þurfi nauðsynlega að leiða til þess, að fundur leiðtoganna verði árangurslaus. Menn gera sér nú betur en áður grein fyrir því, hve uggvænlegt kalda stríðið er orðið. Og með Par- ísarfundinum verður þess vegna fylgzt af meiri áhuga um gjörvallan heim en ella hefði orðið. Fyrir því hljóta leiðtogarnir að gera sér grein og þess vegna verður að vona, að sérhver þeirra leggi sig fram um að stuðla að því, að einhver árangur náist. Sá sem á fundinum verður ber að þvi að standa í vegi fyrir öllu samkomulagi, getur ekki vænzt þess að almennings- álitið snúist á sveif með hon- um. Rússar munu nú telja sig hafa mjög sterka aðstöðu áróðurslega og er því líklegt að þeir muni leitast við að aðhafast ekkert það, sem geti spillt þeirri aðstöðu. Hugsan- legt er því að þessi atburður geti, þegar allt kemur til alls,' snúist til góðs og einmitt það er nú von alls mannkyns. SLÆMT MINNI JÓÐVILJINN minnist 20 ára afmælis landgöngu Breta með yfirlýsingu um, að kommúnistar hafi ætíð bar- izt fyrir ævarandi hlutleysi og „gegn her í landi“. Virðist því ástæða til að hressa svo- lítið upp á minni þeirra kommunistanna. Þeir voru 1939 hlynntir þvi, að við bæðum Bandaríkin um vernd, 1940 voru þeir á móti bandamönnum, 1941 snerust þeir svo til andstöðu við Þjóðverja og vildu loks segja þeim stríð á hendur. Síðar tóku þeir að berjast gegn Atlantshafsríkjunum, en gleymdu þó baráttunni fyrir j brottför varnarliðsins meðan þeir voru í vinstri stjórninni. Allt þetta má rifja upp ^ með tiivitnunum í þeirra j eigin rit. * UTAN UR HEIMI Njósnamá A ÐALFRÉTTIR heimsblað- anna undanfarið haía verið af flugvélinni banda- rísku, sem Krúsjeff sagði á fundi Æðsta ráðs Sovétríkj- anna á dögunum ,að skotin hefði verið niður nálægt Sverdlovsk í Síberíu hinn 1. maí. Hafa blöðin skrifað „fram og aftur“ um allt það í í \ Frá strlðslokum \ \ hafa stórveldin \ | / austri og vestri \ \stundaá viðtækarl | njósnir. Hér er j j drepið á nokkur ; 1 fræg njósnamál. \ i s s _______________ i mál, sem engan veginn virð- ist upplýst til fulls enn, og þykja Bandaríkjamenn hafa farið nér hina mestu hrak- för — enda hefir Krúsjeff kunnað að færa sér þennan atburð i nyt til hins ýtrasta, svo sem vænta mátti. Njósnamál þetta hefir vakið sérstaka athygli vegna þess, að fyrir dyrum stendur hinn mikil- vægi fundur æðstu manna aust- urs og vesturs í París — en það er öðru nær en hér sé um ein- hvern algerlega einstæðan at- burð að ræða. Allt frá styrjald- arlokum hafa njósnir verið stund aðar af kappi á báða bóga, og hafa margir njósnarar verið af- hjúpaðir, þótt reikna megi með, að þeir séu fleiri, sem tekizt hef- ir að stunda iðju sína, án þess upp hafi komizt. í tilefni um- talsins um njósnaflug Banda- ríkjamanna, verður hér minnzt örfáum orðum á nokkur þeirra njósnamala frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar, sem hvað mesta athygli hafa vakið. ★ FUCHS OG ROSENBERG- HJÓNIN 1 marzmánuði árið 1950 var hinn 38 ára gamli kjarnorku- vísindamaður Klaus Fuchs (fæddur Þjóðverji), sem notið hafði míkils álits, dæmdur til 14 ára fangelsis í Englandi, fund inn sekur um að hafa veitt Rúss- um upplýsingar um kjarnorku- leyndarmál. Hann tók þó ekki út refsingu sína til fulls — var lát- inn laus i fyrra, hélt þá til Aust- ur-Þýzkalands og starfar nú við vísindagrein sína í Dresden. — Vakti mál Fuchs óhemjuathygli, þegar það var á döfinni. Annað það njósnamál frá styrjaldarlokum, sem einna mest hefir verið skrifað um, er mál Rósenberghjónanna, Júlíusar og konu hans, Ethel. Þau störfuðu við kjarnorkuver í Bandaríkjun- um, voru sökuð um að hafa kom- ið upplýsingum um kjarnorku- leyndarmál til Rússlands — og dæmd til dauða í apríl 1951. Mal þeirra var lengi á döfinni og dauðadómurinn yfir þeim vakti talsverðar deilur, en í júní 1953 voru þau bæði tekin af lífi í raf- magnsstólnum. ★ ALGER HISS 1 janúar árið 1950 var Alger Hiss, fyrrverandi embættismað- ur í bandaríska utanríkisráðu- neytinu, dæmdur til 5 ára fanga- vistar fyrir að veita njósnurum Rússa mikilvægar upplýsingar — og sverja rangan eið í því sambandi Það þótti fullsannað, að hann hefði látið Whitaker nokkrum Chambers í té ýmis leyndarskjöl frá utanríkisráðu- neytinu —en Chambers hafði játað, að hann hefði starfað fyr- Petrov — njósnaði fyrir ieyni- þjónustu Rússa í Ástralíu. ir rússneskan njósnahring frá því fyrir stríð. — Hiss hafði áður svarið það fyrir rétti, að hann hefði ekki gefið Chambers neins konar upplýsingar. ★ ÞRÍR RÚSSAR Arið 1957 var rússneski | ofurstinn Rudolf Abel dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að stela bandarískum hernaðarleyndar- málum. — Enn mun mönnum í Hér eru tveir af frægustu njósnurunum: Klaus Fuchs, sem lát- inn var laus úr fangelsi í fyrra, og Julius Rosenberg, sem líflát- inn var í Bandaríkjunum 1953, ásamt konu sinni, Ethel. Alger Hiss — sór falskan eið. fersku minni mál Vladimirs Petrovs, sem handtekinn var fyrir njósnir í Ástralíu árið 1955 — og baðst þar síðan hælis sem pólitískur flóttamaður. Hann játaði, að hann hefði ver- ið fyrir njósnahring rússnesku leyniþjónustunnar í Ástralíu —■ og lagði fram skjöl, sem leiddu til þess, að upp komst um víð- tæka njósnastarfsemi. Árið 1956 bað Igor nokkur Gouzenko, sem var dulmálssér- fræðingur við sovézka sendiráð- ið í Ottawa í Kanada, um hæli í landinu sem pólitískur flótta- maður. Jafnframt lagði hann fram ýmis skjöl með upplýsing- um um starfsemi rússnesks njósnahrings í Kanada. Á BROTTVÍSANIR OG NÁÐANIR I október í fyrra var starfs- maður bandaríska sendiráðsins í Moskvu, Russell Langelle, sak- aður um njósnastarfsemi og hon- um vísað úr landi. — í maí árið 1954 nafði Charles Landon majór, varahermálafulltrúi Breta í Moskvu, verið borinn sams konar sökum. Hann varð einnig að yfirgefa Sovétríkin. — í febrúar í fyrra tilkynntu sovézk yfirvöld ,að handteknir hefðu verið fjórir Tyrkir. Var þeim gefið að sök að hafa stund- að njósnir fyrir Bandaríkin. 1 ágúst 1953 var brezka kaup- sýslumanninum Edgar Sanders (hann var fæddur í Rússlandi) vísað brott úr UngverjalandL Hafði hann verið dæmdur til 13 ára fangelsis fyrir njósnir og „setið inni“ 3 ár, er hann var náðaður, með því skilyrði, að hann hyrfi tafarlaust úr landi. William Oatis, bandarískur starfsmaður Associated Press- fréttastofunnar í Prag, var dæmdur í fangelsi árið 1953, fundinn sekur um að hafa stund- að njósnir fyrir Bandaríkin. Eftir rúmlega tveggja ára fanga- vist var hann látinn laus og náð- aður. ★ Á ÓHEPPILEGASTA TÍMA Hér hefur aðeins verið drep- ið lausiega á nokkur þeirra njósnamála, sem upp hafa komið á árunum eftir heimsstyrjöldina. Og enn stunda stórveldin í austri og vestri njósnir eftir því sem við verður komið. Njósnamálið, sem nú er mest umrætt í frétt- um dag eftir dag, er áreiðanlega ekkert emsdæmi. En heppnin er ekki alltaf með njósnurunum, eins og sjá má af upptalning- unni hér að framan, og þegar upp kemst um njósnastarfsemi, verður jafnan mikið fjaðrafok —• mótmælaorðsendingar eru' gefnar út og haft í hótunum. — En óneitanlega hafa þessir síð- ustu atburðir gerzt á óheppileg- asta tíma, svo skömmu fyrir þjóðaleiðtogafundinn í París — þar sem gera skal tilraun til að minnka bilið milli austurs og vesturs og draga nokkuð úr þeirri tortryggni, sem einmitt er ein aðalástæðan til hinnar víð- tæku njósnastarfsemi á báða bóga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.