Morgunblaðið - 13.05.1960, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.05.1960, Qupperneq 13
Föstudagur 13. maí 1960 MORCTJNTiLAÐlh 13 Siglt fyrir Hvanndalabjarg, Dalatá og Málmey Sumarmálaferð með flóabátnum Drang ÞAÐ er alhvít jörð, þegar ég kjaga niður á bryggju með töskurnar mínar. Klukkan er tæplega 8 að morgni. Sumar- ið sendir okkur kaldar kveðj- ur af og til, þótt komið sé að apríllokum. Að þessu sinni er ferðinni heitið með nýja flóabátnum Drang, áætlunar- ferð hans til Sauðárkróks. Þaðan skal svo haldið heim til Hóla og rætt við unga tamningamenn. Á bryggjunni hitti ég Steindór Jónsson, eiganda Drangs, og skip- stjóra í þessari ferð. Ástæðan til þess að hann fer sjálfur með skip ið að þessu sinni er sú, að full- trúi frá skipasmíðastöðinni, A.S. Ankerlökken Verft í Florö í Noregi er meðal farþega. Ætla þfeir í félagi, eigandinn og full- trúinn, að athuga hvort einhverj- ir gallar hafi komið fram á smíði skipsins, en reynslutíma þess er nú lokið. Það er stillilogn og glampandi sólskin, er Drangur lætur úr höfn á mínútunni klukkan 8. Ég hvarfía sjónum til Súlutinds og Hlíðarfjalls, sem stirnir á í morg- unsólinni. Loftið er tært og land- ið er sem nýstrokið lín. Þó kulda- legt sé um að litast er Eyjafjörð- urinn bæði fagur og vinalegur þennan aprílmorgun. Drangur er brátt kominn á fulla ferð og rist- ir spegilsléttan fjörðinn. Okkur er boðið til morgunverðar en þeg- ar við rísum upp frá borðum sigl um við framhjá Svalbarðseyri. Það er myndarlegt um að litast á Svalbarðsströnd. Hvert býlið er öðru glæsilegra til að sjá og ofan við Svalbarðseyrina gnæfir hið gamla höfuðból Svalbarð, en litlu ofar ris ný og fagurlega byggð kirkja, sem setur hugljúfan svip á þennan litla stað. Galmarsströnd og Hrísey Brátt blasir við okkur á vinstri hönd Galmarssrönd, sem Davíð Ful'trúi Ankerlökken. vne Winsents hefur kveðið svo fagurlega um í kvæði sínu: Sigling inn Eyja- fjórð: „Mjúk er sem móðurskaut moldin á Galmarsströnd“. Beint fyrir stafni gnæfir Kald- bakur, þessi skjólveggur næðings samrar norðanáttar. Við nálgumst Hrísey fyrsta við- komustað flóabátsins. Þessi gam- aiþekkta útgerðarstöð ber nú hóg værari svip en áður var þegar saltað var hér í þúsundir síldar- tunna sumar hvert og stórtækir útgerðarmenn gerðu hér út alls konar skip allt frá tíð Hákarla- Jörundar. Báturinn er með mik- inn flutning hingað út bæði mat- væli vélar og stórviði, sem nota skal í símalínu, sem leggja á eftir endilangri eyjunni. Viðdvölin er því venju fremur löng, þó er unn- ið af kappi og allir hjálpast að að afferma skipið og ferma, jafn- vel skipstjórinn sjálfur vinnur við móttöku á heyi, sem flytja á til Siglufjarðar. Næst er stefnan tekin þvert vestur yfir fjörðinn til Dalvíkur. Þar er höfð örstutt viðdvöl, en síðan haldið til Ólafsfjarðar fyrir Ólafsfjarðarmúla. Hér og hvar sjáum við báta, þar sem ýmist er unnið að því að draga net eða verið á handfæraveiðum. Múlinn glottir Það er eins og Múlinn glotti til okkar, hvítur fyrir hærum með snjóskellur í standberginu, sem er einna líkast hæruskotnu skeggi á risaandliti. Það er eins og hann vilji segja við okkur: — Jæja, piltakindur, nú verður brátt lagð ur vegur í hlíðum mínum og þá minnkar nú verkefnið fyrir Drang. En Drangur lætur þetta ekkert á sig fá. Hann veltir lítils háttar súðaivöngum og siglir fyr- ir Múlann og strikar bemt inn í Ólafsfjarðarhöfn. Þar er höfð fremur skömm viðdvöl, eitthvað af vörum sett á land og farþegar koma og fara. Allmargt fólk er á bryggjunni, en alvörusvipur á hverjum manni. Mönnum er enn efst í huga sorgaratburður, er skeði hér fyrir tveimur dögum síðan. Vaskur sjómaður úr kaup- staðnúm hafði farizt skammt norðan við fjörðinn. Örlög við tvo Fossdali Um hádegisbilið sigldum við norður með hamraþiljum, Arn- finnsfjalls, Hádegisfjalls og Hvanndalabjarga. Fossdalur er dálítill dalskvompa inn í kletta- vegginn skammt norðan við Ól- afsfjörð. Þar í stórgrýttri urðinni í fjörunni fundust fyrstu merki þess, að bátur Axels Péturssonar, sjómanns, væri ekki lengur ofan sjávar. Þegar við sigldum þarna um var lík Axels heitins ekki enn fundið en fannst nokkru norðar, tveim dögum síðar. Fyrir allmörgum árum síðan bjargaði Axel sér á bát sínum í Fossadal, sem svo heitir austan megin fjarðarins, en síðan verða örlög hans að bera beinin undan Fossdalnum vestan megin. Annar hásetinn á Drang segir mér sög- una af því ,hvernig Axel bjarg- aðist upp í eystri Fossdalinn. Hann var þá að koma frá Siglu- firði og var einn á báti sínum eins og nú. Hafði hann kolafarm um borð. Er hann var fyrir nokkru kominn út úr Siglufirði, rakst báturinn á viðardrumb, er flaut í sjónum. Kom þá gat á kinnung hans, rétt undir sjávar- borði. Vindur mun hafa verið nokkur vestlægur og ekki tök á að ná vesturlandinu. En Axel var duglegur og þrekmikill sjó- maður. Verður honum fyrst fyrir að ryðja skipið, kasta kolunum fyrir borð og taka pokann, sem þau voru í og freista þess að troða í gatið, sem á byrðinginn hafði komið. Brátt var kominn það mikill sjór í bátinn, að vélin gat ekki lengur gengið. Vatt Axel þá upp segl og sigldi sem hann mátti austur yfir fjörðinn en stóð í stanzlausum austri allan tím- ann. Tókst honum loks, þrekuð- um og blautum að hleypa bátn- um á land undan Fossdal. Þaðan gekk hann um alllangan veg inn að Látrum, sem þá voru komnir í eyði. Þar var skipbrotsmanna- skýli og fann Axel nokkrar eld- spýtur, sem skildar höfðu verið eftir, gat kveikt upp eld og þurrk að föt sín. Þaðan gekk hann svo alla leið inn að Svínanesi, sem var nyrzti bær í byggð á Látra- strönd. Þótti honum hafa fræki- lega tekizt ferðin. Undir Hvanndalabjörgum Davíð segir í kvæði sínu um Eyjafjörð: „Verja hinn vígða reit varðtröllin klettablá máttug og mikilleit Múlinn og Gjögratá". Einmitt nú sigldum við milli þessara varðtrölla. Og hann segir ennfremur: „Allt það, sem augað sér, æskunnar hörpu knýr, syngur og segir mér sögur og ævintýr". Og einmitt nú kemur okkur í hug þjóðsagan um Hálfdán prest á Felli og Málmeyjarbóndann, sem hann reið með á djöflinum sjálfum vestan frá Málmey til Hvanndalabjarga til þess að sýna honum, hvað orðið hefði um konuna hans, sem þá var kominn í tröllsham þar í björgunum. „Ei mátt þú æpa, þú ekkert mátt segja, hver ósköp sem á ganga, áttu að þegja. Særingar einar, sagðar í huga, djöfulmagn- aðar, duga“. Þánnig lagði Hálfdán í Felli Málmeyjarbóndanum lífsreglurn- ar, er þeir riðu á Gránafyrir Hvanndalabjörg. Engar djöful- magnaðar særingar koma okkur Steindor Jónsson, skipstjóri, útgerðarmaður Drangs í hug, er við siglum fyrir Hvann- dalabjörg en það er okkur ljóst að mikinn kyngikraft hefur þurft til að opna þessi hamraþil. Hestfjall rís hátt og tignarlegt norðan Héðinsfjarðar. Enn hvarfl ar hugurinn að meinlegum örlög- um. í hlíðum þessa hrikafjalls skeði hörmulegt slys fyrir nokkr um árum. iskaldur næðingur og snjófúk fer nú um hrikalegan tind þessa stórskorna fjallrisa. 1 hamrahlíðum hans fðrst flugvéi með mörgum mönnum fyrir rúm um áratug síðan. Merki þessa hörmulega slyss sjást nú ekki lengur en dapurlegar hugsanir leit fram í hugann, þegar við lítum upp í bergið. Það eins og vetur konungur vilji undirstrika minninguna um þennan atburð með því að senda okkur hríðar- gusu einmitt þegar við förum hjá. Til Haganesvíkur Þegar við siglum fyrir Helluna út af Siglufirði, er komiö vestan- kul, en sólin glampar á ný. Við dveljumst á Siglufirði um tveggja stunda skeið en síðan er haldið fyrir Stráka vestur á Skagaströnd. Það er nú kominn hvass vestanvindur og ágjöf mikil, en sólin glampar á freyð- andi hafið. Næsti áfangastaður er Haganesvík. Þar er engin bryggja og þess vegna verður bátur að koma út að skipinu. Þar er rætt um það, hvort sjór muni ekki það mikill inni á víkinni að bát- urinn muni ekki hafa sig út. En Frh. á bls. 15. Lítill róðrarbátur flytur vörur og farþega á Iand í Ifaganesvík Lagt frá bryggju á Akureyri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.