Morgunblaðið - 22.07.1960, Síða 1

Morgunblaðið - 22.07.1960, Síða 1
20 síður A SIS flækt í mesta f járglæf ramál sem um getur á íslandi Víðtæk brot á g|aldeyrisloggjofinní9 óloglegur inn flutningur, falsaðar skýrslur og margháttað brask bæði i Ameríku og Evrópu Ný f.éttcstilkynning frá I. Geymaleigutekjur Olíufélagsins h.f. f fyrri fréttatilkynningum var skýrt frá því, að einn gildasti þáttur rannsóknar málsins hafi verið sá að staðreyna hverjar hafi verið gjaldeyristekjur H.Í.S. og Oliufélagsins h.f. undanfarin ár vegna viðskiptanna á Keflavíkur- flugvelli og ráðstafanir félaganna á þessum tekjum. Hefir f fyrr! tilkynningu verið gerð nokkur grein fyrir viðskiptareikningum H.Í.S., nr. 4137 og 4138, hjá Esso Export Corporation. Árið 1950 samdi Vilhjálmur Þór, þáverandi stjórnarformaður Olíufélagsins h.f., við bandarisk stjórnvöld um leigu á olíugeym- um félagsins í Hvalfirði. Tekjur Olíufélagsins h.f. vegna leigu geymanna í Hvalfirði námu í árs lok 1958 samtals $ 877.833.90. Var langmestur hluti þessarra dollara Frh. á bls. 9. svo hljóÖandi: Fréttatilkynning nr. III af dóms- rannsókn á ætLaðri ólölegri starfsemi Hins íslenzka stein- olíuhlutafélags og Olíufélagsins h.f. . ★ Þar sem dómararnir hafa orð- ið þess áskynja, að ýmsum sögum fari af rannsókn olíumálsins svo- kallaða, þykir þeim bæði rétt og skylt, til viðbótar fyrri tilkynn- ingum, að skýra frá eftirfarandi Símsent frá Oslo ÞESSI mynd var símsend Mbl. frá Osló í gærkvöldi, og barst hún um miðnætti. Hér sézt Valbjörn Þorláks- . son stangarstökkvari í sigur stökkinu, 4.40, og réði það öðrum greinum fremur, að ísland náði fjórða sæti í keppninni í Osló. rannsóknardómurunum MORGUNBLAÐIÐ skýrði frá því 30. júní og 14. júlí sl., að mikil réttarhöld hefðu staðið yfir í olíumálinu og Vilhjálmur Þór, seðla- bankastjóri og fyrrverandi forstjóri SÍS, hefði verið til yfirheyrslu og böndin væru farin að berast að forystumönnum SÍS. í frétta- tilkynningu frá rannsóknardómurum í málinu, sem blaðinu barst í gær, og birt er í heild hér á eftir, er þetta staðfest. í tilkynningu rannsóknardómaranna er m. a. skýrt frá því, að tekjur Olíufélagsins h.f. vegna leigu á olíugeymum þess í Hvalfirði hafi í árslok 1958 numið $877.833.90, en þá voru liðin átta ár frá því Vilhjálmur Þór, þáverandi stjórnarformaður lélagsins, gerði samn- ing við bandarísk stjórnvöld um leigu á geymunum. Var langmestur hluti þessara dollara færður á sérstakan reikning Olíufélagsins h.f. hjá Esso Export Corporation í New York, nr. 6078. Ekki gerði fé- lagið gjaldeyriseftirlitinu skil á neinum leigutekjum félagsins fyrr en gengið var eftir því haustið 1955, en þá fullyrtu forráðamenn félagsins, að félagið ætti eftir að fá fært til tekna hjá Esso Export Corporation $ 145.000.00. Aftur á móti sýna gögn, að félagið hafi verið búið að fá ráðstöfunarrétt yfir þessum dollurum þegar á árinu 1954, enda voru doilararnir þá um haustið fluttir að undirlagi Vil- hjálms Þórs af geymaleigureikningi Olíufélagsins h.f. inn á reikn- ing þess félags hjá skrifstofu SÍS í New York. Þessar gjaldeyristekjur Olíufélagsins h.f. notaði SÍS síðan ólög- lega til kaupa á ýmiskonar varningi, m. a. miklum fjölda bifreiða. Af þessu sést, að gjaldeyrisviðskipti SÍS og Olíufélagsins h.f. hafa verið samofin. Það kemur síðan fram í tilkynningu rannsóknardómaranna, að Haukur Hvannberg hafi notað fé Olíufélagsins h.f., m. a. af inn- stæðu þess hjá skrifstofu SÍS í New York, til flugvélakaupa og verðbréfabrasks. Fyrirtækið Butler, Herrick & Marshall „keypti og seldi fyrir Hauk Hvannberg verðbréf (securities), þar til Haukur Hvannberg lét loka reikningnnm 29. janúar 1959 og yfirfæra $ ^0.758.85 til Union Bank í Sviss, þar sem peningarnir eru enn, eftir því sem dómararnir bezt vita“. Þá benda gögn til þess, að Hið íslenzka steinolíuhlutafélag hafi haft tekjur í sterlingspundum, vegna olíusölu tii erlendra skipa á fslandi. „Gjaldeyrisskil yfir þessar sterlingspundatekjur voru ekki gerð, fyrr en árið 1959, að því er hermir í framburði forstjóra sölu- deildar Olíufélagsins h.f., og þá samkvæmt beiðni gjaldeyriseftir- litsins". í marz 1954 voru hins vegar £ 11.500 af innstæðum HIS í Englandi, án heimildar gjaldeyrisyfirvaldanna, varið til kaupa á Litlafclli, sem er sameiginleg eign Olíufélagsins h.f. og SÍS op keypt var í Svíþjóð um þær mundir. Vilhjálmur Þór mundi ekki, hvernig gjaldeyrisins var aflað til kaupa á skipinu. Við yfirheyrsl- urnar kvaðst Vilhjálmur Þór ekki, í nokkrum öðrum atriðum, muna eftir sameiginlegum, ólöglegum gjaldeyrisviðskiptum Olíufélagsins h.f. og SÍS, eins og fram kemur í tilkynningu rannsóknardómaranna. triðum, sem fram hafa komið við Fréttatilkynning rann- sóknardómaranna er rannsókn málsins: Vilhjálmur Þór lætur af störfum Samkvæml tilmælum bnnka- málaráðherra vegna olíumálsins VILHJÁLMUR ÞÓR, aðal- bankastjóri Seðlabankans, hefur látið af störfum um stundarsakir. Beindi banka- málaráðherra, Gylfi Þ. Gísla- son, þeim tilmælum til banka- stjórans að hann léti af banka stjórn meðan rannsókn hins svokallaða olíumáls stæði yf- ir. En eins og kunnugt er var Vilhjálmur Þór stjórnarfor- maður Olíufélagsins og fram- kvæmdastjóri Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga I þann mund, sem þær stór- felldu misfellur hófust, sem þetta mál rekur rætur sínar til. Var þar um að ræða stór- kostleg brot á gjaldeyrislög- gjöfinni ásamt margskonar braski og óreiðu. Framh. á bls 2.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.