Morgunblaðið - 26.07.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.07.1960, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjuclagur 26. júlí 1960 Rússar hegða sér eins og ræningjar Skutu flugvél niður opnu hafi yfir New York, 25. júlí. HENRY CABOT LODGE, fulltrúi Bandaríkjanna í Öryggisráðinu bar Rússa í dag þungum sökum í sam- bandi við bandarísku könn- unarflugvélina sem þeir skutu niður yfir Norður- Ishafinu þann 1. júlí sl. Hann sagði að Rússar hefðu ráðizt eins og ræningjar á flugvél sem hefði verið á flugi yfir opnu hafi, í fyrstu reyndu þeir að þvinga hana til að fljúga inn yfir rússneskt landssvæði, en þegar það mistókst, skutu þeir hana niður. Lodge sagði að það væri öruggt að bandaríska könn- unarflugvélin hefði aldrei flogið nær rússnesku yfir- ráðasvæði en 30 mílur eða 50 km. Flugvélin hafði verið miðuð nákvæmlega af radíó- miðunarstöðvum og hlustun- arstöðvar Bandaríkjamanna fylgzt nákvæmlega með ferð- um hennar. Upplýsingar Rússa uppspuni Rússar haía tilkynnt að flug- vélin hafi verið skotin niður kl. 3,03 síðdegis Jþann 1. júlí um 12 mílur norður af bænum Svyatoy Nos á Kolaskaga, og hefði hún þá stefnt í áttina til borgarinnar Archangelsk. Sagði Cabot Lodge í Öryggis- ráðinu, að þessi skýring Rússa væri alröng Flugvélin hefði hvorki verið skotin niður á þess- um stað né þessari stundu. Á þessum tíma var hún um 50 míl- ur norður af Svyatov Nos og var það ætlun flugmannanna, að breyta nokkuð um stefnu á þess- um stað og fljúga meira til norð- urs. En þá gerðist það, að rúss- nesk orustuflugvél flaug upp að bandarísku flugvélinni og hélt sig um stund við hlið hennar norðan megin, svo að hin banda- ríska flugvél gat ekki beygt á bakborða um sinn. Var greini- legt að rússneska orustuflúgvél- in ætlaði rneð þessu að neyða bandarísku flugvélina til að fljúga inn yfir rússneskt yfir- ráðasvæði. Flugmaðurinn á bandarísku flugvélinni taldi sig ekki geta beygt í áttina til rússnesku orustuflugvélarinnar vegna þess að hún myndi nota það sem til- efni til skotárásar. 200 mílur frá Svyatoy Nos Þegar flugvélarnar höfðu flog- ið þannig um sinn hlið við hlið, sneri hin rússneska orustuflug- vél til baka, sennilega af því að benzínbirgðir hennar hafa verið farnar að minnka. Tókst banda- rísku flugvélinni þá að sveigja norður á bóginn, að vísu seinna en ætlað hafði verið, en öruggt er þó, að hún var enn um 30 mílur frá rússnesku ströndinni. Flugvélin var skotin niður 20 mínútum síðar en Rússar til- greina og ekki 12 mílur frá Svyatov Nos heldur 200 mílur. Lodge sagðist halda, að það hafi verið ætlun Rússa að reyna að þvinga br.ndarísku flugvélina inn yfir strendur Rússlands, til þess að geta skotið hana niður yfir þurru Jandi og haldið sýn- ingu á brakinu. Rússar skiluðu aftur tveim mönn um af áhöfn flugvélarinnar, sem þeir segðu að væru enn á lífi og gæfu upplýsingar um aðra þrjá sem ekkert hefði frétzt af. Um sjötta manninn þyrfti ekki frek- ari upplýsingar, en Rússar hefðu þegar gefið, hann væri dáinn. Cabot Lodge sagði að Banda- ríkjastjórn iiti þessa árás Rússa mjög alvarlegum augum. Þetta væru hreinar aðferðif sjóræn- ingja. Ennþá alvárlegra yrði mál ið fyrir það, að Rússar reyndu nú að nota það til árása á Banda ríkin, Menn hlytu að spyrja, hvað slíkár iögleysur og ábyrgð- arlausar yfirlýsingar ættu að þýða. Hótanir Rússa Hann sagði einnig, að fjöldi fólks í öllum löndum væri ótta- slegið vegna framkomu rúss- neskra valdhafa að undanförnu og menn spyrðu, hvort þeir væru að leita að tilefni til að hefja heimsstyrjöld. Minnti Lodge á hinar mörgu hótanir Rússa að Norræna sam- göngumálanefndin á f undi 1 gær og í dag er haldin í Reykjavík fundur í Norrænu Samgöngumálanefndinni. Nefnd þessi, sem starfar á veg um Norðurlandaráðs, er skipuð 9 þingmönnum Norðurlandaþjóð anna, skipuðum af rikisstjórnum viðkomandi landa, tveimur frá hverju landanna fjögurra, Dan- mörku, Noregi, Svíþjóð og Finn- landi og einum frá íslandi. Nefndin fjallar um þau sam- göngumál á sjó, landi og í lofti, er varða Norðurlöndin almennt og vinnur að samræmingu á ýmsum reglum um samgöngu- mál á Norðurlöndum. Fjallar nefndin bæði um slik mál, sem Norðurlandaráð vísar til hennar og getur einnig sjálf tekið ákveð in mál til meðferðar. Formaður nefndarinnar er nú danski þingmaðurinn Svend Horn. Fulltrúi íslands í nefdinni er Birgir Finnsson aiþingismað- ur. skjóta eldflaugum búnum vetn- issprengjum á smáríkin um- hverfis þá. Menn vita, að Rúss- ar eiga langdrægar eldflaugar og við Bandarikjamenn eigum þær einnig, sagði Lodge. En Rússar reyna að nota þessi vopn til að kúga friðsamar nágrannaþjóðir. Sagði Cabot Lodge, að kjarnorku stríð væri aivarlegra en svo að stórveldin ættu að nota það í hótanaskyni eða til áróðurs. Sameiginleg rannsókn Loks lagði hann til, að Rússar og Bandaríkjamenn kæmu sér saman um að sætta þá deilu, sem nú hefur risið upp milli þeirra vegna könnunarflugvélar innar, annað hvort þannig að þeir skipuðu sameiginlega rann- sóknarnefnd í málinu eða legðu það fyrir alþjóðadómstólinn í Haag. Áreksturinn vlð Rauðavatn Harðir ur áreksirar, meiðast UM helgina urðu tveir harðir bílaárekstrar í útjaðri lögsagnar umdæmisins. í báðúm tilfellum urðu meiðsl á konum er voru í þessum bílum. Á Kastaðist út úr bílnum. Annar þessara árekstri varð Aslandið betra í Kongo: S. Þ. koma á röð og reglu Lepoldville, Brussel og New York 25. julí (Reuter). HERLIÐ Sameinuðu þjóð- anna dreifist nú óðum út um allt Kongó, eftir því sem fjölgar í því. Virðist her- mönnunum hvarvetna vera fagnað og hefur þeim tekizt að koma á röð óg reglu í öll- um þeim borgum og héruð- um sem þeir koma til. Hins vegar ríkir ennþá ó- vissa um, hvað verður gert við héraðið Katanga í suður- hluta landsins. Von Horn, hinn sænski yfirmaður her- Iiðs S. Þ. lýsti því yfir, að hann teldi sig hafa heimild til að senda herlið inn í Kat- anga. En Eyskens forsætis- ráðherra Belgíu mótmælir því harðlega. Lumumba forsætisráð- herra er kominn til New E SVSOknúhA t úii /* NA /S finiitor]# Snjihma | 7 Sivrir K Þrumur York og átti í dag tvö sam- töl við Hammarskjöld fram- kvæmdastjóra S. Þ. Var Lumumba mjög ánægður með þessi samtöl. Hammar skjöld fer um miðja vikuna til Kongó til að kynnast ástandinu þar af eigin raun. Landið friðað 1 dag tilkynnti herstjóm S. Þ. í Kongó, að hafnarborgin Mat- adi við mynni Kongó-fljóts væri opin þar sem öllum hindrunum hefði verið rutt úr vegi. Wheel- er hershöfðingja, sem sá um það á árunum að hreinsa Súez-skurð- inn, hefur verið falin stjóm hafn arinnar. Túnískir hermenn í liði .S. Þ. hafa nú tekið Luluaborg og í dag gengu 300 blakkir Kongó- hermenn í heiðursgöngu fyrir Framhald á bls. 19. suður á Hafnarfjarðarvegi. Lftill plastbíll, J-135 ók inn á Hafnar- fjarðarveginn af hliðargötu í Kópavogi. Um leið bar þar að vörubíl og varð árekstur með þeim afleiðingum, að kona sem sat í sætinu við hlið ökumanns- ins kastaðist út úr bílnum er hurðin hrökk upp. Hlaut hún höfuð högg mikið, en var þó ekki talin þurfa að fara í sjúkrahús. Á Skarst á andliti. Hitt slysið varð upp við Rauða vatn, er leigubíll frá Reykja- vík og VW, X-153 rákust á.— Ung kona, er sat í framsæti bíls- ins X-153, kastaðist við höggið á framrúðuna, braut hana, en skarst við það á enni og höku. Bíllinn skemmdist talsvert, en myndin er tekin af bílnum, nokkru eftir áreksturinn. á Hvolfdi. Loks er þess að geta, að sendi- ferðabíll frá Hamri hvolfdi aust- ur við Kálfatjörn og skemmdist töluvert. Ekki er kunnugt um að meiðsl hafi orðið á fólki. FuUtmafundur norrænu féla®;- anna FULLTRÚAfundur norrænu fél- aganna verður haldinn í Reykja- vík í dag og hefst kí. 9 í Alþing- ishúsinu. Fundinn sitja 20 fulltrúar frá hinum Norðurlöndunum, stjórn norræna félagsins hér og fulltrú- ar deildanna úti á landi. Frá Danmörku mæta sex full- trúar, fimm frá Finnlandi, þrír frá Noregi og sex frá Svíþjóð. Danir senda fiski- skip á íslandsmið Sjóræningja-aðferðir Ræðumadur kraíðist þess, að Lægðin yfir Islandi var heldur að grynnast í gær, og var kyrrt veður og úrkomu- lítið víðast á landinu. Út af Vestfjörðum var norðan stinn- og Faxaflóamið: Hægviðri, skýjað með köflum. Breiðafjörður og Breiða- fjarðamið: NA kaldi ^kýjað. Vestfirðir og Vestfjarðamið: NA-kaldi, rigning norðan til. Norðurland og Norðurmið: skýjað, dálí’; ingskaldi og rigning. Hlýjast var kl. 15 í Síðumúla Norðan gola, 15 stig, en kaldast á Galtar- rigning. vita, 10 stig. NA-land til SA-lands, NA- Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: mið til SA-miða: Hægviðri, SV-land, Faxaflói, SV-mið smáskúrir. KAUPMANNAHÖFN 25. júlí: * (Frá Páli Jónssyni). Danskt útgerðarfyrirtæki í Frederiks havn hefur ákveðið að senda fiskiskipið Selma Moes til veiða á islandsmiðum. — Er þetta stálskip, sem nýlega var lokið við að smíða. Þetta er í fyrsta skipti, sem Danir senda fiskibát svo langt tii veiða. Stafar það meðfram af því, að íslendingar hafa að undanförnu selt talsvert magn af fiski á dönskum markaði. Annars er stöðugur fiskiskort ur í Danmörku, sérstaklega vantar dönsk frystihús fisk til íðnaðar síns. Sigling Selmu Moes til fs- lands er gerð í tilraunaskyni. Ef förin heppnast vel má bú- ast við að fleiri ferðir verði farnar áður en haustveðrin skelia yfir. Tveú nýii stólbátor FYRIR skemmstu bættust ís- lenzka fiskiskipaflötanum tvö ný stálskip, sem smíðuð voru í skipa smíðastöð Van Bennekun í Slie- drecht í Hollandi. — Annað þess- ara skipa er m.b. Gjafar, sem Rafn Kristjánsson, skipstjóri í Vestmannaeyjum o. fl. eiga. Gjaf- ar er 122 brúttó smál., en hinn báturinn, Pálína SK-2, er 186 lestir. Eigendur hans eru útvegs- bændurnir Skarphéðinn Pálsson og Haraldur Árnason á Sauðár- króki. Bæði skipin eru knúin 500 hest- afla dieselvél og ganghraði þeirra í heimferðinni var 11 mílur. Gjaf- ar er nú farinn til síldveiða, en Pálína til togveiða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.