Morgunblaðið - 26.07.1960, Side 5
Þriðjudagur 26. júM 1960
Mortc.invr r 4 nro
5
••••■•• • • '•••••
ÞETTA er rússneski ‘höfuðs-
maðurinn Vasilij Poljakoff,
sem skaut niður bandarísku
RB-47 ílugvélina yfir Bar-
entshafi. Rússnesku blöðin
segja, að flugvélin hafi verið
á leið til borgarinnar Arkang-
elsk í Gandvíkum f.vrir botni
Hvítahafs, og að hún hafi ver-
ið hlaðin fullkomnum njósna-
útbúnaði af margvíslegasta
tagi. Blóðin leggja síðan út
af þessu á þá lund, að ekkert
sé að marka fyrri
Eisenhowers um að njósna-
flugi skyldi hætt. En lesendur
eru huggaðir með því, að
varnir Sovétríkjanna séu í
bezta lagi. Pravda segir: „Við
höfum allt, sem þarf til að
gereyða hvaða árásaraðila
sem er. Látum heimsveldis-
sinnana reykja þann sann-
leika úr pípum sínum“.
Þessi frétt og útlegging
hennar er í samræmi við þann
áróður, sem sovézk blöð reka
nú, að ofriðlegar horfi nú í
alþjóðamálum en lengi áður,
og að „heimsveldissinnarnir“
séu nú að undirbúa þriðju
heimsstyrjöldina. Ferðamenn
að austan telja líka, að stríðs-
hræðslu gæti nú í stærri stíl
meðal aimennings en áður. —
Aðrar fréttir, sem notaðar eru
til að ala á stríðsóttanum eru
þessar:
KONGÓ — Sovézk blöð
fræða almenning á því, að
Vesturveldin hafi gert sam-
særi um að leggja Kongó und
ir sig. „Belgísk, brezk, frönsk
og vesturþýzk stjórnarvöld
hafa ákveðið að ræna sjálf-
stæði landsins. Einokunar-
hringar á Vesturlöndum hafa
sent glæpamenn til Kongó,
sem stofna til óeirða í því
skyni að láta umheiminn
halda, að Kongóbúar geti ekki
stjórnað sér sjálfir“. Blöðin
halda því einnig fram, að
„samsænð um Kongó“ sé einn
liður í „djöfullegu“ áformi
um að koma öflugri nýlendu-
stjórn á fót í flestum löndum
Afríku. Takist „heimsveldis-
sinnunum það, á að hræða
þjóðir Asíu og Suður-Amer-
íku til hlýðni við Vestur-
veldin.
ÞÝZKALAND: Krúsjeff lýsti
því yfir í Austurríki, að her-
væðingu Vestur-Þjóðverja
yrði að stöðva tafarlaust. Að
öðrum kosti gætu Sovétríkin
ekki látið það mál afskipta-
laust. Sovézktu blöðin minn-
ast auðvitað ekkert á vígbún-
að í Austur-Þýzkalandi. Krús-
jeff sagði einnig, að ef vestur-
þýzka þingið kæmi aftur sam-
an í Berlín, myndu Sovétríkin
gera sérfriðarsamninga við
Austur-Þýzkaland. Það þýðir,
að kommúnistastjórnin í A-
Berlín myndi geta lokað sam-
gönguæðum til V-Berlínar,
hvenær sem henni þóknaðist.
KÚBA: Sovétblöðin lýsa því
með sterkum litum, að Banda-
ríkjamenn reyni allt, sem þeir
geti, til þess að hneppa Kúbu i
nýlendufjötra, en hins vegar
geri sovétaðstoð kúbönsku
þjóðinni kleift að halda frelsi
sínu. Krúsjeff hefur sagt opin-
berlega, að ef Castro vilji
losna við bandarískui herbæki-
stöðvarnar á eynni, megi hann
treysta á stuðning Sovétr:>j-
anna í hugsanlegri styrjöld.
Að lokum segja sovézku
blöðin, að árásarfyrirætlanir
Vesturveldanna komi glöggt i
ljós í njósnum, sem danskar,
enskar og bandarískar flugvél-
ar stundi yfir sovézkum tog-
urum og öðrum skipum. „Jafn
vel hinir friðsælu fiskimenn
sósíalistisku landanna fá ekki
að veiða í friði fyrir ágengni
njósnaflugvéla frá kapítalist-
isku löndunum“.
Einu sinni kom skólaumsjón-
armaðurinn í heimsókn í barna-
skólann, sem Gunni litli var í,
og spurði kennarann, sem var
ung og lagieg stúlka:
„Kennið þér börnunum að
beita athygiinni?“
„Já“.
„Jæja, þá ætla ég að reyna
bekkinn. Sjáið þið til börnin
mín, lokið augunum og sitjið
kyrr.“
Umsjónarmaðurinn gerði smá
hávaða með vörunum og spurði
því næst:
„Jæja, börn, hvað gerði ég?“
Það stóð ekki á svarinu hjá
Gunna: „Þér kysstuð kennslu-
konuna.“
★
Hún: — Ungu hjónin, sem búa
hérna í næstu íbúð eru svo
akemmtileg. Hann kyssir konuna
sína í hvert sinn, sem hann sér
hana. Því getur þ úekki gert
þetta líka?
Eiginmaðurinn: — Því miður
þekki ég hana ekkert ennþá!
★
Biðillinn: , Ég vil fá dóttur yð-
ar fyrir konu.“
Verzlunarmaðurinn: „Jæja,
þér getið skilið eftir nafn yðar
og heimilisfang og ef enginn
betri býðst, getum við talað um
það seinna.“
★
„Konan mín er gáfuð, hún
veit allt“.
„Konan mín er enn gáfaðri,
hún veit allt miklu betur“.
★
Hann: „Þér eruð fyrta skyn-
sama manneskjan, sem ég hef
hitt í dag.
Hún: „Nú, þá hafið þér orðið
heppnari en ég ‘.
'ÁHEIT 09 CJAFIR
Sólheimadrengurinn: Afh. Mbl.: —
N.N. 520,00 kr.
Áheit og gjafir til Langholtskirkju: —
Anna og Olöf kr. 200. Halldóra Ðjarna
dóttir ritstjóri 100. Frá konu 50. Gunn
ar 500. Ingvar 5. Mæðgur Efstasundi
98 kr. 150. Aheit 125. Guðrún Ol. 50.
Skemmtifél. Elding 100. Sigurbjörg Sig.
200. G.H. 200. Guðrún Gísladóttir Lhv.
155 kr. 700. Frá Sigrúnu, Steinunni,
Guðlaugu, Guðgeiri Laugarnesk. 2 kr.
500. Frá Möggu 50. Frá Bjarna Loftss.
100. Frá Birni Halld. og fjöískjldu kr.
500. Frá Rósu Sætran 110. Skúlína og
Einar Guðbj. 1000. Frá G.B. 4600. Frá
Andrési Þorsteinssyni til minningar
um Einöru Pétursd. kr. 5000. — Með
beztu þökkum.
Árelíus Nielsson.
H.f. Eimskipafélag íslands. —Detti-
foss er í Grimsby. Fjallfoss fór frá
Rvík í gær tii Akraness, Vestmanna-
eyja, Akure^fir og Húsavíkur. Goða-
foss og Gullftiss eru á leið ^ J^Yjkur.
Lagarfoss fer á morgun til Rvikur
Reykjafoss er í Abo. Selfoss íór í gær
til Siglufjarðar, Isafjarðar, Flateyrar,
Vestmannaeyja, Faxaflóahafna og R-
víkur. Tröllfoss er á leið til Rostock.
Tungufoss er á Aku^eyri.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er 1
í Bergen. Esja kemur í dag að vestan.
Herðubreið fer í dag austur um lantí í
hringferð. Skjaldbreið er á ieið til
Rvíkur að vestan. Herjólfur fer frá
Vestmannaeyjum kl. 22 í kvöld til
Rvíkur.
Jöklar hf.: Langjökull er í Riga.
Vatnajökull er á leið til Grimsby.
Hafskip hf.: — Laxá losar sement á
Norðurlandshöfnum.
Eimskipafélag Reykjavíkur hf.: —
Katla er í Noregi. Askja er á leiö til
Frakklands.
Skipadeild SÍS.: — HvassafeR er í;.
Kolding. Arnarfell er í Swansea. Jök-
ulfell er á Breiðafjarðarhöfnum. Dis-
arfell er í Kristjansand. Litlafeil Josar
á Austurlandshöfnum. Helgafe.il er á
Akureyri. Hamrafell er á leið til Bat-
um.
Loftleiðir hf.: — Edda er væntanleg
kl. 19 frá Hamborg, Khöfn og Gauta-
borg. Fer til New York kl. 20:30.
Flugfélag íslands hf.: — Gullfaxi fer
til Glasgow og Khafnar kl. 8 í dag.
Kemur til Rvíkur aftur kl. 22:30 í
kvöld. Fer til Glasgow og Khafnar kl.
8 1 fyrramálið. Hrímfaxi fer til Osló-**
ar, Khafnar og Hamborgar kl. 8,30 í
fyrramálið.
Innanlandsflug: I dag til Akureyrar,
Egilsstaða, Flateyrar, Isafjarðar, Sauð
árkróks, Vestmannaeyja og Þingeyrar.
A morgun til Akureyrar, Egilsstaða,
Hellu, Hornafjarðar, Húsavíkur, Isa-
fjarðar, Siglufjarðar, Vestmannaeyja.
q* .ri» •
Sornm
Listasafn Einars Jónssonar, Hnit-
björgum, er opið daglega frá kl. 1.30
til 3.30.
Arbæjarsafn: Opið daglega nema
mánudaga kl. 2—6 e.h.
Reglusamur ungur maður
óskar eftir góðri stofu með
innbyggðum skápum. Æski
legt væri ef viðkomandi
gæti leigt bílskúr með.
Upplýsingar í síma 18624.
Góður bíll
6 manna 4 dyra óskast.
Ekki eldra módel en ’52.
Uppl. i sima 32072 eftir kl.
7 næstu kvöld.
Austin 8 ’46
Ný skoðaður til sölu O’g
sýnis í dag og næstu daga
í Camp Knox A 4.
Peningalán
Vantar 100 þús. kr. >án
gegn tryggingu í öruggu
fyrirtæki. Tilb. merkt „Ör
ugt 511“ sendist afgr. Mbl.
fyrir nk. fimmtudagskvöld.
Til leigu
3ja herb. kjallaríbúð. Sér
hitaveita. Einhver fyrir-
framgreiðsla. Uppl. Lauga
teig 39.
Mótorhjól
Rixe 2!ú ha. ’54 til sölu —
Upplýsingar í sima 35196
eftir kl 17.
Vélritun
Vélritunarstúlku vantar í opinbera skrifstofu í
september n.k. — Laun samkvæmt launalögum.
Tilboð með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist blaðinu fyrir 10. ágúst n.k. merkt:
„Vélritun — 0515“.
Mjög glæsilegt sjónvarpssett
til sölu og sýnis hjá Raftækjaverzlun Vilbergs og
Þorsteins Laugavegi 72. Settið inniheldur 23 tommu
sjónvarp (stærsta gerð). Plötusþilara (Stero) og
útvarp.
Iðnaðarhúsnæði
Ca. 100 fermetra iðnaðar eða skrifstofuhúsnæði til
leigu á I. hæð á bezta stað í bænum, sér hitaveita og
rafmagn. Tilboð merkt: „Nýtt — 6512", sendist fyrir
28. júlí.
Lokað
vegna sumarleyfa dagana 25. júlí — 2. ágúst. *
Smith & IMorland Hf.
Verkfræðingar — Innflytjendur
Pósthólf 519 — símar 1-1320/ 21.
Til sölu
glæsilegt spánskt baðherbergissett hvítt postulín:
Baðker niðurbyggt hlið og gafl, HaiuUaug á fætj og
W.C. með sambyggðum kassa. Uppl. í síma 50573
milli kl. 5 og 7 síðd.
Teak útihurðir
fyrirliggj andi
Hjálmar Þorsteinsson & Co. H.f.
*Klapparstíg 28 — Sími 11956.
Skrifstofur vorar
og afgreiðsla
að Laugavegi 114 verða lokaðar niiðvikudaginn
27. þ. m., vegna jarðarfarar formanns trygginga-
ráðs, Helga Jónassonar, fyrrverandi héraðs-
læknis.
Tryggingastofnun Ríkisins