Morgunblaðið - 16.09.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.09.1960, Blaðsíða 1
24 síður Skipstjórinn neitar ákærum Hefði heldur láfið togarann sökkva en eiga á hættu að verða dæmdur f réttarsalnum á SeySis- firSi í gær, er mál Percy A. Betlford skipstjóra á Wyre Mariner var tekiS fyrir. Bæj- arfógetinn Erlendur Björns- son situr fyrir miSju og meS- dómendur Sveinlaugur Helga son og GuSIaugur Jónsson. Fremst á myndinni til vinstri er Gisli ísleifsson verjandi skipstjóra, á tali viS hann. Fremst til hægri er Geir Zoega, fulltrúi eigenda og viS hliS hans dómtúlkur Stefán Már Ingólfsson. — Sjá fleiri myndir á bls. 24. (Ljósm.: GuSm. Gíslason). Lumumba leítar verndar Sameinuðu þjóðanna Leo'poldville, Elisábethville, 15. sept. —■ (Reuter-NTB) NÚ er svo komið í Kongó, að Lumumba hefur leitað vernd- ar í bækistöð Sameinuðu þjóðanna í Leopoldville og dvelst nú þar undir sterkri vernd hermanna frá Ghana. Liðsforingi í liði Ghana sagði, að Lumumba hefði birzt þar snemma í dag, öllum til undrun- ar, og beðizt skjóls. Hefði hann virzt ákaflega þreyttur. Liðsfor- inginn sagði, að Lumumba væri frjálst að fara, þegar hann ósk- aði þess. 48 klukkustunda frestur Svo sem kunnugt er lýsti Mo- butu hershöfðingi, sem Kasa- Samþykkti Framsókn „hernám” Islandsy l'MSIR af framámönnum Framsóknarflokksins víðs vegar um land hafa nú gerzt aðilar að „Samtökum hernámsand- stæðinga". Af því tilefni er ástæða til þess að varpa fram þeirri fyrirspurn, hvort það sé álit þessara Framsóknar- manna, að Framsóknarflokkurinn hafi samþykkt „her- nám“ íslands er hann hafði forystu nm það með öðrum iýðræðisflokkum að tslendingar gengju í Atlantshafs- bandalagið og að hingað kæmi varnarlið á vegum þess? TAKA HÖNDUM SAMAN VIÐ KOMMÚNISTA í raun og veru hafa þeir Framsóknarmenn, sem tekið hafa höndum saman við kommúnista innan „Samtaka her- námsandstæðinga“ lýst því yfir að flokkur þeirra hafi beitt sér fyrir „hernámi" islands. Öll er þessi framkoma Framsóknarmanna svo ábyrgðar- laus og andstöðukennd að undrum sætir, enda er nú svo komið að fjöldi lýðræðissinna innan Framsóknarflokksins fordæmir atferli leiðtoga sinna. Spurningin, sem Fram- sóknarleiðtogarnir standa nú frammi fyrir er einfaldlega þessi: í SVEIT MEÐ RÚSSUM OG LEPPRÍKJUM ÞEIRRA Ætla þeir að kasta flokki sínum algerlega í faðm Moskvukommúnista og taka upp stefnu þeirra í utan- ríkis- og öryggismálum tslendinga, eða hyggjast þeir fylffja hinni íslenzku utanríkisstefnu, sem þeir sjálfir hafa átt fullan þátt í að móta? Er það áform leiðtoga Framsóknarflokksins að hverfa frá samstarfi við vestrænar lýðræðisþjóðir og beita sér fyrir því að island skipi sér í sveit með Rússum og lepp- rikjum þeirra? Þessum spurningum verða Framsóknarleiðtogarnir að svara. Þeir geta ekki til lengdar leikið þann hráskinnaleik, sem þeir hafa leikið undanfarið í utanríkis- og öryggis- málum íslenzku þjóðarinnar. vubu afhenti yfirstjórn Kongó- hersins, því yfir í gærkvöldi, að hann hefði rekið frá völdum alla stjórnendur landsins og sagt þing mönnum að hætta störfum. — Síðustu fregnir herma, að Lumumba hafi verið fluttur til heimilis sína og Mobutu hyggist halda honum þar í stofufangelsi. Á leiðinni þangað gerðu um 200 æstir Kongóhermenn að- súg að Lumumba, en hermenn Mobutu vörðu hann. Þó tókst þeim að rífa skyrtu hans og valda honum einhverjum meiðslum. Skyldi nú herinn annast stjórn landsins, meðan stjórnmálamenn irnir væru að átta sig. — Kvað Mobutu jafnframt ráð stúdenta og tæknifræðinga annast stjórn með hernum. Mobutu sagði á fundi með fréttamönnum í morgun, að tæknifræðingar þeir rússneskir, Framh. á bls. 2. Seyöisfiröi, llf. sept. RÉTTARHÖLD hófust hér í dag í máli skipstjórans á brezka togaranum Wyre Mar- iner frá Fleetwood. Voru þá komnir í réttarsalinn í bæj- arfógetaskrifstofunni, all- margir menn frá Reykjavík, en athyglin beindist eðlilega mest að hinum brezka tog- araskipstjóra, Percy Bedford. Er hann maður fimmtugur að aldri, og kom hann vel fyrir í réttinum. Við yfirheyrsluna, er skipstjór- inn kom fyrir dóminn, skýrði hann frá því, að hann hefði ekki fengið aðvörun, hvorki frá flug- báti landhelgisgæzlunnar eða skipum hennar. Ef sig hefði dreymt um það, að á Seyðisfirði myndi liggja ákæra á hendur honum, er hann kæmi þangað með hinn sökkvandi togara, hefði hann frekar látið hann fara á hafsbotn. Hann taldi sig ekki hafa verið innan við fisk- veiðitakmörkin, en í kæru land- helgisgæzlunnar er skýrt frá því að Wyre Mariner hefði 7. júlí sl. verið 2—4 sjómílur innan við fiskveiðitakmörkin. Áhöfn Ránar var við réttar- höldin. Flaug hún frá Reykjavík til Egilsstaða. Með í förinni voru Gísli Isleifsson, sem er verjandi Bedford skipstjóra, Brian Holt ræðismaður og Geir Zoega yngri, sem fulltrúi eigenda skipsins. — Meðdómendur með bæjarfóget- anum, Erlendi Björnssyni, voru þeir Sveinlaugur Helgason og Guðlaugur Jónsson, en dómtúlk- ur Stefán Már Ingólfsson, kenn- ari við Verzlunarskólann. Nú í sumar hefur hann verið tollvörð- ur hér á Seyðisfirði. Kæran. 1 Kæran á hendur skipstjóran- um var lesin fyrii hann. Hún er undirrituð af Guðmundi Kærne sted. Þar skýrir hann frá þvi, er Rán kom að logaranum aust- ur við Hvalbak hinn 7. júlí. — Segir hann að flugbáturinn hafi verið samfleytt 3% tíma yfir togaranum og gert 8 sinaum staðarákvarðanir, sem sýndu tog- arann vera í 8—10 sjóm. fjarlægð frá Hvalbak, eða með öðrum orðum, 2—4 míiur fyrir innan fiskveiðitakmörkin. Flugbáts- menn skutu ljósmerkjum og morsuðu stöðvunarskipun til tog arans, en þeim var ekki sinnt. 27 ár á íslandsmiðum. Nú kom Percy Bedford skip- stjóri fyrir dóminn. Fr hann gamalreyndur togaraskipstjóii Frh. á bls. 23 Beita sér gegn landgöngu Kadars NEW YORK. 15. sept. (NTB> Einn af forystumönnum ung- verskra flóttamanna, sem bú- settir eru í Bandaríkjunum, Belu Kirely, hyggst leita til dómstólanna til að koma í veg fyrir að Janos Kadar, for- maður ungversku nefndarinn- ar á þingi Sameinuðu þjóð- anna, fái að stíga í land í New York. Ungur bandarískur lög- fræðingur hefir tekið málið að sér og mun byggja það á þeirri forsendu, að Kadar sé af Sameinuðu þjóðunum og öllu heiðvirðu fólki dæmdur sem afbrotamaður og hafi sem slíkur ekki rétt til þess að stíga á bandaríska grund. Laxness tapar yfir 230 þús. kr. á fjármálabraski dansks lögfrœðings Einkaskeyti frá fréttaritara Morgunblaösins í Khöfn, Páli Jónssyni, 16. sept. Landsréttarmálaflutnings- maðurinn Per Finn Jacobsen hefur játað fyrir rétti í Kaup- mannahöfn, að hafa með ó- heimilli ráðstöfun fjár valdið skjólstæðingum sínum tjóni, sem nemur 1.1 millj. d. kr. — Meðal skjólstæðinganna er Halldór Kiljan Laxness og nemur tap hans vegna að- gerða Jacobsens rúmlega 42 þús. d. kr. Jacobsen hafði tekið þessa upphæð af reikningi Halldórs Laxness í Verzlunarbanka Kaup mannahafnar. Um þetta segir Jacobsen: — Ég var umboðs- maður fyrir öllum tekjum nóbels verðlaunaskáldsins erlendis. — Hluti þess fjár, sem til Danmerk- ur kom, var lagður inn á reikn- ing Laxness í Verzlunarbankan- um, þannig að þar var alltaf nægilegt fé til reiðu á hinum tíðu ferðum skáldsins til Kaup- mannahafnar. Á tímabilinu 24. marz til 29. des. 1959 tók Jacobsen þrjár upp- hæðir af þessum reikningi, alls 42.261 d. kr., þar sem honum leizt skynsamlegra að kaupa verðbréf fyrir þá upphæð, þar sem af því fengjust hærri rentur. Jacobsen greiddi féð til Dana Enterprise, sem átti að afhenda hönum verð- bréf — sem þeir því miður gerðu ekki, segir Jacobsen, og bætir við — það var mín sök. ★ Morgunblaðið freistaði þess í gær, að ná tali af Halldóri Kiljan Laxness, vegna þessara tíðinda, en rithöfundurinn er uú staddur í Danmörku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.