Morgunblaðið - 16.09.1960, Side 8

Morgunblaðið - 16.09.1960, Side 8
8 MORCVHnTAÐIÐ Föstudagur 16. sept. 1960 ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐLSMANNA RITSTJÖRJ: BJARNI BEINTEINSSON Stefán A. Jónsson Lán til lendis Stúdentar ræða kjör sín: námsmanna er- verði stóraukin Úthlutunarreglur menntamálaráðs gagnrýndar Á MIÐVIKUDAG í sl. viku var kallaður saman fundur stúdenta, sem nám stunda við erlenda há- skóla. Tilefni fundarins var að ræða kjör íslenzkra stúdenta er- Þing ungra Sjálfstæð- ismanna á Norður- landi haldiðá Akureyri Stefán Á. Jónsson kosinn formaður NfUNDA ÞING fjórffungssambands ungra Sjálfstæðismanna á Norðurlandi var haldið á Akureyri s.l. sunnudag. Var þar rætt um viðhorfin í þjóðmálum og félagsstarf ungra Sjálfstæðismanna. Gerð var almenn stjórnmálaályktun og samþykkt um landhelgis- málið, og ýmsum ábendingum varðandi félagsstarf ungra Sjálf- stæðismanna var beint til stjórnar Sambands ungra Sjálfstæðis- manna og stjórnar fjórðungssambandsins. I»á fór fram stjórnarkjör, og var Stefán Á. Jónsson kennari frá Kagaðarhóli í Austur-Húna- vatnssýslu kosinn forinaður fjórðungssambandsins í stað Leifs Tómassonar á Akureyii, tem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. loknu hófust umræður um félags Fjórðungsþingið Landsbankasalnum kl. 2 á sunnudag. í upphafi þing- fundar flutti Leifur Tómasson ávarp, en síðan var Árnl Guð- mundsson, Sauðárkróki valinn forseti þingsins og Eggert Ólafs- son, Sauðárkróki ritari þess. Leifur Tómasson flutti þessu næst skýrslu um starfsemi fjórð- ungsambandsins sl. starfsár, en aðalviðfangsefni þess. var þátt- taka í undirbúningi Alþingis- kosninganna í fyrra haust. Þá var skýrt frá starfi einstakra fé- laga innan fjórðungssambands- ins. Guðmundur K'.emenzson sagði frá starfsemi Jörundar, F. U. S. í Austur Húnavatns- sýslu, og Indriði Hjartarson frá starfi deildar þess félags á Skaga strönd, Árni Guðmundsson sagði fréttir frá F. U. S. Víkingi á Sauðárkróki, Magnús Síefánsson frá Í%J. S. Garðari í Ólafsfirði, Leifur Tómasson frá F. U. S, Verði á Akureyri og ioks sagði Þórhallur B. Snædal frá starf- semi Sjálfstæðismanna á Húsa- vík og í Suður-Þingeyjarsýslu. Þegar skýrslur þessar höfðu verið fluttar, var kosið í þrjár nefndir: stjórnmálanefrid, skipu- lagsnefnd og kjörnefnd. Síðan talaði Þór Vilhjálmsson, formað- s. U. S. um starfsemi samtaka ungra Sjálfstæðismanna. Að því var sett í Akureyri starfið og tóku til máls Þórhall- ur Snædal, Leifur Tómasson, Magnús Stefónsson fná Ólafsfirði, Kári Jónsson frá Sauðórkróki Ofg Steinþór Ólafsson frá Skaga- strönd. Að umræðum loknum tók Jónas G. Rafnar alþingismaður til máls og ræddi um félagsmál og viðhorfin á stjórnmálasvið- inu. Að ræðu hans lokinni var gert hlé á þingíundi og tóku þá nefndir til starfa. Fundur hófst aftur kl. 5. Tók þá fyrst til máls Kári Jónsson og hafði framsögu f. h. s.r.pulags- nefndar, en hún hafði samið til- lögur að samþykkt um ýmis at- riði, sem varða félagsstarf ungra Sjálfstæðismanna. Að framsögu- ræðunni lokinni tóku til má’s Þór Vilhjálmsson, Þórhallur Snædal og Leifur Tómasson, en síðan voru tillögurnar afgreidd- ar. Þá hafði Þórhallnr Snædal framsögu f. h. stjórnmálanefnd- ar. Um tillögu hennar tóku til máls Svavar Magnússon, Stein- þór Ólafsson, Leifur Tómasson og Ámi Guðmundsson. en síðan var tillagan afgreidd. Loks hafði Indriði Helgason framsögu f. h. uppstillingar- nefndar, og var að því loknu Frh. á bis. 9. Landhelgismálið Ályktun þings ungra Sjálfstæðismanna á Norðurlandi NÍUNDA fjórðungsþing ungra Sjálfstæðismanna á Norðurlandi telur, að það hafi verið rétt að fallast á viðræður við Breta um fiskveiðilögsöguna við ísland. Þingið leggur áherzlu á, að unnið sé að því að tryggja óskert yfirráð yfir núverandi lögsögu, og minnir jafnframt á, að stefna beri að því að fá yfirráð alls land- grunnsins. Þingið vítir tilraunir stjórnarandstöðunnar til að rjúfa einingu íslenzku þjóðarinuar um þetta mikilvæga mál. lendis, en gengislækkunin á sl. vori olli að sjálfsögðu mikilli hækkun á námskostnaði erlend- is. Að vísu kom ríkisstjórnin til móts við kröfur stúdenta þá og beitti sér fyrir því að styrkir og lán til námsmanna voru aukin stórlega. Stúdentum þótti ekki nóg aðgert og kölluðu því sam- an áðurnefndan fund til þess að ræða á hvern hátt þeim verði auðið að kljúfa námskostnaðinn. Á fundinum tóku fjölmargir stúdentar til máls og lögðu á- herzlu á nauðsyn þess, að náms- mönnum erlendis verði gefinn kostur á stórauknum lánum í framtíðinni. Ennfremur sætti menntamálaráð mikilli gagnrýni fyrir ýmislegt í störfum ráðsins. Einkum kom fram megn óá- nægja stúdenta með þá ákvörð- un meiri hluta menntamálaráðs að binda lán og styrki til náms- manna við eina upphæð án til- lits til námskostnaðar í hverju landi. Töldu fundarmenn ein- sýnt, að þar sem bezta menntun í einstökum greinum sé stundum aðeins hægt að fá í löndum þar sem námskostnaður er mikill, þá hljóti menntamálaráð að verða að taka tillit til þess, ef ætlazt er til, að íslenzkir stúdentar afli sér beztu menntunar, sem völ Fundarsamþykkt Fundurinn samþykkti í einu hljóði að senda menntamálaráð- herra eftirfarandi samþykkt um kjaramál íslenzkra stúdenta er- lendis almennt: „Við undirrituð, sem öll stund- um nám við háskóla erlendis, leyfum okkur að beina eftirfar- andi til hæstvirts menntamála- ráðherra og ríkisstjórnarinnar: íslendingum er það augljós nauðsyn að geta sótt menntun sína til annarra landa, þangað sem hagkvæmast er í hverri grein, enda ekki kostur á alhliða háskólanámi hér heima. — Hingað til hafa íslenzkir náms- menn notið þeirrar sérstöðu að geta kostað sig að miklu leyti sjálfir til námsins með 3—4 mán- aða sumarvinnu, þegar á móti komu styrkir og lán Mennta- málaráðs. Eftir efnahagsráðstafanir rík- isstjórnarinnar sl. vetur er þetta gerbreytt. Verð gjaldeyris til námsmanna hefur hækkað um 70—80%, þar við bætist stórauk- inn ferðakostnaður og vaxandi dýrtíð í landinu, en kaupgjald helzt óbreytt að kalla. Auk þessa munu fæstir námsmenn njóta góðs af þeim gagnráðstöfunum, sem vega skyldu upp á móti kjararýrnun almennings Má telja að námskostnaður erlendis hafi tvöfaldazt, og kemur sú hækk- un fyrst fram með fullum þunga nú í haust. Af þessum sökum virðist blasa við, að margir stúdentar hljóti að hverfa heim frá námi hálfn- uðu eða óloknu, en sárafáir sjái sér fært að hefja nám hér eftir. Ekkert hefur komið fram af op- inberri hálfu um aðgerðir til að sporna gegn þessari þróun. Það er eðlileg krafa náms- manna erlendis, að þeim verði gert kleift að stunda nám sitt hér eftir sem hingað til og stjórn- arvöld landsins geri þegar ráð- stafanir til að svo metgi verða. Virðist nauðsynlegt að opinbert lánsfé og styrkir verði aukn- ir svo að nemi tveimur þriðju hlutum námskostnaðar í hverju landi. Við undirrituð mælumst til þess að hæstv. menntamálaráð- herra og ríkisstjórn geri hið fysrta grein fyrir afstöðu sinni til þessa máls.“ Menntamálaráðherra heitir endurbótum Þrír fundarmanna voru kjörnir til að flytja menntamálaráðherra þessa samþykkt og ræða við hann um ýmislegt annað, sem við kemur málefnum stúdenta erlendis. í fyrrakvöld efndu stúdentar svo til annars fundar um þetta mál og skýrðu nefndarmenn þá frá viðræðum sínum við mennta- málaráðherra og framkvæmda- stjóra menntamálaráðs. Mennta- málaráðherra tók málaleitun stúdenta vel og kvaðst hafa full- an skilning á, að svo þyrfti að búa að kjörum þeirra, að stúd- entar þyrftu eigi að hverfa frá námi vegna fjárskorts. Lofaði menntamálaráðherra að beita sér fyrir stórauknum lánum stúdent- um til handa og kvaðst einnig mundu flytja frumvarp um sam- einingu lánasjóða stúdenta hér heima og þeirra, sem nema er- lendis. Hann kvað það sann- girniskröfu, að stúdentar fengju styrki og lán, sem næmu % af námskostnaðinum. Ennfremur kvaðst menntamálaráðherra mundu beita sér fyrir þvi, að veitt yrði sérstök yfirfærsla fyr- ir skólagjöldum þar sem þau væru mjög "há. Á fundinum kOm fram almenn ánægja með viðbrögð mennta- málaráðherra við óskum stúd- enta og lögðu menn áherzlu á, að þessum endurbótum yrði kom ið á hið allra fyrsta. Á báðum þessum fundum stúdenta var mikið rætt um, að nauðsyn væri að koma á heild- arsamtökum íslenzkra stúdenta, sem nám stunda erlendis, og var á síðari fundinum kjörin nefnd til þess að undirbúa það mál. í nefndinni eiga sæti: Andri ísaksson, Frakklandi, Agnar Ingólfsson, Englandi, Ketill Ing- ólfsson, Sviss, Jakob Jónsson, Svíþjóð og Ingi Axelson, Þýzka- landi. Felum Sjálfsfœðisflokkn- um að vinna áfram að því að tryggja framtíð œskunnar Stjórnmálaályktun jbings ungra Sjálf- stæðismanna á Norðurlandi NIUNDA fjórðungsþing ungra Sjálfstæðismanna á Norðurlandi, haldið á Akureyri 11. september 1960, fagnar því, að Sjálfstæðis- flokkurinn skyldi á s.l. vetri hafa forgöngu um algjöra stefnubreyt- ingu í efnahagsmálum þjóðarinnar. Slík stefnubreyting hafði lengi verið nauðsynleg og mátti ekki lengur dragast, ef forða átti vandræðum. Fjórðungsþingið fagnar því sérstaklega, að hin nýja stefna er byggð á meginsjónarmiðum Sjálfstæðismanna. Þingið leggur áherzlu á, að haldið verði áfram á sömu braut og farið var inn á á s.l. vetri. Til að svo megi verða, telur þingið, að m. a. þurfi að ijúka hið fyrsta endurskoðun laga um málefni sveitarfélaga og um skattamál. Jafnframt fagnar þingið þeim ár- angri, sem þegar hefur náðst á þessum sviðum, svo og hinni mikil- vægu breytingu á sviði tryggingarmála, sem ákveðin var á síð- asta Alþingi. Fjórðungsþingið skorar á allt ungt fólk í landinu að tryggja, að lagður verði öruggur grundvöllur að framtíð yngri kynslóð- arinnar, en það verður einungis gert með því að veita Sjálfstæðis- flokknum aðstöðu til að vinna áfram að uppbyggingu í landinu. Þingið bendir á eftirfarandi atriði, sem i því sambandi þarf að leggja áherzlu á: sem nú á sér stað varðandi efna- hagssamvinnu ríkjanna í Vestur- Evrópu, og bendir á þá miklu hættu, sem efnahagsleg einangr- un íslands frá þessum ríkjum myndi hafa í för með sér. 5) Fjórðungsþingið bendir á, að fullkomlega tímabært er að marka glögga stefnu í efnahags- málum dreifbýlisins. Virðist ein- sýnt, að aðalatriði þess máls sé, að arðbær atvinnufyrirtæki stuðli að uppbyggingu bæja, sem verði þá um leið markaðssvæði fyrir landbúnaðarhéruðin í nágrenn- inu. í þessu sambandi skorar þingið á Alþingi og ríkisstjórn að vinna að áframhaldandi rafvæð- ingu landsins og samræmingu verðs á rafmagni ti1 nevtenda um land allt. 1) Hefj-a þarf markvissa sókn, sem miði að aukningu framleiðsl- unnar byggðri á nýjum atvinnu- tækjum, skynsamlegri nýtingu vinnunnar og fjölbreyttari at- vinnuvegum, sem m. a. nýta er- lent fjármagn. 2) Þingið telur, að þessi þróun verði að byggjast á frjálsræði í atvinnulífinu og traustu efna- 'hagskerfi, þar sem trú ríkir á verðgildi krónunnar. 3) Þingið telur mikilvægt, að allur almenningur geti átt aðild að atvinnulífinu og kynnzt af- komu þess, t. d. með þátttöku í opnum hlutafélögum. 4) Þingið leggur áherzlu á nauðsyn þess, að vel sé af íslands hálfu fylgzt með þeirri þróun,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.