Morgunblaðið - 16.09.1960, Side 12

Morgunblaðið - 16.09.1960, Side 12
12 MORGUNBLAÐ1Ð Föstudagur 16. sept. 1960 JHropiiiMnMfr Otg.: H.f. Arvakur Reykjavtk. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórarí Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 3.00 eintakið. LIFSNAUÐSYN Á LITSGERÐ sú, um íslenzk efnahagsmál, sem hag- fræðingur Alþýðusambands Noregs hefur gert á vegum samstarfsnefndar íslenzkra launþegasamtaka er hin at- hyglisverðasta. Hinn norski hagfræðingur, Per Dragland, hefur starfað að hliðstæðum verkefnum fyrir norsku verkalýðsfélögin. Hann ræddi hér á landi við fjölda verka- lýðsleiðtoga og naut sér- stakrar aðstoðar Torfa Ás- geirssonar, hagfræðings, sem hefur verið Alþýðusambandi Islands til margvíslegrar að- stoðar á sviði efnahagsmála. Per Dragland hafði einnig ná- ið samband við marga aðra íslenzka hagfræðinga og efna- hagsmálasérfræðinga. Ekki er um betri leið að velja Niðurstöðurnar af rann- sóknum hagfræðings norska Alþýðusambandsins hafa í stuttu máli orðið þær, að hann telur lífsnauðsyn, að sú viðreisnartilraun, sem núver- andi ríkisstjórn hefur gert, takist. Hann telur ennfremur að ekki hafi verið um aðra leið að velja til úrlausnar þeim vandamálum, sem við blöstu. Loks er það skoðun hans, að samtök launþega geri meðlimum sínum bjarn- argreiða „ef þau taka ekki til- lit til þess, hvað slíkt við- reisnarvandamál felur í sér.“ Per Dragland lýsir því hik- laust yfir að hann telur að þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið, geti borið árangur ef þær fái að standa um hríð. Ekki hægt án k j araskerðingar Þegar hinn norski hagfræð- ingur ræðir um lausn efna- hagsvandamálanna í skýrslu sinni kemst hann m. a. að orði á þessa leið: „Ef lausnin brýzt fram gegn um hrun og kreppu verða afleiðingarnar miklu geigvænlegri fyrir launþega, heldur en ef viðreisnin fer fram eftir fyrirfram gerðri áætlun. Það er heldur ekki í samræmi við raunveruleik- ann, að ætla að vandann sé hægt að leysa án þess að skerða lífskjör launþega“. Fyllsta ástæða er til, að íslenzkir launþegar og raunar þjóðin öll kynni sér þessa álitsgerð, sem gerð hefur verið af hinum hlut- lausa hagfræðingi norsku verkalýðssamtakanna. ALÞÝÐU- SAMBANDS- KOSNINGAR i MORGUN hefjast kosn- ** ingar í yerkalýðsfélögun- xun til næsta þings Alþýðu- sambands íslands, sem haldið verður í nóvember í haust. 160 félög innan Alþýðusam- handsins kjósa um það bil 350 fulltrúa til þessa þings. Á kosningunum að verða lok- ið 9. október. Heildarsamtök verkalýðs- ins á Islandi standa nú á krossgötum. Kommúnistar hafa um skeið haft þar meiri hluta og misnotað þau á ýmsa lund í þágu pólitískra hags- muna sinna. Það er athyglis- verð staðreynd að meðan kommúnistar áttu sæti í V- stjórninni, létu þeir kyrrt liggja innan verkalýðssamtak anna um alla kjarabaráttu. I>eir létu sér þá einnig í léttu rúmi liggja, þótt V-stjórnin semdi um áframhaldandi dvöl hins ameríska varnarliðs á íslandi, og sviki þannig eitt af aðalstefnuskráratriðum sínum. Áttu engin úrræði Nú eru kommúnistar hins vegar komnir í stjórnarand- stöðu. Þá leggja þeir áherzlu á að einbeita kröftum verka- lýðshreyfingarinnar gegn þeim víðtæku viðreisnarráð- stöfunum, sem núverandi rík- isstjórn hefur gert. Sjálfir áttu þeir, eða samstarfsmenn þeirra í V-stjórninni engin úrræði til þess að stöðva verðbólguna eða tryggja laun þegum raunverulegar kjara- bætur. Til þess ber því brýnni nauðsyn nú en nokkru sinni fyrr, að allir lýðræðissinnar innan verkalýðshreyfingar- innar sameinist í baráttunni gegn kommúnistum og upp- lausnarstefnu þeirra. UTAN UR HEIMI Stroop hershöfðingi stjórnar útrýmingu Gyðingahverfisins i Varsjá 16. maí 1943. EIN KAMPF Sannleikurinn urn hakakrossinn rVÖ kvikmyndahús í Kaup- [ ur sigurvegaranna þegar Þjóð mannahöfn sýna um þessar mundir kvikmynd, sem ekki á sinn líka. Nafn myndarinn- ar er „Mein Kampf“ eða „Sannleikurinn um haka- krossinn.“ Það eru tveir Svíar, Erwin Leiser og Tore Sjöberg, sem framleiddu þessa mynd, en myndatöku alla önnuðust kvikmyndatökumenn Hitlers. Erwin Leiser er fæddur í Þýzkalandi, en varð að flýja land vegna andstöðu við naz- isma árið 1938, og hefur verið búsettur í Svíþjóð síðan. í kvikmyndinni er rakin saga nazismans í Þýzkalandi frá byrjun til loka. ★ í AUSTUR-BERLÍN Á árunum eftir stríð fékk Leiser þá hugmynd að safna saman gögnum til að segja þessa sögu á sem Ijósastan hátt. Afréð hann því að reyna að fá aðgang að þeim gögnum sem féllu í hená- gögnin reyndust vera í kvik- myndasafni ríkisins í Austur Berlín, sem gaf Leiers leyfi til að rannsaka þau þar á staðnum. Þarna fann hann hverja mynd- ma af annari, sem lýstu sögu r.azistaveldisins. Margar kvik- myndanna hafa áður komið fyrir almannasjónir, en sumar þeirra hafa verið vandlega faldar, m. a. vegna þess að þser voru rangt merktar: Sennilega hafa nazist- arnir á þennan hátt verið að reyna að koma í veg fyrir að hryðjuverkin, sem þar eru sýnd, kæmu fram í dagsljósið. m BEINAGRINDUR Aðallega er hér um að ræða myndir úr gyðingahverfi Varsjár borgar. Þarna var hrúgað saman hundruðum þúsunda gyðinga f þeim tilgangi að láta þá drepast úr sulti og sjúkdómum. Þarna var sýnt hvernig smábörn verða að þöglum beinagrindum með stór augu. Eina vörn þeirra er sljóleiki, sem íýsir sér m. a. i því er þau ganga framhjá lík- um ættingja og vina, sem hafa dáið úr sulti á gangastéttunum. ★ TIL AÐVÖRUNAR Kvikmynd þessi er gerð til að stuðla að því að óskö'pin verði ekki endurtekið. Leiser virðist líta svo á að það sé ekki aðeins Hitler sem á sökina, heldur sé enginn ósekur. Þess vegna verði komandi kynslóðir að vita hvað þarna skeði. Æskan verðj að sjá þetta, jafnvel þótt hún muni bera þess merki á eftir. Og þeir sem litðu þetta tímabil, en vilja helzt gleyma því, ættu að sjá hvað það er sem þeir vilja gleyma, jafnvel þótt þeir hágráti eða falli í yfir- lið við að sjá mannúðarleysið. Líkvagninn lilaöinn. Gyöingar þvingaðir tii að aka likum trúbræðra sinna í fjöldagrafir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.