Morgunblaðið - 16.09.1960, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 16.09.1960, Qupperneq 13
Föstudagur 16. sept. 1960 MORGVTShLAÐlÐ 13 A Fríslandi er mikið um dýrðir, þegar allt hey er komið heim í hús á haustin. I*á er kosin „hey- drottning", sem ekur um í heyvagni, en meyjar klæddar þjóðbúningum ganga í fylkingu á eftir. Hér er mynd af einni slíkri, og ekki sakar að geta þess, að ekilsstaðan er mjög eftirsótt meðal ungra sveina. 44 Hvorki herra yfir oss né þrœla undir oss Hollenzkur Jbingmaður frá Fríslandi i heimsókn styrjöld hófst. >að þýðir ekk- ert að blekkja sig um rauaveru legt ástand í alþjóðamálum. — Hlutleysi er kannske fagurt orð í eyrum sumra, en i rauainni hefur það falskan tón, og merk- ing þess hefur ekki sama gildi og fyrr. Þetta er jafnvel Nehru farinn að skilja. Samstarf þjóða. — Hvað um reynslu ykkar af markaðsbandalag.nu? Samstarf þjóða á öllum svið- um verður að aukast og þátttaka okkar t. d. í sexveldabandalag- inu hefur reynzt mjög affara- sæl. Það er ókleift fyrir lítið ríki eins og Holland að vera al- gerlega óháð ákvörðunum staerri ríkja í efnahagsmálum, og þess vegna er þátttaka okkar sjálf- sögð til þess að tryggja ahrif okkar betur en ella hefði orðið. Annars þykir okkur slæmt að hafa ekki Norðurlönd og Bret land í sama bandalagi, þar sem lönd þessu eru vinsæl meðal okkar og við eigum við þau þýð- ingarmikil viðshipti. Sjöveldin munu hafa óttazt, að hið „sup ranationala“ eðli sexveldabanda lagsins (það. að hagsmunir einn- ar þjóðar verða að víkja fyrir hagsmunum allra) gæfist ekki vel, en nú er einmitt sýnt, að það er það öðru fremur, sem hefur leitt til síaukinnar vel- megunar á öllum sviðum, og fyrir allar þjóðirnar. EINN fulltrúanna á fundum landbúnaðhrnefndar ráðgjafar- þings Evrópuráðsins, sem haldnir voru hér I Reykjavík fyrir nokkrum dögum, var Holler.d- ingurinn — eða Fríslendingurinn — dr. A. Vondeling. Hann varð landbúnaðar-, fiskimála- og mat vælaráðherra Ilollands árið 1957 og var það fram til ársins 1959, þegar J. E. de Quay myndaði samsteypustjórn sína án þáttíöku Verkamannaflokksins, en í þeim flokki er Vondeling. Dr. A. Vondeling átti við- tal við Morgunblaðið, meðan hann dvaldist hérna. ★ — Hvaðan eruð þér af Hol- landi?^ — Ég er fæddur árið 1916 í Vriesland eða Fríslandi, þar sem faðir minn var bóndi. í æsku vandist ég flestum venj úlegum landbúnaðarstörfum, eins og þau tíðkast í Hollandi, þar eð faðir minn rak-svokallað bland- að bú. Ungur fór ég svo suður til Wageningen á heimsfræg- an búnaðarháskóla, sem jafn framt er miðstöð landbúnaðar- rannsókna. Þar skrifaði ég dokt orsritgerð mína, sem fjallaði um bústjórn almennt með sérstakri hliðsjón af fjárhagsmálunum. Bústjórn. — Og svo haíið þér haldið út í pólitíkina? — Nei, nei, ekki varð það nú, fyrr en á styrjaldarárunum. Að námi loknu var ég ráðinn bú- stjóri að stóru samvinnubúi í Fríslandi, eða réttara sagt að samtökum um 4000 bænda, sem höfðu með sér allnána samvinnu um innkaup, tilhögun búreksturs og afurðasölu. Þótt Fríslending- ar séu einstaklingshyggjumenn eins og mér er sagt að íslend- ingar séu, þá skilja þeir bó, að samvinna er þeim fyrir beztu, einkum þar sem landið er flatt og jarðatakmörk engin frá nátt- úrunnar hendi, og baráttan við hafið tengir þá saman. Form búreksturs hlýtur jafnan að mót ast af svip landsins, og mér er ljóst, að svo víðtæk samvinna eins og ég gat um þarf ekki alltaf að vera æskileg, bótt frís lenzkar aðstæður geri hana nauð synlega að minu áliti. Nýtt kerfi. — Var þetta umfangsmikið starf? — Jú, einkum þótti mér um- svifamiikið að gllma við bók- haldið, sem var í rauninni aðal starfið. Vikulega sendu bænd- urnir til mín skýrslur um rekst urinn, sem ég varð að vinna úr. Ég hugsaði mikið um það, hvern ig hægt væri að gera þetta á auðveldari hátt, og fann að lok um upp handhægt kerfi til þess að vinna úr skýrslunum á hand- hægan hátt. Aðalkostur þess var þó, að nú var hægt að gera glöggan samanburð á búunum og gera athugun á því, hvað var rétt gert og hvað rangt í hverju einstöku tilviki. Býli af svipaðri bústofnsstærð, með álíka mikið landrými og líkan jarðveg mynda hópa í þsssu kerfi. Er þá bæði hægt að bera reksturinn saman innan hvers flokks, og eins hina einstöku hópa hvern við annan. Þannig sést, hvernig búrekstrinum verð ur heppilegast hagað. Nú er þetta kerfi notað, hvarvetna í Hollandi. Stríðsárin. — Nú, og svo komu styrjald- arárin? — Já, það voru ár hörmunga og hermdarverka. Þjóðverjar höfðu víst gert sér vonir um, að við yrðum þægilegri í taumi en aðrar þjóðir vegna skyld- leikans. Þegar það brást, gripu þeir til harkalegra ráðstafar.a, sem ekki er tóm til að rifja upp nú enda bezt á okkar tímum að leggja áherzlu á þau atriði, sem tengja þjóðir Evrópu sam- an, en ekki þau, sem hafa sundr að okkur. — Á hernámsárunum var ég ritstjóri ólöglegs blaðs Fréttirnar höfðum við að mestu frá BBC, en starf okkar var einnig fólgið í því að afla upp- lýsinga handa mótspyrnuhreyf- ingunni. Eftir stríðið fór ég að taka þátt í störfum Verkamanna flokksins, hef setið á þingi síð- an og verið ráðherra um hríð. Einnig hef ég verið og er stjórn arformaður í útgáfustjórn tveggja blaða. Hollenzk stjórnmál og hlutleysi. — Er Verkamannaflokkurinn sósíaldemókratísKur flokkur? — Það verður hann sennilega að teljast, en annars teljum við okkur óbundna öllum kredd-um. Gamli sósíaldemókrataflokkur- inn leið undir lok eftir stríðið. Hann vantaði hugsjónir og var fjötraður gömlum vígorðum. — Hinn nýi Verkamannaflokkur hefur aðlagað sig nýjum tím- um, látið allan marxisma og svo leiðis lönd og leið, en lagt höf- uðáherzlu á síbætt kjör alþýð- unnar. Fylgi flokksins sýnir, að stefna okkar hefur reynzt rétt. — Eiga kommúnistar nokkru fylgi að fagna? — f síðustu kosningum fengu þeir 3 þingmenn af 150, en höfðu áður 7. Það er margt, sem veld- ur fylgisleysi þeirra. en ein á- stæðan rfr ekki hvað sízt áróð- ur þeirra gegn Atlantshafsbanda laginu. Hollendingar styðja það svo að segja afdráttarlaus, enda erum við raunsæismenn og mun- um of vel, hvernig síðasta heims Dr. A. Vondeling. Frísland og ísland. — Svo við víkjum nú að öðru. Teljið þér yður Fríslending fyrst og fremst en Hollending þar næst? —Ég er stoltur af að vera Fríslendingur, en við, sem telj- umst afkomendur hinna fornu Frísa í Hollandi, erum lú orðið Hollendingar fyrst og fremst. — Frísar eiga sér gamla sögu í Hollandi? — Já. og þeir eru einn fárra germanskra þjóðflokka, sem hafa búið á sömu slóðum frá því er sögur hefjast. Tacitus getur fyrstur um Frísa í Annálunum. Öll saga Frísa einkennist af frels isást þeirra, og fram eftir öllum öldu-m héldu þeir furðumiklu sjálfstæði þrátt fyrir volduga ná- granna. Sjálfui Karlamagnús veitti þeim mikilsverð forrétt- indi, sem byggðust á sérstökum lagabálki, Lex Frisionum, en hann var að mestu samsafr. hinna gömlu lagaboða kynþáttarins. Á miðöldum og síðar höfða Frísar alltaf sérstöðu bæði gagnvart Þýzkalandi og Hobandi. Þar var frjálst bændaþjóðféiag án aðals- stéttar, og hinir sjalftsæðu bænd ur héldu fast við landsréttindi sín. — Þess má og geta til gam- ans, að ýmsir telja hina lýðræð- islegu löggjöf Frísa hafa haft áhrif á skrif hollenzkra stjórn- skipunarfræðinga á miðöldum, sem aftur höfðu áhrif á þróun lýðræðisins á Englandi. — Þá má geta þess, að Frísai áttu mikil viðskipti í norðurveg, og nöfn eins og Slésvík, Ribe i Danmörku og Birka í Svíþjóð eru af frísneskum uppruna. Þeir voru mikil siglingaþjóð og fóru víða.Þeir eru einna helztir taldir hafa veitt víkingum frá Norð- urlöndum viðnám, enda aukast ránsferðir víkinga í vesturveg, þegar hallar undir fæti hjá Frís- um. Samskipti fslendinga og Frís- lendinga á seiniii öldum voru nokkur, einkum meðan Frísler.d ingar voru umsvifamestir allra við hvalveiðar í norðurhöfum. — En er nokkuð sameigin- legt með þessum frændþjóðum? — Áreiðanlega margt. En það, sem mér kemur fyrst í hug, er lýðræðis- og réttlætisást þeirra ásamt virðingu fyrii löguaura. Þetta þrennt og óbilandi frels- isþrá beggja þjóðanna er ger- manskur arfur. íslendingar og Frísar voru góðir lagasmiðir til forna, og þeir hafa báðir virt jafnréttiskenninguna, sem þann- ig er sett fram í hinni fornti lögbók Frí-sa: „Hvorki vilium vér herra yfir oss hafa né þræla undir oss“. — M. Þ. Nýskipan innflutnings skapar heilbrigða verzlunarhætti Aðalfundur rafvirkjameistara 3. og 4. september sl. var hald- | gildingu og landlöggildingu, og inn á Akureyri aðalfundur Lands sambands íslenzkra rafvirkja- meistara og sóttu hann um 40 rafvirkjameistarar úr öllum landsfjórðungum. Formaður sambandsins, Gísli Jóhann Sigurðsson, setti fundinn og gat þess, að nær allir starf- andi rafvirkjameistarar á land- inu væru nú félagsmenn sam- bandsins og væri félagatalan um 120. — Fundarstjórar voru Vikt- or Kristjánsson og Finnur B. Kristjánsson, en fundarritari Sig uroddur Magnússon. ERINDI Á fundinum voru rædd ýmis mál er stéttina varðar, m. a. um löggildingu, menntun, efniskaup, álagningu, þjónustu og fleira. Á fundinn kóm Guðmundur Mar- teinsson, eftirlitsstjóri Rafmagns- eftirlits ríkisins, og ræddi hann m. a. um löggildingar, staðarlög- hvaða skilyrði skyldu sett fyrir þeim. Tveir erlendir gestir fluttu er- indi á fundinum. Voru það Johan Johansen, framkvstjóri norska rafvirkjameistarasambandsins og Thorkild Bang, forstjóri N.E.S.- verksmiðjanna dönsku, en þær verksmiðjur framleiða ýmiss kon ar rafbúnað. Erindi Johansens fjallaði um þróun félagssamtaka norskra raf virkjameistara og aðstöðu þeirra nú, en erindi Bangs um fram- leiðslu, sölu og dreifingu rafbún- aðar í Danmörku. Voru erindi þessi fróðleg og kom þar fram, að aðstaða raf- virkjameistara á öðrum Norður- löndum er betri en íslenzkra stéttarbræðra þeirra. Framh. á bls. 23. Fulltrúar á þingi LlR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.