Morgunblaðið - 16.09.1960, Page 24
SUS- síða
Sjá bls. 8.
wgiutMðftifr
211. tbl. — Föstudagur 16. september 1960
Togararnir tveir, Wyre Mariner, og utar, Lord Lloyd. Uti á höfninni liggur Þór.
(Ljósmynd: Guðmundur Gíslason)
Bedford skipstjóri 27 ár á
íslandsmiðum
íslendingar
unnu í
írlandi 4:2
(Sjá iþróttir)
í eldhúsinu
á Gullfossi
UNGI pilturinn, Jón Hildiberg,
Sólbergi á Seltjarnarnesi, sem
lýst var eftir í fyrrakvöld, en
hann halði ekkert látið vita
heima hjá sér um ferðir sínar,
er kominn fram heill á húfi. Er
hann skipverji á Gullfossi, starf-
ar þar í eldhúsinu og við beztu
heilsu. Pilturinn hefur bersýni-
lega farið á skipið án þess að
láta einn eða neinn um það vita.
Hann hafði farið að heiman frá
sér 4. þ.m.
Síld við Eldey
AKRANESI, 14. sept. — Tveir
bátar héðan létu reka í nótt suð-
ur og út af Eldey, Böðvar og
Svanur. Annar þeirra hafði feng-
ið 40 tunnur síldar, en hinn 30.
Þriðji báturinn mun senn byrja
veiðar. — Oddur.
Útgerðarmaður í
Hafnarfirði kærður
fyrir veðsvik
SAMKVÆMT upplýsingum, sem Morgunblaðið fékk í gær
hefur Landsbanki Islands kært Jón Kr. Gunnarsson, út-
gerðarmann í Hafnarfirði, fyrir bæjarfógetanum á staðnum
fyrir veðsvik. Voru þau fólgin í því, að hann falsaði skýrsl-
ur til bankans um fiskbirgðir fiskverkunarstöðvar sinnar.
Hafði hann fengið lánaðar mjög verulegar upphæðir fram
yfir það, sem hann átti rétt á. Mun útgerðarmaðurinn hafa
gert þetia um nokkurt skeið. Jafnframt var lagt hald á allt
bókhald Jóns Kr. Gunnarssonar. Hann hefur undanfarið
rekið fiskverkunarstöð í Hafnarfirði og gert út 3 vélbáta.
Kosning fulltrúa
á þing A.S.Í.
hefst á morgun
A MORGUN hefst kosning fulltrúa á 27. þing Alþýðusambands Is-
lands. Kosning stendur yfir frá 17. september til 9. október og á
þá að vera lokíð í öllum félögum. — Kosnir verða um 350 fulltrúar
frá um 160 verkalýðsfélögum.
Kommiúnistar hafa undirbúið
þessar kosningar í félögum af
meiri hörku en nokkru sinni fyrr.
Erindrekar þeirra hafa ferðazt
um landið þvert og endilangt til
að umdirbúa kosningarnar og í
Þjóðviljanum í gær sést það
greinilega hversu mikið pólitískt
ofurkapp kommúnistar legigja á
þessar kosnimgar.
Innan um venjulegar Þjóðvilja
skammir er svo reynt að drepa á
kjaramálin, en á þann hátt að
um greinilegt yfirvarp er að
ræða, enda hafa kommúnistar
aldrei látið sig kjaramál verka-
lýðsins neinu skipta nema það
hafi hentað þeim frá pólitísku
sjónarmiði.
Er þar skemmst að minnast, að
í tíð hinnar svonefndu vinstri
stjórnar töldu kommúnistar það
henta vel hagsmunum launþega
að skattar hækkuðu stórkostlegar
en nokkru sinni fyrr eða síðar
hefur þekkzt hér á landi.
Þeir töldu það einnig sjálfsagt
að binda kaup verkalýðsins og
skerða vÍ6Ítöluna.
En þeir þekkj'a illa íslenzka
launþega ef þeir halda að þessi
verk þeirra séu gleymd.
Launþegar vita, að öll „verka-
lýðsstarfsemi" kommúnista þjón-
ar aðeins einum tilgamgi og hann
er sá að auka á upplausn og vand-
ræði í þjóðfélaginu og styrkja
kommúnistaflokkinn til pólitískra
valda.
Gegn þessu rnunu laumþegar
sameinast í höndfaramdi Aliþýðu-
sambandskosningum og styðja
kosningu andstæðinga kommún-
ista og hindra á þann hátt að
kommúnistar geti haldið áfram
að nota heildarsamtök verkalýðs
ins í þágu flokkssamtaka sinna.
Áhugi á kolan-
minnkandi
Isað í hillur og kassa
dragnótaveibibAtarn
IR frá Reykjavík leggja sig
nú meira eftir bolfiski en
kola. Margir byrjuðu með sér
stakar nætur, sem ætlaðar
eru til kolaveiða, en nú hafa
flestir tekið stærri og dýpri
nætur og fá þar af leiðandi
mestmegnis bolfisk, sagði
Einar á Aðalbjörgu, er tíð-
indamaður Mbl. hitti hann í
gær, þegar Aðalbjörg var að
halda í róður.
Það borgar siig betur að veiða
bolfiskinn, sagði Einar. Við erurn
fljótari að fylla í tonnið. Kola-
verðið er ekki jafnhátt miðað við
bolfiskverðið og það var áður.
1—14 tonn í róðri
Reykjavíkurbátarnir, sem drag
nótaveiðar stunda, eru yfir 20,
sagði Einar, og þeir halda sig á
örlitlum bletti um 5 rnílur norð-
vestur af Gróttu.
— Við togum hver yfir annan,
sagði Einar. Við erum allir í
þvögu. Þarna er botninn beztur,
17—18 faðma dýpi — og aflinn
yfirleitt góður. Hann hefur saro.t
verið misjafn að undanförnu. Við
erum með allt frá einu tonni upp
í 12—14 tonn yfir nóttina, bætti
híinn við.
Vantar kola
Af þessum ástæðum hefur
mjög dregið úr kolamagninu, sem
berst á land, og reynist nú m.a.
erfitt að fá nýjan kola til útflutn-
ings með flugvélúm. Haraldur
Gíslason hefur í hyggju að halda
þeim flutningum áfram og hefur
tryggt sér flugvélar til flutning-
anna, en nú skortir kolann.
Fiskifélag íslands gengst nú
fyrir athugunum á því hvernig
bezt sé að ísa dragnótafiskinn.
Fisburinn hefur verið ísaður í
kassa og stíur til reynzlu og hef-
ur einn af starfsmönnum Fiski-
félagsins farið í róðra mieð Aðal-
björgu í þessu skyni.
Norskir aluminíumkassar
Sigurður Haraldsson hjá Fiski
félaginu hefur umsjón með þess-
um athugunum og tjáði hann
Mbl. í gær, að notaðir hefðu ver-
ið norskir aluminium-kassar, sem
þannig eru útbúnir, að vatnið-
rennur út úr hornunum á þeim
og ekki niður í næsta kassa fyrir
neðan. Danir og Norðmenn nota
mikið þessa kassa, sem taka 45—
50 kg. „Danir og Norðmenn ísa
mest af sínum fiski á þennan
hátt, hvort sem hann fer ferskur
til neytendanna, eða í vinnslu-
stöðvar‘“, sagði Sigurður.
Hann sagði, að ekki léki vafi á
því, að kassafiskurinn væri mun
betri en hinn, sem ísaður væri
beint í lestina. Einnig hefði
reynslan sýnt, að fiskur, sem ís-
aður hefði verið í hillur í Aðal-
björgu, hefði verið betri en anner
eftir 12 stunda geymslu.
Kæmi aðeins fjórðungi í kassa
Einar á Aðalbjörgu var lí'ka á-
nægður með hillufiskinn, sagði
það vera bráðnauðsynlegt að ísa
allan fisk í hillur. Hins vegar var
hann ekki jafnhrifinn af kössun-
um. „Minn bátur er sá stærsti
sem gerður er út á þessar veiðar
héðan frá Reykjavík oig þess
vegna eru þessar tilraunir gerðar
á honum“, sagði Einar. Ég get
tekið 20 tonn af ísuðum fiski í
lest. En ef ég ætlaði að isa allt i
kassa kæmi ég aldrei meira
en 5 tonnum í bátinn. Það fer
svo mikið fyrir þessum kössum
— og svo er Mka mikil vinna
við að isa í þá, stafla þeim og
hvað eina. Nei, ég mæli með hill-
unum“, sagði Einar.
Fulltrúar
Islands á
þingi S.þ.
HINN 20. sept. n.k. hefst í
New York 15. allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna. Full-
trúar íslands á þinginu hafa
verið skipaðir: Thor Thors,
sendiherra, Kristjáin Alberts-
son .rithöfundur, Stefán Pét-
ursson, þjóðskjalavörður,
Sigurður Bjarnason, ritstjóri,
Hannes Kjartansson, aðal-
ræðismaður.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Verð landbúnaðarvara
Verðlagsgrundvöllur hækkar
ákveðið
um 7,55%
í GÆR var endanlega gengið frá
verðlagningu landbúnaðarafurða
á þessu hausti. Varð samkomu-
lag um verðlagninguna í sex-
mannanefndinni og auglýsti fram
leiðsluráð landbúnaðarins nýja
verðið í gærkvöldi. Samkvæmt
upplýsingum er Sveinn Tryggva
son, framkvæmdastjóri fram-
leiðsluráðsins veitti blaðinu hefur
verðlagsgrundvöllur landbúnað-
arvara hækkað um 7,55% miðað
við þann verðlagsgrundvöll, sem
samið var um í febrúar sl. Nokk-
uð af þeirri hækkun kom fram í
verði landbúnaðarvara í mai í
vor, en þá hækkaði mjólkin, en
verð hennar breytist nú ekki.
• MJÓLKURAFUKBIB
Samkvæmt hinum nýja verð-
lagsgrundvelli eru helztu hækk-
anir landbúnaðarvara sem hér
segir: Mjólk í lausu máli og á
flöskum hækkar ekki, en niður-
greiðslur aukast um 19 aura á
lítra. Rjómi hækkar úr kr. 39.45
í kr. 41.40. Stafar þessi hækkun
fyrst og fremst af grundvallar-
hækkuninni og eins því, að áður
var rjóminn greiddur niður en
nú ekki. Gæðasmjör hækkar úr
kr. 52.20 kg í kr. 55.75, og er
þar eingöngu um grundvallar-
hækkun að ræða. Skyr hækkar
úr kr. 9.00 kg í kr. 10.20 kg, sem
bæði stafar af grundvallarhækk-
un og niðurfellingu niðurgreiðslu.
Ostur, 45%, hækkar í smásölu úr
kr. 48.00 kg í kr. 55.40 kg, en
r.iðurgreiðsla á osti hefur verið
felld niður.
• KJÖT OG KJÖTVÖRUR
Um hækkun á kindakjöti má
nefna sem dæmi, að súpukjöt
hækkar úr kr. 18.90 kg í smásölu
í kr. 22.00. Nemur grundvallar-
hækkunin kr. 1.11, en hinn hluti
hækkunarinnar stafar að mestu
af minni niðurgreiðslu en áður
Heil slátur hækka úr kr. 28.74
stykkið í kr. 30.50. Er þar ein-
göngu um grundvallarhækkun að
ræða.