Morgunblaðið - 24.09.1960, Síða 2
v;
2
MORGVNBLAÐ1Ð
L'augardagur 24. sept 1960
Síldarmjöl
til Kanada
SIGLUFIRÐI, 23. sept.: —
Héðan er farinn áleiðis til
Kanada fyrsti skipsfarmurinn
af síldarmjöli. Norska skip-
ið Bysanz flytur þennan farm
vestur um haf, alls um 2500
tdnn og flytur skipið mjölið
til Montreal. —Guðjón.
Sótt um þrjú
prófessors-
embætti
HINN 20. þ.m. lauk umsóknar-
fresti um þrjú prófessorsembætti
við Háskóla íslands.
Um prófessorstmbætti í geð-
læknisfræði við læknadeild, sem
er jafnframt yfirlæknisembættið
við Kleppsspítalann, sækja þess-
ir: Esra Pétursson, læknir, Jakob
V. Jónasson, læknir, Karl Strand,
læknir, Ragnar Karlsson, lækn-
ir, Tómas Helgason, læknir og
Þórður Möller, yfirlæknir.
Um prófessorsembætti í efna-
fræði við læknadeild sækir dr.
Steingrímur Baldursson, efna-
íræðingur.
Um prófessorsembætti í eðlis-
fræði við verkfræðideild ssekir
Magnús Magnússon M.A., eðlis-
fræðingur.
— Kongó
Frh. af bls. 1
jafnvel við, að til átaka kunni
að koma þar, því mikið ósam-
komulag er ríkjandi milli
nokkurra ættbálka á þeim
slóðum.
Lið Kalonji í Bakwange
Liðsflokkar sem styðja Albert
Kalonji, forseta í námahéraðinu
Kasai, hafa tekið borgina Bak-
wange herskyldi, að því er AFP-
fréttastofan hermir. Samkvæmt
upplýsingum, er hún hafði eftir
talsmanni Kalonji í Leopoldville,
hafði sá atburður átt sér stað
seint á fimmtudagskvöldið. Það
var her Lumumba, sem á sínum
tíma hrakti lið Kalonjis úr borg-
inni.
Þessir bílar rákust saman á Sogaveginum. — Var
þetta hörku árekstur, er litli bíllinn kom aftan til á þann
stærri, og kastaði honum til nokkurn spöl. U-gur maður,
sem ók litla bílnum, meiddist á höfði við áreksturinn. —
Stærri bíllinn, sem er frá Isafirði, var að sveigja af Soga-
veginum inn á hliðargötu, er sá litli, sem kom á móti, renndi
á allmikilli ferð á hann. „Vaka“ varð að drösla báðum bíl-
unum af árekstrarstaðnum. (Ljósm.: Sveinn Þormóðsson).
Gabb og ekki gabb
UM kl. níu í gærmorgun var
hringt í slökkviliðið og sagt, að
eldur væri laus í Skólagötu 7. Það
var stúlka á Landssímastöðinni,
sem hringdi. Það hafði verið
hringt þangað og beðið um að
samband yrði haft við slökkvi-
liðið.
En í Reykjavík er engin Skóla-
gata 7 svo og slökkviliðsmönnum
kom helst til hugar, að götunafnið
hefði brenglazt hjá símastúlk-
unni og tveir slökkviliðsbílar
fóru brunandi út á Seltjarnarnes,
að Skólabraut 7. En þar var eng-
inn eldur.
Hringt var í hús nr. 7 við allar
göutr, sem byrjuðu á Skóla. Allt
kom fyrir ekki. Hvergi var eldur
laus.
Allt benti til, að hér hefði
slökkviliðið verið gabbað. En
nokru síðar hringdi Landssíminn
aftur með leiðréttingu. Skóla-
gata 7 er í Keflavík og þar hafði
kviknað í. Reykjavík og Keflavík
hafa nú sameiginlega langlínu-
stöð og númerið er 02. Keflvík-
ingurinn hafði ekki áttað sig á
breytingunni — og beið alla tíð
eftir slökkviliðinu.
Um síðir kom svo slökkviliðið
í Keflavík á vettvang, en eldur-
inn reyndist lítill. Barn hafði
kveikt í fötum og litlar skemmdir
hlotizt af.
Sími slökkviliðsins í Keflavík
er 2222.
Fræðslufundir fyrir
kennara barna- og
gagnfræðaskól a
FRÆÐSLU SKRIFSTOFA Reykja
víkur rhun gangast fyrir fræðslu
fundum fyrir barna- og gagn-
fræðaskólakennara í Gagnfræða
skóla Austurbæiar í Rvík dag-
ana 26.—28. sept. næstkomandi.
Eru fundirnir haldnir í samráði
við fræðslumálastjóra og kenn-
arasamtökin.
Er þess vænzt að allir kenn-
arar við barna- og gagnfræða-
skóla Reykjavíkur mæti á fund-
unum, en þeir hefjast 26. sept.
kl. 10 f. h. og 13,30 e. h. —
Fellur kennsla í barnaskólum
bædjarins niður þann dag.
27. og 28. sept. hefjast fund-
irnir kl. 4 e. h. Ávörp og erindi
á fundunum flytja: Gerda Brun-
skog, æfingakennari frá Svíþjóð,
John Stenman, yfirkennari frá
Svíþjóð, Helgi Hermann Eiríks-
son, formaður fræðsluráðs, Jón
Þórðarson kennari, Jónas B.
Jónsson, fræðslustjóri og Magn-
ús Gíslason. námsstjóri.
Auk erinda sænsku gestanna
Sveinn Björnsson sýnir í
Listamannaskálanum
í dag kl. 4 opnar Sveinn Björns-
son, listmálari, málverkasýningu
í Listamannaskálanum og mun
sýningin standa yfir til 10. októ-
ber n.k.
Sveinn Björnsson hefur einu
einu sinni áður haldið sjálfstæða
málverkasýningu hér í bæ og
var það fyrir tveimur árum. Hann
var sjómaður, uppalinn í Vest-
mannaeyjum, áður en hann sneri
sér að málaralistinni fyrir fullt
og allt, og hefur málað margar
myndir af hafinu og störfum sjó-
manna.
Sveinn dvaldist árlangt í Kaup
mannahöfn og nam listmálun við
Listháskólann þar í borg. Síðan
ferðaðist hann til ítalíu til að
kynnast hinum gömlu góðu meist
urum og kom heim aftur fyrir
þremur árum. Hann hefur einnig
— Allsherjaþingið
Framh af bls 1
sjeff vék að í ræðu sinni má
nefna fliug U-2 þotunnar yfir
Sovétríkin, sem hann kvað hafr
komið í veg fyrir Parísar-fur '
inn. Þá krafðist hann tafarl ss
brottflutnings allra bandar -ra
herja frá Suður-Kóreu og lýsti
yfir því, að dvöl þeirra þar eitraði
andrúmsloftið, ekki aðeins í land
inu sjálfu heldur allri Austur-
Asíu. Hann kvað tillögu Norður-
Kóreu, sameiningu landsins jafn
sanngjarna tillögum Austur-
Þjóðverja um samein 'ngu Þýzka-
lands.
Krúsjeff ræddi einnig um
djörfung Kúbu, sem orðið hefði
fyrir alls kyns ofsóknum.
Kongó-málið
Hann neitaði því, að átt hefði
sér stað nokkur sovézk íhlutun
í Kongó, og staðhæfði, að það
hefði alla tíð verið skoðun Sovét-
ríkjanna að afrísku þjóðirnar
ættu sjálfar að halda uppi lög-
um og reglu í löndum sínum á
þann hátt sem þær einar kysu.
Hann fordæmdi „árás“ Belga á
Kongó og lýsti yfir því,
að sovétstjórnin teldi, að í
liði SÞ þar ættu einungis að
vera hermenn frá löndum
Afríku og Asíu, og bæri að
Ieita samþykkis hinnar lög-
legu og þjóðkjörnu stjórnar
Lumumba fyrir veru þeirra.
Lið SÞ mætti einungis nota í
samræmi við óskir stjórnar hans
í, þvi augnamiði að tryggja, . að
löglega kjörið þing þjóðarinnar
gæti haldið uppi eðlilegum
störfum.
Gereyðing yfirvofandi
Krúsjeff spurði, nvernig þjóðir
þeirra landa, sem heimiluðu
Bandaríkjunum að hafa her-
stöðvar í löndum sínum, gætu
sofið rólegar eigandi gereyðingu
yfir höfði sér. Áframhaldandi
njósnaaðgerðir bandarískra aðila
gætu hvenær sem væri steypt
heiminúm út í þriðju styrjöldina.
Fulltrúar taka málstað
framkvæmdastjórans
Hammarskjöld framkvæmda-
stjóri fékk öflugan stuðning, eftir
árásir Krúsjeffs, þegar umræðum
var haldið áfram síðdegis í dag.
Bandaríski fulltrúinn, James
Wadsworth, taldi að ræða Krú-
sjeffs hefði skapað mikið vanda-
mál fjrrir Sameinuðu þjóðirnar.
Sovétríkin hefðu reynt að eyði-
leggja framkvæmdastjórastöðuna
og þar með samtökin sjálf. Það
væri líka háttur þeirra, að vilja
eyðileggja allt, sem þau gætu
ekki haft stjórn á sjálf.
Fulltrúar Tyrklands og Persíu
báru lof á Hammarskjöld fyrir
störf hans I þágu friðarins al-
mennt og alveg sérstaklega í
Kongó.
Óvíst hvað Hammarskjöld
gerir
Um undirtektir við ræðuna er
það annars að segja, að Hammar-
haldið sýningar á málverkum
sínum í Vestmannaeyjum og Hafn
arfirði, þar sem hann er búsettúr
nú.
Á sýningu Sveins eru 77 mál-
verk, mest allt olíumálverk og
einnig málverk úr olíu-pastel lit-
um. Flestar myndanna eru af háf
inu, þá margar myndir frá Kleif-
arvatni og steinunum kringuih
Hafnarfjörð, ýmsar fantasíur
o. fl.
um skólamál almennt, verða
rædd: 1. Ný námsskrá og náms-
efni skólanna í vetur. 2. Starf-
rænar kennsluaðferðir. 3. Lexíu
nám og heimavinna nemenda.
Einnig verður haldið námskeið
í Gagnfræðaskóla Austurbæjar
fyrir kennara í eðlisfræði (og
náttúrufræði) við gagnfræða-
skóla Reykjavíkur. Er það í sam
bandi við þá ákvörðun að gera
eðlisfræði að skyldunámsgrein í
2. bekk gagnfræðaskólanna. —
Námskeiðið hefst kl. 2 e. h. 23.
sept. og stendur til 30. sept. —
Munu þeir John Stenman, yfir-
kennari frá Svíþjóð og Örnólf-
ur Thorlacíus, kennari leiðbeina
á námskeiðinu.
Gerda Brunskog, æfingakenn-
ari frá Svíþjóð, mun mæta á
kennarafundum í barnaslkólum
bæjarins og ræða við kennara
um ýmsa þætti skólastarfsins.
Nánari upplýsingar um ofan-
greinda fundi og námskeið veita
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur
og skólastjórar hlutaðeigandi
skóla.
Ný ljósmyndastofa
opnuð
OPNUÐ hefur verið ný ljós-
myndastofa að Laugavegi 31,
uppi yfir verzlun Marteins Ein-
arssonar & Co. Eigandi hennar
er Oddur Ólafsson. Ljósmynda-
stofan sér um myndatökur af
öllu tagi á staðnum, en einnig
mun hún annast myndatökur i
heimahúsum og önnur ljósmynda
störf, sem óskað er eftir.
Flofaœfingar NATO-ríkja
KEFL A VÍK URFLU G VELLI 23.
septembeir — Þann 20. þ. m.
hófust á austanverðu N-Atlants-
hafi sameiginlegar heræfingar
flotadeilda frá Bretlandi, Nor-
egi, Hollandi, Frakklandi, Portú
gal, Kanada og Bandaríkjunum.
skjöld, sem var á fundinum, sat
grafkyrr, meðan Krúsjeff flutti
hina skörpu ádeilu á störf hans,
sem mjög þykir minna á það, er
Sovétríkjunum ‘ sinnaðist við
Tryggve Lie, vegna aðgerða
hans, þegar Kóreustríðið brauzt
út árið 1950. Krúsjeff gaf einnig
vísbendingu um, að Sovétríkin
mundu héðan í frá sniðganga
Hammarskjöld framkvæmda-
stjóra. Var það í sambandi við
dreifingu afvopnunartillagna
hans meðal þingfulltrúa, sem
undir venjulegum kringumstæð-
um hefði verið falin fram-
kvæmdastjóranum, en Krúsjeff
bað nú sjálfur bingforseta og
starfsfólk SÞ að gera.
Ýmsir hafa látið sér til hugar
koma, að Hammarskjöld telji sig
knúinn til að láta af störfum,
þar sem hann njóti nú ekki leng-
ur fulltingis allra stórveldanna,
en það þykja ummæli Krúsjeffs
hafa leitt í ljós. — Ekki er enn
vitað, hvort Hammarskjöld not-
færir sér rétt sinn til að svara
árásum Krúsjeffs.
Árás á samtökin
Meðal þeirra, sem síðar í dag
gerðu ræðu Krúsjeffs opinber-
lega að umtalsefni, var Herter,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna. Lét hann m. a. svo um
mælt í síðdegisverði með er-
lendum fréttariturum, að ræða
hins sovézka forsætisráðherra
væri stríðsyfirlýsing gegn sam-
tökum Sameinuðu þjóðanna sem
slíkum og árás á þau.
8 árekstrar
í GÆR urðu 8 árekstrar á götum
Reykjavíkur, enginn þeirra alvar
legur því ekki hlutust nein slys
á mönnum. í gærkveldi ók dreng-
ur á skellinöðru aftan á bíl á Frí-
kirkjuvegi. Var hann fluttur á
Slysavarðstofuna, en fór síðan
heim, því meiðsli hans munu ekki
hafa verið alvarleg.
í sambandi við þessar æfing-
ar Atlantshafsbandalagsiis voru
fluttar hingað til Keflavíkur-
flugvallar þrjár sveitir banda-
rískra flotaflugvéla af Neptune
gerð svo og ein sveit radar-
gæzluvéla, sem eru af gerðinni
Super-Constellation. Af þessura
ástæðum fjölgaði um 780 liðs-
foringja og 750 sjóliða hér á
flugvellinum.
Tilgangur heræfinganna er að
kanna varnarstyrk NATO á N-
Atlantshafi og samræma að-
gerðir flotadeilda ríkjanna. —
Ekki hafa æfingarnar nein áhrif
á farþegaflug yfir hafið. Flo.a-
vélarnar fljúga mun hægara en
farþegavélarnar. —B. Þ.
1 Z' NA /5 hnútar I / SVS0hnútar H Snjótomo • ÚSi *** V Stvrir K Þrumur KuUaakit ttitaskit Léu'aÁ
/02 o A) /o/o /o/o
^ Veðurspáin
S klukkan 10 í gærkvöldi:
í Veðurhorfur næsta sólar-
\ hring: SV-land til Breiða-
S fjarðar og SV-mið til Breiða-
\ fjaarðarmiða: NAgola og síð-
s ar stinningskaldi, skýjað. —
Vestfirðir til Austfjarða og (
Vestfjarðamið til NA-miða: S
NA-kaldi og síðan stinnings- *
kaldi eða allhvass víða dá- \
lítil rigning. Austfjarðaniið: >
Allhvass NA, rigning. SA- |
land og SA-mið: Léttir til s
með stinningskalda. i