Morgunblaðið - 24.09.1960, Side 3

Morgunblaðið - 24.09.1960, Side 3
Laugardagur 24. sept 1960 MORGinSBLAÐlÐ 3 Garðaspretta «;óð fvrir vestan ÞUFUM í VATNSFIHÐI, 22. Upptaka garðávaxta stendur nú yfir, og er spretta í görðum yfirleitt góð. Þó eru sand garðar ekki vel sprottnir. Rófna rækt hefur allsstaðar gengið ágæt ]ega. — Vegagerð heldur enn áfram, og er áformað að gera I bíifært að Látrum, ef tíð og ástæður leyfa. — P. P. EINS og kunnugt er var á síð- asta keppnistímabili tekið að gefa spilurum meistarastig eftir þátttöku og frammistöðu í keppni. Voru stigin mismun- andi eftir keppni, t. d. hvort1 um var að ræða landsmót eða innanfélagsmót. Framkvæmdaraðili hverrar keppni átti að senda meistura- stigsritara upplýsingar um úrsiit keppninnar og átti því að fást gott yfirlit yfir frammistcðu einstakra spilara sl. keppnis- tímabil. Skrá yfir meistarastig hefur nýlega borizt blaðinu og er hún yfir tímabilið 1/9 1959 til 1/9 1960. Röð 12 efstu er 'þessi: 1. Símon Símonarson 79:60 stig. 2. Þorgeir Sigurðsson 77:40 — 3. Guðjón Tómasson 60:25 — 4. Róbert Sigmundss. 60:07 — 5. Stefán J. Guðjohns. 50:12 — 6. Hallur Símonarson 48:57 — 7. Jóhann Jónsson 41:23 — 8. Lárus Karlsson 39:56 — 9. Kristinn Bergþórss. 39:56 — 10. Guunar Guðmundsson 33:19 — 11. Einar Þorfinnsson 31:42 — 12. Örn Guðmundsson 29:30 — Núverandi meistarstigsritai'i er Ásta Flygering, Laugateig 7, Reykjavík, og ber að senda tiL hennar úrslit keppni, sem ósk- [ ast skráð í meistarastigsbókina. Fyrsta umferð í tvímennings- j keppni 1. flokks hjá Bridgefélagi Reykjavíkur var spiluð áfimmtuj dagskvöldið. Að henni lokinnij eru þessir efs'tir: 1. Eggert — Þórir ........ 215- 2. Steinunn — Guðríður .. 200 I 3. ívar — Ragnar .......... 197 4. Björgvin — Eiríkur .... 1911 5. Torfi — Bernharð ....... 185 [ 6. Guðmundur — Ólafur .. 184 Næsta umferð verður spiluð á þriðjudaginn kl. 3 í Sxáta- heimilinu. Mildl aðsókn að Handíða- og myndlistarskól- anum AÐSÓKN að Handíða- og mynd- listarskólanum er nú mjög mikil.1 Hefur akólastjóri beðfið blaðið j um að vekja athygli á því, að þeir, sem stunduðu nám við skól- ann á síðasta skólaári, eiga for- gangsrétt til náms í sömu kennslu greinum í vetur, ef þeir óska! þess. | Vegna mikillar aðsóknar „ð sumum deildum er nauðsynlegt, j að fyrri nemendur skólans, sem ætla að halda náminu áfram i vetur, tilkynni þátttöku sína hið ! fyrsta og ekki síðar en þriðjudag í inn 27. þ. m. Skrifstofa skólans, Skipholti 1, er opin á virkum dögum, nema laugardögum, kl. 5—7 síðdegis. Sírni 1-98-21. Atvik fró Kongó ÞESSAR myndir sýna atvik frá Kongó. Áður en Lumumba ætlaði að hertaka Katanga, þurfti hann að ná héraðinu Kasai. Þann 4. sept. var her- flokkur frá honum sendur inn í þorpið Lukcnlenge. — Hermennirnir kröfðust þess, að stríðsmenn Haluba-ætt- flokksins, 700 að tölu, sem þarna bjuggu, afhentu vopn sín, riffia, boga og barefli (sjá efstu myndina). — Þeir byrjuðu að afhenda vopn sín, en áður en tveir tiinar voru liðnir sauð upp lír. Menn Lumumba skipuða sér í röð og skutu á Batubamennina, sem flúðu í aliar áttir og margir féllu (sjá myndina liér fyrir neðan). Þrir hvítir blaðamenn voru áhorfendur að þessu. hóiðu komið með flokki Lumumba. Einn þeirra tók þessar myiid ir. Annar var bandarískur piltur, Henry N. Taylor, sern var kominn til Kongó þremur dögurn. Þegar Baluba menn sáu hvíta menn í hermannanna. héldu þeir að þetta væru kommúnistaráð- gjafar í her Lumumba og skutu á þá. Taylor i'éll fyrir þremur kúlum (sjá mið- myndina). — Ljósmyndarinn særiðst lítillega. STAKSniiAR „Nema síðui sé“ f forystugrein Alþýðublaðsina í gær var m. a. sagt: „Stjórnarandstaða í iýðræðis- þjóðfélagi hefur miklu og vanda sömu hlutverki að gegna. Segja má, að hlutverk hennar sé tví- þætt. í fyrsta lagi er eðlilegt, að hún gagnrýni gerðir þeirra, er fara með stjórnartaumana hverju sinni en í öðru lagi verð- ur hún að gera tillögur um nýj- ar leiðir og heppilegri til lausn- ar vandanum, sé hún á annað borð andvíg eða óánægð með þær leiðir, sem farnar eru. Híð síðarnefnda er ekki hvað sizt mikilvægt, þar eð ábyrg gagn- rýni má ekki aðeins vera nel- kvæð, heldur verður hún einnif að vera jákvæð. Hér á landi hafa menn ekkl gert þær kröfur til kommúrnsta, að þeir væru ábyrgir í stjórnar- andstöðunni. Kommúnistar er* alls staðar neikvæðir fyrst «>g fremst niðurrifsmenn, sem vilja skapa upplausn og glundroða, þar eð slíkt ástand skolar þeim einna helzt til valda. Hius veg ar hljóta menn að gera meiri kröfur til Framsóknarflokksins, sem eins af lýðræðisflokkunum hér á Iandi. En því miður liefur Framsóknarflokkurinn ekki stað ið sig betur í stjórnarandstöð- unni en kommúnistar nema sið- ur sé“. Skógrækt Skógræktarfélag Reykjavikur er nú að hefja mikla herferð tll að auka félagatölu sína og vekja sem almennastan áhuga bæjar- búa fyrir skógrækt. f þessu tll- efni verður gróðrarstöð félag*- ins í Fossvogi opin bæjarbúunt um þessa helgi. Fyrir ötula baráttu margra á- i hugamanna hefur skógræktiu vaxið mjög á siðustu árum. Er nú svo komið. að hálf önnur milljón plantna er gróðursett ár- lega; er það tífalt meira en gróð I ursett var fyrir áratug. Áfram þarf að halda á sömu braut, þó að búast megi við, að aukningin verði ekki jafn mikil að hundr- aðstölu og verið hefur að und- anförnu, vegna þess hve fjárfrck ar framkvæmdirnar eru. Sala trjáafurðanna En áður en langt um líður má gera ráð fyrir að skógræktin fari að komast á nýtt stig, þegar skógræktarfélögin fara að fá verulegt fjármagn með sölu á trjáafurðum. Það ætti ekki að eiga langt í land að öll jólatré sem notuð verða hér verði íslenzk. Næsta stigið er það, að við verðum sjálfir okk- ur nógir með framleiðslu á girð- ingarstaurum og vel mætti hugsa sér, að farið verði að framleiða þilplötur úr innlendum tr.iáviði áður en mjög langt um líður. Þegar svo væri komið myndi enginn efast um mikilvægi skóg ræktarinnar og ekki myndi skorta fé til margfalds átaks á þessu sviði borið saman við það sem nú er. En revndar á skóg- ræktin þá þegar vísan stuðmrig og samúð yfirgnæfandi meiri hluta þjóðarinnar. Áköfustu stuðningsmenn skógræktarinnar mega því ekki misskilja það, þó að bent sé á, að á nokkrum stöð um á landinu eigi ekki við að rækta skóg, heldur skuli þeir varðvelttir eins og þeir hafa verið í sögu þjóðarinnar. Vel getur þurft að hlvnna að birki- gróðri á þessum stöðum, en flest um fslendingum myndi bregða í brún, ef þeir sæju staði eins og Þingvelli og Diinmubnrgir þakta greniskógi. Aftur á móti eigum við þúsundir ferkílómetra lands, sem klæða þyrfti skógi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.