Morgunblaðið - 24.09.1960, Síða 18

Morgunblaðið - 24.09.1960, Síða 18
18 MORCVNBLAÐ1Ð Laugardagur 24. sept 1960 Herbergí öskast Gott 16—20 ferm. herbergi óskast frá 1. okt. — Tilboð merkt: „Reglusemi — 1694“, leggist á afgr. Mbl. nú þegar. » FramtíÖaratvinna Stórt útflutningsfyrirtæki óskar að ráða ungan mann til skrifstofustarfa. Stúdents- eða verzlunarskóla- menntun æskileg og kunnátta í ensku nauðsynleg. TJmsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri- störf, sendist afgr. Mbl. fyrir 28. sept. merktar: „Útflutningur — 1687“. 7 herbergja parhus í Kópavogi tiJ sölu. 15 ára lán með 7% vöxtum getur fytgt. Hófleg útborgun, lágt verð. — Laust fljótlega. RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, HRL. Laufásvegi 2 Símar 19960 & 11628. Dahlíur Begóníur Kaupið pottaðar Dahlíur og Begóníur í blóma. Nú er bezt að velja rétta litinn. — Njótið blómanna í haust og ptantið í garðin í vor. — Upplýsingar um vetrargeymslu, fáið þið hjá okkur. Gróðrastöðin við Miklatorg. Símar: 22-8-22 og 19775 Dulspekiskólinn í Reykjavík — HIN KHISTNA DULSPEKI — Dulspekiskólinn í Reykjavík tekur til starfa hinn 1. okt. n k. Skólinn er opinn fyrir almenning, fyrir ungt fólk, miðaldra — og eldra fólk — konur og karla, allt frá 17 ára aldri til 70 ára aldurs, Einkatímar og hópfræðsla. Ungt fólk sér í flokki og flokkum, miðaldra- og eldra fólk sér í flokkum, vinir, ástvinir, fjölskyldur, eftir því, sem óskað er. — Hver einstaklingur eða flokkur ræður hve oft hann vill njóta fræðslu. Hægt er að íá námsefni heim til sín og láta aðra njóta þess áti þess þeir þurfi að koma í skólann. Ekkert skólagjald. Engin próf. Hæfum nemendum veitt aðstoð t*l þess, að stofna sjálfstæð dulminjasöfn og dulspekiskóla í kaupstöðum utan Reykjavíkur, undir eft- irliti Dulspekiskólans I Reykjavík. Öllum er frjálst að gjörast styrktarfciagar einu sinni eða oftar. Áheit á Dulminjasafnið og Dulspekiskólan hafa borið undraverð- an árangur. Hvort tveggja er og verður eign höfuðborgarinnar. Námsspjöld, innritun og upplýsingar næstu daga í skrif- stofu Dulrænuútgáfunnar Tjarnargötu 4 kl. 3—5 og í Dulspekiskólanum, Hávallagötu 1 á hverju kvöldi kl. 8—10. DULSPEKISKÓLINN I REYKJAVlK Pósthólf 1322 Valbjörn og Kristleifur á Rudolf Hardig mótinu HIÐ árlega frjálsíþrótta • jt, sem haldið er til minningar um þýzka hlauparann Rudolf Harbig, fer fram nk. sunnudag í Dresden í Þýzkalandi. íslenzkum frjálsíþróttamönn- um hefur um 6 ára skeið verið boðin þátttaka í móti þessu, en til mótsins er boðið þekktum íþróttamönnum frá mörgum lönd um heims. Að þessu sinni munu þeir Val- björn Þorláksson og Kristleifur Guðbjörnsson keppa fyrir js- lands hönd á mótinu. Valbjörn keppir í stangarstökki, en óráðið er hvort Kristleifur keppir í 3000 metra hindrunarhlaupi eða 5000 metra hlaupi. Valbjörn er staddur ytra og keppti í síðustu viku á miklu frjálsíþróttamóti í Malmö í Sví- þjóð, þar sem hann varð annar í stangarstökki með 4.20 m. Kristleifur Guðbjörnsson flaug utan í fyrradag ásamt Sigurði Helgasyni frá Stykkishólmi, sem mun verða fararstjóri þeirra. BÆJARKEPNNI í knattspyrnu fer fram í dag milli Hafnfirðinga og Keflvíkinga. Fara leikirnir fram í Hafnarfirði, og hefjast kl. 16:00. Keppt verður í meistaraflokki og 4. flokki. Er þetta í annað sinn sem þessir bæir keppa í knatt- Kristleifur spyrnu, en Keflvíkingar unnu bæjarkeppnina, sem fram fór í fyrra. Mikill áhugi ríkir um leik meistaraflokkanna, því þarna eig ast við fallliðið í ár í 1. deild og sigurvegararnir úr 2. deild, sem munu keppa í 1. deild næsta ár. Nægir KR jafntefli ÚRSLITALEIKUR Islands- mótsins verður háður á morg- 1 un, en eftir þessum leik hefir verið beðið með mikilli eftir- væntingu. Einhvern veginn hefir það verið svo sl. 10 ár, að vart hefir verið ráð fyrir öðru gert, en Akranes og KR væru í úrslitum hverju sinni. — í ár virtist Fram þó lengi vel líklegur keppninautur um efsta sætið. í gær var að heyra á máli margra, að vart væri hægt að tala um leik Akraness og KR sem úrslitaleik Islandsmóts- ins, þar sem dómur væri ekki enn fallinn í kærumálum varð andi tvo leiki. — Áttu menn þá við leik Fram og Akraness á Akranesi og síðari leik Fram og KR. Íþróttasíðan aflaði sér upp- lýsinga um það í gær, að leik- ur Fram og Akraness hefur verið dæmdur löglegur. Héraðsdómstóll ÍBR, sem á að dæma í hinu málinu, mun ekki enn hafa tekið það fyrir. Leikur KR og Fram varð jafn- tefli og stigin skiptust, en ef dómurinn fellur KR í vil, hlýtur KR sigur og bæði stig- in. Spurningin er því: Er hægt að leika úrslitaleik ís- landsmótsins áður en dómur er fallinn í þessu máli? — Nægir KR kannski jafntefli til sigurs? Bæjokeppni í knattspyrnu Hafnorfjörður — Keflavík Enska knattspyrnan Sigluí jörður vaim Akureyri SIGLUFIRÐI, 22. sept. — Um sl. helgi komu flokkar drengja frá Akureyri úr félögunum Þór og KA og kepptu hér á laugardag og sunnudag við jafnaldra sína á Siglufirði. Akureyrar drengirnir, sem voru á 3., 4. og 5. flokks aldri kepptu tvo leiki í hvorum flokki á Siglufirði. Á laugardag fóru leikar svo að í 4. fl. unnu Akureyringarnir 2:0, en Siglfirðingar unnu 3. fl. 2:1 og 5. fl. 2:0. Á sunnudaginn unnu Siglfirð- ingar 4. fl. 2.1 og 5. fl. 2:0, en Akureyringar unnu 3. fl. 3.1. Siglfirðingar unnu því þessa keppni, hlutu 8 stig og skoruðu 9 mörk, en Akureyringar hlutu aðeins 4 stig og skoruðu 7 mörk. — Stefán NOKKRIR leikir í ensku deildarkeppn inni fóru fram í vikunni og urðu úr- slit þeirra þessi: 1. deild: Blackburn — Chelsea ............ 3 .1 N. Forest — Fulham .............. 4:2 2. deild: Sheffield U. — Portsmouth ....... 3:1 Middlesbrough — Scunthorpe 1:3 3. deild: Coventry — Bouenemouth .......... 1:0 Hull — Barnsley ................. 2:0 Port Vale — Halifax ............. 2:3 Q.P.R. — Brentford .............. 0:0 Bristol City — N. County ........ 2:1 Bury — Colchester .............. 4:0 Grimsby — Newport ............... 2:1 Walsall — Chesterfield .......... 2:1 Watford — Swindon ............... 1:0 4. deild: Barrow — Accrington ............. 1:1 Bradford — Crewe ................ 2:0 Darlington — Millwall ........... 5:2 Hartlepools — Exeter ............ 0:0 Mansfield — Carlisle ........... 1:3 Northampton — Chester' 3:2 Doncaster — Peterborough 1:2 Rochdale — Oldham 3:0 Southport — Crystal Palace 3:3 Markahæstu leikmenn að 9 umferð- um loknum eru þessir: 1. deild: Smith (Tottenham) ........... 12 mörk Greaves (Chelsea) ............ 9 — Hitchens (Aston Villa) ....... 8 — Dobing (Blackburn) ........... 7 — Dougan (Blackburn) ........... 7 — 2. deild: Crawford (Ipswich) ........... 9 mörk O’Brien (Sounthampton) ...... 9 — Thomas (Scunthorpe) .......... 9 — 3. deild: Singer (Newport) ............. 9 mörk Hateiey (Notts County) ....... 8 — Holton (Watford) ............. 8 — 4. deild: Byrne (Chrystal Palace) ...... 9 mörk Hudson (Accrington) .......... 9 — Lord (Rochdale) .............. 9 — HiiúðJax finnsr langt frá sjó AKUREYRI, 22. sept.: — Hnúðlax inn eða bleiklaxinn, eins og sum ir kalla hann, hefur undanfarið veiðzt umhverfis Norður- og Austurland, allt frá Ólafsfjarðar vatni að Hornafirði. Virðist hann vera að ganga í flestar ár norð- anlands og austan, og útbreiðslu svæði hans eykst stöðugt. Síðasti hnúðlaxinn, sem veidd ist, fékkst í Ytri-Tunguá, sem er þverá Hörgár, mjög langt frá sjó uppi í Hörgárdal. Þar var verið að breyta um farveg árinnar og henni veitt í nýjan farveg, e» hinn gamli þornaði upp. Fund- ust þá í polli í honum nokkrir silungar og einn hnúðlax, 45 sm, á lengd. — St. E. Sig. IJtboð Tilboð óskast í rafbúnað fyrir spennistöðvar Raf- magnsveítu Reykjavíkur. Útboðslýsingai eru afhentar á skrifstofu vorri, Traðarkotssundi 6. INNKAUI'ASTOFNUN REYKJAVÍKURBÆJAR Hveragerði Til sölu er einbýlishús í Hveragerði 80 ferm. 3 herb. og eldhús. — 1200 ferm eignarlóð fylgir. Uppl.- gefur SNORRI ÁRNASON, lögfræðingur Selfossi og Sigurþór Runólfsson, Hveragerði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.