Morgunblaðið - 24.09.1960, Side 20
//
Svartur dagur44
Sjá bls. 11.
fltoirgttttMðftifc
218. tbl. — Laugardagur 24. september 1960
IÞRÓTTIR
eru á bls. 22.
379
hvalir
í sumar
HVALVEIÐUNUM' er nú lokið
í sumar og var aflinn í meðal-
lagi. Fjórir hvalveiðibátar voru
gerðir út frá Hvalfirði eins og
undanfarin sumur og komu þeir
með 379 hvali að landi. Þetta er
aðeins meira en í fyrrasumar,
en langtum minna en aflawiesta
sumarið, sem var 1954, en þá
veiddust 517 hvalir.
Mbl. átti tal við Loft Bjarna-
son, útgerðarmann í gær og
sagði hann, að nú hefðu veiðzt
160 iangreyðir, 42 sandreyðir og
177 búrhveli.
í sumar hefir lítið verið fryst
fyrir innanlandsmarkað því að
bátarnir hafa orðið að sækja
langt og hvalirnir hafa þess
vegna ekki verið glænýir að
jafnaði, þegar þeir bárust á iand.
Það er líka aðeins úrvalsstærö,
sem fryst er til manneldis.
Töluvert magn hefur hins
vegar verið fryst sem dýrafóð-
ur til útfiutnings. Mikað af því
er flutt til Einglands, en þar eru
sérstakar verksmiðjur, sem
blanda kjötið öðrurn fóðurteg-
undum og er það einkum selt
til hundaeldis.
Að vanda verður lýsið flutt
út — m. a. til Hollands, Þýzka-
lands og Englands, en mjölið er
mestmegnis selt á innlendum
markaði og er það notað í fóð-
urblöndu.
Þetta er nýja Þverárréttin í Borgarfirði, ein stærsta fjárrétt
Iandsins. Hún var steypt upp í sumar og þykir bændum sveit-
arinnar til hins mesta sóma. Að neðan er mynd af réttarstjór-
anum, Davíð á Arnbjargarlæk.
Dr. Kristinn til Moskvu
™ Henrik Sv. Björnsson tekur við
sendiherraemJtættinu í Lundúrium.
DR. KRISTINN Guðmunds-
son, sendiherra í Lundúnum,
er nú senn á förum þaðan —
en ákveðið hefur verið, að
hann taki við embætti sendi-
herra íslands í Moskvu.
Flugvöllur á ísafirði
opnaður í næstu vi ku
Katalínu lagt í vor fyrir fullt og allt
FXUGVÖLLURINN á ísafirði
verður tekinn í notkun einhvem
næstu daga. Fullgerðir voru 1050
metrar af flugbrautinni á Skip-
eyri um miðja vikuna og verða
fullir 1100 metrar tilbúnir til
notkunar um helgina. Áætlað var
að fullgera 1200 metra i fyrsta
áfanga og nuun viðbótinni verða
lokið eins fljótt og kostur er.
Lokatakmarkið er hins vegar
1400 metrar.
Flugfélag íslands mun því að
öilum líkindum hefja ferðir með
DC-3 flugvélum til ísafjarðar í
næstu viku og upp úr því verður
Ökupróf í
tvennu lngi
ÖKUPRÓF verður fram-
vegis í tvennu lagi hér í
Reykjavík, bæði bóklegt og
verklegt. Ókukennarar hafa
komið á fót skóla og verða
allir þeir, sem læra bifreiða-
akstur að sitja námskeið í
skólanum þar sem einkum
eru kenndar umferðarregl-
ur, m. a. með tilliti til hinna
fjölmörgu nýju umferðar-
merkja. Þetta fyrirkomulag
er samkvæmt nýrri reglu-
gerð þar að lútandi.
í sambandi við skólann
hafa ökukennarar fengið
tæki til að mæla viðbragðs-
flýti manna, fjarlægðarskyn
og sjónvídd og gera þeir sér
vonir um að þessi nýi út-
búnaður komi að góðu
gagni.
Katalína, „þarfasti þjónn ísfirð-
inga“, sjaldséður gestur vestra.
Þann 6. april
— Fyrst í stað mun Kataiína
samt annast einhvern lítinn
hluta af ferðunum vestur, sagði
Hilmar Sigurðsson, yfirmaður
innanlandsflugs F. í., í viðtali
við Mbl. í gærkvöldi, því það
tekur nokkurn tima að þjáifa
áhafnir DC-3 vélanna í aðflugi
að vellinum á Skipeyri.
— Annars taka DC-3 vélarnar
bráðlega við fluginu til ísafjarð-
ar að öllu leyti, en Katalína flýg-
ur til annarra Vestfjarða og
Siglufjarðar í vetur.
— Loftferðaskirteini Katalínu-
bátsins fellur úr gildi 6. apríl í
vor og er ekki ráðgert að endur-
nýja það. Katalína verður því
Framh. á bls. 19.
Fiskyfirhreiðslur
liverfa
HAFNARFIRÐI — Aðfaranótt
fimmtudagsins voru teknar tvær
yfirbreiðslur (segl), sem voru
yfir fiskstöflum upp á Flata-
hrauni og eru eign Venus hf.
Fiskurinn, sem seglin voru yfir,
mátti að heita þurr, og þvi að
sjálfsögðu mjög verðmætur. —
Rigndi mikið þessa nótt og um
morguninn, og hefur því nokk-
uð af fiski þessum orðið fyrir
skemmdum.
Biður lögreglan þá, sem hafa
orðið varir við mannaferðir við
reitinn á þessum tíma eða gætu
gefið upplýsingar um hvarf segl
anna, sem eru kyrfilega merkt
Venus hf., að gela sig fram.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. hefur aflað sér, mun enn-
fremur afráðið, að Hendrik Sv.
Björnsson, ráðuneytisstjóri, taki
við sendiherraembættinu í Lund-
únum.
Erfitt starf á enda
Lundúnablaðið „Daily Tele-
graph'* sagði fyrir nokkrum dög-
um frá áformaðri brottför dr.
Kristins Guðmundssonar og er
sú fregn m. a. á þessa leið:
„Lundúnir munu brátt sjá á
bak sendiherra, sem á hefur hvílt
einstaklega erfitt starf nær all-
an þann tíma, er hann hefur
gegnt embætti hér.
Er þetta dr. Kristinn Guð-
mundsson, sem verið hefur ís-
lenzkur sendiherra hér síðan
seint á árinu 1956.
Árið 1958 upphófst deilan
vegna viðleitni íslendinga til að
færa fiskveiðitakmörk sín út í
12 mílur ,en hún hefur stundum
orðið bitur.
Vinsæll sendiherra
Fregnin um að dr. Kristinn
Guðmundsson sé á förum — að
öllum líkindum til Moskvu —
berst á þeirri stundu, er horfur
virðast á, að deilan verði leyst.
Hún hefur aldrei haft áhrif á
vinsældir þessa afarstóra, ljóns-
lega manns, sem fremur hefur
gefið sig að stjórnmálum en
stjórnarerindrekstri — hann var
utanríkisráðherra, áður en hann
var skipaður sendiherra í Lund-
únum. Sem gestgjafi nýtur hann
mikils álits.“
SIGLUFIRÐI 23. september —
Bæjartogarinn Hafliði landar
hér í dag 200 tonna afla til
vinnslu í hraðfrystihúsinu. —G.
liiiffllliiii
« s. "Ss-fr vi
Tvísýn
biðskák
SJÖUNDA umferð Gilfers-móts-
ins var tefld í gærkveldi. Leikar
fóru svo, að Arinbjöm vann Ingv-
ar, Guðmundur Ágústsson vann
Gunnar, Guðmundur Lárusson
vann Jónas í 17 leikjum. Jafntefli
varð hjá Kára og Ólafi. Ingi R.
á vinningsstöðu í biðskák við
Benóný.
Einnig varð biðskák hjá Frið-
rik og Johannessen. Staðan er
flókin og erfitt að segja um hjá
hvorum eru meiri vinningsmögu-
leikar. Friðrik hefir tveimur peð
um minna, en hefir þar á móti
skiptamun. Þeir komust báðir í
tímaþröng og mátti hvorugur
vera að því að skrifa leikina.
Þegar klukka Johannessen féli
fáum sekúndum á úndan Friðriks
klukku, voru leikirnir gerðir upp
og reyndust tveimur fleiri en til-
skilið var.
Biðskákin lítur þannig út:
Hvítt: Johannessen
Kf3, Hdl, Bb3, Rf4, c2, f2, g3, h2.
Svart: Friðrik Ólafsson
Kh8, Hc8, He8, Be5, g6, h7.
Hvítur á biðleik.
Rússinn
er þyrstur
SIGLUFIRÐI, 23. september: —.
Rússneska tankskipið sem lestaff
hefur vatn hér fyrir rússneska
síldveiðiflotann í sumar, er nú
komið hingað í fjórða sinn til aff
sækja vatn. Þetta er 12—1300
tonna skip og það tekur 2—3 sól-
arhringa að fylla það af vatni.
— Guðjón.
Roskinn maður gekk fyrir bil og
stórslasaðist
R O S K I N maður úr
Hafnarfirði slasaðist mikið
í umferðarslysi, sem varð á
Hringbraut skömmu fyrir kl.
9 í gærkveldi. Hlaut maður-
inn mikinn áverka á höfði og
var ekki kominn til meðvit-
undar, er Mbl. hafið samband
við Slysavarðstofuna laust
fyrir miðnætti. Meiðslin
höfðu ekki verið könnuð að
fullu og þá var verið að flytja
manninn í sjúkrahús, því
hann var talinn alvarlega
slasaður.
Slysið varð skammt neðan við
Kennaraskólann, vestan við
Smáragötu. Miðaldra maður á
Pobeta-bíl ók austur Hringbraut.
— Ég vissi ekki fyrr til en mað
ur birtist 1—2 metrum framan
við bílinn, sagði ökumaðurinn
eftir slysið. Ég var aðeins á um
40 km. hraða, en ég sá manninn
ekki fyrr en honum skaut upp
Fulltrúakjör í Múruruíéluginu
FULLTRÚAKJÖR í Múrarafé-
lagi Reykjavíkur fer fram í dag
og á morgun í skrifstofu félags-
ins, Freyjugötu 27.
Kosningin hefst í dag kl. 1 e.
h. og stendur til kl. 9 síðd. og á
morgun (sunnud ) verður kosið
frá 1 e. H :il 10 síðd. og er þá
kosning^, . .uKÍð.
Tveir iistar eru í kjöri:
A-listi stjórnar og trúnaðar-
ráðs, en hann skipa: Eggert G.
Þorsteinsson, og Einar Jónsson.
Til vara: Hilmar Guðlaugsson og
Jón G. S. Jónsson. Listi komm-
únista er B-listi.
Múrarar! Kjósið strax í dag
Vinnið ötullega ag sigri A-lisi-
ans.,
rétt framan við bílinn.
Hafnfirðingurinn lenti framan
á bílnum, mun hafa kastazt frá
honum aftur og lent uppi á vélar
hlklinni en síðan oltið af bílnum
og lá hann við gangstéttina, þeg-
ar ökumaðurinn hafði stöðvað
bílinn og kom hlaupandi. Samkv.
upplýsingum lögreglunnar virðist
Ijóst, að maðurinn hafi ætlað að
ganga yfir götuna, en ekki varað
sig á bílaumferðinni.
Ókunnur maður kom að hinum
slasaða nær jafnt og ökumaður-
inn, en sá hvarf aftur. Rannsókn
arlögreglan bað Mbl. að færa þess
um ókunna manni boð um að
hafa samband við lögregluna.
Einnig er óskað eftir því að aðrir
sjónarvottar, ef einhverjir eru,
gefi sig fram við lögregluna.
Bíllirm rann
FÓLKSBÍLL rann í gær af
Egilsgötu og niður í garð-
inn við Heilsuverndarstöð-
ina, upp viff Barónsstíg, en
þar er allhátt niður í garð-
inn. Stóð bíllinn á Egils-
götu, upp viff Gagnfræffa-
skóla Austurbæjar. En af
einhverjum ástæðum rann
bíllinn afturábak niður
brekkuna með fyrrgreind-
um afleiffingum. Tveir
kranabilar komu skjótt á
vettvang og náðu bílnum
upp, en nokkrar skemmdir
munu hafa orðið á honum.