Morgunblaðið - 14.10.1960, Blaðsíða 2
2
MORCVNBl AÐIÐ
Fostudagur 14 okt. 1960
T ómsíundanamskeið
Æskulýðsráðs að hefjasf
ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavíkur
hefur undanfarin ár gengizt fyr-
ir tómstundanámskeiðum ungl-
inga í ýmsum greinum, eins og
kunnúgt er. Hefur starfsemin
gefizt prýðilega, þó að á tilrauna
stigi sé, og hún aukin ár frá ári
og bætt við kennslugreinum.
Nú á mánudaginn hefjast
fjöldamörg námskeið á vegum
Æskulýðsráðsins. Verða þau á 9
stöðum víðsvegar í bænum, til
hægðarauka fyrir unglinga. —
Námskeiðin eru þessi:
í Tómstundaheimilinu að
Lindargötu 50 verður ljósmynda-
iðja, kvikmyndasýningar, frí-
merkja- og taflklúbbar, smíða-
föíidur, bókband, flugmódel-
smíði, bast- og tágavinna, bein-
og hornvinna, filt- og perlu-
vinna, radíóvinna; einnig verða
þar skemmti- og fræðslukvöld
vikulega fyrir þessa hópa.
— Kann áralagið
Frh. af bls. 1.
hugasemdina, eftir að Krúsjeff
hafði talað í tuttugu mínútur.
Hann krafðist þess að Boland
vítti Krúsjeff fyrir það að hann
hefði nú talað í stundarfjórðung
án þess að koma nálægt efninu
sem væri á dagskrá, — í þess
stað hefði hann komið með móðg-
andi ummæli um Eisenhower for
seta. Boland kvaðst ekki hafa
skilið ummæli Krúsjeff svo, að
telja mætti það móðgandi fyrir
Eisenhower og bað Krúsjeff að
halda áfram.
★
Krúsjeff hélt áfram og las upp
yfirlýsingu sem var uppkast að
ályktunartillögu í afvopnunarmál
inu. í henni kom m. a. fram fyrsta
formlega tillaga hans um endur-
skipulagningu á framkvæmda-
stjóraembætti Sí>.
Nú tók brezki fulltrúinn fram
í fyrir Krúsjeff og benti forseta
á, að ræðumaður kæmi hvergi
nærri efni því sem ræða skyldi.
Boland forseti kvað það rétt vera.
að nú flökti Krúsjeff alllangt frá
efninu, en hann skyldi samt fá
að ljúka ræðu sinni með tilliti til
þess, að þetta værí skilnaðar-
ræða hans.
★
Enn hélt Krúsjeff áfram og
blánaði nú af reiði í gerð Bret-
ans. Hann sagði: í»að er alkunr,-
ugt að brezka flugvélamóðurskip
ið (Bretlandseyjar) munu hætta
að vera til á fyrsta degi nýrrar
styrjaldar. Síðan réðist Krúsjeff
að Hammarskjöld, kallaði hann
skósvein auðvaldsins. „Hammar-
skjöld lét mig róa með sig á lít-
illi kænu, þegar hann dvaldist
hjá mér á Krím. Nú er komið
að honum að róa með mig“.
★
Að lokum var Hammarskjöld
framkvæmdastjóra gefið orðið.
Hann sagði: „Það er rétt, sem
Krúsjeff segir, að ég skulda hon-
um bátsferð. En hann mun kom-
ast að því, þótt síðar verði, að
ég kann áralagið, og ég nota
minn eigin áttavita". Við loka-
orð Hammarskjöld brustu út
mikil fagnaðarlæti í salnum en
Krúsjeff barði í borðið. Þannig
lauk setu Krúsjeffs á þingi SÞ.
Dagskrá Alþingis
BÁÐAR deildir Alþingis koma
saman til funda í dag kl. 13.30;
hljóða dagskrárnar svo:
Efri deild
1. Héraðsfangelsi. frv. 1. umr.
2. Ríkisfangelsi og vinnuhæli,
frv. 1. umr.
Neðri deild
1. Heimild til að veita Fried-
rich Karl Lúder atvinnuleyfi,
frv. 1. umi. _
1 Golfskálanum verður bast-
og tágavinna á mánudögum.
Ármannsheimilið við Sigtún:
Bast- og tágavinna, horn- og
beinavinna, tafl- og frímerkja-
— Ræða Homes
Frh. af bls. 1
lávarður þó vongóður um að
hægt væri að ná samkomulagi við
þá, að minsta kosti á þeim svið-
um þar sem hagsmunir þeirra og
okkar geta nokkuð fallið saman.
Eitt þessara sviða, sagði Homa
halda að væri kjarnorkuvígbún-
aðurinn, því að það gætu ekki
verið hagsmunir neinna, ekki
einu sinni kommúnista að halda
áfram kjarnorku-kapphlaupinu.
Þá ræddi Home nokkuð um við
ræður sínar og Macmillans við
Krúsjeff í New York Hann sagði
að Krúsjeff hefði ætlað að grafa
undan og ráðast á Vesturveldin
allsstaðar sem þau væru veikust
fyrir. Slkt kallaði Krúsjeff frið-
samlega sambúð.
Áhætta eða undirokun
Einnig réðist utanríkisráð-
herrann á Verkamannaflokkinn
fyrir ályktun sem hann sam-
þykkti um að Bretar ættu ein-
hliða að afsala sér kjarnorku-
sprengjum. „Fólk veit glöggt um
hætturnar sem fylgja kjarnorku-
vígbúnaði, en það kýs þó frekar
að lifa í þeirri áhættu heldur en
að verða að beygja sig fyrir fót-
um útlendra kúgara. Það getur
verið að við séum búðarloku-þjóð
en frelsið hefur þó aldrei verið
til sölu á markaðstorgi okkar.
klúbbur; ennfremur fræðslu- og
skemmtikvöld öðru hverju.
Melaskóli: Bast- og tágavinna,
horn- og beinavinna.
Háagerðisskóli, í samvinnu
við sóknamefnd Bústaðasóknar:
Bast- og tágavinna, kvikmynda-
sýningar væntanlega á laugar-
dögum.
Vogaskóli: Tómstundakvöld
vikulega með ýmsum verklegum
greinum fyrir nemendur skólans.
Miðbæjarskóli: Leikbrúðugerð
og teikniflokkur.
Víkingsheimilið: Frímerkja-
klúbbur.
Kvikmyndasalur Austurbæjar-
skólans: Kvikmyndasýningar fyr
ir börn á sunnudögum.
•
Allar nánari upplýsingar eru
veittar í skrifstofu Æ.R. að Lind-
argötu 50, kl. 2—4 daglega. Inn-
ritun verður á ofangreindum
stöðum í næstu viku. Þátttöku-
gjaldið er kr. 25.00 fyrir tíma-
bilið sem nær fram í byrjun des-
ember, auk efniskostnaðar.
/ NA /5 hnúiar / SV50hnútor ¥: Snjákoma 9 OSi V Skúrir K Þrumur W/tS, Kutíaski/ Hifaski/ H Hmt L*Lce,Í 1
I Reykjavík gerði smáskúrir
í gær, en þá hafði ekki koniið
dropi úr lofti í fimm sóíar-
hringa. Og það, sem af er mán
uðinum, hefir úrkomán orðið
aðeins 2 mm, samkvæmt
mælingum Veðurstofunnar. Er
meðalúrkoma í Reykjavík i
oktöbermánuði 92 mm. Eru
okt. og jan. úrkomumestu mán
uðir ársins.
Þrátt fyrir þurrkana hér,
hefir mikið ringt í Vestur-
Evrópu undanfarið. Berast
daglega fréttir um tjón af
völdum flóða á Bretlandseyj-
um, Frakklandi og Italíu, og
er ekki ólíklegt að Þýzkaland
og Spánn bætist i hópinn.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi
SV mið: Austan kaldi og
síðar stinningskaldi, smá-
skurir.
SV-land til Vestfjarða og
Faxaflóamið til Vestfjarða-
miða: SA gola og síðar kaldi,
skýjað en úrkomulaust að
mestu.
Norðurland til SA-lands og
miðin: Hæg breytileg átt, víö-
ast léttskýjað.
Frumvarp um Iðnaðarmála-
stofnun íslands lagt fram
Efla skal iðnað og auka fram-
leiðni i atvinnulifinu
í GÆR var lagt fram á Al-
þingi stjórnarfrumvarp um
Iðnaðarmálastofnun íslands
(IMSÍ), en stofnunin hefur,
frá því að hún tók til starfa
árið 1955, fylgt starfsreglum,
er iðnaðarmálaráðherra setti
og gilda skyldu, þar til lög
um hana yrðu sett.
Tvö frumvörp útrædd
Fyrstu starfsreglur stofnunar-
Útgjaldagreinar
eru ekki útgjalda-
liðir
í FRÁSÓGN af fjárlagafrum-
varpinu 1961 í blaðinu í fyrra-
dag, varð sú misritun á tveimur
stöðum að talað var um útgjalda
liði í staðinn fyrir útgjaldagrein-
ar. 10 af 14 útgjaldagreinum fjár-
laganna lækka, eins og sagt var
síðar í áðurnefndri frétt. Leið-
réttist þetta hérmeð.
Áfök i Framsóknarhúsinu
Ungkommar í liði ,vinstri'
Framsóknarmanna
FÉLAG ungra Framsóknarmanna
hér í Reykjavík hélt aðalfund i
Framsóknarhúsinu í fyrrakvöld.
Urffu þar mikil átök, því hinir
svonefndu „vinstri“ Framsóknar
menn höfðu smalað duglega til
fundarins, lögðu þar fram um
100 inntökubeiðnir nýrra félaga
— og nokkur hluti þessara ný-
liða voru ungkommúnistar, sem
hugðust hlaupa undir bagga með
vinum sínum handan Tjarnarinn
ar.
Fór svo, að kommavinir og
nýju félagarnir höfðu 19 atkvæða
meirihluta og réðu þeir stjórn-
arkjöri. Formaður var kjörinn
Hörður Gunnarsson, en mótfraih
bjóðandi hans var Tómas Karls-
son, fréttastjóri á Tímanum.
Að kosningu lokinni lýsti fund
arstjóri, Sveinbjörn Dagfinnsson,
því yfir, að hann teldi stjórnar-
kjörið ekki löglegt vegna þess, að
hluti fundarmanna vœri ekki
Framsóknarmenn, heldur bundn-
ir öðrum flokki. — Hófust þá
geysimikil hróp og háreisti í mót
mælaskyni við dóm fundarstjóra
og hafði Örlygur Hálfdánarson
form. sambands ungra Framsókn
armanna kórstjórn á hendi.
Munu Örlygs-andstæðingar hafa
kært þennan formann SUF 3g
kommasmölunina til fulltrúaráðs
og miðstjórnar Framsóknarflokks
ins.
innar voru settar hinn 15. júni
1955 af þáverandi iðnaðarmála-
ráðherra, Ingólfi Jónssyni. Síðan
hefur Alþingi tvívegis haft til
meðferðar frumvörp um stofn-
unina, en þau ekki orðið útrædd.
Starfsreglunum hefur á þessu
tímabili verið breytt einu sinni,
þ. e. í maílok 1957, af Gylfa Þ.
Gislasyni, sem þá fór með iðn-
aðarmál í ríkisstjóm.
Með bréfi til IMSÍ, dags. 10.
júní sl., óskaði iðnaðarmálaráð-
herra, Bjarni Benediktsson, eftir
því, að stjórn stofnUnarinnar
léti taka saman frumvarp til laga
fyrir stofnunina og yrði við með-
ferð málsins sérstaklega tekin
til athugunar aðild Alþýðusam-
bands íslands og Vinnuveitenda-
sambands Islands, sem hvorugt
eiga fulltrúa í stjórn stofnunar-
innar samkvæmt gildandi starfs-
reglum. Drög að umbeðnu frum-
varpi bárust svo í byrjun sept-
embermánaðar sl. óg var hið
nýja frumvarp samið á grund-
velli þeirra tillagna með nokkr-
um breytingum. Standa vonir til
að það geti orðið undirstaða að
framtíðarskipan stofnunarinnar.
Sjö samtök tilnefna stjóm
1 frumvarpinu er fyrst
ákvæði um að Iðnaðarmálastofn-
un íslands skuli vera „sjálfstæð
stofnun undir yíirstjórn ráð-
herra þess, sem fer með iðnað-
armál“. Skal hann einnig skipa
stjórn hennar, en eftirtalin fé-
lagasamtök skulu hvert um sig
tilnefna einn stjórnarmann: Al-
þýðusamband íslands, Félag ísl.
iðnrekenda, Iðnsveinaráð ASÍ,
Landssamband iðnaðarmanna,
Samband ísl. samvinnufélaga,
Verzlunarráð íslands og Vinnu-
veitendasamband íslands. Jafn-
margir varamenn skulu skipaðir
á sama hátt. — Iðnaðarmálaráð-
herra skipar formann stjórnar-
innar án tilnefningar; sömuleiðis
varaformann, er vera skal úr
hópi aðalstjórnarmanna.
Stjórnin ræður síðan fram-
kvæmdastjóra, sem annast skal
daglegan rekstur stofnunarinnar
ásamt starfsfólki, er hann sjálfur
ræður með samþykki stjómar og
ráðherra. Laun ákveður ráð-
herra að fengum tillögum stjórn
ar og framkvæmdastjóra.
Efli iðnað og auki framleiðni
Markmið Iðnaðarmálastofnun-
ar íslands er, samkvæmt frum-
varpinu, „að efla framfarir í iðn-
aði hér á landi og stuðla að auk-
inni framleiðni í íslenzku at-
vinnulífi. Skal stofnunin vera
Alþingi og ríkisstjórn til ráðu-
neytis í tæknilegum vandamál-
um, er iðnað varða. Hún skal
leitast við að efla samvinnu
framleiðenda, stofnana og félaga
samtaka til framfara í íslenzk-
um iðnaði og vörudreifingu og
hafa náið samstarf við þá aðila
um slík mál“. Þá skal stofnunin
„vera forustuaðili á íslandi í
öllu, er að stöðlun lýtur“.
Það er einnig tekið fram i
frumvarpinu, að stofnuninni
skuli „heimilt að taka að sér til-
tekin verkefni til fyrirgreiðslu
hagkvæmni í rekstri og aukinn-
ar framleiðni, fyrir hvern þann
aðila, er til hennar leitar, enda
komi fullt gjald fyrir“.
Þörf stofnun fyrir iðnað
Iandsmanna
I athugasemdum með frum-
varpinu er m. a. komizt svo að
orði um stofnunina:
„Um gildi og þörf stofnunar,
slíkrar sem Iðnaðarmálastofnun-
ar íslands, fyrir hinn unga og ört
vaxandi iðnað landsmanna, þárf
vart að fjölyrða. Um starfssvið
hennar kunna hins vegar að vera
skiptar skoðanir í einstökum at-
riðum, enda rétt sjónarmið, sem
frá upphafi hefur ríkt hjá stjórn
stofnunarinnár, að forðast beri
að fella verkefni hennar um of í
fastar skorður og sömuleiðis, að
verkefnaval miðist við allan iðn-
að landsmanna án takmarkana.
Þannig er ætlazt til að Iðnaðar-
málastofnunin geti einbeitt sér
að verulegu leyti að þeim verk-
efnum, sem hún álítur mesta
þörf fyrir að vinna á hverjum
tíma, án þess að starfskröftum
hennar sé til fulls ráðstafað fyr-
irfram í fastaverkefni".
Prentarar
Munið að næstk. laugardag
verður hin vinsæla Svartlist-
arskemmtun haldin í Fram-
sóknarhúsinu. -— Auk þesa
sem dansað verður til kl. 3,
— koma landfrægir lLsta-
menn þar fram og skemimU.