Morgunblaðið - 25.10.1960, Page 6

Morgunblaðið - 25.10.1960, Page 6
6 MORCVlSBLAÐItí ÞrHJjudagur 25. okt. 1960 „Prestasögur'7 Oscars Clausens í 2. útgáfu í>ér mun ekki þyngjast geð þó hann stytti daginn, því haustið flytur meyjar metf myrkrinu inn í bæinn. íslend- inga- heimili í Osló I FIMMTAN ÁR hefur frú Guðrún Brunborg unnið að iuknum menningartengslum Islands og Noregs. Með mikl- um dugnaði hefur hún stofn- að sjóð til minningar um son sinn Olav Brunborg, sem lét i lífið í þýzkum fangabúðum í / síðustu heimsstyrjöld. Eru tekjur sjóðsins notaðar til að styrkja íslenzkan stúdent til náms við Oslóarháskóla. Þá hefur frú Brunborg einnig stofnað sjóð til styrktar norsk um stúdentum á íslandi. Hún hefur fest kaup á 10 herbergj um I Stúdentabænum í Sogni, þar sem íslenzkir stúdentar geta búið meðan þeir eru við nám í Noregi. Samtals hefur frú Brunborg safnað í þessa stúdentahjálp verðmæti sem nemur 200— 250.00 norskum krónum. Studentsamskipnaden í Nor- egi hefur nú í þakklætisskyni við frú Brunborg kostað inn- réttingu á samkomuherbergi fyrir íslenzka stúdenta í Osló. og var herbergið afhent sl. miðvikudag. Meðfylgjandi mynd er tekin við afhendinguna. Þar eru frú Guðrún Brunborg (tii vinstri) Haraldur Guðmundsson sendi- herra íslands í Noregi (til hægri) ásamt þrem íslenzkum stúdentum sem nú eru við nám í Osló, en þau eru (talið frá vinstri) Guðrún Bieltvedt, /ens Tómasson og Sigriður Guðmundsdóttir. Regnhlítabúbin flutt að Laugav. II HIN þekkta verzlun „Regnhlífa- búðin“, sem lengi hefir verið til húsa á Laugavegi 19 fluttist ný- lega á Laugaveg 11. Þar sem búð in er nú til húsa, hafa menn löngum leitað annarra erinda en að kaupa regnhlíf handa kon- unni sinni — því að þar hefir Mortensen rakari stundað sína iðju um margra ára skeið. Sl. laugard. bauð frú Lára Sig- geirsdóttir blaðamönnum að skoða hina litlu og snyrtilegu verzlun sína á fyrrgreindum stað. — Auk þess sem þar eru seldar „heimatilbúnar“ regnhiíf. ar af hinum fjölbreytilegustu gerðum, eru þar fáanlegar hvers konar snyrtivörur, og plastvörur ýmiss konar. „Regnhlífabúðin“ er gamal- kunnugt fyrirtæki, sem fyrr segir, — hefir starfað nær ald- arfjórðung, eða 24 ár. KOMIN er út önnur útgáfa auk- in af „Prestasögum“ eftir Oscar Clausen x tveimur bindum. Sagna þættir Clausens af íslenzkum prestum hafa átt miklum vin- sældum að fagna ,en hafa verið ófáanlegir að undanförnu. Höf- undur rifjar þar upp sögu og örlög liðinna alda og lýsir sér- stæðum og ólíkum einstaklingum í sterku ljósi aldarfarsins. Oft skiptast á skin og skuggar í presta sögum hans, ýmsir sögumennirnir komast til frægðar, auðs og valda, en margir verða að una kröppum kjörum fátæktar og kúgaðrar alþýðu og ná aldrei þroska. í fyrra bindinu eru þættirnir þessir: Ásmundur prestur á Hvanneyri, Smávegis frá sér-a Birni í Sauðlauksdal, Séra Einar „prestlausi" í Grímstungu, Frá séra Einari á Stað, Séra Erlendur á Þæfusteini, Feðgarnir í Hjarð- arholti, Séra Guðmundur í Vatns firði, Frá séra Stefáni Hannes- syni á Valstrýtu, Þrír prestar undir Jökli, Frá séra Hallgrími Thorlacius, Séra Galdra-Mangi, Prestur í Hjarðarholti og sýslu- maður í Dalasýslu, Einkennilegur Grímseyajrprestur, Séra Jón I Stapatúni, Séra Sigurður gamli aðstoðarprestur á Staðastað, Álögin á Þorskafirði og drukkn- un séra Friðriks, Frá séra Tuma Aukin umferðarfrœðsla Áskorun bifreiðaeftirlitsmanna AÐALFUNDUR félags ísl. bif- reiðaeftirlitsmanna var haldinn í Reykjavík 15. og 16. október sl. Mættir voru á fundinum allflest- ir bifreiðaeftirlitsmenn landsins. Á fundinum voru rædd um- ferða- og öryggismál er varða störf bifreiðaeftirlitsmanna. Bjarni Kristjánsson, vélaverk fræðingur, flutti á fundinum fróð legt erindi um hemlabúnað vél- knúinna ökutækja og tæknileg- ar nýjunga í öryggis- og hemla- búnaði. Meðal ályktana, var samþykkt áskorun til Umferðarnefndar Reykjavíkur. þess eðlis, að auk- in yrði nú þegar fræðs'a fóiks í umferðamálum í blöðum, út- varpi og kvikmyndahúsum (í hléum) og með útgáfu vasabck- ar með leiðbeinxngum um um- ferðarmerki og umíerðarreg:- um. Fundurinn skorar á ökumenn og almenning, vegna hinna tíðu og ajvarlegu umferðarslysa, að gjöra sitt ýtrasta til að sporna við svo óhugnanlegu ástandi. Stjórn félagsins var endur- kosin, hana skipa: Formaður Gestur Ólafsson, ritari Pálmi Friðriksson, gjaldkeri Sverrir Samúelsson og meðstjórnendur, Bergur Arnbjörnsson, Akranesi og Svarar Jóhannsson, Akureyri. .Oscar Clausen í Flatey, Riddarinn í Hvammj og skáldið á Laugum, Tveir Helga- fellsprestar, Séra Ögmundur „Is- landtröll“, Smásögur af ýmsum prestum, Frá Grímseyjarprestum og Tveir Reykjadalsprestar á 18. öld. í síðara bindinu eru þessir þættir: Frá séra Hjálmari á Hali- ormsstað og séra Guðmundi föður hans, Ömurleg örlög tveggja Helgafellspresta, Séra Mála- Ölafur, deilugjarn guðsmaður, Guðsmaður, lagarefur og prang- ari, Gífuryrtur og óstýrilátur guðsþjónn, Prestur í flóknu barna faðernismáli, Séra Jón „dettir", Bardagamaður og guðsþjónn, séra Eiríkur úr Mörk, Harðleik- inn ístrubelgur, Klerkurinn með kollhettuna, ötull sjómaður gerist prestur, Guðsþjóni misþyrmt, Bróðir fógetans, Maddama Galdra-Manga, Tveir mikilsvirt- ir prélátar Strandamanna, Ein- faldur klerkur, ea örlátur, Galdra-klerkurinn á Felli, „Fá- tæktin var mín fylgikona", Feðg- arnir, sem voru ráðsmenn Hóla- stóls fyrir 600 árum, Séra Hannes ,illi“ á Staðarbakka, Mikill bóndi, en minni guðsmaður, „Öreiga guðsmaður flýr „úr Fjörðum“ og Prestur og grenja- skytta. ísafoldarprentsmiðja gefur bæk urnar út. ♦ Ógætilegur akstur Slysaaldan á þessu hausti hefur mikið verið rædd að undanförnu. Er ekki nema gott um það að segja er menn hugleiða slysin og orsakir þeirra, væntanlega með það í huga hvernig frekari slysum verður afstýrt. Skyldi maður ætla, að slysafráásagnir blað anna yrðu til þess, að bílstjór- ar ækju varlegar en áður og hver um sig hefði í huga, að ekki yrði hans sök ef illa tæk- ist til. Á sunnudaginn var Velvak andi á ferð með strætisvagni sem ók inn Suðurlandsbraut. Skyndilega hemlaði bílstjór- inn og staðnæmdist vagninn svo snöggt, að farþegarnir hentust til í sætum sínum og ungur drengur, sem sat hjá föður sínum rétt aftan við miðju vagnsins, hrökk fram úr sætinu, rann fram eftirgólf inu og hvarf undir næsta sæti. Sem betur fór slasaðist dreng urinn ekki svo að séð yrði, en faðir hans ætlaði að láta lækni líta á hann. Orsök þess, að bílstjcrinn hemlaði svo snöggt var sú, að vörubíll beygði skyndilega í veg fyrir strætisvagninn og munaði ekki nema hársbreidd að bílarnir rækjust saman þrátt fyrir skjót viðbrögð strætisvagnabíls-,jóráns. „Var ekki stefnuljósið á að aftan?“ spurði bílstjórinn þegar stræt isvagnstjórinn kom út txi að tala við hann. „Nei, það var ekkert stefnuljós aftan á bíln- um hjá þér“, svaraði hinn. ♦ Lán að ekki fór ver Eins og áður segir, tókst svo lánlega til, að ekkert slys varð þegar strætisvagninn sncgg- hemlaði. En það var hrein heppni, að svo vel tókst til og hefði litli drengurinn "ekir.t á járnfætur sætisins í stað þess að renna á milli þeirra gat hann stórslasazt. I þessu tilfelli var orsökin sú, að vöru bílstjórinn ók í veg fyrir strætisvagninn án þess að gefa út stefnuljós, eða þá að þau hafa verið biluð án þess hann vissi af því. Sýnir þetta litla dæmi hve margs þarf að gæta í umferðinni og á hve miklu veltur að hver einasti maður, sem hreyfir bíl, sýni fyllstu aðgæzlu og tryggi jafn an að farartækið sé í góðu lagi. • Skammdegi og ]mnglyndi FERDIIM AIMÍt ☆ Skammdegið verður jafnan áþreifanlegra með hverjum deginum sem líður og þegar klukkunni hefur verið seink- að þeir verða þunglyndir 1 ið komið fyrir alvöru. Marg- ir menn eru þannig gerðir, að þeor verða þunglyndir I skammdeginu og meðan ljósa kostur þjóðarinnar var af skornum skammti gekk þetta þunglyndi svo langt hjá sum- um, að þeir voru vart hei’ir á geðsmunum yfir myrkustu vetrarmánuðina. Svo bráði af þeim aftur með hækkandi sól. Rafmagnsljós úti og inni gera a. m. k. borgarbúum skamm- degið bærilegt, en þó er eins og einhver kvíði læsi sig um sálina hjá mörgum mannin- um þegar skammdegisnóttin leggst af þunga yfir landið. Aðrir fagna skammdeginu og sjá aðeins hinar jákvæðu hliðar þess eins og þessi gamia staka ber með sér: \ w/\

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.