Morgunblaðið - 25.10.1960, Side 24
ívar Guðmundsson
Sjá bls. 3.
íþróttir
Sjá bls. 22.
77 unglingar teknir
fyrir 35 innbrot
KEFLAVÍK, 24. okt. — Lögreg’—
an í Keflavík hefur handtekið
11 unglinga, sem uppvísir eru
orðnir að 35 innbrotum, stórum
og smáum á árinu, sem er að
líða og fyrra ári. eru þetta
drengir á aldrinum 14 eða 15
ára og upp undir tvítugt, frá
Keflavík, Hafnarfirði og Reykja
vík.
Tvö innbrot voru framin í
Keflavík fyrir helgina og leiddu
þau til handtöku drengjanna, en
einhverjir af þeim eru gamlk
kunningjar lögreglunnar. Á
fimmtudag var brotizt inn í
Kaupfélagið og stolið miklu
magni af sígarettum, einhverju
af úrum og fatnaði o. fl. Á laug-
ardag var svo brotizt inn í hrað-
Fárveikur maður
sóttur tíl Grænlands
Dr. Snorri Hallgrímsson fór me5
Birni Pálssyni í erfitt sjúkraflug
SLÖKKVILIÐIÐ er þarna að I
storfum við að slökkva eld í l
skipi. Þetta er í þriðja skiptið, /
sem kviknar í því og ekki mik
ið 'éftir sem getur brunnið. í>ó
er tjónið ltið. Þetta er upp-
gjafaskipið íslendingur, sem
liggur í Kleppsvíkinni. Það er
hægt að komast þurrum fót-
um út í það á fjöru og þá
þykir krökkunum gaman að
leika sér þar. Það eru sjálf-
sagt þau sem völd eru að i-
kveikjunni og því að bruna-
liðið verður að leggja á sig
erfiði og eyða peningum í að
ráða niðurlögum eldsins.
Myndina tók Sveinn Þor-
móðsson um kl. hálf fimm í
• gær.
Söngsljórinn
heiðursborgori
í Winnipeg
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
?,ndi skeyti frá fréttaritara sinum
á ferðalagi með Karlakór Reykja
víkur um Norður-Ameriku. Er
það dagsett sl. laugardag.
I gær sátum við hádegisverðar-
boð borgarstjóra Winnipegborg-
ar. Og í gærkvöldi söng kórinn
fyrir 4000 manns. Borgarstjóri
hélt ræðu í hléi og gerði Sigurð
Þórðarson, söngstjóra, heiðurs-
borgara í Winnipeg. Ein,nig af-
henti hann Gísla Guðmundssyni,
fararstjóra, heiðursmerki.
í dag sátum við hádegisverð-
arboð Þjóðræknisfélagsins. Var
söngstjóra veitt æðsta heiðurs-
merki Manitobafylkis.
t kvöld sy,ngjum við aftur í
Winnipeg, en á morgun í Arborg
og Gimli. — Ragnar.
KLUKKAN laust fyrir hálf-
tíu í gærkvöldi lenti hin tví-
hreyfla sjúkraflugvél Björns
Pálssonar hér á Reykjavíkur-
flugvelli, eftir velheppnað
sjúkraflug til veðurathugun-
arstöðvarinnar Daneborg. —
Þangað var sóttur danskur
maður með blæðandi maga-
sár. —
Upphaflega fór amerísk her-
flugvél í þetta flug á sunnudag-
inn en varð frá að snúa, þar eð
ekki var talið á það treystandi
að hún gæti lent þarna norður-
frá, en Daneborg er um 200 km
fyrir norðan Meistaravík eða
norður undir 75. breiddarbaug.
Danska sendiráðið fékk Björn
Pálsson flugmann til þess að
reyna að komast á flugvél sinni.
Lögðu Björn og aðstoðarflugmað
ur hans Kristján Gunnlaugsson
upp um klukkan 11 í gærmorg-
un. Þar sem sjúki maðurinn var
talinn ákaflega illa haldinn, var
próf,- Snorri Hallgrímsson yfir-
læknir fenginn til að fara með
flugvélinni. Hafði hann m.a. með
ferðis allmikið magn af blóði.
Leit að flugvellinum
Staður sá er okkur var gefinn
upp og við skyldum lenda á,
reyndist þegar til kom,
yfirgefinn sagði Björn Pálsson.
Veiðimannahúsin stóðu tóm, en
við þau voru 12 moskusnaut.
Síðan hófst leitin að „flugvell-
inum“. — Eftir klukkustundar
leit úr lofti, flugum við inn yfir
sjálfa veðurathugunarstöðina í
Daneborg og þar sáum við að af-
mörkuð var flugbraut í hið
þrönga undirlendi. Þar lentum
við heilu og höldnu, rétt áður
en myrkrið skall á. Það mátti
ekki öllu tæpara standa.
Sjúklingurinn Svend Petersen
beið okkar klæddur og ferðbú-
inn. Eftir skamma viðdvöl var
lagt af stað til Reykjavíkur og
höfðum við viðkomu í Meistara-
vík, til að taka benzín. Þar var
bezta veður og 15 stiga frost.
Þetta var í stuttu máli frásögn
Björns Pálssonar flugmanns, sem
svo bætti því við að ástæðan til
þess að þeir hefðu þurft að eyða
klukkustundarflugi í að leita að
flugvellinum, hefði verið sú að
staðarákvörðunin var röng, sem
símsend var frá Grænlandi.
Blæðandi magasár í 10 daga
Próf. Snorri var hinn hressi-
legasti er hann steig út úr flug-
vélinni og heilsaði Ege sendi-
róðsritara við danska sendiráð-
ið. Sagði yfirlæknirinn að leitin
hefði verið þess virði úr því að
þeir sáu moskunautin hjá veiði-
mannakofunum. Yfirlæknirinn
sagði að í veðurathugunarstöð-
inni væri enginn læknir, og hinn
sjúki væri búinn að vera með
blæðandi magasár í 10 daga sam-
fleytt. Sjúklingurinn var að von-
um grár og gugginn, er hann
lagðist í sjúkrakörfuna fyrir ut-
an flugvélina, en síðan var hann
settur í sjúkrabíl, sem að lítilli
stundu liðinni var kominn upp
að Landsspítala.
Langjökull tefst
í Crimsby
Fjölmennur fundur um
landhelgina á ísafirði
Bjarni Benediktsson hélt framsöguræðu
BenecLktsson, dómsmálaráðherra’
kom hingað til ísafjarðar í gær
og flutti ræðu um landhelgis-
málið á fjölmennum fundi Sjálf-
stæðismanna hér í bæ.
Matthías Bjarnason bæjarfull.
trúi setti fundinn og bauð fund-
arfólk veikomið. Fundarstjóri
var Guðfinnur Magnússon, og
Jón Páll Halldórsson fundarrit-
ari.
Þvínæst flutti dómsmálaráð-
herra ræðu sína. Hann ræddi af
festu og réttsýni þetta mikla
hagsmunamál íslendinga og um
leiðir, er leitt gætu til farsællar
lausnar í framtíðinni fyrir þjóð-
ina. Var ræðu hans mjög vel
fagnað. Er hann hafði lokið máli
sinu tóku nokkrir til máls. Lýstu
þeir yfir fullu trausti á aðgerð-
ir ríkisstjórnarinnar í þessu
máli og því að viðræðurnar við
Breta yrðu til þess að máiið
leystist til hags fyrir land og
þjóð.
Húsið var fullskipað og áheyr-
endum bæði héðan úr bæ og úr
nærliggjandi sveitum og kaup-
túnum. — G. K.
LANGJÖKULL er í Grimsby og
var ráðgert að hann losaði þar i
dag á sjötta hundrað tonn af
hraðfrystum fiski. Málsvari yfir-
manna á togurum í Grimsby lýsti
yfir megnri vanþóknun á þessum
fiskinnflutningi íslendinga, taldi
Aðoliundui
Heimdollor
AÐALFUNDUR Heimdallar F.
U.S. verður haldinn í Sjálfstæð-
ishúsinu á miðvikiudagskvöld kl.
20.30. Á dagskrá verða venju-
leg aðalfundarstörf. Tiilögur upp
stillingarnefndar um stjórn fél-
agsins fyrir næsta kjörtímabil
eru til sýnis í skrifstofu félags-
ins dag hvern kl. 15—19.
sama máli gegna með togara og
flutningaskip.
Ekkert var svo unnið við Lang
jökul í gær. Ekki munu togara-
menn þó hafa komið í veg fyrir
uppskipun, heldur mun skortur
á verkamönnum hafa valdið töf-
inni. Ef allt gengur eðlilega tek-
ur ekki nema tvo daga að losa
farminn og stóðu vonir til að
hægt yrði að byrja í dag. Lang-
jökull er m. a. með 100 tonn af
flatfiski, þar af er töluvert af
heilfrystum kola.
Jökulfell hefur einnig tafizt í
Bretlandi. Það hefur legið í Hull
í átta daga og beðið þess, að
hægt yjtði að skipa upp 300
tonnum. Ástæðan er sú, að und-
anfarið hefur staðið verkfall hafn
arverkamanna í London og þar
af leiðandi hefur fjöl^a skipa
verið stefnt til annarra hafna, m.
a. við Humberfljót — og hafa
verkamenn ekki haft undan.
frystihúsið Jökul og stolið 700Ö
krónum í peningum.
Á laugardag voru þrír pilt-
anna fluttir inn til Reykjavíkur
í gæzlu, þar sem lögreglan í
Keflavík hefur ekki rúm fyrir
nema átta. Hafa yfirheyrzlur
staðið yfir síðan á laugardag
með fyrrgreindum árangri, og
eru sumir piltanna enn í gæzru.
Rarmsókn olíu-
málsins að ljúka
RANNSÓKN olíumálsins svo-
kallaða fer nú senn að ljúka og
verða niðurstöður af rannsókn
málsins og öll gögn væntanlega
send ákæruvaldinu í næsta mán-
uði, að því er Guðmundur Ingvi
Sigurðsson tjáði blaðinu í gær.
Fer málið til dómsmálaráðu-
neytisins og einnig utanríkis-
ráðuneytisins þar sem það hef-
ur dómsvald á Keflavíkurflug-
velli, og málið byrjaði þar.
Vikurkaupmenn
í heimsókn
ÞJÓÐVERJINN Karl Luder frá
Kiel, sá sem ætlar að vinna vik-
urgjall í hrauninu við Hafnar-
fjörð og flytja það út, kom til
landsins sl. sunnudag ásamt 7
Þjóðverjum öðrum.
Með Lúder voru að þessu
sinni fonistumenn frá samvinnu
byggingarfélaginu Neues Heim-
at, og munu þeir ætla að kaupa
vikurinn af honum í byggingar.
Var ferðin hingað farin til að
sýna þessum mönnum hráefnið
í hrauninu.
Þjóðverjarnir fóru utan í
morgun.
Þór lóðaöi
á mikla
síld
t FYRRAKVÖLD varð varð-
skipið Þór vart við mjög stór-
ar síldartorfur á Selvogs-
banka, allt frá Selvogsvita og
langleiðina að Þrídröngum.
Voru torfurnar allt að ein sjó-
míla á lengd og á 25—45 m
dýpi. Var þetta tilkynnt Vest-
man,naeyjabátum.
Blaðið spurðist fyrir um
það í Vestmannaeyjum, hvort
nokkrir bátar hefðu farið á
staðinn, en svo mun ekki hafa
verið. Aðeins einn Vestman,na
eyjabátur er kominn með rek-
net á síld í Faxaflóa. Aðrir
eru að búa sig undir að halda
af stað.
Síðan um helgi hafa Akra-
nesbátar fengið um 1000 tun,n-
ur 832 tunnur á sunnudag og
um 200 tunnur i gær. Afla-
hæsti báturinn á sun^nudag
var Höfrungur II með 435
tunnur. Flestir Akranesbátar
veiddu síldina 45—50 mílur
frá Garðskaga.
9 reknetabátar komu til |
Sandgerðis í gær með samtals (
304 tunnur sildar. Mu,ninn
var hæstur með 93 .annur, Sig I
urvon 60 og Mumm 46.