Morgunblaðið - 09.11.1960, Side 1

Morgunblaðið - 09.11.1960, Side 1
 20 síður 47i árgangur ' 257. tbl. — Miðvikudagur 9. »i.ávember 1960 Prentsmiðja Morgunblaðsins -X" Algjör óvissa Washington og New Yoric, 8. nóv. — (NTB-Reuter) í D A G fara fram forseta- kosningar í Bandaríkjunum. Sérfræðingar eru sammála um að kosningaþátttaka verði meiri en nokkurntíma fyrr, og telja að um 70 millj. af 83 millj. skráðra kjósenda greiði atkvæði. En það er það eina, sem sérfræðingarn- ir eru sammála um. — Sið- asta skoðahakönnun benti til þess að Kennedy hefði enn nauman meirihluta, en báðir aðilar töldu í kvöld að þessi mikla þátttaka yrði þeim i hag. — Helmingslíkur Nixon varaforseti sagði í dag við blaðamenn að hann teidi að keppnin yrði mjög jöfn. Hann hefði góðar vonir um að loka- sprettur Republikana hefði auk- ið fylgi flokksins meðal kjós- enda. Hann neitaði að segja um úrsíitin, en sagði að Rockefeller, ríkisstjóri í New York, hefði tii- kynnt sér að Republikanar hefðu helmingslíkur til að sigra þar, en New York hefur verið talin meðal þeirra ríkja þar í bið- röðum New York, 8. nóv. Einkaskeyti frá Sigurði Bjarnasyni. ÞEGAR kjörstaðir opnuðu hér í morgun kl. sex, var veður kalt en bjart. Þegar á morg- uninn leið hlýnaði nokkuð og sól tók að skína. Sæmilegt veður er um land allt, þótt sumsstaðar sé nokkur úr- koma.. Hundruð manna biðu í bið- röðum þegar kjörstaðir voru opnaðir, og er gert ráð fyrir mikilli kjörsókn. Sjónvarp og útvarp hvetja kjósendur mjög til að greiða atkvæði. Fyrstu kosningaúrslitin 1 komu frá New Hampshire, þar sem kjörstaðir voru opn- aðir upp “ir miðnætti. I nokkr um smáþorpum þar fékk Nix- on 49 atkvæði en Kennedy 9. Nixon greiddi atkvæði í heimaborg sinni, Wittier í Kaliforníu, en Kennedy í Boston. Eisenhower forseti varð að bíða í fimm mínútur eftir að komast að vegna fjöl- mennis á kjörstað. Hann dvel- ur í dag á sveitasetri sínu í Gettysburg. sem Kennedy er öruggur um sigur. Ber ekki saman Kosnir eru 537 kjörmenn, og þarf annarhvor frambjóðenda stuðning 269 kjörmanna til að ná kosningu. Ekki ber öllum skoðanakönn- unum saman um úrslitin. Roper-könnunin spáir Nixon 49% atkvæða og Kennedy 47%, en 4% séu óráðin. Gallup spáir Kennedy 49% og Nixon 48%, en 3%óráðin. New York Times telur að Kennedy hafi trygga 244 kjör- menn og Nixon 109, en 184 séu óvissir. New York Daily News spáir Frá liátíðahöldunum á Rauðatorginu í Moskvu á mánudag. Kennedy 415 kjörmönnum og Nixon 122. Newsweek: Kennedy 278 kjör- menn, Nixon 159, 100 óvissir. Samtök bandarískra ritstjóra: Nixon 314, Kennedy 219. Réttarhöld í París Úrslit síðan 1940 Niðurstöður forsetakosninga í Bandaríkjunum frá 1940: PARÍS 8. nóv. (Reuter) — Réttarhöld fóru fram í dag i máli 19 Frakka, sem ákærðir eru fyrir að hafa átt þátt í að skipuleggja uppreisn innllytj. enda í Alsír gegn frönsku stjórn inni í janúar sl. Mikið uppnám varð í réttarsalnum þegar verj- andinn krafðist þess að de Gaulle forseti lýsti opinberlega yfir stefnu sinni í Alsírmálinu. Verjandinn, Jacques Isorni, kom uppnáminu af stað er hann tilkynnti saksóknaranum: „Þið getið ekki krafizt þess að mönn- um þeim, er hér eru fyrir rétti, verði refsað, ef það er ætlun ríkisstjórnarinnar að afneita yfirráðum Frakka í Alsir.* LÖGLEYSA Isorni viðhafði þessi orð í framhaldi af yfirheyrmun sak- sóknarans á Jean Marie Dem- arquet, fyrrverandi þiigmanni hægrisinna. Las Isorni kafla úr bréfi Rene Coty, fyrrverandi forseta, þar sem hann lofar Demarquet fyrir að gerasi sjálf- boðaliði í Alsír meðan hann átti enn sæti á þingi. Þá las hann einnig yfirlýs- ingu, sem Michel Debre gaf meðan hann var forsætisráð- herra, en þar segir m. a.: „Látið Alsirbúa vita það að það væri lögleysa að afneita frönskum yfirráðum í Alsír.“ 1940 F. D. Roosevelt (Dem.) 449 kjörmenn 27.244.160 atkvæði W. Wilkie (Rep.) 32 — 22.305.198 — 1944 F. D. Roosevelt 432 — 25.602.504 — T. Dewey (Rep.) 99 — 22.006.285 — 1948 H. S. Truman (Dem.) 303 — 24.105.695 — T. Dewey 189 — 21.969.170 — J. Thurmond (Ríkisr.) 39 — 1.169.021 — 1952 D. Eisenhower (Rep.) 442 — 33.824.351 A. SteVenson (Dem.) 89 — 27.314.987 — 1956 D. Eisenhower 457 — 35.581.003 — A. Stevenson 73 — 25.738.765 — Samráð haff, ef unnt er LONDON 8. nóv. (NTB-Reuter) — Harold Macmillan forsætis. ráðherra Breta lýsti því yfir í neðri málstofu hrezka þingsiris í dag að Bretar fengju á hættu- tímum sömu eftirlitsaðstöðu varðandi bandaríska Polarisltaf. L.iia í Skotlandi og þeir hafa við flug og eldflaugastöðvar Bandaríkjanna í Bretlandi. GÆTI REYNZT ERFIIT Macmillan sagði að þótt Bandaríkin mundu hvergi grípa til Pólaris eldflauga án fyllsta samráðs við Breta og aðra bandamenn sína, gæti reynzt erfitt að hafa slíkt samráð ef árás yrði gerð íyrirvaralaust á Vesturveldin. ,,Við mundum heldur ekki krefjast þess að ráðgazt yrði við okkur undir þeim kringumstæðum", sagði Macmillan, „Því það er fullviss- an um gagnárás sem hindrar að árás verði gerð.“ Þá benti Macmillan á að það gegndi að vísu nokkru öðru máli með kafbátana en flugvél- arnar, því kafbátarnir hefðu að- eins stutta viðdvöl í Brettandi, mestan tímann væru þeir á höf- um úti. V-stjórnin stóð í samning- um um landhelgina Baud veiðar milli 6 og 12 mílna um takmarkaðan tima GUÐMUNDUR I Guð- mundsson, utanríkisráð- herra, gaf hinar athyglis- verðustu yfirlýsingar á Alþingi í gær. Hann lýsti því yfir, að vinstri stjórn- in hefði staðið í stöðugum samningum við ríki Atl- antshafsbandalagsins um fiskveiðilandhelgina frá því í maí og fram í ágúst- lok 1958. Las hann m. a. tilboð, sem stjórnin sendi bandalaginu, þar sem er- lendum togurum voru boðnar veiðar á svæðinu milli 6 og 12 mílna um takmarkað árabil, ef fall- izt yrði á 12 mílna út- færsluna. Þá rakti ráðherra afstöðu sjáv- arútvegsmálaráðherra vinstri stjórnarinnar til útfærslu fiskveiðiland- helginnar er málið var tekið á dagskrá innan stjórnarinnar haustið 1957. Lúðvík Jósefsson taldi þá óráðlegt, að færa landhelgina lengra en í fjórar mílur, en lagði til að þrjú svæði þar fyrir utan yrðu friðuð. Fara hér á eftir stuttir kaflar úr ræðu utanríkisráð- herra: Ekki eingöngu viðræður „En meðferð málsins innan Atl- antshafsbandalagsins sumarið 1958 voru «kki eingöngu viðræð- ur, heldur •xiiklu meira. Það fóru tillögur s nilli ríkisstjórnar ís- lands og A.tlantshafsbandalags- ins um lausn á þessu vandamáli. Ég minntt á það í minni fyrri ræðu, að íkisstjórn íslands hafi í maímánuði sent tilboð til Atl- antshafshandalagsins um lausn á ágreinlngnum út af fiskveiði- lögsögunni. Að þessu tilboði stóð Framsóltnarflokkurinn og Al- Framh. á b's 8

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.