Morgunblaðið - 09.11.1960, Síða 3
Miðvik'udagur 9. nóv. 1960
MORGUNBLAÐ1Ð
3
STAKSTIINAR
NÝLEGA var hafizt handa
um að stækka löndunar- og
viðlegupláss báta í Vest-
mannaeyjahöfn. Höfnin er
stolt Vestmanneyinga og hlið
ið að lífsmöguleikum þeirra.
Hún er talin góð og mjög ör-
ugg, en undanfarin ár hefur
hún verið of hlaðin bátum,
bæði vegna þess að þeim fjölg
ar og vegna þess að þeir hafa
stækkað. í>ótt hún hafi verið
stækkuð allverulega undan-
farin ár, hefur það ekki
reynzt nægilegt. Skammt er
síðan Nausthamai'sbryggja
var byggð og var það þá trú
xnargra, að framkvæmdum
við höfnina væri að fullu ^k-
ið og þar yrði staðar numið,
en það hefur reynzt skamm-
sýni. Stækkunin, sem nú er
hafin, nemur hvorki meira né
minna en 630 metrum. Hin
nýja bátakví verður í beinu
framhaldi af Friðarhöfn, og
er þegar byrjað að grafa upp
sandinn og ramma niður járn
þil.
Þetta er svipur hafnarinnar í Vestmannaeyjum í dag, en með hverjum mánuðinum sem líður
mun hún breyta allverulega um svip, og vonandi mun þessi svipur heyra til liðnum tíma, eftir
eitt til tvör ár. (Ljósm.: S'.gg. Jónss.
Vestmannaeyinga
Verkinu stjórnar hinn öt-
uli hafnarvörður Vestmanna-
eyinga, Bergsteinn Jónsson,
en hann hefur verið verk-
stjóri við allar framkvæmdir
við höfnina undanfarin ár og
farizt vel úr hendi. Þegar þess
um nýju framkvæmdum er
lokið, má gera ráð fyrir að
búið sé að byggja fram í tím-
ann, Reynist þessi stækkun
ekki nægileg, hlýtur ací koma
að því að fiskimiðin verði
einnig of lítil og þoli ekki
Vestmannaeyjahöfn á dögum Þórs — 1919.
Kína viðurkennir for-
usiu Sovjetríkjanna
MAO TSE TUNG, leiðtogi kín-
verskra kommúnista, ri'.aöi Krús
jfcff forsætisráðherra bréf i tii-
efni 43 ára afmælis byltingar.
innar í Rússlandi þar sem hann
viðurkennir forustu Rússa í her.
búðum kommúnista. Rendir bréf
ið til þess að nú dragi til sam-
komulags í skoðanadeilum Iand-
anna.
í bréfinu er einnig lögð á-
herzla á einingu kommúnista.
landanna tveggja og aðstoð
Rússa við Kína lofuð.
— Kínverska þjóðin tnun
halda áfram að berjast við hJið
sovézku þjóðarinnar fyrir upp-
byggingu sósialismans og gegn
távásum heimsvaldastefnunnar
segir Mao.
— Ekkert afl fær grafið und-
an órjúfandi vináttu og sam-
heldni Kína og Sovétríkjanna.
í Vestur-Evrópu er talið að
bréfið bendi til að birt verði
yfirlýsing á leiðtogafundi komm.
únistaríkjanna, sem hefst í vik-
unni, um að skoðanamunur land
anna sé nú úr sogunni.
Friðbjörn til USA
Kaupmannahöfn, 8. nóv.
Eínkaskeyti til Mbl.
frá Páli Jónssyni.
BALLETTDANSARINN Frið-
björn Björnsson fer eftir ára-
mótin í þriggja mánaða náms-
ferð til Bandaríkjanna í boði
Institude of International Edu-
cation, en ferða- og uppihalds-
kostnað greiðir Ford-stofnunin.
I.I.E. gefur ungu hæfileika-
fólki tækifæri til að æfa með
stalisystkinum sínum og njóta
leiðbeininga þekktustu dansara
Bandaríkjanna.
I.I.E. valdi aðeins þrjá dans-
ara úr fjöldamörgum, sem til
greina komu. Auk Friðbjarnar
urðu Breti og Argentínubúi fyr-
ir valinu.
Her er veria ao reka jarnþilið fynr hma nyju bátakví
niður. Margir fylgjast með verkinu af miklum áhuga,
enda öllum viðkomandi.
og hreini vilji“
Ilér í blaðinu var fyrtf
skömmu á það minnst að íslenzk
ir kommúnistar hefðu nú gert
meginvígorð stormsveita þýzku
nazistanna að sinu, en það hljóð-
aði á þessa leið:
„Yfirráðin yfir götunni eru
lykillinn að völdium i ríkinu<‘.
En ekki er þetta eina dæmið
um, að kómmúnistar taki sér í
mun slagorð nazistanna, enda
sannast oft hið fornkveðna, að
„tungunni er tamast það, sem
hjartanu er kærast“. í Þjóðviljan
um í gær birtist ritstjórnargrein,
sem endar á þessum orðum:
„En hin sterki og hreini vilji
islenzku þjóðarinnar ætti að
nægja til að afstýra ólánsverk-
um, endasi til sigurs“.
Menn minnast þess, hve naz-
istadrengirnir í gamla daga
höfðu „hreinar hugsanir" og nú
eru kommarnir okkar, sem að
gömlum sið kalla sig þjóðina,
komnir með „hreinan vilja“.
Þvi má skjóta inn i til gamans,
að hreinan vilja og hugsun er
vel hægt að öðlast með hagnýt-
ingm einnar af hinum þekktu
uppgötvunum austan járntjalds,
sem nefnd er heilaþvottnir. Þann
hreinleika virðast íslenzkir
kommúnistar margir hverjir
hafa öðlazt. Dæmi: Forsíðufyrir-
sögnin í Þjóðviljanum í gær
hljóðaði svo:
„Sovétríkin — traustasti vörð-
ur frjðar í heiminum“v
Barðir til ásta
Svo bar við fyrir nokkrum dög
um, að Tíminn tók að skrifa skyn
samlega um kommúnisma og birt
ust slíkar greinar í blaðinu eina
3 eða 4 daga. Skyldu menn ekki
' hvað olli, en Hermann og Ey-
1 steinn munu nú hafa komizt fyr-
ir „ósómann". í gær mun endan-
lega hafa verið gert út um þessa
tilraun Tímans til „auðvalds-
i þjónkunnar“ og Þjóðviljinn feng
inn til að berja blaðið til ásta.
Þjóðviljinn segir þannig í gær:
„Svo virðist sem dagblaðið
Timinn hafi að undanförnu reynt
að vinna sig í áliti hjá einhverj-
um annarlegum húsbændum“.
En Tíminn sjálfur þenur yfir
forsíðuna hugleiðingar, sem fyrir
viku siðan birtust í 2ja dálka
smáklausu i Þjóðviljanium. Þanh
ig er allt aftur orðið slétt og
fellt.
Ekki allar ferðir til fjár
Eins og Morgunblaðið skýrði
frá í gær, úrskurðaði kommún-
istameirihluti i miðstjórn Alþýðu
sambands íslands, að aðalfundur
í verkalýðsfélaginu Afturelding
á Hellissandi hefði verið ólög-
legur. Sl. sunnudag var fundur-
inn svo endurtekinn og átti nú
heldur betur að tryggja komm-
únistum stjórn félagsins og full-
trúa á Alþýðusambandsþing. En
verkalýðurinn á Hellissandi
sendi kommúnistum kærar kveðj
ur, kaus sér góða stjórn og sendi
lýðræðissinna á Alþýðusambands
þing. Fyrrverandi formaður
kommúnista í félaginu fékk að-
eins 4 atkvæði meðan lýðræðis-
sinnar fengu nærri 50.
Rækilega átti þó að vera búið
um alla hnúta, því að Hannibai
bílasali sendi erindreka sinn til
Sands .Var sá auðvitað ekki fél-
agsmaður í Aftureldingu, en
engu að síður var hann gerður
fundarstjóri á hinum sögulega
fundi. Þegar fundarmenn mót-
mæltu þessu .sagðist sendimað-
I urinn hafa skeyti upp á það frá
I tigninní sjálfri, og ætti hann að
sjá um, að allt færi löglega fram!
„Hinn stcrki