Morgunblaðið - 09.12.1960, Síða 1
24 síður
47 árgangur
283. tbl. — Föstudagur 9. desember 1960
Prentsmiðia Morgunblaðsins
varúö-
arráðstafanir
vegna komu de Gaulle fið Alsír
Öfgamenn hvetja til allsherjarverkfalls
París og Alsír, 8. des.
•—■ (Reuter-NTB) —
Á RÁÐUNEYTISFUNDI,
sem haldinn var undir stjórn
de Gaulle í dag, var ákveðið
endanlega, að atkvæða-
greiðsla um stefnu hans í
Álsírmálinu fari fram 8. jan.
nk. De Gaulle leggur af stað
til Alsír snemma í fyrramál-
ið, en þar hafa verið gerðar
miklar varúðarráðstafanir
vegna komu hans. Engu að
síður óttast menn mjög, að
öfgafullir hægrisinnar kunni
að beita ofbeldi í einhverri
mynd, jafnvel reyni að ráða
forsetann af dögum. — Hafa
margir ráðlagt de Gaulle að
fresta förinni, en hann
hyggst halda fast við áætl-
anir sínar.
Ráðuneytisfundurinn, sem stóð
1 þrjár klukkustundir, hófst
skömmu eftir að umræðum lauk
í franska þinginu um stefnu de
Gaulle. Stóðu þær umræður í
alla nótt og urðu mjög heitar.
Varð tvisvar að fresta fundi um
smástund er mönnum hitnaði
um of í hamsi.
í fyrra skiptið var fundi
frestað, er einn af hægrimönn-
um lét svo um mælt, að de
Gaulle væri orðinn gamall og
lúinn maður. 1 síðara skiptið
sagði annar hægrisinni, að sér
virtist andi Pierre Lavals svífa
yfir þingbekkjum. Ollu þau um-
mæli miklu róti, en Pierre
Laval var sem kunnugt er, ráð-
herra í síðari heimsstyrjöldinni
og tekinn af lífi vegna sam-
vinnu við Þjóðverja, skömmu
eftir að styrjöldinni lauk.
Hvatt til allsherjarverkfalls
De Gaulle leggur af stað til
Alsír snemma í fyrramálið. —
Tvær þotur eru tilbúnar til
ferðarinnar, en ekki verður
ákveðið fyrr en á síðustu stundu
með hvorri forsetinn fer.
Gífurlegar öryggisráðstafanir
hafa verið gerðar í Alsírborg,
16 þúsund manna lögreglulið
kvatt út, ströng ritskoðun við-
Framh. á bls. 2
Árás yfirvofandi
úr tveim áttum
Vientiane, Laos, 8. des.
— (Reuter) —•
SENN virðist draga til tíð-
inda í Laos. — Pathet Lao-
kommúnistar og hermenn
Phoumi Nosavan sækja að
höfuðborginni, Vientiane —
hvorir úr sinni áttinni og má
búast við árás þeirra í nótt.
Að vísu segir Souvanna Pho-
uma, forsætisráðherra, að
Stevenson aðalfulltrúi
Bandaríkjanna hjá Sþ.
— Washington, 8. des.
JOHN F. Kennedy, kjörinn for-
seti Bandaríkjanna hefur boðið
Adlai Stevenson stöðu fastafull-
Adlaf Stevenson
trúa Bandarikjanna hjá Sameln
uðu Þjóðunum. Það starf metur
Kennedy mcðal hinna mikilvæg-
ustu í stjórn sinni og fyllilega
til jafns við ráðherraembætti.
Stevenson sagði fréttamönnium
í dag, að hann hefði ekki sjálf-
ur óskað eftir þessu embætti, en
vildi hinsvegar gjarnan starfa í
þjónustu Kennedys. Hann kvaðst
mundu athuga boð hans gaum-
gæfilega og gefa endanlegt svar
í byrjun næsiu viku.
Adlai Stevenson var sem kunn
ugt er frambjóðandi demokrata
til forsetakosninganna 1952 og
1956 gegn Eisenhower forseta.
Fyrr i dag tók Kennedy á móti
fjölda gesta. Þeirra á meðal voru
David Lawrence ríkisstjóri frá
Pennsylvaníu og ræddu þeir um
stofnun nýs ráðuneytis sem
fjalla mundi um vandamál hinna
stærri borga.
Tveim helztu stuðningsmöpn-
um Kennedys, Byron Leslie
White hagfræðingi frá Colerado
og John Hookers. frá Tennesee,
hafa einnig verið boðnar stöður
í stjórn hans, en ekki hefur nán
ar verið skýrt frá því hverjar
þær stöður eru.
Þá þykja líkur benda til þess,
að Robert Kennedy verði skip-
aður í embætti ríkissaksóknara.
forystumenn Pathe Lao hafi
lofað sér því, að hafast ekk-
ert að fyrr en í fyrsta lagi í
124.583 atkv.
munur
ENN eru ekki að fullu kunn
endaleg úrslit í forsetakosn
ingunum í Bandaríkjunum.
Er enn ólokið athugun á at-
kvæðatalningu í 12 ríkj-
um.
Eins og sakir standa hef-
ur Kennedy fengið 34.193.-
027 atkvæði eða 49,75%, en
Nixon 34.068.444 atkvæði,
eða 49,56%. Er því munur-
inn aðeins 124.583 atkvæði,
eða 0,19%.
Aðrir frambjóðendur í
kosningunum hafa fengið
474,710 atkvæði.
fyrramálið, en íbúar borgar-
innar eru mjög uggandi.
Herinn í Vientiane hefur
skorað á íbúana að veita alla
hugsanlega aðstoð í barátt-
unni við kommúnista.
Hægrimenn
Meginlið Nosavans er á leið
gegnum frumskóginn til Vienti-
ane og var, er síðast fréttist, í
120—130 km fjarlægð frá borg-
inni. Hinsvegar lentu 60 fall-
hlífarhermenn hans síðdegis í
dag í tæpra 10 km fjarlægð
austur þaðan.
Phoumi Nosavan neitar af-
dráttarlaust að talca þátt í vopna
hlésviðræðunum meðan nokkur
kommúnisti sé í stjórn landsins
Barizt til síðasta blóðdropa
Herinn í Vientiane gerði
snemma í morgun ýtarlega leit
að nokkrum Pathet Lao-mönn-
um, sem þangað voru komnir til
Framh. á bls. 2
VIÐ Skeiðvöllinn við Elliða-
árnar hefur Fákur á undan-
förnum 2 árum reist sér vand-
að hesthús, sem tekur 112
hesta. Er það vafalaust
stærsta hesthús landsins. — Á
myndinni sést ung hestakona
gefa gæðingunum sínum hey-
tuggu í þessu hesthúsi. — Sjá
nánar bls. 3.
Bankavextir
lækkaðir
LONDON, 8. des. — (Reuter)
BANKAVEXTIR voru lækkaðir í
Englandi í dag um % niður í
5%. Ástæðan er fyrst og fremst
sú, að Bretar vilja veita þá að-
stoð sem þeim er mögulegt, til
þess að stöðva fjárstrauminn frá
Bandaríkjunum.
Risinn úr rekkju
MOSKVA, 8. des. (Reuter). —
Krúsjeff, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, sem legið hefur rúm-
fastur vegna inflúenzu er nú ris-
inn úr rekkju.
Anastas Mikoyan skýrði frétta-
mönnum svo frá í dag, að Kiú-
sjeff sé kominn á fætur en iækn-
ar hans banni honum ennþá úti-
vist. Taldi Mikoyan líklegt, að
Krúsjeff tæki til starfa að nýju
eftir tvo til þrjá daga.
Svíar ætla oð nota
til síldveiða við
Eftirfarandi frétt barst Mbl.
í gærkvöldi frá Noregi:
— Álasundi, 8. des. (NTB).
Sænskir sjómenn munu hefja
síldveiðar með flotvörpu í til-
raiunaskyni- á svæðunum við fs-
land, segir skipstjórinn á gæzlu-
skipinu Garmi í skýrslu til „Fél-
ags síldveiðimanna við ísland“.
Samningsviðræður munu vera
hafnar um að sænsku bátarnir
fái leyfi til að leggja væntanleg-
an afla upp í íslenzkum höfnum.
í Noregi er einnig mikill áhugi
á notkun flotvörpu til síldveiða,
því hún getur oft veitt síld, þeg-
ar of djúpt er á fyrir þau veiðar-
færi, sem venjulega eru notuð.
Skipstjórinn á Garmi segist
skrifa þetta í skýrslu sína á
grundvelli upplýsinga, sem hann
hafi fengið hjá yfirmanni sænska
hjálparskipsins Hanö.
Ekki flugufótur
Blaðið aflaði sér þeirra upplýs
inga í gærkvöldi, að frétt þessi
myndi algerlega úr lausu lofti
gripin að því leyti, sem samninga
umræður við íslenzk yfirvöld
flotvörpu
ísland
snerti. Engar samningaviðræður
ættu sér stað um það, að sænskir
síldveiðibátar fengju hér upp-
sátursaðstöðu. Einhvern tíma
munu þeir hafa farið fram á það
en fengið algert afsvar. Þá væri
ekki vitað neitt um það, hvort
Svíar, sem lítt hafa stundað veið
ar hér við land upp á síðkastið,
hygðust hefja tilraunaveiðar á
Islandsmiðum, eins og 1 fregn-
inni stendur. — Þess má að lok-
um geta, að nokkrir íslenzkir
bátar stunda nú síldveiðar með
flotvörpu.