Morgunblaðið - 09.12.1960, Blaðsíða 2
2
MORCVyfíLJÐIÐ
FSstudagnr 9. des. 1960
Skákmennirnir fúru
sárdánægðir
— sagði Friðrik við heimkomuna
FRIÐRIK Ólafsson kom heim í
gaerkv. eftir frækilega frammi-
stöðu á svæðamótinu í Hollandi.
Hann lét vel yfir sér, enda
varla annað hægrt — eftir sigur-
inn.
„Það er ólíklegt, að mótið
verði ógilt þó kommúnistaríkin
krefjist þess“. sagði hann í
stuttu viðtali við Mbl. „Ef svo
yrði er ég alls ekki viss um að
ég mætti þar til leiks. Sama er
að segja um þá hina, sem tefldu
á þessu móti“.
★
„Upphafið var, eins og mörg-
uni er e. t. v. kunnugt af frétt-
um ,að Hollendingar neituðu a-
þýzka skákmanninum Uhlmann
lun landvistarleyfi samkvæmt
sérstökum samningum við V-
Þjóðverja. Skákmenn hinna
kommúnistaríkjanna voru þá
komnir til Hollands".
★
„Alþjóðaskáksambandið ákvað
þá «ð veita Uhlmann undanþágu,
heknilaði honum þátttöku í milli
svæðamótinu án þess að hann
tefldi í svæðamótinu. Sam-
þykktu fulltrúar kommúnista-
ríkjanna þetta og virtust harla
ánægðir. En tveimur dögum síð-
•r kom babb í bátinn. Fulltrúarn
ir frá kommúnistaríkjunum voru
þá orðnir annarrar skoðunar og
var ljóst, að það voru ekki þeir
sjálfir, sem mótuðu þá stefnu".
„Hótuðu þeir að fara heim með
alla sina menn og kröfðust að
mótið yrði ógilt vegna fjarveru
Uhlmanns. Var þeim þá gert það
tilboð, að þeir héldu sitt eigið
mót og síðan fengju þrír efstu úr
Gjöf til Rvíkur
Á FUNDI Bæjarráðs Reykjavík-
ur fyrir skemmstu var lagt fram
bréf frá utanríkisráðuneytinu,
þar sem skýrt er frá því, að Vil-
hjálmur Finsen, sendiherra, sem
nýlega er látinn, hafi ánafnað
Reykjavíkurbæ glitofin vegg-
teppi, 17 að tölu, til varðveizlu
í væntanlegu ráðhúsi.
Blaðið leitaði sér nánari upp-
lýsinga um teppin hjá Lárusi
Sigurbjörnssyni. Kvað hann
þetta mundu vera safn glitofinna
söðuláklæða, sem tíðkuðust hér
fyrr á timum, og gætu þau ekki
verið yngri en frá árunum 1860
—1880, því að þá hefði gerð
slíkra áklæða verið hætt. Áklæð-
in hafa verið notuð sem rúm-
ábreiður og veggteppi til híbýla-
prýði. Þessi 17 áklæði koma til
landsins með Gullfossi næst, og
sagðist Lárus álíta gjöf Vilhjálms
mjög mikils virði, því að söðul-
áklæði af þessari gerð a. m. k.
eru mjög fáséð.
Niöurgreiðslur nema
303 millj. á næsta ári
Stefna ber að afnámi niðurgreiðslna
í áföngum
NIÐURGREIÐSLUR eru hár
liöur í útgjöldum ríkisins. í
framsöguræðu sinni við 2.
umræðu fjárlaga gaf Magnús
Jónsson eftirfarandi upplýs-
ingar um niðurgreiðslur á
næsta ári og benti á hver
nauðsyn okkur væri á að
losna við niðurgreiðslurnar:
„Gert er ráð fyrir, að kostn-
aður við niðurgreiðslu á vöru-
verði verði um 303 millj. króna
á næsta ári. í spamaðarábend-
ingum meirihluta nefndarinnar,
er beint þeim tilmælum til rík-
isstjórnarinnar að hún athugi,
hvernig hægt muni vera í áföng
um að losna við niðurgreiðsl-
una. Niðurgreiðslurnar eru mik-
iivæg aðstoð við neytendur,
lem ekki er hægt að hverfa frá
nema á löngu tímabili. Miðað
við það, að jafnvægi komist á
í efnahagsmálunum, hlýtur hins
▼egar að verða að stefna að af-
námi niðurgreiðslna í áföngum
og reyna þá jafnframt að létta
tollabyrðina. Ýmsar aðrar þjóð-
ir, sem langt voru komnar á
þessari braut hafa síðustu árin
Dagskrá Alþingis
BAGSKRA Sfri deiidar: 1. Soiuskatt-
w, frv. 1. umr. 2. Réttindi og skyldur
hjóna ,frv. 2. umr.
Dagskri NeOri deildar: 1 VeC, frv.
1. umr. 2. Alþjóftlega framfarastofnun-
in. frv. 1. umr. S. Atvinna vi« si«l-
ingar, frv. Frh. 3. umr. 4. FræSslu-
myndasafn rikisins, frv. — Frh. 2.
wir. S Varskip landsins Irv. 1. umr.
Ef deiidin ieylir.
ÍANAíShnútor f < SVS0hnútor X Sofúiomo » Úli 7 Stirir K Þrumur 'tfífr.r+s*- /Zv/truii KuUntit "LS HituM H Hmi 1
verið smám saman að hverfa
frá niðurgreiðslunum og er vert
að kynna sér, hvernig að hefur
verið farið í þessum löndum“.
báðum hópunum að taka þátt í
millisvaeðamótinu, þ. e. þremur
fleira en ella. Þessu var líka hafn
að. Fórú fulltrúar kommúnista-
ríkjanna heim við svo búið, skák
menn þeirra sármóðgaðir, þó þeir
segðu ekki mikið. Júgóslavar
slógust í hópinn, ekki vegna sam-
stöðu við hin kommúnistaríkin,
heldur vegna þess að þeir héldu,
að mótið væri þar með farið út
um þúfur“.
★
„Við, sem eftir vorum, biðum
og vildum ekki byrja að tefla
fyrr en við fengjum skýlausa yf-
irlýsingu um að mótið væri full-
gilt. Forseti Alþjóðaskáksam
bandsins, Rogord, varð við til-
mælum okkar og gaf út yfirlýs-
inguna, enda hafði hann þá geng-
ið æði langt í sáttatilraunum sin-
um. Ég vil taka það fram, að
skáksambandið er algerlega ó-
pólitízkt“.
„Ég hef því enga ástæðu til að
ætla, að mótið verði ógilt, enda
stendur Rogord og fellur með
yfirlýsingu sinni. Líka vegna
þess, að kommúnistaríkjunum er
ekki hagur í að „sprengja,, Al-
þjóðaskáksambandið á þessu
máli, því þá mundu skáksam-
böndin e. t. v. verða tvö og áróð-
ursáhrif hinna ágætu skákmanna
Rússa ekki jafnvíðtæk og nú“,
sagði Friðrik.
NÚ eru aðeins eftlr tvær sýn-
ingar á leikriti Kambans ,4
SkáIhoIti“ og verður næst sið
asta sýningin annað kvöld.
Leikurinn hefur þá verið sýnd
ur 23 sinnum.
Siðasta sýningin verður svo
n.k. miðvikudag og verður
| það síðasta leiksýning Þjóð
I leikhússins fyrir jól.
Myndin er af Val Gíslasrni
1 og Kristbjörgu Kjeld í hfut-
i verkum sínum.
Mobufu hyggst
hindra vöruflutninga
LEOPOLDVILLE, 8. des. (Reut-
er, NTB) — Mobutu herforingi í
Kongó gaf aðalflutningafélaginn
í Kongó fyrirmæli þess efnis, að
allir byrgðaflutningar fyrir lið
Sameinuðu þjóðanna nema flutn-
Starf rafmagns-
stjóra laust
Á FUNDI Bæjarráðs Reykjavík-
ur, sem haldinn var á þriðju-
daginn, var samþykkt að aug-
lýsa starf ramagnsstjóra laust til
umsóknar með umsóknarfresti
til 6. jan. n.k.
Austanátt í vœndum
Á KORTINU sést smálægð
suður af íslandi, og er hún að
eyðast og hverfa. Hins vegar
er djúp og kröftug lægð kom-
in í Ijós austur af Nýfundna-
landi. Mun hún hreyfast norð
austur eftir og lenda sunnan
við ísland. Þvi er gert ráð fyr-
ir vaxandi austanátt hér á
landi í dag.
Veður er nú gott og milt um
allt land, víðast 4—5 stiga hiti.
í Reykjavík eru 3 stlg, Lund-
únum 2, Kaupmannahöfn 0,
5 í Osló og 3ja stiga hiti í
New York.
Veðnrspáin kl. 18 í gær-
kvöldi:
SV-land, Faxaflói og miðin:
Hægviðri í nótt en vaxandi
austanátt síðdegis á morgun.
Breiðafjörður til SA-l«nds
og miðin:
SA eða austan gola, milt
og úrkomulíttð.
ingar matvæla skuli vera háðir
ákvörðunnm stjórnar hans.
Aðalfulltrúi Sameinuðu þjóð-
mim í Kongó Indarjit Rikhye
hefur mótmælt þessu harðlega
og segir Mobutu þar með reyna
*ð lama alla starfsemi Samein
uðu þjóðanna í landinu.
Rykhe sagði í dag við frétta-
menn, að þegar haft væri í huga
þau mannsiíf og allt það fé, sem
varið hefur verið á vegum sam
takanna til að reyna að koma á
lögum og reglu í landmu væri
það minnsta, sem krafizt yrði, að
stjórn landsins reyndi að gera
liði SÞ léttara um vik, en því
væri sannarlega ekki að heilsa
Kvaðst hann mundu vísa málinu
til Hammarskjölds frkvstj., ef
þessum fyrirnaælum yrði fram-
fylgt.
Þá sagði Rikhye, að sU
ákvörðun Arabalýðveldisins og
Júgóslavíu, að kveðja heim her-
lið sitt í Kongó gæti haft hinar
uggvænlegustu afleiðingar. Ar-
abahermennirnir eru 550 talsins
og haf a að mestu verið við
störf í norður Ekvator-héraðinu.
Júgóslavarnir hafa hinsvegar
verið í flugþjónustu, einkum
vöruflutningum. Er það mjög
bagalegt ef þeir fara, þar sem
svo er ástatt, að vegna mann-
eklu eru aðeins sex af ellefu
C-119 flutningavéium samtak
anna í notkun.
Herlög í Oriental
Stjórn Mobutu tilkynnti í gær
kvöldi, að herlög væru nú gild-
andi i Oriental héraðinu, þar sem
fylgi Lumumba er mest. Kveður
Justin Bomboko, utanríkisráð-
herra hvem þann mann uppreisn
■armann er brýtur þau lög. Ekki
þykir ljóst hvernig núverandi
stjórn muni takast að framfylgja
þessum herlögum.
AKRANESI, 8. des. — Hér var
landlega sl. sólarhring. 4—5
hringnótabátar fóru á veiðar í
dag. Einhverjir bátar eru að bú-
ast á línuveiðar. Heimaskagi rær
sennilega á morgun með línu.
— Oddur.
— Laos
Framh. af bls. 1
vopnahlésviðræðna. — Nokkrir
þeirra fundust og voru hand-
teknir, en aðrir komust á brott
úr borginni og með þeim fór
Kong Lae, sá er fyrst gerði
byltingu í Laos og kom Sou-
vanna Phouma til valda.
Herinn hafði þá þegar dreift
flugritum um borgina með áskor
unum til íbúanna um að veita
alla hugsanlega aðstoð í barátt-
unni við kommúnista. Þar sagði
að sérhver hermaður væri fús
að verja síðasta blóðdropa til
þeirrar baráttu. Virðist herinn í
borginni tryggur Souvanna Pho-
uma; hann tók völd á öllum
mikilvægum stöðum í borginni
snemma í morgun, en Phouma
segir þáð hafa verið nauðsyn-
legt vegna baráttunnar fyrir
hlutleysi borgarinnar. '
Fylgjast hvor með öðrum
Þrátt fyrir loforð nokkurra
Pathet Lao-foringja um að bíða
átekta yfir nóttina, óttast stjórn-
in í Vientiane mjög árás þeirra.
Vitað er að þeir kommúnistar
Og hægrimenn fylgjast hvor með
öðrum að svo miklu leyti sem
þeim er unnt og að þeir eru
vísir til að keppast um að verða
fyrri til árásar.
— Alsír
Framh. af bls. 1
höfð og leitað vandlega í bif.
reiðum og flugvélum evrópskra
manna. Engu að síður eru menn
mjög uggandi um að til tíðinda
dragi. Um það bil 100 alþekktir
öfgaf ullir hægrisinnar hurf u
frá heimilum sínum I borginni I
gær og er talið að þeir hafi far-
ið til Boufarik, sem er rúmlega
100 km suður af Algeirsborg, en
þar er miðstöð andstæðinga da
Gaulles.
Snemma í morgun varð mikil
sprenging í ráðhúsinu í Oran og
urðu þar miklar skemmdir. —.
Fransk-alsírska fylkingin hefur
drerft flugritum um borgir off
sveitir og hvatti til allsherjar-
verkfalls og mótmælaaðgerða.
Ýmsir aðilar hafa ráðlagt de
Gaulle að fresta för sinni til
Alsír, því að fyrrgreindir afc.
burðir og dvöl Lagaillardes á
Spáni auka ótta manna við að
hægrisinnaðir öfgamenn bruggi
forsetanum banaráð. — En de
Gaulle hyggst halda fast við
sínar fyrri áætlanir.
Tíðir árekstrar
og eitt slys
ERFIÐLEGA gekk mörgum bíl-
stjórum í gær að hemja farar-
skjóta sína á silkihálum götum
borgarinnar. Var það einkum í
úthverfunum, því að um miðbik
bæjarins voru götur flestar auð-
ar. Framan af degi urðu þó eng-
ir árekstrar, en er rökkva tók.
var þegar farið að tilkynna þá. í
gærkvöldi vissi lögreglan um 7
árekstra, fremur smávægilega
flesta, og tveir höfðu ekið á stöðu
mæla.
Það slys varð á galnamótum
Grensásvegs og Hvammsgerðis
um klukkan 7 í gærkvöldi, að 7
ára telpa varð fyrir bíl. Hún mun
hafa skorizt eitthvað og var flutt
á Slysavarðstofuna. Mjiðsli henn
ar munu ekki hafa verið alvar-
leg.
Lögreglu-
bíllinn valt
AÐFARANÓTT miðvikudags
vildi það til inni á Múlavegi í
mikilli hálku, að ein lögreglu-
bfreið valt á svellbunka út af
veginum og skemmdist eitthvað.
Ekki munu aeið^í orðið á
mönnum.