Morgunblaðið - 28.02.1961, Blaðsíða 12
12
MORCV1SBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 28. febr. 196i
Sátta-
semjari
Eyjum
i
VESTMANNAEYJUM, 27. J
febr. — Sáttasemjari ríkisins, L
Torfi Hjartarson, kom hing-
að tii Vestmannaeyja síðdeg
is í dag og í flugvél*nni með
honum komu Barði Friðriks-
son skrifstofustjóri Vinnu-
veitendasambandsins og
Snorri Jónsson framkvæmda-
stjóri Alþýðusambandsins.
Sáttafundur með sáttasemj
ara var boðaður með fulltrú-
um vinnuveitenda og verka-
kvennfélagsins Snótar kl. 8,30
í kvöld og um ellefu leytið
stóð fundur enn.
— Fréttaritari
Bíllinn fanst upp
við Borgarnes
AÐFARANÓTT sl. laugardags
var bílnum R-2683 stolið við hús-
ið Lynghaga 2 hér í bænum. Á
sunnudagskvöldið fékk rannsókn
arlögreglan upplýsingar um bíl-
inn, nokkru eftir að lýst hafði
verið eftir honum í útvarpinu.
Hafði bílstjóri einn í Borgarnesi
ekið framhjá bílnum skammt frá
Borgarnesi um hádegisbilið á
sunnudaginn. Hafði þá maður
verið við bílinn, en ekki vissi
bílstjórinn neinn deili á honum.
Margar kvarfanir um
gallaSar Ijósaperur
— O K K U R hafa borizt tugir
kvartana út af gölluðum ljósa-
perum síðan tilkynningin frá
okkur kom um síðustu helgi,
sagði Guðmundur Marteinsson,
verkfræðingur hjá Raforku-
málastjórninni, í símtali við
Mbl. í gær.
Undanfarin ár hefur nær all-
ur ljósaperuinnflutningur verið
frá A-Evrópulöndum, sam-
kvæmt vöruskiptum við lönd
þar. Það er grunur okkar að
þær reynist ekki eins vel og
ætla mætti og reynsla er af frá
öðrum löndum. Töldum við
rétt, sagði Guðmundur, að afla
upplýsinga um þetta frá almenn
ingi og í dag hefur nærri því
rignt yfir okkur kvörtunum um
perur, sem sprungið hafa eftir
litla sem enga notkun. Hafa
margar hvellsprungið. Ekki hafa
Leynivínsalar teknir
Seldu hálf flöskur á 150 krónur
SÍÐDEGIS á laugardaginn er
einn af bílum götulögreglunnar
ók framhjá Hlemmtorgi, urðu lög
regluþjónarnir varir við grun-
samlega höndlun þar á torginu.
Létu þeir til skarar skríða og
stóðu þar leigubílstjóra einn að
verki við að selja áfengi.
Svo sem klukkustundu síðar,
ók sami lögreglubíll þarna hjá
Hlemmtorginu. Enn á ný þótti
þeim þar eiga sér stað grunsam
legt athæfi, og það fór á sömu
leið sem í fyrra skiptið, að leigu
bílstjóri var staðinn að sölu á-
fengis.
Annar þessara leynivínsala hef
ur frá því í ágústmánuði s.l. ver
ið tekinn fimm sinnum fyrir á-
fengissölu, en neitað í öll skipt
in.
Hinn maðurinn var nú tekinn í
þriðja skiptið, einnig frá því í
ágústmánuði.
Guðmundur Hermannsson í
slysarannsóknardeild götulög-
reglunnar var hér að verki gegn
þessum leynivinsölum, og hefur
hann frá því um síðustu áramót
kært 18 menn fyrir þessháttar
lögbrot.
Leigubílstjórarnir sem teknir
voru á Hlemmtorgi, á laugardag
inn, höfðu selt hálfa brennvíns
flösku og hinn hálfa af Vodka,
fyrir 150 krónur.
Milljóna tjón
af eldi
KAUPMANNAHÖFN, 27. febr. -
Fjórar verksmiðjur brunnu til
grunna í dag í Lyngby, einni af
útborgum Kaupmannahafnar. Er
tjónið talið nema milljónum
danskra króna. 400 manns unnu
í verksmiðjunum.
Ein verksmiðjanna framleiddi
hluta í útvarps og sjónvarpstæki
fyrir aðrar verksmiðjur á Norð-
urlöndum, sem allar verða fyrir
einhverjum framleiðslustöðvun-
um vegna brunans. Vonað er að
verksmiðjan geti aftur hafið fram
leiðslu eftir þrjár vikur.
Enska knattspyrnan í
Enska knatspyrnan ..... ....222
31. umferð ensku deildarkeppninnar
fór fram sl. laugardag og urðu úrslit
lekanna þessi:
1. deild:
Arsenal — L.eicester........... 1:3
Birmingham — West Ham........... 4:2
Burnley — Blackburn .......... 1:1
Cardiff — Wolverhampton ....... 3:2
Fulham — Blackpool ............. 4:3
Manchester City — Tottenham .... 0:1
Newcastle — Aston Villa ........ 2:1
N. Forest — Manchester........... 3:2
Preston — Everton .............. 1:0
Sheffield W — Chelsea .......... 1:0
W.B.A. — Bolton ................ 3:2
2. deild:
Brighton — Norwich ............. 2:2
Bristol Rovers — Luton ......... 4:1
Derby — Swansea ................ 2:3
Ipswich — Charlton ............. 2:1
Leeds — Sunderland ............. 2:4
Liverpool — Lincoln ............ 2:0
Middlesbrough — Plymouth ....... 3:1
Rotherham — Portsmouth........... 1 :Q
Scunthorpe — Sheffield U........ 1:1
Southampton — Huddersfield 4:2
Að 31. umferð Iokinni er staðan þessi:
1. deild (efstu og neðstu liðin):
Tottenham 31 25 3 3 91:37 53
Sheffield W 30 18 8 4 61.34 44
Wolverhampton 31 19 5 7 80:58 43
Bumley _ 29 17 2 10 78:53 36
W.B.A 32 10 4 18 50:65 24
Newcastle 31 8 7 16 70:87 23
Preston «... 30 8 5 17 30:53 21
Blackpool 29 7 5 17 51:61 19
2. deild (efstu og neðstu liðin):
Sheffield U ::2 20 4 8 63:37 44
Ipswich 30 18 6 6 71:37 42
Liverpool 30 17 6 7 68:39 40
Middlesbrough 30 15 10 5 64:50 38
Bristol Rovers 28 8 7 13 52:64 23
Leyton Orient.... 27 9 4 14 39:61 22
Portsmouth 31 7 8 16 43:73 22
Lincoln 31 6 0 19 36:69 18
hlotizt meiðsl á fólki.
Ekki kvaðst Guðmundur vita
hvað gert yrði í þessu máli, því
hér er um að ræða einn anga af
utanríkisviðskiptum og myndi
viðskiptamálaráðuneytinu gefn-
ar upplýsingar um málið.
Einu ljósaperurnar, sem verið
hafa á markaðnum og ekki
hafa verið innfluttar frá A-Ev-
rópu, eru sænskar Luma-perur
og kvað Guðmundur enn sem
komið er ekki hafa borizt
kvartanir yfir þeim.
Aðalfundur Kven-
réttindafélagsins
AÐALFUNDUR Kvenréttinda-
félags íslands var haldinn mið-
vikudaginn 22. febrúar.
Formaður, Sigríður J Magnús-
son, flutti starfskýrslu félagsins
1960 og gat um frumvörp, sem
komið hafa fram á Alþingi um
mál, sem koma konum sérstak-
lega við.
Einnig sagði hún frá þvi, að
seinnipartinn í ágúst n.k. yrði
fundur alþjóðakvenréttindasam-
bandsins í Dublin í írlandi.
Félagið hefði rétt til að senda
þangað 12 fulltrúa. Félagskonur,
sem hug hefðu á að sækja fund-
inn, ættu að gefa sig fram fyrr
en síðar.
Fastanefndir félagsins fluttu
skýrslur sínar. Varaformaður,
Lára Sigurbjörnsdóttir, átti að
ganga úr stjórn, en hún var end-
urkjörin. Aðrar í stjórn voru
kosnar: Lóa Kristjánsdóttir, Anna
Sigurðardóttir og Guðbjörg Arn-
dal.
Þórunn giftist
Vladimir
LONDON, 27. febr. — Einka-
skeyti frá fréttaritara Mbl.
Á laugardaginn voru gefin
saman í hjónaband í Moskvu
ungfrú Þórunn Jóhannsdótt-
, ir, píanóleikari og Rússinn
Viadimir Afhkenazi, sem einn
ig er píanóleikari. Vladimir er
24 ára að aldri og stórblaðið
New York Times sagði fyrir
skemmstu, að hann væri einn
bezti ,,ungi“ píanóleikarinn í
heiminum. Þau munu heim-
sækja Bretland í haust og mun
Vladimir þá Ieika á nokkrum
hljómleikum hér.
Þórunn og Vladimir kynnt-
ust vorið 1958 á Chaikowski
tónlistarkeppni í Moskvu. Vin
átta þeirra hélzt eftir að Þór
unn koAi til Moskvu 1. febrú
ar í fyrra og í nóvember á-
kváðu þau að giftast. Vladi-
mir fer í hljómleikaferð í apríl
til Búlgaríu, Rúmeníu og
Frakklands. Þórunn heldur á
fram námi sínu í Moskvu til
júníloka, en að því loknu held
ur hún hljómleika víða í Sovét
ríkjunum.
Að minnsta kosti sjö manns
hafa farizt í flóðum í Alabama
fljóti og rúmlega 10 þús manns
hafa neyðst t*l að yfirgefa
heimili sín í ýmsum suður-
héruðum Bandaríkjanna. Or
sok flóðanna er óvenjumikil
Úrkoma.
Meðfylgjandi mynd er frá
borginni Birm'ngham i Ala-
bama.
Mohammed V
látinn
RABAT, Marokkó, 27. febr. —
Reuter. — Mohammed V. kon-
ungur í Marokkó lézt í gær og
verður útför hans gerð á morgun.
Sonur Mobammeds, Moulay Hass
an, sem er 31 árs, tók í dag við
konungdómi í landinu. Mikil sorg
ríkir í Marokkó og öðrum Araba-
löndum og hafia samúðarkveðjur
borizt víða að. Margt stórmenna
verður við útförina á morgun.
Meðal þeirra, sem hafa boðað
komu sína til Rabat, eru: Leonid
Breznev forseti Sovétríkjanna,
Hussein konungur í Jórdaníu,
Bourguiba forseti Túnis, Averell
Harrimann sendifulltrúi Banda-
ríkjanna, Ferhat Abbas forsætis-
ráðherra útlagastjórnarinnar í
Alsír og de Castiella utanríkis-
ráðherra Spánar.
Flöskuskeyti
á hollenzku
ESKIFIRÐI, 27. febr. — ,,Hier
een Berickt van een eenzame
Zeeman van het Schip de West-
erdam í April varende op de
Atlantic wil die gene die de fres
vind my Suhrij Ven en Foto op
ere Woord retour het adres is
van de eenzame Zeeman Will
Rabov, Snoystraat 57, Gouda,
Holland“.
Flöskuskeyti þetta fannst í
Vöðluvík við Reyðarfjörð í s.l.
viku. Ef einhver hefði áhuga á
að skrifast á við þennan mann,
þá færi hann kveðju frá finn-
anda.
— Fréttaritari.
Hvítd flæddi
yfir bskkana
ÞEGAR vatnavextirnir urða
í síðustu viku víða um land,
fór Sigurjón Rist vatnamæl-
ingamaður austur að Hvítá,
til að mæla vatnsflóðið. Lagði
hann einkum áherzlu á mæl
ingar á Hvítá með tilliti til
hugsanlegrar virkjunar þar.
Áin hækkaði um ca. tvo
metra, að því er Sigurjón tjáði
blaðinu í gær, og flæddi úr
farveginum á Skeiðum upp á
bakkana. Sagði Sigurjón aS
slíkt kæmi stundum fyrir t.d.
í fyrra og gerði það fólk þar
um slóðir ekkert órólegt. Eng
ar skemmdir urðu af flóðinu,
en í slíkum vatnavöxtum
verða bæir, eins og t.d. Út-
verk, umflotnir og aðeins
hægt að komast þangað á báti.
Erindaflutningur
á Búnaðarþingi
í GÆR var fundi Búnaðarþings
fram haldið í Tjarnarcafé. Fjögur
ný mál voru lögð fram og þeim
vísað til nefnda.
Þá flutti William E. Dinusson,
prófessor erindi um fóðrun jórt-
urdýra. Sýndi hann kvikmynd og
flutti skýringar við hana.
Einnig flutti Agnar Guðnason
ráðunautur erindi um leiðbein-
ingarstarfsemi fyrir landbúnað-
inn. Lagði hann fram tillögur
um endurskoðun á þeim málum
og hvatti Búnaðarþing til að taka
málið til meðferðar.
Næsti fundur Búnaðarþings er
ráðgerður kl. 9,30 í dag.
80 lestir á land
á laugardag
AKRANESI, 27. febr. — 15 bátar
eru á sjó héðan í dag. Á land bár-
ust 80,5 lestir á laugardag af 11
bátum. Aflahæstir voru Heima-
skagi og Sigurður AK með 8,5
lestir hvor Á sunnudaginn voru
línubátarnir í landi, en þorska-
netjabátarnir tveir lönduðu úr
fyrstu lögninni, annar 2 lestum,
hinn einni. — Hingað kom
Tröllafoss á hádegi í dag og lest-
ar saltsíldartunnur. Höfrungur
annar er að fara í útilegu með
línu. — Oddur.
Williams í Kongó
LEOPOLDVILLE, 27. febr. Reut-
er. — Mennen Williams, Afríku-
málaráðherra Bandaríkjanna,
kom í dag til Leopoldville í
Kongó. Mun Williams dvelja í
Kongó í fimm daga og ræða við
ýmsa leiðtoga landsins.
Williams mun fara á - fund
Kasavubu forseta á morgun.
Aukið fylgi lýðræðissiana
í Trésmíðafélaginu
STJÓRNARKJÖR fór fram í Trésmiðafélagi Reykjavíkur um sl.
helgi. Úrslit urðu þau að lýðræðissinnar juku atkvæðamagn sitt
í félaginu, en fylgi kommúnista stóð í stað.
B-listi lýðræðissinna hlaut 245
atkv., en listi kommúnista, A-
listinn, 287. Sjö seðlar voru auð-
ir. —
í fulltrúakosningum til Al-
þýðusambandsþings í haust urðu
úrslit þau, að lýðræðissinnar
hlutu 217 atkv., en kommúnist-
ar 288. Hafa lýðræðissinnar því
bætt við sig 28 atkv. frá í haust
og kommúnistar tapað einu.
Kosningabaráttan var mjög
hörð og vakti það mikla at-
hygli, að framsóknarmenn gengu
sérstaklega hart fram í kosning-
unum til stuðnings kommúnist-
um og spöruðu hvorki vinnu né
fé til að vinna að sigri komm-
únista, en þrátt fyrir þessar ham
farir er greinilegt, að lýðræðis-
sinnar eru í sókn í félagiriu og
fylgi þeirra vaxandi.
Dagskrá Alþingis
DAGSKRÁ neðrl deildar Alþingis
í dag kl. 1,30: 1. Sveitastjórnarlög, frv.
1. umr. 2. Sala eyðijarðarinnar Þor*
steinsstaða í Grýtubakkahreppi, frv. 2,
umr. 3. Fæðingarorlof, frv. Frh. 2,
umr. 4. Almannatryggingar, frv. — 1,
umr. 5. Búnaðarháskóli, frv. 1 umr. 6,
Eyðing svartbaks, frv. 1. umr. 7. Stofn
lánadeild sjávarútvegsins, frv. 2. umr,
8. Landsbanki íslands, frv. 2. umr. 9,
Seðlabanki íslands, frv. 3. umr. 10. Út
vegsbanki íslands, frv. — 2. umr. 11,
Raforkulög, frv. 1. umr. 12. Matreiðslu*
menn á skipum, frv. — 2. umr.
Dagskrá efri deildar í dag kl. 1,30:
1. Heimild til að veita Guðjóni Ár-
manni Eyjólfssyni stýrimannsskírteini
frv. 2. Kornrækt, 2. umr.