Morgunblaðið - 28.02.1961, Page 15
r Þriðjudagur 28. feb'r. 1961
MORGUnBLAÐlÐ
15
t Lægðásvæði Bggutr nú á
Ibreiðu beiti frá Norður-Nor-
egi til Nýfundnalands. Hins
végar eru háþrýstisvæði yfir
Baffinslandi og Frakklandi.
Nú eru vorhlýindi á megin-
landinu austan hafs, hiti 15
^ stig í París, 11 í Hamborg og
'k 8 í Kaupmannahöfn. Hér á
S landi er hiti nálægt frost-
5 marki, en 1—9 stiga frost á
k sunnanverðu Grænlandi og 24
§ stiga frost á flugvellinum við
! Gæsaflóa í Labrador. í New
5 York er 4 stiga hiti, en 3 stig
k í Reykjavík.
Veðurhorfur kl. 22 í gær- t
kvöldi. x
SV-land og SV-mið: norðan \
kaldi og bjartviðiri í nótt, en !
þykknar upp með vaxandi |
austan átt á morgun síðdegis. \
Faxaflói. Breiðafjörður, Faxa \
flóamið og Breiðafjarðarmið: J
NA-gola eða kaldi, víðast létt ^
skjýað. Vestfirðir til Austfj. \
og miðin: NA-kaldi, slydda \
eða snjókoma. SA-land og SA |
mið: SA-gola og bjartviðri í ;
nótt, en þykknar upp með \
austanátt annað kvöld. !
Lýðræðissinnar
sigra
á Skagaströnd
UM sl. helgi fór fram stjórnar-
kjör í Verkalýðsfélagi Skaga-
strandar. Á kjörskrá voru 205.
Atkvæði greiddu 132. Úrslit urðu
þau, að A-listi, sem lýðræðissinn
ar báru fram, hlaut 78 atkvæði
og alla menn kjörna, en B-listi,
sem kommúnistar stóðu að, fékk
57 atkvæði. Tveir seðlar auðir.
Núverandi stjórn skipa: Björg
vin Brynjólfsson, formaður; Ól-
afur Guðlaugsson, varaform.;
Jón Árnason ritari; Sveinn Krist
ófersson gjaldkeri, Sigríður Ás-
geirsdóttir, meðstjórnandi.
Creiðsla
þinggjalda
RÁÐUNEYTIÐ hefir ákveðið að
innheimta ekki fyrirframgreiðslu
upp í skatta og önnur þinggjöld
ársins 1961 1. marz n.k.
Um aðra gjalddaga verður á-
kveðið í reglugerð síðar.
Rangar og œrumeiöandi ásakanir
á hendur bátatryggingarfélagi
Yfirlýsing frá stjórn Bátaábyrgðafélags
Vestmannaeyja
í TILEFNI af ritsmíð Helga
Benediktssonar, Vesmanna-
eyjum, í blaði hans, Fram-
sókn, hinn 17. jan. sl. (síðar
endurprentaðri í Alþýðu-
blaðinu, Reykjavík), með
stórletraðri fyrirsögn:
„Fjársvik og fjárdráttur,
sem nemur milljónum króna
hjá Bátaábyrgðarfélaginu“,
og hefst með orðunum: „Fé,
sem nemur milljónum króna
hefur verið svikið út úr
íryggjendum hjá Bátaábyrgð
arfélagi Vestmannaeyja“, og
látið að því liggja, að stórfé
hafi á þann hátt verið svikið
út úr Útflutningssjóði, hefur
forstjóri Útflutningssjóðs Iát-
ið félagi voru í té svohljóð-
andi yfirlýsingu:
— • —
J Reykjavík, 22. febr. 1961.
Vér staðfestum hér með að
þann tíma, sem Útflutningssjóð-
ur hefur greitt iðgjöld fiskiskipa
virðist Bátaábyrgðarfélag Vest-
mannaeyja ekki hafa haft óhag-
kvæmari iðgjaldaprósentu fyrir
tryggjendur en önnur tryggingar
félög, sem tryggja fiskiskip.
Virðingarfyllst,
ÚtflutningssjóSur
Árni Bcnediktsson.
—marz 1960.
Breytingar þessar hafa gengið
jafnt yfir öll bátaábyrgðarfélög-
in.
Virðingarfyllst,
SamábyrgS íslands
á fiskiskipum
Páll SigurSsson.
Hækkanir þær, sem til er vitn-
að í bréfi Samábyrgðarinnar,
hafa allar á sínum tíma, hlotið
skrjflega staðfestingu sjávarút-
vegsmálaráðuneytisins.
Af framansögðu verður ljóst,
hve ósannar og rakalausar voru
HOLTI, V-Skapt. 27. febr. —
Á sunnudagsnóttina féll mikil
skriða úr fjallinu fyrir austan
Foss á Síðu og lenti á veginum
á 250 m kafla. Eru þar með rofn-
ar samgöngur við Fljótshverfið
og austustu bæina á Síðu, nema
hvað hægt er að fara á jeppum
niðri á söndunum. Hefur verið
unnið með ýtu við að ryðja nýj-
an veg yfir skriðuna og má bú-
aðdróttanir Helga Benediktsson-
ar, settar fram í þeim tilgangi ein
um að sverta hið 99 ára gamla
bátatryggingarfélag Eyjamanna,
og þá menn, sem hafa valizt
þar til forystu.
Félagsstjórnin mún jafnskjótt
og ástæður greinarhöfundar
leyfa, gera ráðstafanir til þess að
láta hann sæta fullri ábyrgð að
lögum fyrir hinar ærumeiðandi
og röngu sakargiftir.
Vestmannaeyjum 25. febr. 1961.
í stjóm Bátaábyrgðarfélags
Vestmannaeyja
Sighvatur Bjarnason (sign)
Karl S. -Guðmundsson (sign)
Ársæll Sveinsson (sign)
Óskar Sigurðsson (sign) gjaldk.
Jónas Jónsson (sign).
ast við að það verk taki 1—2 sól-
arhringa.
í skriðunni, sem kom úr hamra
belti rétt austan Dverghamars, er
mestmegnis grjót, sumir hnull-
ungarnir 4—6 m á hvern veg.
Einnig er nú unnið að því að
gera við skemmdirnar hjá Stóra-
Hvammi, en þar sópaði Eldvatnið
stórum kafla af veginum í burtu
í vatnavöxtunum í fyrri viku.
— Fréttaritari.
Skriöa lokar vegi á Síðu
Rudd leið yfir skriðuna
Ennfremur hefur félagi voru
borizt svofelld umsögn frá Sam-
ébyrgð íslands á fiskiskipum:
j Reykjavík, 22. febr. 1961.
n Varðandi endurtryggingarvið-
■kipti Bátaábyrgðarfélags Vest-
mannaeyja og Samábyrgðar ís-
iands á fiskiskipum, skal tekið
fram að eftirfarandi breytingar
hafa orðið á vátryggingum vél-
bótaflotans á síðustu árum:
* 1. 20% hækkun á vátrygging-
arfjárhæðum frá 1. júní 1958. —
Þessi breyting var gerð vegna
verðhækkana er urðu við gildis-
töku laga nr. 33/1958 um efna-
hagsmál.
2. 17%% iðgjaldahækkun frá
1. ágúst 1958. Þessi hækkun varð
vegna hækkunarkröfu erlendis
frá vegna slæmra útkomu trygg-
inganna.
3. 30% hækkun á vátryggingar
fjárhæðum frá 1. marz 1960. —
Þessi breyting var gerð vegna
verðhækkana er urðu við gengis-
breytinguna mánaðarmótin febr.
Veitingastofa til sölu
í Miðbænum. Tilboð sendist afgr. Mbl.
merkt „Kaffi — Sérréttir — 1506“.
Einbýlishús
hæð og ris við Borgarholtsbraut til sölu. Á hæðinni
eru 4 herb., eldhús og bað, en í risi eru 4 herbergi
og snyrtiherbergi (eitt herbergið er með eldhús-
innréttingu). Stór, ræktuð lóð. Hagkvæmir skilmálar.
STEINN JÓNSSON, HDL.,
lögfræðistofa — fasteignasala
Kirkjuhvoli — Símar 1-4951 — 1-9090.
4ra herb. íbuð í Hogunum
Höfum til sölu mjög vandaða 4 herb. íbúð á II. hæð
hæð við Hagana. Stór bílskúr. Lóð standsett.
MÁLFLUTNINGS- og FASTEIGNASTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl.
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti
Austurstræti 14. H. — Símar 19478 og 22870.
Hjartanlega þakka ég skyldfólki mínu og kunningjum
sem glöddu mig með heimsóknum og kærkomnum gjöf-
um og blómum á 85 ára afmæli mínu og gjörðu mér
daginn ánægjulegan, einnig þakka ég innilega þeim sem
sendu mér blóm og skeyti.
Guð launi ykkur og blessi ykkur.
Sigurlaug Sigvaldadóttir, Njálsgötu 62.
Þökkum innilega sýndan vinarhug á 60 ára afmæli
okkar hjónanna 12. og 21. febr. s.l. — Lifið heil.
Sesselja Símonardóttir, Sigurður Grímsson.
Innilega þakka ég öllum nær og fjær, sem auðsýndu
mér vinsemd á 70 ára afmæli minu 18. þ.m. með síra-
skeytum, heimsóknum og gjöfum. — Kær kveðja.
Sigurbjörg S. Þorsteinsdóttir, Njálsgötu 92.
Hjartanlegustu þakkir flytjum við öllum sem glöddu
okkur með heimsóknum, gjöfum og skeytum á, 50 ára
hjúskaparafmæli okkar 18. febr. s.l.
Gæfa og blessun fylgi ykkur öllum.
Margrét Jónsdóttir, Kristmann Eyleifsson,
Holtsgötu 18, Reykjavík.
Sonur okkar
JÓN HJALTALlN HAKONARSON
andaðist í Bæjarsjúkrahúsinu 26. þessa mánaðar.
Fanney Ingólfsdóttir, Hákon Hjaltalin Jónsson.
Dóttir mín
LILJA GUÐNADÓTTIR
lézt að Landakotsspítala, laugardaginn 25. þ.m. Jarðar-
förin auglýst síðar.
Guðni Guðnason,
Eyjum, Kjós.
Jarðarför mannsins míns
ASTMARS BENEDIKTSSONAR
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 28. þ.m. og
hefst kl. 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað.
Rósamunda Guðmundsdóttir, Þverveg 2.
Jarðarför föður og stjúpföður okkar
ANTONS SÍVERTSEN
sem bjó á Nýbýlavegi 44, Kópavogi,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1. marz kL
10,30. — Athöfninni verður útvarpað.
Börn hins látna.
Jarðarför konu minnar, móður og tengdamóður
ÓLAFlU JÓNSDÓTTUR
fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði miðvikud.
1. marz klukkan 2 e.h. — Blóm afbeðin, en þeim setn
vildu minnast hinnar látnu er bent á Barnaspítalasjóð
Hringsins.
Ólafur Högnason,
Inga Jóna Ólafsdóttir,
Þórir Kristjónsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við
andlát og jarðarför
RANNVEIGAR SVERRISDÓTTUR
Sérstaklega vil ég þakka Thorvaldsensfélaginu, sem
heiðraði minningu hinnar látnu með að kosta útför
hennar.
Hulda Þórðardóttir.