Morgunblaðið - 21.07.1961, Blaðsíða 1
20 siður
>
48. árgangur
161. tbl. — Föstudagur 21. júlí 1961
Frentsmiðja Morgunblaðsins
Styrjaldarásicuid við Bizerta
Tunis slítur stjornmalaástandi
við Frakkland og kærir fyrir
Oryggisráðinu. — Frakkar
senda Búrgíba viðvorun —
en segjast fusir til samninga
um vopnahlé
ASTANDIÐ við frönsku flotastöðina Bizerta í Túnis virð-
Jst mjög alvarlegt. Bardagar blossuðu þar aftur upp í gær-
morgun — franskar flugvélar gerðu árásir á Túnishermenn
í skotgröfum sínum og síðan gerðu franskir flokkar útrás
til þess að reyna að þagga niður í skyttum Túnismanna,
sem létu stórskotahríðina dynja á stöðvum Frakka. —
Eftir nokkurt hlé um hádaginn, hófust vopnaviðskipti á
nýjan leik með kvöldinu, eftir að Frakkar höfðu sent liðs-
auka á vettvang.
^ Búrgíba Túnisforseti lýsti því yfir í gær, að stjórn-
málasambandi væri slitið við Frakkland — og sendiherra
Túnis hjá Sameinuðu þjóðunum fór til New York til að
leggja Bizerta-deiluna fyrir Öryggisráðið, sem mun koma
saman í dag til þess að ræða málið, að kröfu Túnisstjórnar.
Franska stjórnin kennir Búrgíba og stjóm hans alger-
lega um það, hvemig komið er og hefir í orðsendingu
varað hann við frekari árásum á Bizerta, sem muni svar-
nð með „nýjum aðgerðum“. Jafnframt tjáir franska stjóm-
ín sig fúsa til viðræðna um vopnahlé. En Búrgíba sagði
hins vegar í gær. — Við gáf-
um Frökkum tækifæri til
samninga — og þeir notuðu
það ekki. Og hvort sem átök-
in standa tíu daga, mánuð,
eða tíu ár munum við aldrei
gefast upp.
ic Talsvert mannfall.
Bizerta, Túnis, 20. júlí. (Reut-
er/NTB) — Harðir bardagar brut
lust út á ný í morgun, þegar
tfranskar flugvélar Jiófu loftárásir
é Túnishermenn, er héldu uppi
skothríð á hinar frönsku stöðvar
Ihér úr skotgröfum sínum. í kjöl-
tfar loftárásanna gerðu frar.skir
Iherflokkar útrás til þess að
ireyna að hreinsa til kringum
tflotastöðina. Vitað er, að margt
imanna féll I átökum þessum, en
tölum ber ekki saman. — Fransk
Rr heimildir sögðu eftir bardag-
ana í morgun, að um 100 Túnis-
Ihermenn hefðu fallið, 60 saerzt
og yfir 50 verið teknir til fanga.
6ömu heimildir töldu, að tveir
tfranskir hermenn hefðu fallið og
um 30 særzt. Búrgíba Túnisfor-
Eeti hélt því hins vegar fram á
Iblaðamannafundi í dag, að fallnir
vaeru 33 úr sveitum Túnismanna
•— en hins vegar vseri ekki vitað
um afdrif 130 í stöð einni, sem
Frakkar hefðu gert sprengjuárás
ir á í gær. — Talið er, að um það
Ibil 50 manns hafi týnt lífi og
hundrað sserzt, er Frakkar hófu
®ð nýju loftárásir á stöðvar Tún-
ismanna á Bizertasvæðinu í
Framh. á bls. 19
F æ r e y s k
skonnorta sökk
Í>ÖRSHÖFN, 20. júlí — Klakks-
vikur skonnortan Skálanes sökk
Bl. þriðjudag á Fyllabanka, en
eldur brauzt út aftan til í véla-
eúmi skipsins. Allri áhöfninni
var bjargað, en 24 menn voru á
ekonnortunni. Skálanes var
hyg'gð árið 1931 og var 220 tonn
eð stærð brúttó. — ARGE.
Hikum ekki við að leita
aðstoðar Rússa
wmSMiíM
TÚNISKIR hermenn setja umj
ferðartálmanir í grennd viði
frönsku flotastöðina sl. mið-|
vikudag. Brátt hófust vopna-
viðskipti — en hvorugur að-
ilinn vill viðurkenna að hafa|
hleypt af fyrsta skotinu.
— segir Munongo, innanríkisráð-
herra Katanga
Elisábethville, 20. júlí.
—(Reuter) —
KATANGASTJÓRN lýstiþví
yfir í dag, að hún mundi ekki
hika við að beiðast aðstoðar
Sovétríkjanna til þess að
leysa úr vandræðaástandinu
í Kongó, ef „Sameinuðu þjóð
irnar og hinn frjálsi heimur
geta ekki eða vilja ekki finna
sanngjarna og varanlega
Hvernig skyldi
Grissom líða ?
Kanaveralhöfða, 20. júlí.
— NTB/Reuter —
ÞAÐ virðist nú allar líkur til
þess, að enn muni verða að
fresta því að skjóta Grissom
höfuðsmanni út í geiminn.
Geimförinni hefir tvívegis ver
ið frestað, en á miðvikudag-
inn var ákveðið að gera enn
eina tilraun á morgun (föstu-
dag). — Nú segja veðurfræð-
ingar hins vegar, að veður-
Íútlitið sé mjög tvísýnt — og
séu því ekki meira en 50%
> líkur til þess, að unnt verði
/ að „hleypa aíf“ á Kanaveral
1 í fyrramiálið.
lausn.“ — Munongo innan-
ríkisráðherra fylkisins lét
þessi orð falla á blaðamanna-
fundi í dag, í nafni Tsjomb-
es forseta og forsætisráð-
herra og allrar stjórnar hans.
Hann sagði enn fremur, að
Katangastjórn mundi brátt
senda nefnd manna til Stan-
leyville til viðræðna við An-
toine Gizenga, forsætisráð-
herra stjórnarinnar í Orien-
tal-fylki, sem kommúnista-
ríkin viðurkenna sem for-
sætisráðherra alls Kongós.
Mundi nefndin reyna að ná
samkomulagi við Gizenga, er
miðaði að því að sætta hin
andstæðu öfl í Kongó.
ár Rússar einir hjálpa
vinum sínum
Munongo gagnrýnir mjög
Sameinuðu þjóðirnar og sakaði
þær um að reyna að knýja fram
„sina lausn“ á Kongómálinu,
„hvað sem kostaði". Sagði hann,
að hér eftir mundi Katanga-
stjórn leita lausnar á flækjunni,
án aðstoðar SÞ eða hins frjálsa
heims — en „á afrískan hátt“.
I þessu samþandi lýsti hann því
yfir, að ef þróun mála krefði,
mundi „ekki hikað við að leita
aðstoðar Sovétríkjanna til að
skipuleggja nýtt ríki“, enda virt-
ust þau ein fær um að styðja
vini sína að nokkru gagni. —
Þá sakaði Munongo Belgi um
að bera ábyrgð á „þjáningum
Kongó“ sl. ár, þar sem þeir
hefðu veitt landinu sjálfstæði
án þess að hugsa um afleiðing-
arnar.
ic Mobutu: — Við mig að eiga
í gær var undirritað sam-
komulag Katangastjórnar við
Mobutu um að hann taki við
yfirstjórn fylkishersins. Mun-
ongo tók það fram, að samkomu
Framh. á bls. 19
A.-þýzkur ráð-
herrasomir flýr
BERL.ÍN 20. júlí. (Reuter) —
Peter Probst, 22 ára gamall sonur
vararáðherra í kommúnistastjórn
Austur-Þýzkalands, hefir fiúið til
Vestur-Berlínar, að því er upp
lýst var í dag. — Ungi maðurinn
er sonur Gerhards Probsts, sem
er vararáðherra póstmála og f jar
skipta í Austur-Þýzkalandi.
Smáfrétt
b Pravda um orð
sendingarnar
Moskvu, 20. júlí (Reuter)
EKKERT rússneskt blað hefir
skýrt lesendum sínum frá orð-
sendingum vesturveldanna til
sovétstjórnarinnar um Þýzka-
land og Berlín — fyrr en í dag.
„Pravda", málgagn kommúnista-
flokksins, birti nú loks hálfs
dálks frétt frá Tass-fréttastof-
unni um orðsendinguna -— undir
fyrirsögninni „Um gömul sjón-
armið“.
í fréttinni var svo sem ekkert
sagt um bandarísku orðsending-
una, en um þá brezku var sagt,
að þar væri aðeins endurtekin
„gömul röksemdafærsla, sem
bæri vott um tregðu að viður-
kenna raunveruleikann og gera
friðarsamninga við bæði þýzku
ríkin“. — Þá sagði og, að orð-
sending frönsku stjórnarinnar
leiði ekkert nýtt í ljós varðanctt
afstöðu Frakka til Þýzkalands-
málanna.“
Kuwoif í Arabobondalagið
KAIRÓ, 20. júlí.
(NTB/Reuter) —
RÁÐ Arababandalagsins,
sem kom að nýju saman
til fundar hér í dag, sam-
þykkti inntökubeiðni hins
umdeilda furstadæmis
Kuwaits.
Fulltrúi íraks í ráðinu
gekk af fundi áður en
atkvæðagreiðslan hófst —
en allir hinir fulltrúarnir
greiddu atkvæði með um-
sókn Kuwaits um aðild að
bandalaginu.