Morgunblaðið - 21.07.1961, Side 18
18
MÖRGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 21. júlí 1961
Akranes sótti 2
stig gegn Fram
FRAM og Akranes mættust í
1. deild í fyrrakvöld. Það var
síðari leikur þessara liða í
mötinu. Og nú fóru leikar
sem fyrr. Akranes vann. Að
þessu sinni með 2—1. Leik-
urinn var þó enginn viðburð-
ur á sviði knattspyrnunnar
frá sjónarhól fagurrar og vel
leikinnar knattspyrnu.
# Fram tók forystuna
Eftir jafna byrjun, oft nokkuð
þófkenndan og ónákvæman ’.eik,
tck Fram forystuna í mörkum
eftir 15 mín. Dagbjartur Gríms-
son skoraði af 12 m færi með
lausu skoti, yfir Helga markvörð.
Fékk Dagbjartur sendingu yfir
Akranesvörnina, sem hópaðist á
miðju og til vinstri og var óvald-
aður um stund.
# Jafnt í hléi
Áðeins örfáar mínútur liðu þar
til Skagamenn jöfnuðu. Leikið
var upp vinstri væng og þar náði
Halldór miðvörður Fram knett-
inum og ætlaði að gefa til Geirs
markvarðar Fram. En sending-
in var laus og Ingvar var fljót-
ur að hlaupa, náði knettinum af
Geir. Knötturinn skoppaði fram
an við tómt mark og framfyrir
— en Ingvari tókst á snilldarleg-
an hátt að sneiða hann í mann-
laust markið.
Og svo stóð í leikhléi.
# Sigurmarkið
Er nokkuð var liðið á síðari
hálfleik skoraði Þórður Jónsson
Keppt um heims-
meistaratitilinn
í fyrsta sinn hefur Finnum nú
verið boðið að sjá um heimsmeist
arakeppni í hnefaleikum. Er um
að raeða leik milli Finnans Luu-
konen og Filippseyjamannsins
Besa.
Nokkrum erfiðleikum er bund
ið að slík keppni fari fram í
Finnlandi vegna skattálagningar
á tekjur manna. En forráðamenn
finnskra hnefaleika segjast munu
gera allt til þess að yfirvinna þá
örðugleika. Takizt það ekki muni
leikurinn fara fram í Bankok —
en þar geta hnefaleikamenn í
sæmilegum friði farið með ágóða
sinn.
HÉR eru tvær myndir úr leik
Fram — Akraness, og sýna
þær fyrra mark Skagamanna.
Ingvar komst fram hjá Geir
markverði (efri myndin).
Boltinn rann fram hjá marki,
en Ingvari tókst að sneiða
hann þrátt fyrir mikánn hraða
í markið. — Ljósm. Sv. Þorm.
sem nú lék i stöðu innherja, sig-
urmarfkið. Lék Skúli innherji
alveg upp að endamörkum og
hugðist gefa til Ingvars. En knött
urinn fór yfir hann og Þórður
skorar nær viðstöðulaust með i |
vel staðsettu skoti.
# Glötuð færi — og tilviljun
Fjölmörg tækifæri sem sköpuð
voru fóru forgörðum í þessum
leik, Oftast fyrir hreinan klaufa-
skap, fum og fálm. í bæði liðin
skorti sameinað átak til þess sem
gera þurfti. Það skorti og mjög
á nákvæmnina í sendingum og
yfirleitt á allt það sem breytir
kappleik úr tilviljanakenndum
spyrnum í fallegan og vel upp
byggðan leik. Leikmenn sýndu
sumir hverjir einstaka sinnum
tilþrif — en það var eins til-
viljanakennt og spyrnurnar Og
allir áttu þeir á milli klaufalega
tilburði. En sem betur fór náði
harka aldrei tökum á þessum
leik.
Framlengja varð ieik til
að fá úrslit h já kvenf olkinu
I fyrrakvöld lauk meistaramóti
kvenna í handknattleik utanhúss
og samtímis íslandsmóti 2. aldurs
flokks kvenna. Voru leikir móts
ins, sumir hverjir, mjög fjörugir,
og einkum voru úrslitaleikirnir
í fyrrakvöld harðir. Úrslit í meist
araflokki — og um fslandsmeist-
aratitilinn — lauk ekki fyrr en
eftir framlengdan leik. FH vann
þá Víking með 6 gegn 5. Úrslit í
2. flokki urðu nær eins hörð. 1
mark skild. að lið Ármanns og
Fram (2:1).
• Meistaraflokkur
Handknattleiksdeild Ármanns
sá um mótið og fór það fram á
íþróttasvæði félagsins við Sig-
tún. Hófst mótið á laugardag og
var leikið tvívegis þann dag. Sið
an var leikið á sunnudag og mánu
dag og úrslitin í fyrrakvöld.
í meistaraflokki báru tvö lið
nokkuð af, lið FH og lið Víkings.
Þau höfðu unnið alla sína leiki
örugglega og suroa með yfirburð
um unz þessi lið mættust í úrslita
leiknum. Hann var geysiharður
og jafn. Jafntefli í hálfleik 4:4 og
jafntefli í leikslok 5:5. Fram-
lengja varð og tókst þá FH að
skora eitt mark. FH hlaut 10 stig
Víkingur 8, Ármann 5, Þróttur 4,
Valur 2 og Fram 1.
• 2. flokkur.
í 2. flokki hlaut Ármann 10
stig og vann liðið alla sína leiki.
Fram hlaut 8 stig, Breiðablik í
Kópavogi 6, Víkingur 4, FH2 og
Valur ekkert.
Ásbjörn Sigurjónsson form.
HSÍ sleit mótinu í fyrrakv. og af
henti verðlaunabikar í meistara-
flokki kvenna. Var nú keppt um
hann í fyrsta sinn.
Ánæcjja oey gleði í
sumarbúðum ISi
Frá júníbyrjun hafa starfað í
Reykholti þrjú drengjanámskeið
og hið fjórða, sem er fyrir stúlk
ur stendur nú yfir. öll þessi nám
skeið hafa verið fullsótt og hafa
margir orðið frá að hverfa. Þess
vegna varð það að ráði, að efnt
yrði til aukanámskeiðs fyrir
drengi er hefst 24. þ.m. Reynslan
af starfseminni í sumar hefur ver
ið mjög góð, bæði er staðurinn
hinn ákjósanlegasti hvað við-
kemur mannvirkjum og náttúru-
gæðum og einnig hefur starfsskrá
in reynzt mjög vel við hæfi hinna
fjölmörgu unglinga, þar sem
reynt er að finna viðfangsefni
við hæfí hvers einstaklings og
þeim skipt niður í hópa eftir
aldri og þroska. m
Ýmsir fremstu íþróttamenn
þjóðarinnar hafa dvalizt með
drengjunum við æfingar og hefur
það gefið hina beztu raun.
í ráði er að gera kvikmynd af
Framh. á bls. 19.
HÁTT er reitt til höggs og
vel lagt í skotið hjá Sigurlínu
í liði FH. Víkingsstúlkunum
tveim tókst ekki að stöðva
hana — en markverðinum
tókst að verja. — Myndina tók
Sveinn Þormóðsson í úrslita
leiknum í fyrrakvöld.
Fer Ure til
Fulham?
SUMARH) er hvíldartími í enskri
knattspyrnu og hefur nú sem oft
áður verið notað af framkvæmd-
arstjórum félaganna til að kaupa
nýja spilara og þá um leið að
selja aðra. Stærstu breytingarnar
hafa að sjálfsögðu orðið hjá þeim
félögum sem seldu leikmenn til
Ítalíu. Fjórir spilarar vOru seldir
til Ítalíu og eru það þessir:
Greaves frá Chelsea, Hitchens
frá Aston Villa, Denis Law frá
Manohester City og Joe Baker
frá Hiberanians í Skotlandi.
Hljóta þessar sölur að hafa áhrif
á kaup og sölur á leikmönnum
almennt meðal annars sökum
þess hve háar fjárhæðir þessi
fjögur félög fengu fyrir spilarana,
og munu vafalaust nota það fé
til að kaupa aðra spilara.
Hér skal getið nokkurra af
þeim sölum sem fram hafa íarið
undanfarnar vikur. Preston hefur
keypt Alfie Biggs frá Bristol Rov
ers fyrir 18 þús. pund og í stað-
inn hafa Bristol Rovers keypt
varabakvörð Tottenhavn Johnny
Hills. Manchester City hefur
boðið 35 þúsund pund í Peter
Dobing, innherja hjá Blackburn,
og er reiknað með að sú sala
komist í geng. Fullham hefur
sýnt mikinn áhuga á miðvörð
Dundee, Ian Ure, góðkunningja
okkar, sem var með Dundee-lið-
inu sem kom til Reykjavíkur
ryrir nokrum vikum. West Ham
hefur keypt Ian Crawford, vinstri
útherja frá Hearts fyrir 7 þús,
pund. Sunderland hefur keypt
hinn kunna miðherja Brian
Clough, frá Middlesbrough fyrir
45 þús. pund. Clough lék í fyrsta
sinn í enska landsliðinu árið 1959
gegn Wales og Svíþjóð. Sunder-
Framh. á bls. 19.