Morgunblaðið - 26.11.1961, Page 1

Morgunblaðið - 26.11.1961, Page 1
MISJAFNT er svartbaksins gæðum skipt. t ýmsum borg- um á vesturströnd Banda- ríkjanna og Kanada liggja allt að 50 dollara sektir við því að drppa svartbak, en á tslandi er hann réttdræpur hvar sem til hans næst og fé lagt til höfuðs honum, þar sem hann spiilir æðarvarpi. Og frá Akranesi berast þær fréttir að Larus Marinus, eins og svartbakurinn heitir á lærðra máli, hafi sézt sveima í stórum hópum og flokkum yfir vatnsbóli Ak- urnesinga í Berjadal, og að sögn er þá sízt fyrir að synja að í vatnsbólið detti það sem sízt skyldi. bændur fyllast heilagri va'nd lætingu þegar þeir heyra til svartbaksins yfir varplönd- * En sumir hafa skemmtun af fuglinum, dást að glæsi- leik hans, þótt borðsiðirnir séu e. t. v. ekki alltaf upp á það bezta. Og ein helzta „attraksjón" eins stjómmála- félags ungra manna í Reykja vík virðist vera að fara í eggjatökuferðir umhverfis hið hrjáða vatnsból Akur- nesinga í Berjadal, þó að í síðustu ferð hafi ekki tekizt betur til en svo að einn. eggjamaðurinn týndist og fannst ekki fyrr en eftir dúk og disk. Bezti öskukarlinn Ekki skal í efa dregið að svartbakurinn er hinn leið- asti fugl í varpi og veldur þar miklu tjóni. Tekið er til þess að dúntekja hafi minnk •að allverulega hin síðari ár- in, hafi verið mest á öðrum tug þessarar aldar en síðan minnkað allverulega. Kenna margir svartbaknum einum um hve hallar undan fæti með dúntekjuna, en ein- hverju kann það líka um að valda að menn hafi gert sér minna far um að nýta æðar- varp nú á dögum en áður var. En Larus Marinus, hinn seki skógarmaður meðal is- lenzkra fugla, er kannske Hfl en kannske er bezta öskukarlinum ekki alls varnaö sektir að sama skapi fyrir að halda yfir honum hlífiskildi eða trassa að eyða eggjum. Larus Marinus, Mouette Noir En ísland er ekki eina landið sem hýsir svartbak- inn. Hann er vel þekktur víðast hvar, heitir á þýzku Mantelmöve, á latínu Larus Marinus, á frönsku Mouette Noir, á sænsku havm&se, á dönsku aalemaage eða svart- bag, á ensku great black- backed gull og loks á ís- lenzku veiðibjalla og kafla- bringur (ungfugl) til viðbót- ar svartbaksnafninu. Lexikon Salmonsen’s seg- ir að svartbakurinn verpi í stórum hluta Norður-Evrópu, í Grænlandi, Norður-Ameriku og norðurhluta Asíu, svo ekki sitjum við einir að fuglinum hér. Pólitiskar eggjaferðir Sennilega er svartbakurinn einhver pólitískasti fugl á ís- landi, og ekki eru þeir marg ir sjófuglamir, sem meira hefur verið rætt um í sölum Alþingis. Sumir segja að hann éti tugi togarafarma af nytjafiski umhverfis landið árlega, Reykvíkingar verða felmtri lostnir þegar þeir heyra um andarungaát hans á Tjörninni og dúntekju- sumir hafa skemmtun af fuglinum þrátt fyrir að borð siðirnir séu ekki sem beztir . . . !___________________________________________________________________i Ekki ér nóg með að við sjálft liggi að það sé borg- araskylda að drepa svartbak- inn hvarvetna sem til hans næst, heldur er einnig hægt að sekta menn fyrir að hindra dráp hans, svo og jarðareigendur, ef þeir trassa að steypa undan honum á landareign sinni. Og nú er flutt á Alþingi frumvarp til laga um að hækka laun fyr- ir hvern drepinn svartbak úr sex krónum upp í tólf og Sitthvaö um hinn seka skógarmann Larus Marinus eða svartbakinn . . . yfir vatnsbóli Akurnesinga í Berjadal hefur hann sézt sveima í stórum hópum og flokkum og er þá sízt fyrir að synja að . . . ekki alveg eins hábölvaður, sem menn vilja oft vera láta. Hann er trúlega bezti ösku- karl''kaupstaðanna við sjáv- arsíðuna, hann vinnur allan sólarhringinn fyrir ekki neitt, ekki er verkföllunum fyrir að fara ag hann skilur ekkert eftir af úrgangi, ef hann má. Sektir fyrir svartbaksdráp Sums staðar erlendis hafa menn gert sér þessa stað- reynd Ijósa, og eins og áður getur, liggja allt að 50 doll- ara sektir við því að drepa svartbak í ýmsum borgum á vesturströnd N-Ameríku, t.d. Vancouver. Fiskvinnsla er mikil víða þar við ströndina, og svartbakurinn flykkist að vinnslustöðvunum og hirðir upp hvern ætan bita, sem annars mundi liggja og úldna í sólinni, valda hinni verstu óþefjan og skapa ástand, sem gæti orðið hættulegt heilsu manna. — Yfirvöldin hafa gert sér þessa staðreynd Ijósa, og vernda svartbakinn sem ó- dýrustu og beztu sorphreins- un, sem völ er á. En þess ber að sjálfsögðu að gæta, að ekki hafa menn hlunnindi af æðarvarpi á þessum slóðum. Hvernig yrði Reykjavíkurhöfn? Hér er ekki verið að stinga upp á því að friða svartbak- inn, en til gamans mætti setja fram þá spumingu, hvernig umhorfs yrði í höfn- inni í Reykjavík ef svartbak- urinn hyrfi þaðan? Drafið og slorið sem hann tínir úr fjörunni, af bryggjum og upp úr • höfninni nemur vafalaust þúsundum kílóa á ári hverju. Þessi úrgangur mundi úidna þarna og rotna, a.m.k. með núverandi umgengnisvenjum, og vafalaust yrði að grípa tii róttækra ráðstafana til þess að forða höfninni frá því að verða eitt allsherjar svínari og pestarbæli. Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott. — Ekki skal ég um það segja hvort þyngra er á metunum, sorphreinsun svartbaksins eða hryðjuverk hans í æðar- vörpum, en ekki sakar að fólk hugi að því hvaða aðili það er, sem „tekur til“ við sjávarsíðuna. — Kannske er Larus Marinus ekki alls vam að. — hh. ■ ■ W WWIWWVPW 4W ú'Wj : : \ ' ■ ' : : Jf \

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.