Morgunblaðið - 03.12.1961, Page 3

Morgunblaðið - 03.12.1961, Page 3
Sunnudagur 3. des. 1961 MORGVNBLÁÐIÐ 3 Roíslraumi hleypt d nýja veitu írri spennistöð í Króhsljurðurnesi HÓLMAVÍK, 1. des. — Á s.l. sumri var unnið að lagningu há- spennulínu frá Þverárvirkjun við Hólmavík vestur yfir Tröllatungu heiði í Geiradal til Króksfjarðar ness, um 30—40 km leið. Fyrir fáeinum dögum var straumi hleypt á línuna af spennistöð- inni í Króiksfjarðarnesi. í Jafnframt því sem unnið var »ð lagningu háspennulínunnar, voru í haust lagðar nýjar ráf- leiðslur í húsin á Króksfjarðar- nesi og á nokkra baei á þessari leið, en sumir þeirra höfðu áð wr rafimagn frá heimilisrafstöðv um. i Kl. 7 i kvöld verður rafstraumi hleypt á þessa nýju veitu frá spennistöðinni í Króksfjarðar- nesi, og fá þá eftirtaldir bæir raf magn frá Þverárvirkjun: Króks fjarðarnes, Svarfhóll, Bær, Mel- bær, Tindur, Klettur, Hólar og Litla-Brekka. Þverárvirkjunin er nú sem stendur 500 kw. rafstöð, en fyrir sjáanlegt er, að hún er þegar að verða of lítil, bæði vegna út- færslu veitanna og af sívaxandi rafmagnsþörf í þorpunum við Steingrímsfjörð. Mjög gott raf- magn hefur verið frá Þverárvirkj uninni og þekkjast hér ekki raf magnstruflanir vegna krapa- stífla. Næsta sumar er fyrirhuguð stækkun á stöðinni, en vart er talið nægjanlegt að stækka hana um helming. Rafveitustjóri er Þórarinn Reykdal Ólafsson. — Andrés. • Fernando Olivier. — Hin fyrsta. • Olga Chocklowa. — Fyrri eiginkonan. OGKOKURNAR • Franeoise Gilot. börnin. Fór burt með Sylvette David. — Það var eitt vor ... ■*•■ Brigitte Bardot var ein þeirra kvenna, sem hrifust af Picasso. Hún heimsótti hann og vonaði, — að hann vildi mála hana — en árangurslaust. Hann vill sjálfur vinna frægðina til handa þeim konum, sem hann málar. Á Rivierunni uppgötvaði Picasso Sylvettu David sem var þá aðeins nítján ára. Hún var fyrirsæta hans vorið 1954 — aðeins það vor, en myndir hans af Sylvettu þykja með því bezta sem hann hefur gert og þær seldust jafnóðum við geypiverði. Eftir heimsstyrjöldina var það Francoise Gilot. sem sjálf var listmálari. Hún var fjöru- tíu árum yngri en Picasso og fæddi honum tvö börn, Claude og Palomu. Eftir sjö ára sam- búð hafði hún fengið nóg af ótryggð hans og fór á broti með bæði börn þeirra. Og þá skal loks vikið að Jacqueline Roque, sem hann hefur verið kvæntur í níu mánuði. Þau höfðu reyndar verið gift í nokkra mánuði, áður en það vitnaðist. enda kom tilkynningin eins og reið arslag yfir fjölmarga vini Picassos. Þau höfðu verið nán ir vinir í fjölmörg ár og vin- átta þeirra hafði orðið að mik illi ást. Ef til vill verður Jacqueline sú, sem veitir Picasso yndi á elliárunum. Hún er engin unglingur — og þó fjörutíu og fimm árum peninga og glaum samkvæmis ins. Picasso var þá þegar orð- inn vel efnaður maður — en sá var hængurinn á, að hann hataði peninga, glaum og gleði. Myndir hans urðu um þessar mundir grófari og eru sagðar spegla óróleika lífern- is hans og þess heims. sem hann lifði í. En frægð hans jókst stöðugt. Þau hjón eign uðust einn dreng, Paul, en nokkru seinna eignaðist Pi- casso stúlkubarn utan hjóna- bandsins, og fór þá frá konu sinni. Þau bjuggu ekki saman meir, en skildu aldrei, Picasso var því raunverulega kvænt- ur maður allt til ársins 1955, er Olga Chochlowa lézt. Þá hafði hann búið með a.m.k. tveim öðrum konum. • Jacqueline Rocque. — Förunautur í ellinni. Picasso áttræður — því skyldi enginn trúa. PICASSO MEISTARINN Picasso sem fyrir skömmu náði áttræðis- aldri, hefur meðal margs ann ars verið hið mesta kvenna- gull. Hann hefur átt margar konur, elskað margar konur og málað margar konur — þó aðeins kvænzt tveim konum. Með hverri konunni jókst frægð hans. þær urðu hver af annarri uppsprettur — eða a.m.k. hluti af uppsprettum nýrra þróunarskeiða í list hans. Ein hin fyrsta mikla ást Picassos, var fyrirsætan Fern ando Olivier, sem han,. kynnt ist í París árið 1905, skömmu eftir að hann fór alfarinn frá Spáni. Fernando, sem var jafn gömul Picasso, varð honum hugmynd fjölmargra konu- mynda. sem yfirleitt voru mál aðar í natúralískum stíl. Þessi stúlka lifði með Picasso fyrstu byltingu hans í málaralistinni, hún fylgdist með því hvernig óþekktur Spánverji vakti smám saman eftirtekt. Er hann yfirgaf hana haiði hann með andlitsmyndum sínum reist henni varanlegan minnis varða. Árið 1918 kvæntist Picasso í fyrsta sinn. Eiginkona hans var Olga Chochlowa, prima- bellarína í rússneska balletin- um undir stjórn Sergeis Djagilew. Þau giftust í París — Olga var vön hinum mikla heimi listafólks, hún elskaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.