Morgunblaðið - 31.12.1961, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 31.12.1961, Qupperneq 5
Sunnudagur 31. des. 1961 MORGVNBLAÐIÐ 5 Faðir hans bætti skó í þórpi einu á ey.iunni Lesbos. Hann reyndi að læra að bæta, þegar hann var barn, en áhuginn á skóm og stígvélum var ekki íyrir hendi Hann var sendu/ í skóla, en hann kærði sig ekki ura að læra. Hann var væskiK Og til einskis nýtur. Hann hét Theophilos Hat zimichali og fæddist 1864. Fyrstu mynd sína málaði hann á vegg bakarans í þorpinu. Fólk 'nió að teikningunni af bakaranum með brauðið á tré skóflu. — Þú kannt ekki að teikna, var sagt, þannig er ekki hægt að halda á brauðinu, það dett- ur. — Það dettur ekki af mynd inni minni, svaraði drengur- inn. föðurlandsvinirnir höfðu hang andi í beltisstað á þeim tím- um, bar hann pensla og máln- ingartúbur. Hann var málandi förumað- ur í Grikklandi, sem ferðaðist stað úr stað og skreytti veggi í vínkrám, hjá bændum og hreppsstjórum. Fyrir að mála vegg fékk hann eina máltíð og húsaskjól eina nótt. Fyrst málaði hann veggina með hvítu, síðan töfraði pensill hans fram myndir úr goðasögunum, hugarheimi hans og náttúrunni. Því miður er nær öll þessi verk horfin. Veggirnir hafa verið kalkaðir að nýju eða rifnir og sumum myndunusn kefur regnið skol- að burt. En hann málaði líka myndir, sem skreyttu veggi á heimilum efnameiri manna. Gríski mólorinn Theophilos Hlutirnir litu ekki sennilega út á málverkum hans, borð og stólar stóðu á tánum, húsin ýmist hengu eða svifu í lausu lofti og gleiðbrosandi ljón hoppuðu kringum múldýr frá Lesbos og Arabahöfðingja. Drengurinn var í stuttu máli sagf bjáni, en hann fór sínu fram Theophilos hafði ekki hug- mynd um hvað hæfileikar voru og vissi ekkert um und- irstöður málaralistarinnar. Hann málaði bara það sem hann sá og tók miklu ástfóstri við gríska landslagið Og gríska bóndann við vinnu sína. Hann var mikill ættjarðar- vinur og reyndi að taka þátt í stríðinu við Tyrki 1897, þótt hann hataði blóðsúthellingar. Þegar hann kom aftur heim byrjaði hann fyrst að mála fyrir alvöru. Það var það eina, sem hann gat. Hann klæddi sig eins og bóndi, en í staðinn fyrir hnífa og önnur vopn, sem Árið 1934 fékk hann matar disk í húsi, þar sem hann hafði málað nokkrar myndir, en mat urinn var skemmdur. Hann dó af matareitrun í fátæklegu herbergi sínu, en þrír dagar liðu frá því hann skildi við þar til hann fannst þar. Hann var jarðaður í kyrrþey á kostn að sveitarinnar. Árið 1947 uppgötvaði The British Counsil í Aþenu Theo- philos. Byrjað var að safna saman nokkrum hinna dreifðu verka hans. Grískir málarar og listaverkasafnarar héldu því áfram og gengust fyrir því, að myndir hans voru sýndar í París. Þær vöktu mikla hrifningu og á auga- bragði var Theophilos orðinn frægur. Það sem til er eftir Theo- philos nú, er safn einfaldra mynda, sem yfir hvílir viss yndisþokki, er gefur ósjálfrátt til kynna hinn hreina gríska anda. Þó að ljón hans og hundar Theophilos með málninga- pansla og túbur hangandi í belti sínu. séu hnarreistir, eru dýrin alltaf skrautleg og skemmti- leg Og skemmtilegt að horfa á þau. Hann blandaði liti sína með eggjum, eða safa af fíkju blöðum. Hann sagði að þetta væri byzantinsk aðferð, en enginn annar hefur getað líkt eftir honum. Þessi undarlegi drengur hefur varpað ljóma á föður- land sitt, sem hinn fyrsti Og mesti frumstæði málari þess. Nú hanga myndir ihans í Louvre-safninu við hliðina á myndum Henry Rousseau og fleiri meistara. neitt jólatré, við skreytum bara ljósakrónuna. — x X x — ’ Áður en Berlínardeilan fræga kom upp áttu frakkneskur og rússneskur liðsforingi eftirfar- andi samtal: Rússinn: Er það satt að þið þarna í vesturblutanum megið fara úr landi án sérstaks leyfis lögreglunnar? Frakkinn: Auðvitað, ef við höfum vegabréf í lagi. R: Og megið þið fara frá einni borg til annarrar án sérstaks leyfis? F: Já, vitanlega. R: Og megið þið verja tóm- stundum ykkar ein sog ykkur sýnis, án þess að spyrja leyfis? F: Já, mikil ósköp. R: Ekki er ofsögum sagt af stjórnleysinu, sem okkur hefir verið sagt, að ríki hjá ykkur. — x X x — Búðarstúlkan: Hér er mjól’kur líterinn, hvar eru svo peningarn ir? Barnið: Þeir eru á botninum í brúsanum. — x X x — — f gær kom ég hingað inn og keypti rúsínuköku, en þegar við átum hana var engin rúsína í henni. Bakarinn: — Hafið þér nokk- urn tíma étið refakex með refum í? Eimskipafél-g íslands h.f.: Brúarfoss er í Hamborg. Dettifoss er á leið til NY. Fjallfoss er í Leningrad, Goðafoss kom til Rvíkur 24. 12. Gullfoss er á leið til Hamborgar. Lagarfoss er í Rvik. Reykjafoss er á leið til Rvíkur. Selfoss er á leið til Rvikur. Tröllafoss er á leið til Rotterdam. Tungufoss er i Hamborg. Skipadeild.SÍS: Hvassafell er í Rvík. Arnarfell er á Siglufirði. Jökulfell er í Ventspils. Dísarfell er á Horna- firði. Litlafell fór í morgun frá Rvík til Austfjaröa. Helgafell er á leið til Húsavikur. Hamrafell er á leið til Rvíkur. Skaansund er í Rvík. Heeren Graclit er væntanlegt til Rvikur. 4. 1. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: — Katla er á Siglufirði. Askja er á leið til Kanada. Læknar fiarveiandi Áinl li.lörnsson um óákv. tíma. — (Stefán Bogason). Esra Pétursson um óákveðinn tíma (Halldór Arinbjarnar). Kjartan R. Guðmundsson frá 21. sept. 1961 til 31. marz 1962. (Samlagssj. Ol- afur Jóhannsson. Taugasj. Gunnar Guðmundsson). Sigurður S. 'Magnússon um óákv. tíma (Tryggvi Þorsteinsson). Víkingur Arnórsson til marzloka 1962. (Olafur Jónsson). múotwiM HhRGRElomm GtíE TTiSGöru IJL. eoitept nijtt ár þökkum viðskiptin á gamla árinu. GREIÐAN. Cj(e(i(eft nýár! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. SLÁTURFÉLAG SUÐURLAND5 Cj(ecii(eýt nýár! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. MATARBÚÐIR ss Hafnarstræti 5 — Laugavegi 42 Skólavörðustíg 22 — Réttarholtsvegi 1 Bræðraborgarstíg 43 — Grettisgötu 64 Brekkulæk 1 — Álfheimar 2 — Skólabraut, Akranesi. Cjfeciilecýt nýtt ar þökkum viðskiptin á liðnum árum. Verzlunin LUNDUR Sundlaugavegi 12. Cjle&ilecjt nýtt ar þökkum v.ðskiptin á liðna árinu. Bifreiðaverkstæðið HEMILL. Cjleciilecýt nýtt ar Verzlunarfélagið FESTIN. (CCeztu iólc / r . / . / • foia ocf nýaráoóteir L þökkum liðnu árin. Vegna veikinda gátum við ekki sent jólanveðjur á þessum jólum. Adda og Elith Foss Peter, Jeppe og Morten

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.