Morgunblaðið - 26.01.1962, Side 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 26. jan. 1961 >
r'
■0-
Framsdknarálögurnar
bitna harðast á bændum
Fáráníegar staðhæfingar
eiturpenna Timans
• Framsóknarmenn hafa
reynt að dreifa því út um
landið, að Ingólfur Jónsson,
landbúnaðarráðherra, hafi fyr
ir síðustu kosningar ráðlagt
bændum í Rangárþingi að
kaupa ekki landbúnaðarvél-
ar, vegna þess að þær mundu
lækka síðar. Tímamenn vita,
að það þýðir ekki að segja
Rangæingum þetta. Bændum
annars staðar á landinu er
ætlað að trúa þessu. Þannig
á að reyna að ná sér niðri á
Ingólfi Jónssyni og Sjálf-
stæðisflokknum.
• Rangæingar og bændur
i Suðurlandskjördæmi vita
vel, hvað sagt var fyrir síð-
ustu kosningar á stjóramála-
fundum í héruðunum. Ingólf-
ur Jónsson hélt því þá fram,
að vinstri stjórnin hafi lagt
skatta á nauðsynjavörur, fóð-
urbæti og vélar, án þess að
nokkuð kæmi í staðinn, sam-
anber yfirfærslugjaldið. Byrð
ar þessar voru þó öllu meiri
heldur en það sem yfir-
færslugjaldinu nam, vegna
þess að hin taumlausa dýrtíð,
sem flæddi yfir þjóðina af
völdum vinstri stjórnarinnar,
varð til þess að lækka gengi
krónunnar ennþá meira held-
ur en lögfest hafði verið með
yfirfærslugjaldinu.
Þetta kom greinilegast í
ljós síöast á árinu 1958, þeg-
ar vinstri stjórnin gafst hrein
lega upp, vegna þess að hún
réð ekki við verðbólguna og
þá erfiðleika, sem að steðj-
uðu. —
• Það eru því fyrst og
fremst aðgerðir eða aðgerð-
arleysi vinstri stjórnarinnar,
sem hefur leitt til hinna
miklu hækkana, sem orðið
hafa á landbúnaðarvélum og
öðrum nauðsynjavörum, sem
atvinnuvegir landsmanna
þurfa á að halda.
Gengi íslenzkrar krónu var
skráð í febrúarmánuði 1960,
eins og það raunverulega var,
þegar vinstri stjórnin gafst
upp og skildi við allt í rúst-
um. Bændur hafa áreiðanlega
gert sér grein fyrir því, að
þeir geta ekki byggt afkomu
sína á fölsku gengi. — Þeir
munu því una því að kaupa
vélar og aðrar nauðsynjar á
því verði sem þær raunveru-
lega kosta.
Bændur munu einnig
gera kröfu til að fá rétt verð
fyrir þær vörur, sem þeir
framleiða.
Núverandi ríkisstjóra hef-
ur breytt afurðasölulöggjöf-
inni til batnaðar fyrir Iand-
búnaðinn, með því að tryggja
söluverð Iandbúnaðarafurða
með útflutningsábyrgð. Með-
an vinstri stjórain fór með
völd, urðu bændur að bera
hallann af því sem út var
flutt. Þess vegna, m.a., voru
Framsóknarálögurnar 1958
mjög tilfinnanlegar fyrir
landbúnaðinn.
• Ennþá eru nokkrir toll
ar á landbúnaðartækjum, þótt
þeir séu nú miklu lægri en
áður. Þess má hinsvegar
geta, að tollskráin er nú í
endurskoðun, og hefur verið
alvarlega um það rætt að
lækka innflutningsgjöld á
vélum til Iandbúnaðar og
sjávarútvegs.
Það er fáránlegt, þegar
Framsóknarmenn kenna nú-
verandi rikisstjóra um að
nokkuð hafi dregið úr fram-
ræslu Iands í sveitunum. —
Vitað er, að í mörgum hrepp
um hefur nú þegar verið
þurrkað allt það land, sem
til ráðstöfunar er. 1 öðrum
sveitum hafa verið unnar
stórfelldar framkvæmdir á
þessu sviði, þótt mikið Iand
sé ennþá sem betur fer rækt
anlegt. En það land bíður
eftir fleiri höndum, sem
leggja vilja hönd á plóginn
og auka ræktun og fram-
leiðslu í íslenzkum sveitum.
Eiturpennar Tímans munu
engan þátt eiga í þvi mikil-
væga starfi í þágu framtíð-
arinnar.
Bátaábyrgöarfél.Vest-
mannaeyja 100 ára
Bóka-
uppboð
Sigurðar
Benediktssonar
f DAG kl. 5 heldur Sigurður
Benediktsson bókauppboð í Sjálf
stæðishúsinu, en húsið verður
opnað kl. 10 f.h., svo að menn
geti kynnt sér, hvaða bækur
verða á uppboðinu. Þarna eru
margar merkar bækur að venju,
svo sem Tractatus Historico,
Physicus de Agricultura Islandor
um, Khöfn 1757. eftir Jón Snorra-
son og Sá Nije Yfirsetu kvenna-
skóle eður stutt undirvisun um
yfirsetukvenna konstena, Hólar
1749.
Alls verða 87 númer á uppboð-
inu svo sem: Thomas Balle: Is-
lændernes Haab til Kongen,
Khöfn 1771 og Ljóðmæli, Gimli,
Man 1895, eftir Harald G. Sigur-
geirsson, en hvorug þessara bóka
er til í Fiske. Þá eru íslands Ár-
bækur Espólíns, I-XII deild,
Khöfn 1821—1855, X—XII deild
á skrifpappír, Æfisaga Steinunn-
ar H. Sívertsen, Rvík. 1870, Har-
aldur og Ása eftir Ögmund Sívert
sen, Khöfn 1828, Kongs Christi
ans þess Fimta Norsku Lög,
Hrappsey 1779, Dagl. Yðkun út
af sjö orðum þeirrar signuðu
Meyar eftir Jón Vigfússon,
Hrappsey 1783, Nytsamlegur
Bæklingur, Guðm. Högnason
þýddi, Hólar 1774. Nokkrar Smá-
sögur eftir Bjarna Gunnarsen,
Ak. 1853, Stúlka, ljóðmæli, eftir
Júlíönu Jónsdóttur, Ak. 1870,
Kveðja, — burtfararræða fram-
flutt að Odda 1887 eftir Matthías
Jochumsson, Rvík 1887 og
Almanak 1874, sem Björn M.
Olsen hefur skrifað á, að Jón
Sigurðsson hafi gefið sér. _
í DAG eru 100 ár liðin, síðan
Bátaábyrgðarfélag Vestmanna-
eyja var stofnað fyrir forgöngu
Bjarna E. Magnússonar, sýslu-
Vitni vantar
f GÆR tilkynnti kona ranrusókn
arlögreglunni um slys, sem hún
hafði orðið fyrir á strætisrvagna-
biðlstöð við Sunnutorg s.l. laugar
dag. Var konan að fara út úr
strætisvagni kl. 17 uon daginn, en
segist hafa dottið er hún var að
stíga út úr vagninum. Maður, sem
var í vagninum, fór út Og hjálp-
aði konunni að standa á fætur,
en fór síðan. Nú hefur komið á
daginn að konan er handleggs-
brotinn, og biður umferðadeild
rannsóknarlögreglunar fyrr-
greindan mann, svo og önnur
vitni, að gefa sig fram.
Rússar vilja
iund um Kongó
New York, 25. jan. (NTB).
SOVÉTRÍKIN kröfðust þess í
kvöld að öryggisráð SÞ yrði taf-
arlaust kallað saman til að ræða
ástandið í Kongó.
Krafan kom fram í bréfi, sem
Valerin Zorin aðstoðarutanríkis-
ráðherra og aðalfulltrúi Rússa
rjá SÞ sendi formanni ráðsins
Bretanum sir Patrick Dean. Efni
bréfsins hefur ekki verið birt,
en sennilegt er talið að krafan
sé gerð með tilliti til þess að
Antoine Gizenga fyrrverandi
forsætisráðherra Kongó hefur
verið hnepptur í varðhald.
manns. Bátaábyrgðarfélag Vest-
mannaeyja er elzt allra vá-
tryggingarfélaga á landinu og á
að baki sér óvenjulega merki-
legan starfsferil. Verður saga fé
lagsins nánar rakin í blaðinu
síðar.
Félagsstjórn og aðalfundur fé-
lagsins ákváðu að minnast þess-
ara merkilegu tímamóta á verð-
ugan hátt með því að gefa út að
nýju afmælisrit félagsins, sem
Jóh. Gunnax Ólafsson, sýslumað-
ur, samdi á 75 ára afmæli fé-
iagsins, en aukið, svo þar væri
saga félagsins um 100 starfsár
þess. Sá Ársæll Sveinsson, út-
gerðarmaður, um að búa afmæl-
isritið til prentunar og er bókin
væntanleg á markaðinn á morg-
un.
Annað kvöld heldur stjórn fé-
lagsins fjölmennt boð fyrir fé-
lagsmenn sína í Vestmannaeyj-
um.
Drengur fyrir bíl
UM áttaleytið í gærmorgun varð
drengur fyrir bíl á Reykjavegi.
Bíl var ekið norður götuna og
gekk drengurinn eftir akbraut-
inni í sömu átt. Bílstjórinn seg-
ist ekki hafa séð drenginn fyrr
en um seinan. Hemlaði hann þá
en bíllinn rann áfram á hálku,
snerist og lenti á drengnum,
sem barst með honum spölkorn.
Bar bílstjórinn að bíll hafi kom-
ið á móti með sterkum ljósum,
og sé það m. a. ástæðan fyrir
því að hann hafi ekki séð dreng
inn fyrr en um seinan.
Drengurinn var fluttur á slysa
varðstofuna og síðan heim til
sín. Mun hann talsvert marinn,
NA /5 knúfor
~ír* Sl/SOhnútar
¥ Snjóktn
* OS/m
V Skt/Hr
IC Þrumur
VIÐ S-Grænland var mjög
djúp lægð í gær, en tekin að
grynnast Frá henni stöfuðu
skýin, sem voru yfir landinu
á hádegi í gær og ollu helli-
rigningu og hvassviðri í
Reykjavík snemma í gærmorg
un og í fyrrinótt. Á eftir þeim
lægði rr.jög, en útlit var fyrir,
að aftur mundi herða vind-
inn með éljagangi. Mikið
hvassviðri var suður af Hvarfi
og olli hafróti við veðurskipið
Alfa, þótt aðeins væru þar
7 vindstig (30 hnútar).
Vinnur verðlngseftirlitið
ú móti hngstæðum innhuupum
VIÐ höfum fyrir framan okkur
tvo verðútreikninga yfir tvær
sendingar af rúnnu vélastáli, kaup
andinn er Sindri h.f. í öðru til-
fellinu er keypt frá velþekkt-
um dönskum járnlager, %” og
9/16” vélastál, rúmt tonn af
hvorri stærð. Kostnaðarverð
reynist vera kr. 13.72 pr. kg.,
samkvæmt verðútreikningi. í
hinu tilfellinu er keypt frá vel-
þekktri hollenzkri verksmiðju,
ýmsar stærðir frá 5/16” til 3%”
af rúnnu vélastáli, eitt til tvö
tonn af hverri stærð, alls ca
17% tonn. Kostnaðarverð reyn-
ist vera kr. 11.06 pr. kg., sam-
kvæmt verðútreikningi. Mismun
ur á lagerverði og verksmiðju-
verði ca. 25%, er ekki óeðlileg-
ur. Auk venjulegrar verzlunar-
álagningar hjá lagerfyrirtækinu
verður það að kosta til afferm-
ingar og útskipunar, samanbor-
ið við verksmiðjuna, sem sendir
stálið beint til íslenzka kaup-
andans án umhleðslu. Þessir
verðútreikningar eru teknir af
handahófi, nema hvað hér er
um sömu tegund af stáli að
ræða, og magnið af hverri stærð
er svipað. Afgreiðslutími frá
lager er venjulega stuttur, en
frá verksmiðju 1—3 mánuðir.
Tilgangur okkar með að senda
þessa verðútreikninga ,til þeirra
sem það varðar, er, að menn
geti séð þann reginmismun, sem
liggur í innkaupunum, og hvaða
gildi innlend birgðastöð hefur
að þessu leyti, því ef hún vill
verða starfhæf, þá er hún í all-
flestum tilfellum neydd til að
kaupa frá verksmiðjum með
lægsta fáanlegu markaðsverði,
þó að afgreiðslutími sé að sjálf-
sögðu lengri. Ef stór hluti af
smíðajárninu, sem við notum,
væri keyptur af erlendum lag-
er fyrirtækjum, við skulum
áætla 10 þús. tonn, og ef verð-
mismunurinn væri eitthvað svip
aður og það sem hér reynist
vera, þá kostaði það landið í er-
lendum gjaldeyri 20—25 millj.
króna.
Þetta dæmi sýnir, hvað verð-
lagið getur verið mikilvægt, og
hvað aðgerðir verðlagseftirlits og
innflutningsyfirvalda, sem stuðla
beinlínis að óhagstæðum inn-
kaupum, eru gjörsamlega fánýtar.
En það allra mikilvægasta fyr-
ir jámiðnaðinn er, að það séu
ávallt til í landinu nægar og
fjölbreyttar birgðir af öllum
þeim fjölda tegunda og stærða
af jámi og stáli, sem nota þarf
á hverjum tíma. Ef það kæmi
fyrir, að siglingar hingað til
lands tepptust, vegna styrjaldar
eða einhvers annars, þá væri
ástandið í þessum birgðamálum
járniðnaðarins þannig, að járn-
iðnaður hér á landi mundi
stöðvast innan fárra vikna,
vegna efnisskorts.
Þó að hér sé tekið dæmi um
stál- og járnkaup, sem að sjálf-
sögðu er einn mikilvægasti inn-
flutningurinn, á þetta við um
fjölda vörutegunda.
Það er einungis eitt, sem get-
ur bjargað þessum málum, það
er frjáls innflutningur á þessu
höfuðnauðsynjaefni, sem er
grundvöllurinn að öllu því, sem
gjört er hér á landi.
Þetta hlýtur að vera höfuð-
krafa allra þeirra, sem stunda
járniðnað hér á lndi.
Einar Ásmundsson.
m 0 mjmm
Jurðskjdlfti
í Grímsey
t FYRRAKVÖLD varð vart
jarðskjálfta í Grímsey laust
fyrir miðnætti. Fundust þrir
kippir. Einnig varð vart við
Bkippi á Siglufiröi.
ðskjálftamælir veðurstof
r mældi kippi þessa og
aðist fjarlægðin til upp-
ina vera um 300 km. frá
javík, en það samsvarar
iim vegin fjarlægðinni til
Grímseyjar. Um nákvæma
staðarákvörðun var ekki vitað
i í gærkvöldi þar sem ekki er
hægt að ákvarða hana nema
mælingar frá fleiri stöðum
komi til, en niðurstöður þeirra
Vhöfðu ekki borizt.
Tollulækkonir I
Bundaríkjunum
Washington, 25. jan. (AP)
Kennedy forseti fór þess í dag á
leit við Bandarikjaþing að það
veitti honum heimild til að taka
upp samninga um stórfelldar
lækkanir á aðflutningstollum.
Segir forsetinn þessar lækkanir
nauðsynlegar í sambandi við
væntanlega samvinnu Bandaríkj
anna og Efnahagsbandalags Ev-
rópu. Sagði hann að með þessu
gætu Bandaríkin sannað trú sína
á að rífa niður múrana i stað þess
að reisa þá.
Kennedy fer frarm á heimilid ti‘l
að semja um allt a<5 helmings
lækikiun á innflutningstolkim með
gagnkvæmum samningtum við
Efnahagsbandalag Evrópu um al
gjöra niðurfellingu innflutnings-
tolla á einstökum vöruim.
TOKIO, 25. jan. (NTB). Eldur
kom upp í elliheimili í Tokio í
morgun og brunnu sjö gamal-
menni inni. Grunur leikur á að
18 ára unglingur hafi kveikt 1
húsinu.