Morgunblaðið - 26.01.1962, Side 12

Morgunblaðið - 26.01.1962, Side 12
12 MORGTJTSntÁÐlÐ Föstudagur 26. jan. 1961 TttooxQmMribVb Otgeíandi: H.l, Arvakur. Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigíús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (átjm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. FORMAÐUR DAGS- RRÚNAR SVÍKUR EIGIN TILLÖGUR l^yrir hátíðarnar fréttust þau * ánægjulegu tíðindi, að allir þingflokkar hefðu stað- ið að samþykkt þingsálykt- unartillögu, sem miðaði að því að taka upp heilbrigð vinnubrögð í kjaramálum, leitast við að fara leið kjara- bóta án verkfalla í stað verk falla án kjarabóta. — Meðal flutningsmanna þessarar til- lögu voru Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar, og Hannibal Valdim'arsson, for- seti Alþýðusambands íslands. Morgunblaðið fagnaði þess ari tillögu, sagðist trúa því þar til annað 'reyndist rétt- ara, að flutningsmenn ósk- uðu í raun og veru eftir kjarabótum launþega og hét fyllsta stuðningi sínum við tillöguna, enda var hún í samræmi við stefnu blaðsins. Morgunblaðið leyfði sér þó að vekja athygli á því, að nokkur hætta væri á, að til- lagan væri einungis flutt í áróðurstilgangi, því að komm únistar treystu sér ekki til að heyja baráttu í verkalýðs- félögunum, án þess að lýsa stuðningi við kjarabótastefn- una. — Því miður er nú komið á daginn, að kommúnistar eru fyrirfram ákveðnir í að svíkja sínar eigin tillögur, og formaður Dagsbrúnar gengur sjálfur fram fyrir skjöldu til að afneita þeim. í viðtali, sem Moskvumálgagnið átti í gær við Eðvarð Sigurðsson, segir blaðamaðurinn: „Nú segir Morgunblaðið, að forystumenn launþega- samtakanna séu að vakna til vitundar um, að hægt sé að fara aðrar leiðir í kjarabar- áttunni en leiðir verkfall- anna“. Og formaður Dagsbrúnar svarar: „Já, það sýnir kannski bet- ur en flest annað heiðarleik þeirra í málflutningi“! Þegar Morgunblaðið lýsir fyllsta stuðningi við tillögu formanns Dagsbrúnar og for- seta Alþýðusambands ís- lands, þá snýst Eðvarð Sig- urðsson gegn eigin tillögum. Hann óttast nú, að þær nái fram að ganga. En þegar hann flutti þingsályktunartil lögu sína, þá treysti hann því, að hún yrði felld og hann þyrfti þar af leiðandi aldrei að standa við þau orð, að hann óskaði raunhæfra kjarabóta. Og ennfremur seg ir hann í viðtalinu: „Já, Morgunblaðsmönnum hefur verið tíðrætt um það, sem þeir kalla „nýja stefnu“ í kjaramálum. Hún á að vera í því fólgin að koma á hverskonar hagræðingu í at- vinnulífinu, bættri vinnutil- högun, ákvæðisvinnu o. s. frv.... En við erum hins- vegar búnir að fá nóg af því að hlusta á eilíft orðagjálfur um þessa hluti, þar sem aldrei örlar á alvöru til þess að leysa nokkurn vanda“. Eigin tillögur Eðvarðs eru þannig orðnar „orðagjálfur“. Og áður nefndi Þjóðviljinn þær „óljós slagorð“. Þetta er það, sem formaður Dagsbrún ar hefur í dag að segja um kjarabótastefnuna. Og í hinu langa viðtali, sem áður var vitnað til, forðast hann að nefna beint þingsályktunartil lögu sína, en áréttar marg- sinnis að kjarabótastefnan sé stefna Morgunblaðsins og þar af leiðandi að sjálfsögðu ó- hæf! — HVAÐ SEGIR HANNIBAL ? jYfeð hliðsjón af því, að einn af flutningsmönn- um þingsályktunartillögunn- ar um bætta vinnutilhögun og heilbrigða stefnu í kjara- málum, Eðvarð Sigurðsson, hefur nú svikið hana og kommúnistamálgagnið tekið upp baráttu gegn henni, er ástæða til að spyrja annan flutningsmanninn, Hannibal Valdimarsson, forseta Al- þýðusambands íslands, hver afstaða hans sé. Síðan þingsályktunartillag- an var samþykkt, hefur lítið heyrzt frá forseta ASÍ um þetta mál. Má segja, að ekki hafi verið sérstök ástæða til að hann ræddi það, meðan talið var að allir væru sam- mála um framgang þess. En þegar í ljós er komið, að flokksmenn hans snúast önd- verðir gegn tillögunni, verð- ur ekki hjá því komizt að óska svars Hannibals Valdi- marssonar við spurningunni um það, hvort hann standi enn við þau orð sín, að hann óski raunhæfra kjarabóta og heilbrigðs samstarfs í verka- lýðsmálum, eða hvort hann hafi líka svikið það, sem hann taldi sína stefnu í des- ember. Er hér með skorað á for- seta A.S.Í. að svara svikum Apertura a sinistra Ársþing kristilegra demÓkrata * á Italíu hefst á morgun Á morgun hefst í Napoli ársþing Kristilega demókrata flokksins á Ítalíu, flokks Am- intore Fanfanis forsætisráð- herra. Er nokkurra tíðinda að vænta af þessu flokksþingi, því aðrir stuðningsmenn stjórnarinnar hafa lýst því yfir að þeir hætti stuðningi sínum frá og með morgun- deginum. Lítur því út fyrir að flokksþingið snúist aðallega um það að ná samvinnu um myndun meirihlutastjórnar annaðhvort við núverandi stuðningsflokka eða við Nenni sósíalista. Kristilegir demókratar fengu við þingkosningarriar í maí 1958 kjörna 273 fulltrúa og vantar 26 til að hafa meirihluta í fulitrúa- deild þingsins. Núverandi stjórn er eingönigu skipuð ful'ltirúuim kristilegra demókrata og eiga þrír fyrrverandi forsætisráðherr- ar sæti í henni auk Fanfanis, þ.e. Antonio Segni utanríkisróðherra, Mario Scelba innanríkisráðherra Og Giuseppe Pella fjárhagsmála- ráðherra. Stjórnin hefur notið stuðnings jafnaðarmanna Sara- gats (23 þingmenn), frjálslyndra (16 þingmenn) og republikana (7 þingmenn). Auk þess hafa Nenni- sósíalistar og konungssinnar yfir- leitt setið hjá við atkvæðagreiðsl- ur um vantraust á stjómina svo andstaðan hefur aðallega verið frá kommúnistum, sem hlutu 140 þingsæti í fu'lltrúadeildinni 1958. NENNI. Nenni-sósíalistar eru þriðji stærstj flokkur Ítalíu og hlaut 84 fulitrúa kjörna 1958. Flokkur þessi, undir forustu Pietros Nenn- is, var lengi í nánu samstarfi við kommúnista, en á seinni árum hefur mjög dregið úr því sam- starfi. Nenni hefur hvað eftir annað komið fram í beinni and- stöðu við kommúnismann. Hann viðurkennir aðild Ítalíu að Atl- antshafsbandalaginu, vill samein- ingu Þýzkalandis og er algjörlega andvígur Berlínarstefnu Rússa. Þegair Rússar hófu kjarnorkutil- raunir að nýju hinn 1. september s.l. var Nenni einn hinna fyrstu Pietro Nenni. sem gagnrýndiu Krúsjeff öpin- berlega. EKKI VANTRAUST. Það eru jafnaðarmenn og repu- blikanar, sem nú hætta stuðningi við stjóm Fanfanis. Ekki er það þó gert sem vantraust á forsætis- ráðherrann, heldur hitt að þeir vilja þvinga kristilega demo- krata til samvinnu við Nenni. Fanfani er þessu sjálfur eindregið fylgjandi og hefur áður gert ítrekaðar tilraunir til að koma þesskonar sam'srtarfi á. En hægri armur flokksins undir forustu Pella, Andreotti og Scelba er þessu andvígur. Og fram til þessa hefur Vatiikanið verið eindregið gegn öllu samstarfi við róttæka vinstriflokka. Frjálslyndi flokk- urinn, sem í rauninni er íhalds- flokkur, er að sjálfsögðu andvig- ur þetssari stefnu. „APERTURA A SINISTRA" Fanfani hefur, eins og að íram- an segir, gert ítrekaðar tilraunir til að ná samstarfi við Nenni um myndun vinstri stjórnar, eöa „apertura a sinistra" (opnun til vinstri) eins og ítalir nefna þessa stefnu. Fanfanj er fylgjandi stór- aukinni rikisfjárfestingu í Suð- ur ítaliu til að skapa meira jafn- vægi milli þessa hluta landsins og hinna auðugu iðnaðarhéraða á Norður Ítalíu. Hann vill einnig aukin fjárframlög til skóla, vega og jámbrauta. Þessu er Nenni algjörlega sammála, en vill auk þess þjóðnýtinigu orkuvera og auð linda, skiptingu jarðeigna og op- inbert eftirlit með iðnaðinum. ÓTTAST FYLGISTAP. Helztu andstæðingar „apertura a sinistra" eru hvorki ný-fasistar Framh á bls. 23. formanns Dagsbrúnar fyrir kosningarnar í félaginu nk. sunnudag, annars verður að álíta hann samsekan í svik- unum. VARANLEGIR VEGIR íslendingar hafa á undan- *■ förnum áratugum varið gífurlegu fjármagni til vega- lagninga. í strjálbýlu landi lendir sá kostnaður á tiltölu- lega fáum einstaklingum, en engu að síður hefur stórvirki verið unnið á þessu sviði, svo að flestar byggðir lands- ins eru nú sem óðast að komast í nokkurn veginn við unandi vegasamband. Þótt sú stefna hafi verið rétt að tengja sem flestar byggðir landsins þjóðvega- sambandinu, en láta vegi úr varanlegu efni sitja á hakan- um á meðan, þá er nú sá tími kominn að óhjákvæmi- legt er að hefja stórfram- kvæmdir við að fullgera fjöl- förnustu vegi landsins. Eins og kunnugt er hafa þegar verið hafnar fram- kvæmdir við Keflavíkurveg- inn, sem gert er ráð fyrir að verði steinsteyptur. En nauð. synlegt er að hraða fram» kvæmdum þar og hefja síð- an lagníngu annarra fjöl- fönustu vega, ekki sízt aust- urvegarins. Enn eru afköst Sements- verksmiðjunnar ekki full- nýtt og er það enn frekari ástæða til að hraða lagningu steinsteyptra vega, því að til- tölulega ódýrt er að auka framleiðslu verksmiðjunnar, svo að hún geti séð fyrir þeirri sementsþörf, sem sam- fara er stórframkvæmdum við varanlega vegagerð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.