Morgunblaðið - 26.01.1962, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.01.1962, Blaðsíða 16
16 MORGT /V R r 4 fí ifí Föstudagur 26. jan. 1961 Kristján skipstjóri f ÞEGAR mér barst andlátsfregn Kristjáns Arnasonar skipstjóra, skaut upp í huga mér minmngu frá samvistarárum okkar á sjón- um. Við vorum djúpt úti og norð arlega á Barðagrynni, þegar á okkur rak óðahríð norðan með gaddi. Þetta var á Geysi, 30 smá- lesta skútu, mjórri og valtri eins og kefli. Sigling á slíkum far- kosti í ofsaveðri var engin líf- trygging. En æðrulaus og glað- ur stóð Kristján við stýrið, eins og vandi hans var. Ohagganleg dirfska hans herti upp jafnvel hina deigustu skipshöfn. Barátt- an við höfuðskepnurnar var hon um eðlilegt lífsform. Því hélt hann alltaf sínu jafnaðargeði, á hverju sem gekk. Kristján heitinn fæddist í Reykjavik 4. apríl 1882, sonur hjónanna Arna Kristjánssonar, verzlunarmanns og Jakobínu Jónsdóttur. Ungur fluttist hann ásamt foreldrum sínum til Bíldu- dals, en er veikindi surfu að heimili þeirra, tóku hjónin í Stapadal, Kristján Kristjánsson og Símonía kona hans drenginn í fóstur. Þar ólst hann upp til sextán ára aldurs, við ást og hlýju. eins óg í foreldrahúsum, en á brattri klettaströndinni gnauðaði úthafið. Þannig kynnt- ist hann því snemma og festi ást á því, enda hneigðist hann ung- ur til sjómennsku. A löngum sjómannsferli naut hann sævar- ins jafnt í blíðviðri sem hretum. Hann lauk skipstjórnarprófi 22 ára gamall, og tók við skipi 4 árum síðar. Kristján heitinn var .óvenju farsæll skipstjóri. Hann var hinn mesti aflamaður, vinsæll af mönnum sínum, ágætur stjórn- andi, svo að honum fataðist aldr- ei, á hverju sem gekk, enda hehti engan mann slys undir 30 ára skipstjórn hans. Hann sam- * Arnason rá Bíldudal einaði óvenjuvel í sér tvo höfuð- kosti íslenzka sjómannsins: íor- sjá og dirfsku. Kristján Árnason var einn þeirra manna, sem gaman var að kynnast og þægilegt að eiga samvistir við. Frá honum streymdi hlýja og góðvild. Hann var gæddur næmu fegurðar- skyni, söngvinn með afbrigðum, bæði tónnæmur og með ágæta rödd. Við stýrið söng hann ósjaldan við undirleik Kára, með an hann lét ölduna dilla sér. A sama hátt naut hann náttúrufeg- urðar innilega. Oft sá ég hann horfa til lands á hvassa hnjúka vestfirzku fjallanna og inn í blá- móðu langra fjarða og dala, enda getur vart fegurri landsýn. Mik- ill dýravinur var hann gældi oft við dýr og naut fuglalífsins kringum sig á sjónum. Ekki þoldi hann gáskafuUum ungmennum á skípi sínu að veiða fugla eða hrekkja þá. Kristján var mikiU atorku- og framkvæmdamaður. Þegar hann skildi við litla Geysi réðist hann í það ásamt skipghöfn sinni að kaupa 200 smálesta stálskip og gena út til veiða. Tók hann þá við stjórn á því og flutti með sér aflasæld sína og farsæld alla. Varð þetta hið mesta happaskip undir stjóm hans. Þegar Krist- ján hætti sjómennsku, varð hann framkvæmdastjóri hraðfrysti- hússins á Bíldudal. Gegndi hann því starfi um 12 ára skeið, og naut héraðið því enn um hríð hæfileika þessa trausta dreng- skaparmanns. Kristján kvæntist 1908 Vik- toríu Kristjánsdóttur smiðs á Bíldudal. Eignuðust þau þrjú börn, sem öll eru á lífi. Var þá sár harmur kveðinn að Kristjáni, er hann missti konu sína eftir aðeins 8 ára sambúð frá ungum börnum. Þó að Kristján væri dulur maður á persónulegar til- finningar, er mér kunnugt um það, að hann harmaði jafnan missi konu sinnar, enda kvænt- ist hann ekki á ný, og var hann þó manna fríðastur og hélt sér vel. Mikið ástriki hafði hann á börnum sínum og kom þeim öll- um til mennta. Því var viðbrugð- ið, hversu barngóður hann var, og má vera að móðurleysi hans eigin barna hafi glætt þessa kennd. Annars var hún eðlileg- ur þáttur í drengskap hans. Kristján skipstjóri mun vera mörgum Vestfirðingi hugstæður þessa dagana, er hann hefur sína hinnztu siglingu. Matthías Jónasson. 1 DAG verður til moldar borinn Kristján Arnason skipstjóri er lézt í LandsspítaLanum 20. þ.m. eftir stutta legu nær 80 ára að aldri. Þessa merka athafna- manns, frænda og uppeldisbróð- ur, verður eflaust minnzt ræki- lega af öðrum. Kristján Arnason ólst upp í Stapadal hjá foreldrum mínum Kirstjáni Kristjánssyni og Símoníu Pálsdóttur til 16 ára aldurs er hann fluttist til foreldra sinna á Bíldudal og fór strax að stunda sjómennsku á þilskip- um hjá Pétri Thorsteinssyni. Margar góðar endurminningar á ég frá samverustundum okkar Kristjáns i æsku og síðar eftir að 'hann fluttist til Reykjavikur. Mér er minnistætt.hversu óhrædd ur hann var að klifa kletta þó tæpt væri og aldrei misti hann fótfestu. I návist Kristjáns fannst mér að ég væri alltaf öruggur. Dýravinur var Kristján með af- brigðum, mér er minnisstætt þeg- ar Kirstján fór alfarinn frá Stapa dal hverssu allir söknuðu hans sárt ekki aðeins fólkið heldur líka dýrin. Þeim degi gleymi ég aldrei. Eflaust hefur Kristján átt marg ar endurminningar frá veru sinni í Stapadal og uppvaxtarárum sín um þar og þá ekki sízt fósturmóð ur sem honum þótti afar vænt um. Móðir mín dó 7. maí 1901, þá var Kristján úti á hafi á skútu frá Bíldudal og hafði ekkert sam band við land fyrr en að veiði- tími var búinn. þá var siglt heim þegar. skipið var komið inn undir Stapadal kom yfir Kristján svo mikið magnleysi. að hann gat ekki staðið svo að bera varð hann niður í káettu þegar skipið var komið að Auðahrísdal var Kristján albata, þegar á Bíldudal kom var það fyrsta sem Kristján frétti að. fósturmóðir hans væri dáin. (Þennan atburð sagði Kristján mér sjálfur). í 40 ár skildu leiðir okkar Kristjáns, en síðan hann fluttist til Reykjavíkur hafa leiðir okkar legið saman, bæði á sjó og landi og verða allar þær stundir mér ógleymanlegar. Við fráfall Kristjáns er kvadd- ur góður drengur sem öllum vildi rétta hjálparhönd er kynntist honum. Með þessum fátæklegu orðum, vil eg og bræður mínir senda börnum hans, systrum og öðrum skyldmennum okkar innilegustu samúðarkveðj ur. Páll Kristjánsson. KRISTJÁN ÁRNASON skipstjóri frá Bíldudal. KVEÐJA Fæddur 4. apr. 1882. — Dáinn 20. jan. 1962. Kveðia frá frændkonu. Aður þú til aflafanga áttir marga för, hélzt að landi hafs af miðum hlöðnum veiði knör. Farsæll bæði og fengsæll varstu, — firða bættir kjör. Æddi skeiðin unnar leiðir undir voðum þá, framhjá boðum brims og skerjum brunaði gnoðin smá. Traustar snillings happa henduj hröktu voðann frá. Þú varst hetja ævi alla, áttir vina traust, ræktir, jafnan, trú og tryggðir táls og hræsnislaust. Ætíð þú í hug og háttum heiðarleikann kaust. Mér þú ætíð virkta vinur varst í sæld og þraut, Engin veitti af hreinni huga hjálp á lífsins braut Dást að bínum vinar varma vinur sérhver hlaut. Kveð ég þig nú kveðju hinnstu kæri vinurinn. Er með sæmd á enda liðinn ævidagur þinn. Þitt við leiði þakkir sínar þylur hugur minn. Héðan muntu halda vinur, heim i ókunn lönd. Öska ég hættur engar búi auðnu þinni grönd. Greiði veg þinn eilífð alla ■alvalds líknar hönd. Viktoría Kristjánsdóttir frá Kaldabakka. & SKIPAUTGCRB RIKISINS Ms. ESJA vestur um land í hringferð hinn 30. þ. m. Vörumóttaka á morgun og árdegis á mánudag til Patreks fjarðar, Bíldudais, Þingeyrar, Flateyrar, Súgandafjarðar, ísa- fjarðar, Siglufjarðar Akureyrar, Húsavíkur og Raufarhafnar. — Farseðlar seldir á mánudag. 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 á Andra, sem varð hálf- hræddur. Andra fannst víst krumimi launa hálf- illa fóstrið, en var samt fljótur að fyrirgefa hon- um. Sbundum hafa krakk- arnir fundið dána fugla úti á víðavangi, það finnst þeim ósköp sorg- legt, þau koma þá alltaf með þá heim, svo hvorki hundar né hrafnar geti náð í þá. Þeir fá svo fal- legan pappakassa og hvít ar servíettur hjá mömmu til að jarða þá í. Oft hafa þau fundið hreiður og þá finnst þeim gaman að fylgjast með ungunum. Börnin taka aldrei egg úr hreiðr- unum, því það verða börn fuglanna. Þegar krakkarnir fara að huga að hreiðrunum, sem þeir hafa fundið, ourfa þeir að læsa hundana inni á meðan, svo þeir ko'mizt ekki að því, hvar hreiðrin eru. Þá geta þeir eyðilagt þau og gert fuglunum mein. Einu sinni þegar verið var að. heyja á votengj- um langt frá bænum, fundu þeir andarhreið- ur úti í litlum hólma á ánni. Allan daginn þurfti svo einhver að hafa auga með hundunum, svo þeir réðust ekki á öndina. Börnunum fannst ósköp gaman að geta hjálpað andamömmunni að gæta hreiðursins síns. Þegar okkar endur fara að liggja á eggjum, verða hundarnir að læra að láta villiendurnar í friði. Framlhald. Davia Severn; Við hurfum inn í framtíðina Dick reis með erfiðis- munum á fætur og við gengum suður af hæð- ínni, burt frá turninum. Hér og þar voru hrúgur af einhvers konar taði eftir dýr og við höfðum gengið fram hjá nokkr- um, áður en við tókum r.ð veita þeim verulega athygli. Skyndilega nam Dick staðar og sparkaði með tánni í eina hrúguna. ,,Hérna höfum við stað festingu á því, sem ég sagði. Þarftu frekari sann E.nir. Þetta getur ekki verið í Englandi". „ Eftir hvaða dýr, heldur þú, að þessir haugar téu?“ spurði ég. „Hefi ekki hugmynd um það. Aldrei séð neitt þessu líkt. nema þá kannski í dýragarðmum“. Þegjandi gengum við áfram. Það var það eina, sem hægt var að gera, enda þótt nú eygðum við tæplega neitt takmark fram undan, og taugar okkar voru að því komn- ar að bresta Loks stóð- u.n við á hæðarbrún nokk urri og sáum niður yfir allstóran dal. í þessum dal lá þorp. Ef til vill væri réttara að kalla það einhvers konar nýlendu, því tigulsteins- húsunum með stráþökun- rm, var raðað saman í hringa, algerlega and- stætt hinum beinu húsa- löðum og strætum, sem við eigum að venjast. Við jaðar þorpsins sást grasi vaxinn virkisveggur og borgarsíki og ýmis önmir merki um fornar víggirð mgar sáum við. Fyrir ut- an virkisgarðinn voru þrjú eða fjögur hring- ioga, lokuð svæði. hið stærsta þeirra með hlöðn um veggjum, en hin af- girt' með greinum. sem hrúgað var upp. Innan þessara girðinga voru ikrar og reitir af rækt- uðu landi Brekkan lá iiður að þessum litlu ökrum. Þar sáum við fólk að verki, örsmátt séð úr þe-ssari fjarlægð f hlíðar- slakkanum milli okkar og þess. voru hjarðir á beit. „Þessi landshluti er þó byggður," sagði Dick. „Þeir hafa kindur. Kannski að þeir eigi líka nin dýrin. sem taðið er kemið frá.“ Það rumdi í Dick. „Gamaldags staður. Það er lítið samræmi milli þess, sem við ijáum hérna og turnsins.“ „Þetta er likast mynd úr mannkynssögunni". „Alveg 1‘étJt! Einmitt það, sem mér datt í hug. Og hvers vegna allar þess ar víggirðingar?" „Ojæja“ sagði ég eftir langa þögn, „okkur er líklega bezt að fara niður eftir og vita. hvort þeir geta nokkuð hjálpað okk- ur“. . „Komdu þá.“ sagði Dick og hélt af stað. ,.En Dick, hvernig get- u.m við verið vissir um, að þeir séu vinsamlegir?" Hann nam staðar. .Rétt athugað, Pétur —, þegar við höfmn ■ huffa. við rennum ekki grun í, hvar við erum“. „Þarna er maður. sem situr hinum megin . í brekkunni, svo sem mílu- f.iórðung í burtu. Rétt hjá runnanum þarna vinstra megin við kindurnar“. Dick horfði þangað. „Vel að verið, Pétur. Ég tók ekki eftir honurn". „Líkiega hjarðmaður," sogði ég. ,Ég sting upp á. að við skoðum hann fyrst, áður en við höld- um niður í þorpið." Dick var því samþykk- ur og við lögðum atf stað niður hlíðina, sem víða var skógi vaxin. Trén stóðu sumstaðar þétt sam an runnar af lágvaxinni eik með kvistóttum og kræklóttum stofnum. Þau virtust mjög gömul. Þröst ur flaug grein af grein, tísti og var svo horfinn. Hann gerði okkur bilt við í fyrstu, en þegar við sáum, hvernig hann sveifl aði stélinu móti okkur eins og gamall kunningi, iélti okkur og við hlóg- um hjartanlega. „Þessi1 skógur virðist svo sem nógu enskur útlits,“ sagði Dick. í sömu svifum rak ég i tána í eitthvað hart, svo mig kenndi til, og ég féll fram yfir mig. „Trjárót, hugsaði ég með mér um leið og ég reis á fætur og nuddaði hnéð. Dick var kominn á fjóra fætur og rótaði jörðinni frá ein- hverju. „Gettu, hvað það var, sem þú dattst um“. „Þröskuldur greifingj- ans,“ sagði ég í hálfkær- ingi og færði mig til. Hann hafði rótað mold og grasi frá og í ljós kom brúnin á gljáandi jarn- stöng. „Vinkiljárn úr turnin- um. Það liggur hérna und ir grasrótinni áfram ,sennilega á löngu svæði. 1 reyndi að rispa hinn slétta og skínandi flöt járnsins. „Ekki ein rispa, Pétur. • Þetta getur sýnilega nvorki rispast né ryðgað. Hart eins og stál og sveig aniegt eins og reyr." Með hnífnum gróf hann sex þumlunga djúpa holu nið ur með járninu, en gafst þá upp. Það var eins með það og ísjaka; stærsti hlutinn undir yfirborðinu. „Hvers vegna er það svona djúpt“ spurði ég. „Líklega hefur það leg ið hérna æði lengi". Dick svaraði ekki, Hann hleypti brúnum og íetaði sig áfram, eftir ójöfnunni. sem sást 1 grasinu. Kannske höfum við gengið fimmtíu eða sextíu skref þegar Dick hijóp á undan, eins og athygli hans hefði skyndi Sjáðu, þar sem ójafnan þarna er.“ Hann var búinn að opna hnífinn sinn og iega beinst að einihverju, sem hann sá fyrir fótum sér. Framhald. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.